Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2007, Blaðsíða 1
Laugardagur 18. 8. 2007
81. árg.
lesbók
WAITS TIL DÝRÐAR
ÍSLENSKIR TÓNLISTARMENN KOMA SAMAN Í GAMLA BÍÓI
TIL AÐ FLYTJA LÖG MEISTARANS MIKLA » 3
Woody Allen og nýja konan, Scarlett Johansson » 10
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Nýjasta heimildarmynd MichaelsMoores, Sicko, er sláandi úttekt ábandarísku heilbrigðiskerfi. Einsog Moore lýsir því er maður hissa
á því að yfirleitt nokkur maður skuli lifa það af
að fá pest í því landi og hvað þá alvarlegri sjúk-
dóma.
Moore er við sama heygarðshornið og í fyrri
myndum sínum, gefur þeim sem hann fjallar
um engin grið, svælir þá út úr fylgsnum sínum,
dritar á þá skömmum og skætingi en gefur
þeim aldrei raunverulegt tækifæri á að svara
fyrir sig. Fyrir vikið er Sicko sama marki
brennd og fyrri myndir Moores, hún líkist
frekar áróðursmynd en heimildarmynd og
áhorfandinn fyllist fljótt ákveðnum efasemd-
um, setur varnagla við annað hvert orð.
En það er svo aftur annað mál að upplýsing-
arnar sem Moore dregur fram í dagsljósið í
Sicko um bandarískt heilbrigðiskerfi eru
margar hverjar svakalegar. Maður sagar af
sér tvo putta. Hann er ekki tryggður, fer á
spítala þar sem læknirinn segir honum að það
kosti 60.000 dollara að sauma annan þeirra á
en hinn 12.000. Maðurinn velur ódýrari putt-
ann og situr uppi með stubb á hinum.
Læknir sem starfaði hjá einu stærsta trygg-
ingafyrirtæki Bandaríkjanna upplýsir að hann
hafi fengið því hærri bónus eftir því sem hann
hafnaði fleiri bótaskyldum aðgerðum og spar-
aði þar með fyrirtækinu pening. Moore kemst
að því til samanburðar að læknar í Englandi fá
hærri laun eftir því sem þeim tekst að lækna
fleiri, fá fleiri til þess að hætta að reykja,
lækka blóðþrýsting hjá sjúklingum o.s.frv.
Myndin er því þrátt fyrir allt dágóð lexía
fyrir þá sem vilja færa íslenskt heilbrigðiskerfi
í átt til þess bandaríska. Eða eru þeir kannski
ekki til lengur?
Sláandi
Sicko
MENNINGARVITINN
Michael Moore Býr til áróðursmyndir
fremur en heimildamyndir. Nú þegar sagan um Harry Potter er öll er vert að rýna í handverk J. K. Rowling » 4
Harry Potter allur
Reuters