Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.2007, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.2007, Blaðsíða 12
Eftir Magnús Þór Þorbergsson magnusthor@lhi.is S á siður að rýna í verkefnaval leik- húsana á haustin er svolítið eins og að skoða það hráefni sem kokkur hefur valið áður en hann byrja að elda. Slík rannsókn gefur auðvitað einhverjar vísbendingar um hvaða áherslur muni ráða, hverju áhorfendur geta átt von á, en hún færir þó enga vissu um hver útkoman síðan verður. Það er auðvit- að ákaflega ólíklegt að það takist að reiða fram glæsilega veislumáltíð með ónýtu hráefni og líklegt að óbragðið læði sér alltaf í gegn, hversu mikið sem reynt er að krydda eða skreyta réttinn. Á hinn bóginn hefur það sýnt sig að jafnvel hið besta hráefni tryggir ekki gæði máltíðarinnar. Ef ekki tekst að hitta á rétta tóninn er líklegt að máltíðin klúðrist. En þótt kynningar á verkefnavali segi ekki nema hluta sögunnar gefa þær engu að síður margt í skyn um stefnu viðkomandi leikhúsa, hvar þau staðsetja sig í menningarlífinu og hvert þau álíta hlutverk sitt innan samfélagsins vera. Verkefnaval leik- húss endurspeglar á vissan hátt þá hugmyndafræði sem leikhúsið byggir á, hvort sem slík hugmyndafræði er úthugsuð eða yfirhöfuð meðvituð. Leikhús sem sýnir aðallega söngleiki vinnur augljóslega eftir öðrum mark- miðum og á grundvelli annars konar hugmyndafræði en leikhús sem fyrst og fremst sýnir klassísk dramatísk verk. Vandinn við flest þau íslensku leik- hús sem starfa á föstum grundvelli, sér í lagi opinberu leikhúsin þrjú: Þjóðleikhúsið, Leikfélag Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu og Leikfélag Ak- ureyrar, hefur aftur á móti í þessu samhengi oftar en ekki verið sá, að í gegnum tíðina hefur reynst erfitt að greina afgerandi stefnu eða sérkenni hvers leikhúss fyrir sig. Þrátt fyrir að þessi þrjú leikhús ráði öll yfir hópi fastráðinna leikara má oft sjá sömu leikstjóra og aðra listamenn í öllum húsunum. Þannig leikstýrir Benedikt Erlingsson í vetur í Þjóðleikhúsinu, en fékk Grímuna í fyrra fyrir leik- stjórn hjá LR í Borgarleikhúsinu. Hafliði Arngrímsson leikstýrir bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu í vetur og öll þessi þrjú leikhús ætla í samstarf við Vesturport. Svipað má segja um verkefnaval leikhúsanna. Í gegnum tíðina hafa yf- irlýsingar um áherslu á fjölbreytta blöndu verkefna, þar sem allir eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, heyrst frá öllum leikhúsunum þrem- ur. Þannig hefur mátt sjá á sama svið- inu söngleik við hlið Shakespeares, barnaleikrit í bland við erlendar sál- fræðiflækjur og ný íslensk verk sam- hliða försum. Auðvitað eru skoðanir á þessum áherslum á fjölbreytni skipt- ar. Það má vel færa rök fyrir því að það sé skylda leikhúss sem rekið er á föstum grundvelli fyrir opinbert fé að bjóða upp á slíkt úrval leikverka að allir finni þar eitthvað við sitt hæfi. Á hinn bóginn má allt eins gagnrýna leikhúsin fyrir visst stefnuleysi og skort á afstöðu til hlutverks leikhúss- ins í samfélaginu. Á leikhúsið fyrst og fremst að þjónusta almenning, eða er hlutverk þess annað? Hvað sem því líður, þá hefur þessi áhersla á fjölbreytni þau áhrif að um- ræða um verkefnaval leikhúsana á haustin snýst að öllu jöfnu ekki um stefnu eða hlutverk tiltekins leikhúss, heldur einstök verkefni: hvað er áhugavert, hvað stendur upp úr, hvað er líklegt til vinsælda o.s.frv. Þessi umræða endurspeglast einnig í leik- listargagnrýni fjölmiðla, þar sem hver sýning er skoðuð sem einangrað fyr- irbæri og sjaldnast reynt að setja hana í samhengi við önnur verkefni eða stefnu leikhússins yfir höfuð. Þó er ýmislegt sem bendir til þess að ákveðnar breytingar séu að eiga sér stað varðandi stefnu opinberu leikhúsanna. Leikfélag Akureyrar gengur reyndar lengst í því í vetur að viðhalda áherslu á „eitthvað fyrir alla“: þar er boðið upp á eitt nýtt ís- lenskt verk, eitt nýtt erlent, farsa og barnaleikrit, en bæði hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu má sjá áhugaverðar áherslubreytingar. Þjóðleikhúsið hefur í ár valið þá leið að marka hverju sviði ákveðna stefnu. Á stóra sviðinu ríkir raunar fyrrnefnd fjölbreytni, en hin sviðin bera skýrari einkenni. Á Smíðaverkstæðinu á að leggja áherslu á ný og nýleg erlend verk, íslensk leikritun mun ríkja í Kassanum, en Kúlan verður lögð und- ir starfsemi fyrir yngstu áhorfend- urna. Þessi skýra afmörkun sviðanna fjögurra er mjög áhugaverð og gefur Þjóðleikhúsinu tækifæri til að skapa sér sterkari sérkenni og svigrúm til að vinna markvisst að listrænni þróun þegar til lengri tíma er litið. Íslensk leikhús hafa reyndar ekki verið þekkt fyrir mikið úthald þegar kemur að ný- sköpun, sem að einhverju leyti má skýra með þröngum fjárhag: Ef eitt- hvað „gengur ekki“ í fyrstu tilraun er því oftar en ekki hent og fyrir vikið verður þróun lítil. Það er vonandi að Tinna Gunnlaugsdóttir haldi út þá stefnu sem hér er mörkuð lengur en eitt leikár. Þýska- lands- árið? Í gegnum tíðina hafa yfirlýsingar um áherslu á fjölbreytta blöndu verkefna, þar sem allir eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, heyrst frá öllum opinberu leikhúsunum þrem- ur. Er hið sama upp á teningnum nú? Vangaveltur um verkefnaval leikhúsanna 12 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.