Lesbók Morgunblaðsins - 06.10.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2007 9
til þess tekið hversu mikil samheldni er í flokkn-
um, erlendir danshöfundar sem vinna með okk-
ur taka eftir því hvað hann er sterk heild.“ Katr-
ín segir meðlimi hópsins virka í hugmyndavinnu
og skoðanaskiptum, ef eðli verksins og vinnulag
höfundarins kalla á slíkt, enda mikilvægt að
dansarar séu skapandi, hafi áhuga á öðrum list-
greinum og samfélaginu í heild. „Við höfum allt-
af litið til þessa þáttar, við ráðningar, hvað hver
og einn hefur að gefa. Það er ekki nóg að hafa
tæknina.“
Dans er ekki ósnertanlegur
Í ljósi metnaðar ykkar og vinnu; vantar ekki
mikið upp á faglega gagnrýni og umfjöllun um
danslistina í samfélaginu og fjölmiðlum?
„Jú,“ svarar Katrín að bragði, „mér finnst
töluvert skorta á það, því miður. Það er of lítil
þekking á danslistinni hér, ég verð að játa það
þótt mér þyki það leiðinlegt.“
Nema dansinn sé bara þannig listform að
hann eigi að vera ótúlkaður og handan grein-
ingar?
„Að hann eigi að vera ósnertanlegur? Nei, alls
ekki, mér finnst gaman þegar rætt er faglega og
af þekkingu um listir, það er alltaf til bóta. Ef
það er hins vegar gert af fordómum og fákunn-
áttu, leiðist mér.“ Hún nefnir að í fyrra hafi í
Borgarleikhúsinu verið haldið mjög áhugavert
málþing um listgagnrýni, í pallborði hafi verið
erlendir gestir og íslenskir fræðimenn og gagn-
rýnendur á sviði leikhúss og bókmennta o.fl.
„En mætingin var mjög léleg. Það olli mér von-
brigðum, því við þurfum á faglegum umræðum
að halda,“ segir Katrín. „Það skortir til dæmis á
að danslistin sé metin í stóru samhengi. Ein-
stakir dansarar, til dæmis, hvar eru þeir staddir
á sínum ferli, hvað hafa þeir gert áður, hver er
þroskinn? Og danshöfundurinn, er hann í þróun,
hvaða tilraunir er hann að gera með sinn per-
sónulega stíl?“
Hvað er hægt að gera til að koma hér upp
meiri og faglegri gagnrýni?
„Veistu, þetta mun gerast smám saman, ég
hef engar áhyggjur af öðru. Danslistin hefur
verið í örri þróun og nú er farið að kenna dans
hér á háskólastigi. Umfjöllunin mun elta. En allt
þetta segi ég vitanlega með fullri virðingu fyrir
þeim sem hafa í gegnum tíðina fjallað um efnið
út frá sinni bestu kunnáttu og vitund.“
Katrín tekur fram að aðstandendur Íd séu
duglegir við að mata fjölmiðla á efni og mögu-
legum nálgunarleiðum. „Það skortir ekki áhug-
ann af okkar hálfu. Og við vitum að áhuginn er
þarna úti. Sjáðu til dæmis sjónvarpsþáttinn So
You Think You Can Dance, hann er mjög vin-
sæll og þegar við auglýstum Íslenska dansflokk-
inn inni í þeim þætti þá rigndi hér inn hring-
ingum: Hvar er hægt að kaupa miða á næstu
sýningu? Fjölmiðlar hafa sannarlega áhrif.“
Þarf að sækja fólk
Þið hafið náð miklum árangri í að byggja upp
ímynd og orðspor flokksins, ég held að flestir
viti hver þið eruð og hvað þið gerið. En það er
kannski ennþá stór hópur fólks sem hefur ekki
treyst sér til að mæta sjálft?
Katrín tekur undir. „Já, það þarf svolítið að
sækja fólk. En um leið og það kemur einu sinni,
þá kemur það aftur.“ Hún bætir við að áhorf-
endur þurfi alls ekki að vera neinir sérfræð-
ingar. „Dans þarf ekki endilega alltaf að skilja,
heldur upplifa. Hann gefur svo mikið frelsi, inn-
blástur, og stundum skilur hann mann eftir með
spurningar. En auðvitað eigum við líka að
spegla samtímann og höfum gert það með sýn-
ingum á borð við We are all Marlene Dietrich
FOR, Screensaver og Í okkar nafni, svo ég taki
dæmi.“
Ég ætlaði einmitt að spyrja, með þau verk í
huga: Getur dans verið pólitískur? En þú ert
eiginlega búin að svara því.
„Já, dans getur sannarlega verið pólitískur.“
Hafið þið kannski að undanförnu verið póli-
tískari en leikhúsið eða kannski bókmenntirnar,
sem stundum er borið á brýn að taki ekki beint á
samfélagslegum efnum?
„Ja, ég skal ekki segja. Við höfum kannski
tekið meiri áhættu, miðað við stærð. En ég held
að við eigum að taka áhættu svo við stöðnum
ekki, við eigum að vera leitandi og framsækin –
án þess þó að fara fram úr okkar áhorfendum.
Ég hef lagt áherslu á að finna þarna gullinn
meðalveg, sumar sýningar þurfa að höfða til
áhorfenda, þótt það sé gjarnan talið tabú í okkar
samfélagi. Það má ekki höfða til fólks, þá hlýtur
það að vera vond list. En ég segi: verk eiga að
rata til áhorfenda, uppfylla þörf þeirra. Án þess
að við hættum að gera tilraunir.“
Útrásin skilar arði
Um næstu helgi sýnir Íslenski dansflokkurinn í
fyrsta sinn á Akureyri, en Katrín kveðst hafa átt
í viðræðum um það um árabil, við svo að segja
hvern einasta leikhússtjóra nyrðra. Og nú hafi
loksins skapast tækifæri. „Við förum með fjöl-
skyldusýninguna okkar norður 14. október. Það
verður spennandi.“
Þá liggja fyrir stórar sýningarferðir út fyrir
landsteinana, m.a. til Bandaríkjanna í fyrsta
sinn, en flokkurinn hefur mest sýnt í Evrópu,
auk þess að vinna ný lönd í Kína fyrr á árinu.
Víðförlasta verkið um þessar mundir er We are
all Marlene Dietrich FOR eftir Ernu Ómars-
dóttur og Emil Hvratin, sem sýnt hefur verið í
fjölda landa frá frumsýningu í hitteðfyrra.
Að fara í „listræna útrás“ með sýningar Íd
hefur að sögn Katrínar verið eitt af skilgreindum
markmiðum hennar. „Umframafkastageta
flokksins var þannig að við gátum sinnt fleiri
verkefnum en sýningum í Borgarleikhúsinu. Að
nota verk víðar sem eru framleidd hér er að mínu
viti líka betri fjárfesting í hverju verki.“
En það hlýtur að vera dýrt ævintýri að fara
með heilar danssýningar á flakk?
„Já, mjög dýrt og mjög mikil vinna. Ég held að
fólk geri sér enga grein fyrir vinnunni. Það segir:
Ó, en gaman hjá ykkur að vera alltaf í útlönd-
um.“ Katrín hlær og bætir við sögum af eft-
irminnilegum uppákomum, t.a.m. þegar byggja
þurfti nýja leikmynd á einum degi í Litháen og
þegar leikmyndin kom í hús klukkutíma fyrir
sýningu í Kanada. „Ég leit alltaf þannig á að ut-
anferðirnar yrðu tekjulind. Vissulega borguðum
við með okkur í fyrstu en það var fjárfesting til
framtíðar og er nú tvímælalaust að skila sér.“
Máttu ekkert borða?
En hvað leiddi þig sjálfa út í dansinn?
„Það hefur lengi verið hefð fyrir því hér að
senda litlar stúlkur í ballett. Ég var bara ein af
þeim, týpísk lítil stelpa sem fór í ballett hjá Eddu
Scheving og svo fór amma mín með mig í inn-
tökupróf í Listdansskóla Þjóðleikhússins. Á þeim
tíma heyrðu skólinn og Íslenski dansflokkurinn
saman. Ég komst snemma á nemandasamning í
flokknum, sautján ára, þannig að ég tók 5. bekk í
MR með frjálsri mætingu og 6. bekk utan skóla
því ég var komin á samning. Þannig þróaðist
þetta, ég var metnaðarfull, fékk meira að gera,
stærri hlutverk, meiri áskoranir og fór svo út til
Kölnar. Það var ekki endilega þannig að mig
hefði dreymt um þetta frá upphafi, eitt leiddi
bara af öðru.“
Og dansinn er ennþá hálft þitt líf?
„Já, þetta er í hjartanu og mikið hugsjónastarf.
Þessi listgrein hefur mikið verið rekin á ein-
staklingsframtaki hér á Íslandi og ekki mætt
miklum skilningi samfélags og yfirvalda. Þetta
var kvennastétt og oft var talað um „stelpurnar í
dansflokknum“ eins og þær væru einhver sauma-
klúbbur. Þetta hefur breyst alveg gífurlega. Og
körlum hefur ekki bara fjölgað í dansflokknum
heldur líka í hópi áhorfenda.“
Heldurðu að það hafi kannski haldist í hendur,
skortur á karldönsurum og skorturinn á skilningi
stjórnmálamanna, sem í meirihluta hafa verið
karlar?
„Já, það getur verið. Þetta hefur verið barátta
– sem hefur borið árangur, sem betur fer – en
enn eimir eftir af þessu. Þegar spurt er: Hvað
gerirðu? og maður segir dansari, er aftur spurt:
Já, en hvað starfarðu? Svo eru dansarar enda-
laust að svara sömu spurningunum, hvort þeir
megi ekkert borða og svo framvegis. Það er
þreytandi að vera alltaf að endurtaka sig. Þess
vegna finnst mér þetta svo mikilvægt, vitund og
fagleg umfjöllun.“
Katrín hefur í gegnum tíðina samið dansa, en
segist fyrir löngu hafa ákveðið að nota Íd ekki
sem tilraunastofu fyrir sjálfa sig. „Víða erlendis
hafa listdansstjórar sett sinn eigin svip á flokk-
inn, en sem eini flokkurinn hér höfum við ekki
efni á því. Það er ekki tímabært, við þurfum á
fjölbreytni að halda. Ég hef þess vegna einbeitt
mér að öðru, en líka samið fyrir flokka erlendis
og fundist það gefa mér mikið. Þá er maður líka
metinn á öðrum forsendum.“
Dansarðu ennþá sjálf?
„Nei, ég gef að vísu þjálfunartíma og stjórna
æfingum, en guð forði mér, ég dansa ekki lengur
á sviði! Ég fæ mína útrás með öðrum hætti, í list-
rænni stjórnun. Ég er svo heppin að vera hér, að
fá að fylgja áfram minni sýn, vera með fram-
kvæmdastjóra sem ég vinn náið og vel með, og að
vinna yfir höfuð með fólki sem deilir sömu sýn.
Þetta er í raun draumaframhald á starfi dans-
arans.“
ta
» „Það ríkir jákvæð samkeppni innan flokksins. Dansararnir
hafa mikinn metnað til að gera betur en þeir styðja líka hver
annan. Það er til þess tekið hversu mikil samheldni er í flokknum,
erlendir danshöfundar sem vinna með okkur taka eftir því hvað
hann er sterk heild.“
Morgunblaðið/Golli
Í okkar nafni Hann gefur svo mikið frelsi, innblástur, og stundum skilur hann mann eftir með spurningar. En auðvitað eigum við líka að spegla samtímann og höfum gert það með sýningum á borð
við We are all Marlene Dietrich FOR, Screensaver og Í okkar nafni, svo ég taki dæmi.“