Lesbók Morgunblaðsins - 06.10.2007, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 06.10.2007, Page 13
virðir Njál, allt nötrar á þinginu. Skarphéðinn tekur til sín slæðurnar en kastar bláum brókum til Flosa og kvað „hann þeirra meir þurfa.“ Hvers vegna bar hann þessar bræk- ur með sér, var allt þaulhugsað? Flosi er nú bæði reiður og undrandi og spyr: „Hví mun ég þeirra meir þurfa?“ Þá kemur hið eitraða svar frá Skarphéðni sem niðurlægir Flosa frammi fyrir þingheimi, „því þá ef þú ert brúður Svínafellsáss, sem sagt er, hverja hina níundu nótt og geri hann þig að konu.“ Flosi hefði verið gunga og ekki átt sér viðreisnar von hefði hann látið þetta yfir sig ganga. Hann átti aðeins einn kost til að verja sæmd sína, að fara að Njálssonum með járni eða eldi. „Hér eiga miklir ógæfumenn hlut að“ sagði hinn vitri Hallur á Síðu, tengdafaðir Flosa, og má sannarlega taka undir það. Þetta sama segir Njáll einnig við þessi endalok. Hvers vegna tek ég Flosa í sátt? Hann sýnir á öllum stigum að sátt er honum efst í huga eftir Höskuld. Atvik og atburðir breyta hins vegar góðum ásetningi hans hvað eftir annað. Hann veit að líf þeirra allra liggur við ef honum mistekst. Skarphéðinn og Kári eru í raun ósigrandi. Njáls- synir eru vinasnauðir eftir víg Höskulds. Þess vegna er eldurinn efst í huga Flosa til að forðast mannfall, þetta gerir hann upp við sig áður en til orrustu er lagt enda fer hann til kirkju á Svínafelli áður en hann leggur upp í förina og talar við guð sinn. Öll framganga Flosa er í raun, sé hún skoðuð í ljósi staðreynda, drengileg. Hann vill forða Njáli og Bergþóru úr eldhafinu. Hann virðir Kára og veit að hann harmar son sinn sem ómaklega brann inni. Strax og brennan er um garð geng- in segir Flosi: „Bæði munu menn þetta kalla stórvirki og illvirki.“ Ennfremur segir hann, þegar menn hans fara að hæla sér af brennunni, „öðru munum vér hælast mega en því er Njáll og Bergþóra hafa inni brunnið því að það er enginn frami.“ Hann veit sem er að tilneyddur hef- ur hann vegna eigin sæmdar framið glæp. Eftir lokaorrustuna við Skarphéðin á Þingvöllum segir Flosi við sína menn: „Nú verða aðr- ir hvorir að hníga fyrir öðrum.“ Hann varð nauðugur í raun, gegn vilja sínum, að drepa Njálssyni – það er sæmdin sem knýr hann áfram. Flosi og Kári skilja hvor annan og sýna hvor öðrum í raun vináttu. Frægasta dæmi þess er þegar Kári á jólum kemur í Hrossey, Gunnar Lambason er að segja brennusög- una og Kári hlýðir á. Sigtryggur konungur spurði: „Hversu þoldi Skarphéðinn í brennunni?“ „Vel fyrst“ segir Gunnar, „en þó lauk svo að hann grét.“ Þá hljóp Kári inn eft- ir höllinni og hjó á hálsinn á Gunn- ari og tók af svo snöggt höfuðið, að það fauk upp á borðið. Sigurður jarl hrópar: „Takið Kára og drepið hann.“ Kári svarar um hæl: „Það munu margir mæla, herra, að ég hafi þetta verk fyrir yður unnið að hefna hirðmanns þíns.“ Nú er það Flosi sem stöðvar það að Kári sé tekinn og segir: „Gerði hann það að sem hann átti.“ Flosi sagði síðan brennusöguna og bar öllum mönn- um vel og var því trúað. Fegurstur er þó lokaþáttur sög- unnar þegar Kári hefur í raun kálað eða komið í kring að um helmingur brennumanna er fallinn. Kári brýt- ur skip sitt við Ingólfshöfða í vondu veðri. Hann á engan kost annan en að ganga til Svínafells og reyna þegnskap Flosa. Flosi þekkir höf- uðandstæðing sinn, sprettur upp og kyssir Kára og bauð honum þegar vetursetu. Þarna sættast þeir heil- um sáttum. Kári, þessi glæsihetja, gengur að eiga Hildigunni ekkju Höskulds sem Kári vó með Njáls- sonum. Er af þeim Kára og Hildi- gunni kominn mikill ættbogi og göf- ugur sem enn einkennir Öræfinga. Það er vandi að velja sér hetjur í Njálu, þar ber hver af öðrum. Þegar Matthías Johannessen ritstjóri spurði forðum Jakob Jóhannesson Smára ljóðskáld hver væri hans hetja í Njálu svaraði hann að það væri Flosi. Undraðist Matthías val- ið. Enda var það svo að um aldir voru fáir drengir skírðir þessu fal- lega nafni, Flosi. Árið 1910 báru að- eins 5 nafnið en þeim fer nú fjölg- andi. Sem annað dæmi um áhrif Njálu á nafngiftir má nefna að eng- inn var skírður nafninu Mörður fyrr en Mörður Árnason, fyrrverandi al- þingismaður, var skírður því seint á sjötta áratugnum. Mörður ætti að vera jafngilt nöfnunum Hörður og Njörður. Lyga-Mörður og fláræðið allt í Njálu vann og vinnur gegn þessu nafni, Mörður. Að lokum vil ég lýsa þeirri nið- urstöðu minni að Flosi Þórðarson á Svínafelli var bæði mikilmenni og drengskaparmaður sem átti í raun engan annan kost í þeirri illvígu deilu sem hlaust af vígi þess manns, sem um margt hefur verið búinn mestum mannkostum og glæsileika allra Rangæinga fyrr og síðar. Höskuldur Þráinsson Hvítanesgoði var engum líkur sakir mannkosta. Hitt skal svo upplýst að enginn ís- lenskur stjórnmálamaður er mér jafnmikil ráðgáta og Mörður Val- garðsson, í honum hefur verið bæði gull og grjót. Flosi Þórðarson hlýt- ur því heitið sæmdarhöfðingi, þrátt fyrir að vera jafnframt brennuvarg- ur. Ljósmynd/Einar Falur Ingólfsson Höfundur er formaður Framsóknarflokks- ins og fyrrverandi landbúnaðarráðherra. Greinin er byggð á erindi sem hann flutti í Sögusetrinu á Hvolsvelli 14. júlí sl. »Hann veit að líf þeirra allra liggur við ef honum mistekst. Skarphéðinn og Kári eru í raun ósigrandi. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2007 13 Lestu mig! Ég er með stór brjóst Eftir Lars Skinnebach þú ert auðveldur minn kæri vinur ég get látið þig drekka þegar ég pissa á þig ef ég bara stilli litlu blautu fallegu tussunni til sýnis hugmynd þín um tómlæti konunnar veitir mér stöðugt frelsi til frumleika þegar ég pissa á þig eru sjö lönd undirlögð reglugerðir væntinga þinna en ég brýt allar reglur með dropum í einni (í prinsip pinu) óendanlegri skiptingu góðæris og loforða velferðar ég, óskráða reiðkonan! ég, félags veran! Þegar ég stilli tussunni til sýnis muntu slefa vanrækja starf þitt auðmýkja sjálfan þig betla afsaka þefa af handakrikum mínum og ýkja tilfinningar þínar (heldur þú að það virki hálfviti heldur þú virkilega að það virki?) Kallar þú á mig? ég vil vita það áður en ég stend á fætur heldur þú að ég nenni að standa á fætur fyrir aumingja einsog þig? þetta var reyndar ekki nein spurning kallar þú á mig? ef það er ekki mjög mjög mikilvægt sprengríð ég þér ég veit ekki hvort mér finnst betra þegar þú færð það og verður vandræðalegur afsakandi meðfærilegur eða rétt á undan þegar ég hef þig í munninum og get rifið þig alveg út úr sjálfum þér hversvegna á ég að hlusta á karlsvín? segðu mér hversvegna á ég að hlusta á karlsvín? vegna þess að ég nýt fallega dýrsins þegar ég geri mig heimska og dofna samviska þeirra vex meðan sæðið volga volga lekur niður bak mitt konurnar þrjár sem þú bauðst til veislu um nóttina voru konurnar þrjár sem þú þráðir mest af öllum sú fyrsta var líf þitt önnur ást þín og ég var sú þriðja sú sem þú þekktir aldrei ég er brjáluð út í þig og bíð í laufskálanum við litlu tjörnina tvö hvít folöld dúa við brjóst mitt eitt hangir svolítið og er fullt af steinum hitt gefur mjólk eitraða af kókaíni og áfengi mig dreymir engi og fjöll og snöggan dauða og börn sem líkjast ósnertanlegum guðum ef þú vilt þekkja mig þarftu að senda mér rifbein úr þinni heittelskuðu og tryggingu fyrir löngun þinni til að verða faðir Um mig segja þeir að ég komi úr fjöllunum að ég sé góð í að sjúga typpi og að ég hafi aldrei lokið viðskiptum með orðinu takk En það er ekki satt ég kem ekki úr fjöllunum og á flatlendinu seldi ég úrið sem var það eina sem faðir minn eftirlét mér og ég sagði takk. Gerðu svo vel Ég kem aftur með breytt hugarfar eftir margra ára menntun og mann einsog þig Kristín Eiríksdóttir þýddi Höfundur er danskt ljóðskáld og verður gestur á Alþjóðlegri ljóðahátíð Nýhils sem hefst 12. október.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.