Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2007, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2007, Side 1
Laugardagur 27. 10. 2007 81. árg. svörtumyndir sigurþórs (teikningar sem blöðin hafa ekki viljað birta !) Ráðhúskaffi, Ráðhús Reykjavíkur 25. okt.– 11. nóv. 2007THE UNTOUCHABLES lesbók TIL FRANKFURTAR? ER MIKILVÆGT FYRIR ÍSLENDINGA AÐ VERA GESTA- ÞJÓÐ Á BÓKAMESSUNNI Í FRANKFURT 2011? » 4 Trúir Guðfinna Bjarnadóttir að sköpunarkenning Biblíunnar hafi vísindalegt gildi? » 2 Reuters Stjórnmáladýrið Sarkozy Bók frönsku skáldkonunnar Yasminu Rezu um Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, L’aube le soir ou la nuit (Dag- renning kvöld eða nótt), er talin útgáfuviðburður haustsins í Frakklandi. Hún lýsir því hvernig hin merka dýrategund sem Aristóteles talaði um á sínum tíma, stjórnmáladýr, verður til í vestrænum samtíma, með tilheyrandi auglýsingamennsku og fjölmiðlasirkus. » 11 Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Önnur bókin um ævintýri Eineygða kattarins Kisa eftir Hugleik Dagsson er komin út og að þessu sinni leitar hann að leyndarmál- inu um tilgang lífsins. Hann finnur meðal ann- ars hundruð mögulegra lykla að hamingjunni á net- inu. Það mætti til dæmis prófa að frelsast í Krossinum, segir hann. En Kötu kanínu líst ekki á það. „Líf mitt væri fokkt öpp ef ég færi ekki af og til í fóstureyð- ingu! Og svo er líka bannað að lessast. Ef ég vil lessast þá lessast ég! Enginn getur bannað mér að lessast!“ En hvað með samtökin Saving Ice- land, spyr þá Kisi. „Einmitt, já, nei takk!“ svar- ar Skúli skjaldbaka, „Ég er ekki að fara að lenda á sakaskrá. Það kemur sér mjög illa fyrir mig sem sölumann dauðans! Auk þess þoli ég ekki trúða!“ Og leitin heldur áfram. Hugleikur Dagsson notar myndasögur sínar til þess að varpa ljósi á undarleika samfélags- ins, þó ekki ljósi upplýsingar. Hugleikur hefur ímyndunaraflið að leiðarljósi, og sjálfsagt þykir sumum það sjúkt ímyndunarafl en það byggist þó á myndasögulegri og bókmenntalegri hefð. Húmorinn, sem er neðanþindarlegur og gor- legur, sækir kraft í yfirstigningu siðlegra og skynsamlegra marka. Allt getur gerst. Þannig er Kisa nauðgað í Leyndarmálinu af Gong-Pa eldfjallaguði í Vestmannaeyjum og verpir eggi sem inniheldur lítið skrímsli sem hann nefnir Kládíus eftir rómverska keisaranum sem stam- aði. Það má enginn missa af þessu! Ævintýri Kisa MENNINGARVITINN

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.