Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.2007, Blaðsíða 5
og á ekki enn, þótt auðvitað sé ég
mjög félagslega þenkjandi. Þegar
söguefni leitar á mig þá er ég ekki
beinlínis að hugsa um það hver verður
niðurstaðan eða hvaða áhrif verkið
muni hafa. Ég er frekar að koma til
skila sögu og sagan verður til í sam-
spili við samfélagið.
Við höfum mælikvarðann á Engla
alheimsins sem var sá að allt í einu
þegar persónur þeirrar bókar, sem
eiga við andleg veikindi að stríða,
stíga fram á svið skáldsögunnar, þá
sér fólk að þetta eru óvenjulegar
manneskjur. Vissulega veikar, en fólk
eins og við með sitt stolt, húmor, lang-
anir og þrár. Þeim líður stundum vel
og stundum illa, rétt eins og okkur.
Þarna er list skáldsögunnar að verki.
Hún hjálpar mér líka. Í Rimlum hug-
ans kynnist ég fanga og konunni hans
og ég sé að þetta er bara fólk rétt eins
og ég og þú og þegar ég fer að kafa of-
an í sögu þeirra sé ég það bara enn
betur.
Ég segi það í sögunni að ég sem
alkóhólisti var opinn og víðsýnn gagn-
vart öllum öðrum en hafði mesta for-
dóma gagnvart sjálfum mér.
Ég held að það að segja sögu Ein-
ars og Evu í Rimlum hugans, að segja
sögu Páls í Englum alheimsins og að
segja sögu fátæka fólksins í Fót-
sporum á himnum sé mín aðferð við að
varpa ljósi á lífið og tilveruna.
Skáldsagan býr yfir þessari mann-
legu nálgun sem til að mynda þjóð-
félagsumræðan býr ekki yfir því þar
er alltaf verið að stimpla og dæma
fólk. Í þjóðfélagsumræðunni verður
fangi bara einn flokkur þjóðfélags-
þegna, hann hættir að vera maður og
verður hugtak; maður á glapstigum,
maður í öngstræti, maður frá brotnu
heimili, gæsluvarðhaldsfanginn B4
eins og í tilfelli Einars Þórs.
Auðvitað vona ég að bókin opni
augu fyrir þessu fólki. Mér finnst
Einar Þór og Eva svo frábærar per-
sónur og flottar manneskjur. Þess
vegna vil ég að fólk kynnist þeim og
þeirra sögu. Í Englum alheimsins
var ég í raun að segja horfum á málin
með opnum augum og í Rimlum hug-
ans held ég að ég sé að segja ná-
kvæmlega það sama: Leyfum Einari
Þór og Evu að njóta sín sem þeir ein-
staklingar sem þau eru. Hættum að
dæma.
Þau hafa líka mikinn húmor gagn-
vart sjálfum sér og kannski vegna
alls þess sem þau hafa gengið í gegn-
um búa þau yfir alla vega ekki minni
þroska en margir aðrir. Það er af því
að þeim hefur tekist að vinna úr
reynslu sinni. Þeirra ósigur hefur
orðið sigur.“
Sagan leiðir mig
– Hversu veigamiklu hlutverki gegn-
ir þín eigin barátta við Bakkus við
skrif þessarar bókar? Þurftir þú að
gera upp við sjálfan þig, fjölskyldu
þína og vini með því að skrifa á jafn
opinskáan og einlægan hátt og þú
gerir?
„Nei, það var ekki drifkraftur
minn. Aftur að því að það er sjálf
sagan sem leiðir mig inn á þessar
slóðir. Ég byrjaði á því að skrifa
ljóðabókina Ég stytti mér leið
framhjá dauðanum. Í henni eru þrjár
meginraddir: Eina byggði ég á vini
mínum sem lenti í hörmulegu slysi,
eldsvoða, en kom til baka og sagði:
„Ég barði á dyr dauðans í heilan
mánuð en var ekki hleypt inn.“ Svo
er Einar Þór kominn til skjalanna,
ástin og Litla-Hraun. Ég sem ljóðið
Ástarstjarna yfir Litla-Hrauni,
páskaljóð sem birtist einmitt í Les-
bók Morgunblaðsins um páskana
2006 og þriðja röddin í Ég stytti mér
leið framhjá dauðanum er rödd alkó-
hólistans þar sem ég er að fást við
sjálfan mig.
Auðvitað er það svo, þegar maður
breytir lífinu í skáldskap, að maður
er einhvers staðar á milli eigin per-
sónu og allra hinna. Skáldskapurinn
sem slíkur væri auðvitað ekkert
áhugaverður ef hann væri bara eitt-
hvað sem ég hefði þurft að segja við
vini mína og fjölskyldu. Ég miðla
þeim þáttum minnar sögu í Rimlum
hugans sem ég tel vera áhugaverða
fyrir aðra. Atvik úr mínu lífi í þessari
skáldsögu eru kölluð fram skáldsög-
unnar vegna, ekki mín vegna.
Í senn er sagan mjög opinská eins
og þú segir en hún er einnig mjög yf-
irveguð. Ég er bara venjulegur mað-
ur sem missi tökin á minni áfeng-
isneyslu og er, eins og flestir sem í
þeirri stöðu lenda, lengi að sjá að ég
hef misst tökin. Ég var lengi blindur
á sjálfan mig en í dag er ég ofboðs-
lega þakklátur fyrir að hafa séð og
viðurkennt eigið stjórnleysi. Ég er
þakklátur alkóhólisti.
Við vitum að á meðan menn eru í
stjórnlausri áfengisneyslu, hvort
sem það heitir hófdrykka, ofdrykkja,
sídrykkja eða hvað, þá skiptir það
menn andlega svo miklu máli að geta
haldið áfram að drekka. Þarna kom-
um við að mikilvægum þætti varð-
andi alkóhólismann. Vímuefni alkó-
hólistans, áfengi, gefur
alkóhólistanum gífurlega mikið.
Bakkus var á ákveðnu tímabili mikill
vinur minn og okkur kom vel saman.
Fyrir virkan alkóhólista er áfeng-
isneysla ákveðin lausn. Fíkn hans
kallar á breytt ástand, vímu. Þess
vegna þarf alkóhólisti sem ætlar að
taka á sínum málum og hætta neyslu
að finna hliðstæða lausn og hann
fann í drykkjunni. Ég hef orðað þetta
þannig að vínið var minn andi en nú
er andinn mitt vín.“
Skáldsagan er harður húsbóndi
– Persónan Einar Már Guðmunds-
son rithöfundur er ein þriggja að-
alpersóna í Rimlum hugans. Hvarfl-
aði það aldrei að þér, eftir að sagan
kom til þín og þú hófst að skrifa
Rimla hugans og komst til dyranna
nákvæmlega eins og þú varst klædd-
ur, að þú kynnir að verða úthrópaður
af einhverjum menningarpostulum
fyrir að vera fallinn í predikanir AA-
fræðanna á kostnað skáldskaparins?
„Nei, ég er er þannig gerður að ég
tek alltaf svona áhættu. Mér er í
rauninni alveg sama, því ég trúi á
málstaðinn og hef alltaf gert það.
Þegar ég er að skrifa skáldsögu þá er
skáldsagan svo harður húsbóndi að
hún leyfir mér ekki að predika, hvort
heldur það eru AA-fræði eða eitt-
hvað annað.
Ég get ekki predikað nein AA-
fræði en ég get hugsanlega miðlað
einhverjum anda, AA-anda. AA-
andinn er mjög skyldur skáld-
skapnum, það er ekki langt þarna á
milli og ég get leyft mér að alhæfa
það út frá bókinni sem heitir AA-
bókin að sú lausn sem er í henni er
mjög góð lausn fyrir marga aðra en
alkóhólista. Hún er bara mjög góð
fyrir allan heiminn.
Menn vita oft hvar listamenn
standa. Þeir hafa ákveðnar stjórn-
sínum augum lítur hver á silfrið.
Hafa dómar mikil áhrif á þig og
skiptir gagnrýnin þig máli?
„Dómar skipta miklu máli, ég ætla
ekkert að gera lítið úr þeim. Í þess-
um efnum vil ég sérstaklega nefna
umfjöllun Reykjavíkurbréfs Morg-
unblaðsins síðasta sunnudag um
Rimla hugans. Mér finnst að sá sem
þar hélt á penna hafi einfaldlega hitt
naglann á höfuðið. Þar stendur
kjarni málsins varðandi þessa bók
mína. Fyrir mig persónulega hafði
þessi umfjöllun höfundar Reykjavík-
urbréfs álíka þýðingu og bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs höfðu
sem ég fékk fyrir Engla alheimsins.
Það þurfti Norðurlandaverðlaunin til
að opna augu manna fyrir Englunum
ég vona að Reykjavíkurbréfið nægi
til að opna augu manna fyrir Riml-
unum. Þar kemur fram djúpur skiln-
ingur og næmi, enda vitum við að
höfundur bréfsins þekkir þessi mál
mjög vel og hefur látið sig þau skipta
áratugum saman.
Jákvæðir dómar gleðja mig vissu-
lega en dómar koma mér þó alla
jafna ekki úr jafnvægi. Auðvitað
nálgast þetta hver með sínu nefi og
ekkert við því að segja. Viðtökur
hafa verið frábærar.
Sannast sagna hefur komið mér
mest á óvart og vakið ánægju mína
hvað varðar viðbrögð við Rimlum
hugans hversu mikil og sterk við-
brögð ég hef nú þegar fengið frá út-
löndum. Til dæmis er Hanser-
forlagið í Þýskalandi þegar búið að
ákveða að gefa bókina út á þýsku og
Danmörk, Noregur, Svíþjóð og Finn-
land sömuleiðis. Jafnframt höfum við
fengið mjög jákvæð viðbrögð frá hin-
um enskumælandi heimi, þannig að
líklega kemur bókin einnig út þar
innan tíðar, sem eru mjög gleðileg
tíðindi fyrir mig.
Ég er mjög spenntur fyrir þessum
skjótu viðbrögðum að utan og eins
fyrir því hvaða viðtökur bókin mun fá
í þessum löndum. Það segi ég vegna
þess að málefni alkóhólista og fíkla
hér á landi eru meira uppi á yfirborð-
inu vegna SÁÁ og AA-samtakanna
en í þessum grannlöndum okkar.
Víða í Evrópu er ekki fyrir hendi
þessi brú yfir í lausnina sem SÁÁ er
hér á landi. Ekki síst þess vegna held
ég að það geti orðið fróðlegt að sjá
hvers konar viðtökur Rimlar hugans
fær þar.“
Einar Már segir áður en blaða-
maður kveður og þakkar fyrir sig að
margar sögur komi til sín. Hann er
með margt til skoðunar, sínar hug-
myndir og annarra, en um þær er
ekki ráðlegt að hafa fleiri orð að
sinni. Hvaða saga velur hann næst
mun tíminn leiða í ljós.
málaskoðanir, tilheyra einhverjum
trúarsöfnuði, eru í AA-samtökunum
og svo framvegis. Það truflar mig
ekki og mér finnst það ekki skipta
neinu máli. Til dæmis finnst mér um-
ræðan um stjórnmálaskoðanir Hall-
dórs Laxness mjög óáhugaverð. Það
er umræðan um verkin, skáldskap-
inn, sem skiptir máli og það eru verk-
in sem maður á að skoða og meta. Al-
veg eins held ég að Rimlar hugsans
sem skáldsaga sé alveg jafn mikil eða
lítil skáldsaga hvar sem ég er stadd-
ur. Út frá sjónarmiði skáldsögunnar
gæti ég allt eins verið að ljúga þessu
öllu!“ segir Einar Már og hlær dátt.
„Ég held að allar góðar skáldsögur
hafi það sem Danir kalla „erf-
aringens smerte“ – sársauka reynsl-
unnar. Sársauki reynslunnar er í
mínum huga það sem kalla má dýpt
skáldsögunnar.“
Sagan prjónar vangaveltur
– Einar Þór er með áhugaverðar
vangaveltur um margt á meðan hann
dvelur á Hrauninu. Hann veltir til
dæmis fyrir sér lögmæti og ólögmæti
fíkniefna með því að bera saman
stöðu forstjóra ÁTVR, sem hefur af
því mjög góða atvinnu að dreifa með
lögmætum hætti vímuefninu áfengi,
og stöðu dópsala, sem í huga flestra
eru svívirðilegir glæpamenn og eiga
réttilega heima á bak við rimla.
Hann veltir því upp að það sé bita
munur en ekki fjár á eðli atvinnu
þessara fíkniefnasala. Hvað segir rit-
höfundurinn um þessar vangaveltur
aðalpersónu hans úr Rimlum hug-
ans?
„Þetta eru vangaveltur sem sagan
prjónar. Við höfum rætt þessi mál og
síðan ber ég þetta svona á borð. Það
er verið að benda á ákveðna mótsögn
í löggjöfinni sem við vitum alveg af
en spurningin er sú hvort við sættum
okkur við hana. Sem þjóðfélags-
þegnar gerum við það í langflestum
tilfellum. Ég hef engan áhuga á að
taka upp baráttu fyrir því að áfengi
verði bannað eða að hass verði á boð-
stólum í grænmetisdeildum stór-
markaðanna! Hins vegar þorir skáld-
sagan að spyrja þessara áleitnu
spurninga sem til dæmis þingmenn
myndu aldrei spyrja. Skáldsagan er
því að spyrja þeirrar þjóðfélagslegu
spurningar: Hvaða hömlur viljum við
hafa í samfélaginu? Aftur finnst mér
svarið vera fólgið í lausninni, hinni
andlegu lausn, frekar en reglugerð-
um um neysluformið sem hvert sam-
félag setur sér.“
Hitti naglann á höfuðið
– Þú hefur fengið leiftrandi góða
dóma fyrir Rimla hugans þótt að
innihaldi séu þeir mjög misjafnir –
mig „Rimlar hugans er lofsöngur til ástarinnar,“ segir Einar Már Guðmunds-son. „Vínið var minn andi en nú er andinn mitt vín,“ segir skáldið.
Morgunblaðið/Kristinn
Rithöfundurinn „Ég miðla þeim þáttum minnar sögu, í Rimlum hugans,
sem ég tel vera áhugaverða fyrir aðra. Atvik úr mínu lífi, í þessari skáld-
sögu, eru kölluð fram, skáldsögunnar vegna, ekki mín vegna,“ segir Einar
Már Guðmundsson. Hann segir einnig: „Þegar ég skrifa skáldsögu, þá er
skáldsagan svo harður húsbóndi, að hún leyfir mér ekki að predika...“
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2007 5
Kolefnisjöfnuð bók!!!
holar@simnet.is
M
bl
9
38
72
7
Íslenskar gamansögur 1
Stórskemmtileg bók.