Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.2007, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.2007, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Ásgeir H Ingólfsson asgeirhi@mbl.is Flestir tengja Edgar Rice Burro-ughs fyrst og fremst við sjálfan konung frumskógarins, enda voru það Tarzan- bækurnar sem gerðu hann fræg- an – og eru svo miklu betri en all- ar teiknimynda- sögurnar og bíó- myndirnar sem á eftir fylgdu. En raunverulegir aðdáendur vita að sögurnar um æv- intýri Johns Carter á Mars eru engu síðri, en því miður voru einungis fyrstu tvær bækurnar (Prinsessan á Mars – sem var frumraun Burro- ughs á ritvellinum – og Stríðsherr- ann á Mars) þýddar á íslensku – og það var fyrir sextíu árum. En nú eru teiknijöfrarnir hjá Pixar að fara að gera þríleik eftir sögunum og verða myndirnar einhvers konar blanda af teiknimynd og leikinni mynd. Umræddur John Carter er nítjándu aldar Virginíumaður en þegar hann heldur sig deyja í borg- arastyrjöld Bandaríkjanna fer hann þess í stað til rauðu plánetunnar, sem við köllum Mars en íbúarnir þar Barsoom. Þar er ástandið ekki mikið skárra en Carter fellur kylliflatur fyrir rauðu prinsessunni Dejah Thoris og verður að sjálfsögðu að sanna sig sem alvöru hetja til þess að vinna ástir prinsessunnar. Vænt- anlega hefur Burroughs haft í huga einhvers konar dæmisögu um hvít- nefja og innfædda íbúa Ameríku, enda bókin upphaflega skrifuð þeg- ar Vestrið var ennþá villt. Þá er þess ógetið að á Mars ganga allir um naktir. Það verður gaman að sjá hvernig Pixar-menn koma því fram hjá kvikmyndaeftirlitum heimsins.    Líf hins goðsagnakennda for-sprakka Nirvana, Kurt Cobain, virðist sannarlega nógu dramatískt fyrir kvikmyndaútgáfu af sögunni en hingað til höfum við aðeins fengið að sjá heimild- armynd Nicks Broomfield, Kurt and Courtney, þar sem ýjað er að því að Cobain hafi ekki framið sjálfsmorð, og Last Days, mynd Gus Van Sant, þar sem við fylgj- umst með dauða rokkstjörnu sem augljóslega er byggð á Cobain. En nú mun fjöldi Cobain-mynd- anna fljótlega tvöfaldast. Um þessar mundir er verið að frumsýna ytra Kurt Cobain: About a Son, þar sem notað er stórt safn segulbands- upptaka af viðtölum rokkarans við blaðamanninn Michael Azerrad og klippt þannig til að Cobain sjálfur segir söguna á meðan við sjáum svipmyndir frá Aberdeen í Wash- ington-fylki, Olympiu og Seattle – en á þessum þremur stöðum eyddi Cobain ævinni. Við sjáum svipmynd- ir af fólkinu sem býr þar í dag, hvað hefur orðið um helstu áningarstaði Cobains – en við sjáum þó ekki and- lit Cobain sjálfs fyrr en undir lokin, en við fáum að hafa rödd hans hand- an grafarinnar með okkur allan tím- ann. Þetta hljómar kannski ekki mjög myndrænt en kvikmyndaskrí- bentar fullyrða að leikstjórinn A.J. Schnack hafi tekið magnaðar mynd- ir til þess að spila rödd Cobain yfir – og rokkgoðið hafi heilmikið for- vitnilegt að segja okkur ennþá. Til viðbótar er svo fyrsta eig- inlega ævisagan í bígerð. David Benioff, sem hefur skrifað handrit mynda á borð við The 25th Hour, Troy og Flugdrekahlauparann, sem er væntanleg, er um þessar mundir við tölvuna að skrifa handrit upp úr ævisögu Charles Cross um rokk- arann, Heavier Than Heaven. Sumir hafa þó áhyggjur af þátttöku ekkj- unnar, Courtney Love, sem fram- leiðir og sumir óttast að það þýði að hennar þáttur verði fegraður ótæpi- lega. KVIKMYNDIR John Carter á Mars. Kurt Cobain Eftir Björn Norðfjörð bn@hi.is Ídægurefni um hin sígildu ár Hollywood erukvikmyndastjörnur jafnan í brennidepli;Greta Garbo, Humphrey Bogart, Kat-harine Hepburn, Cary Grant, Marilyn Monroe, John Wayne o.s.frv. Þær eru helsta að- dráttarafl sígildra Hollywood-mynda í dag ekki síður en þá. Og þótt umfjallanir fræðimanna um tímabilið einkennist lítt af slíkri stjörnudýrkun er fyrirbærið sem slíkt afar miðlægt í skrifum þeirra enda var stjarnan helsta markaðstól Hollywood-myndanna og hverfðist kvikmynda- gerð tímabilsins um hana. Ég hafði því alveg sér- staka ánægju af nýlegri bók Alexanders Neme- rovs, Icons of Grief, þar sem hann skoðar mikilvægan þátt aukaleikara í kvikmyndum Vals Lewtons. Lewtons er fyrst og fremst minnst fyrir hryll- ingsmyndir sem hann framleiddi fyrir RKO- kvikmyndaverið á árunum 1942-1946. Frægust þeirra er Cat People (1942, Jacques Tourneur) en einnig mætti tína til I Walked with a Zombie (1943, Jacques Tourneur), The Ghost Ship (1943, Mark Robson) og The Body Snatcher (1945, Ro- bert Wise). Þótt margar myndanna þyki sígildar í dag voru þetta b-myndir síns tíma sem RKO hafði ráðið Lewton sérstaklega til að framleiða. Það er til marks um hversu mikil áhrif framleið- andinn hafði á afraksturinn að myndirnar eru undantekningalaust kenndar við Lewton fremur en leikstjórana – og engin smánöfn þar á ferðinni. Áhugasömum er bent á að allar níu hryllings- myndir Lewtons fyrir RKO eru fáanlegar í vönd- uðum útgáfum á mynddiskum og eftir áramót er væntanleg mynd eftir Kent Jones þar sem Mart- in Scorsese kynnir Lewton fyrir áhorfendum. Bók Nemerovs er þó allt annað en hefðbundið yfirlitsrit um feril Lewton. Fjórir kaflar taka fyr- ir hver um sig staka mynd og skoða raunar fyrst og fremst aðeins þátt ákveðins aukaleikara (Glenn Vernon, Skelton Knaggs, Darby Jones og Simone Simon). Samfara er þó ofin miklu víð- feðmari saga, bæði saga Lewtons sem rússnesks innflytjanda jafnframt því sem bókin er nokkurs konar stúdía um stríðsárin í Bandaríkjunum. Líkt og áður segir voru þessar myndir RKO- kvikmyndaversins b-myndir og skörtuðu því ekki helstu stjörnum kvikmyndaversins, sem jöfn- uðust reyndar hvort eð er lítt á við stjörnur MGM, Paramount og Warner að frægð. Engu að síður er til staðar í þessum myndum sem öðrum Hollywood-myndum stigskipt kerfi þar sem vægi hlutverka fer eftir stöðu leikaranna innan stjörnukerfisins. Nemerov tekur sér til fyr- irmyndar umfjöllun bókmenntafræðingsins Alex Wolochs um átök aðalpersóna og aukapersóna í skáldsögum og greinir á sannferðugan máta hvernig frásagnir myndanna hverfast um þessa aukaleikara (og auðvitað bætist hér við vídd raunverulegrar persónu sem hefur augljósan hag af sýnileika sínum). Því fer þó fjarri að um sé að ræða almenna til- gátu um þátt aukaleikara sem hægt sé að færa með einföldum hætti yfir á aðrar kvikmyndir. Það er nefnilega rússneskur bakgrunnur Lewtons sem liggur að baki mikilvægi leikaranna. Neme- rov lýsir því á heillandi máta hvernig aukaleik- ararnir sem um ræðir líkjast í lykilsenum rúss- neskum íkonum. Dýpt myndarinnar flest út, frásögnin er rofin, og leikarinn stendur hreyfing- arlaus sem stytta – eða íkon öllu heldur. Það eru þessi íkon sem miðla þeirri hryggð sem fylgdi styrjaldarárunum vestra og Hollywood gat hvorki tjáð með gerðum né orðum. Hryggð sem aðeins aukaleikarar en ekki stjörnur gátu miðlað. Val Lewton og aukaleikarinn SJÓNARHORN »Dýpt myndarinnar flest út, frásögnin er rofin, og leikarinn stend- ur hreyfingarlaus sem stytta – eða íkon öllu heldur. Það eru þessi íkon sem miðla þeirri hryggð sem fylgdi styrjaldarárunum vestra og Hollywood gat hvorki tjáð með gerðum né orðum. Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is K rossferðin beindist sérstaklega gegn listamönnum og var kvik- myndaheimurinn varasamasta gróðrarstía „Rauðu hættunnar“, að mati mannsins sem ofsóknir gegn pólitískum andstæðingum eru kenndar við æ síðan. Frægustu fórnarlömb „mccarthyismans“ er „Hollywood-tían“, handrits- höfundar, leikstjórar og framleiðendur sem dæmdir voru ærulausir af óamerísku nefndinni. Enn eru skiptar skoðanir á hvort þeir hafi til saka unnið, verið hetjur eða landráðamenn. Mis- jöfn viðbrögð gesta þegar Elia Kazan var veittur heiðurs-Óskar árið 1999, eru minnisstæð, en þessi mikilhæfi leikstjóri var einn þeirra sem „nefndi nöfn“, frammi fyrir þingnefndinni. Fyrir fáeinum árum barðist ekkja Stanleys Kramers fyrir því að bann yrði sett á sjónvarpsfréttaþátt þar sem greint var frá því að maður hennar hefði á sínum tíma tekið nafn fyrrum félaga síns, hins útskúfaða framleiðanda Carls Foreman, af kreditlista High Noon. Rokkarnir eru því engan veginn þagnaðir og á kvikmyndahátíðinni í Toronto í haust var frum- sýnd heimildarmyndin Trumbo sem, eins og nafn- ið bendir til, fjallar um eitt þekktasta nafnið í Hollywood-tíunni. Dalton Trumbo (1905-1976), var einn hæst launaði, beittasti, virtasti og stirð- lyndasti handritshöfundur Bandaríkjanna frá því snemma á fjórða áratugnum uns hann varð eitt fyrsta fórnarlamb nefndarinnar um 1947. Hand- ritshöfundur heimildarmyndarinnar er Chri- stopher, sonur Trumbos, en leikstjórn er í hönd- um Peters Askin. Ásakanir og skoðanir Trumbos koma fram í myndinni, sem inniheldur m.a. ræðu sem hann hélt árið 1970, og er endurflutt af leikaranum Dav- id Strathairn. Þar er m.a. haft eftir Trumbo: „Það eru til bæði góð trúarbrögð og vond, drengskapur og óheiðarleiki, hugrekki og heigulsháttur, óeig- ingirni og hentistefna, gáfur og grunnhyggni, illt og gott. Nánast allir þeir einstaklingar sem komu að málinu voru samansettir úr þessum and- stæðum að meira eða minna leyti.“ Kvikmyndahandritið er byggt á samnefndu leikriti Christophers, sem sett var upp á Broad- way árið 2003. Það innhélt ræðustúfinn góða sem var fluttur af Ed Harris, Nathan Lane, Chris Coo- per, Michael Douglas, Tim Robbins og fleiri gæða- leikurum sem skiptust á að fara með hlutverk Dal- tons. Handritið er að mestu óbreyttur texti sendibréfa og minnisblaða sem Trumbo skrifaði og reyndist ótrúlega „sviðsvænn“. Fleiri upplesarar koma við sögu, m.a. Joan Al- len, Liam Neeson og Paul Giamatti, en leikstjóri og handritshöfundur Trumbo, lýsa yfir friði og vilja greiða leiðina til að skoða atburðina í ljósi breyskleika mannkynsins. Christopher Trumbo hefur látið hafa eftir sér að útskúfunin sé ennþá of mikið í umræðunni, okk- ur hætti við að persónugera hlutina, ræðum frek- ar um Hitler en einræði. Faðir hans var og er per- sónugervingur Hollywood-tíunnar, sem var fangelsuð fyrir að neita að svara spurningum óam- erísku nefndarinnar fyrir öllum þessum áratug- um. Tugurinn, auk hundraða annarra, var op- inberlega útilokaður frá vinnu í kvikmyndaborginni í meira en áratug. Á því tíma- bili yfirgaf Trumbo sinn hjartkæra búgarð í Suð- ur-Kaliforníu og dvaldist í útlegð í Mexíkó. Þar hélt hann áfram að skrifa kvikmyndahandrit undir ýmsum nöfnum og ekki nóg með það, hann vann til tvennra Óskarsverðlauna; fyrir Roman Holiday (’53), sem „Ian McLellan Hunter“ og gabbaði síð- an akademíuna í annað skipti fjórum árum síðar með The Brave One, og notaði þá dulnefnið „Ro- bert Rich“. 1973 viðurkenndi akademían mistök sín og veitti Trumbo verðlaunagripinn fyrir The Brave One, með viðeigandi afsökunum. Hún steig skrefið til fulls 1993, þegar ekkja Trumbos tók við Óskarnum sem manni hennar bar fyrir Roman Holiday. Varðveist hefur fjöldi bréfa frá þessum tíma, þar sem Trumbo þakkar þeim sem þorðu að styðja hann á meðan á útlegðinni stóð, s.s. framleiðand- anum Sam Zimbalist (Thirty Seconds Over Tokyo 44), og úthúðar þeim vægðarlaust sem sneru við honum bakinu. Í hópi þeirra sem fengu það óþveg- ið var stjórnarmaður símafyrirtækis. Hann fékk þessi skilaboð: „Þegar við Rauðliðarnir náum völdum munum við skjóta mangarana í eftirfar- andi röð: (1) þá sem eru gráðugir og (2) þá sem eru skynsamir. Þar sem þú fellur undir báða flokkana, verður það dapurleg saga þegar við gómum þig.“ Eftir því sem tíminn leið segir Christopher að faðir sinn hefði sæst á þá skoðun að illska nefnd- arinnar væri einfaldlega skuggsjá veikleika þeirra sem umgengust hann. Úrval bréfa Trumbos, Additional Dialogue: Letters of Dalton Trumbo, 1942-1962, var gefið út á 8. áratugnum og lýsa þau linnulausri baráttu mannsins fyrir frelsi úr útlegðinni og tilkalli til fyrri lifnaðarhátta, sem hann endurheimti loksins eftir 1960. Það var ekki síst fyrir hugrekki og viljafestu Kirks Douglas að Trumbo var end- anlega tekinn af svarta listanum en þessi galvaski aðalleikari og framleiðandi Spartacusar, fékk hann samþykktan sem handritshöfund mynd- arinnar. Skömmu síðar skrifaði Trumbo handrit Preminger-myndarinnar Exodus, og hjólin fóru að snúast að nýju. Ef eftirsjá dýrðardaga vellystinga sem einn hæst launaði penni Hollywoodborgar virkar sem mótsögn við félagsbundinn kommúnistann, þá er það enn meiri ráðgáta í augum Christophers að svo virðist sem faðir hans hafi ekki verið í minnsta vafa um að gerast flokksmeðlimur. Hann hefur sagt að þátttaka Trumbos í flokknum hafi komið móður hans mjög á óvart, þau hjónin hafi rætt inn- gönguna og ákveðið að láta kyrrt liggja. Hollywood hefur löngum haldið á lofti um- ræðunni um Trumbo, ástæðuna segir Christopher þann mikla fjölda sem var samsekur í að bannfæra þá tiltölulega fáu sem voru í raun útilokaðir frá vinnu vegna stjórnmálaskoðana sinna. Kvik- myndasamfélagið finni enn til sektar því óhjá- kvæmilega geri það sér grein fyrir að hlutirnir þurftu ekki að fara svona, en það lét þá gerast. 60 ár frá svörtum lista Í heimildarmyndinni Trumbo er varpað nýju ljósi á höfundinn og nornaveiðarnar á tímum kommúnistabanans Josephs McCarthy. Dalton Trumbo Einn hæst launaðasti, beittasti, virtasti og stirðlyndasti handritshöfundur Bandaríkj- anna frá því á fjórða áratugnum uns hann varð eitt fyrsta fórnarlamb McCarthy-nefndarinnar 1947.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.