Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.2007, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Vofir yfir vetur þungur,
víða er kalt í desember.
Grátin kona og gumi ungur
geta hvergi yljað sér.
Lýsir tunglsins ljósið skært
lítil börn í hlýju dreyma.
Sumir aldrei sofa vært,
sumir eiga hvergi heima.
Dátt er sungið lag með ljóði,
ljóssins hátíð er við völd.
Mæðgin þegja þunnu hljóði
það er aðfangadagskvöld.
Góðu börnin gjafir fá;
Gítar! En sá sældarfengur!
Fátæk móðir ekkert á
í örmum hennar kaldur drengur.
Fimbulkuldi, frostið meiðir
föla móður, lítið skinn.
Blíður maður barn sitt leiðir:
„Má bjóða ykkur tveimur inn?“
Inni í hlýju ylja sér
ást er til í þessu landi.
„Elsku vinur, þakka þér.
Þetta er sannur jólaandi.“
Steindór Dan Jensen
Andi jólanna
Höfundur er laganemi.