Morgunblaðið - 23.01.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 22. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
fer fram föstudaginn 26. janúar
Sjá nánar dagskrá á www.si.is
á Grand Hótel Reykjavík
ÚTBOÐSÞING 2007
SAMTÖK IÐNAÐARINS
WWW.SI.IS
PRESTURINN Í FBI
ÞJÓÐERNI TÆKNILEG AÐGREINING
ÓPÓLITÍSKUR TOSHIKI Í LJÓÐUM >> 20
SKAFTFELL BÝÐUR
UPP LISTAVERK
METNAÐUR
UPPBOÐ Í REYKJAVÍK >> 37
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
ÞAÐ HLAUT að koma að því og í
gær gerðist það: Úrvalsvísitala
kauphallarinnar, OMX á Íslandi,
náði hæsta lokagildi frá upphafi eða
6.930 stigum. En lokagildið var líka
sögulegt að því leyti – eins og bent
er á í Vegvísi Landsbankans – að
fyrir tæpu ári eða 15. febrúar var
lokagildi vísitölunnar 6.925 stig og
það var ekki fyrr en í gær sem
hærra lokagildi loks náðist.
Það hefur því
tekið markaðinn
tæpt ár að ná því
flugi sem hann
var á áður en ís-
lensku bankarnir
og íslenska hag-
kerfið urðu fyrir
gagnrýni er-
lendra greinenda
og matsfyrirtækja í fyrravetur en
hún varð til þess að bæði íslenska
krónan og hlutabréf snarféllu.
Greiningardeildir viðskiptabank-
anna spá því að úrvalsvísitalan muni
hækka um 20–25% á árinu öllu og
gangi það eftir ætti hún hugsanlega
að geta farið yfir átta þúsund stig.
Vísitalan hefur raunar þegar hækk-
að mjög mikið eða um 8,5% þótt
ekki séu liðnar nema um þrjár vik-
ur af nýja árinu. Mest hækkun hef-
ur orðið á gengi bréfa FL Group,
Teymis, Actavis og Kaupþings
banka, en það hefur hækkað um
meira en 10%.
Úrvalsvísitalan á hátindi
Tók markaðinn tæpt ár að vinna upp hrunið frá í fyrravetur
Vísitölumet slegið | 13
JÓHANNES Páll II
páfi íhugaði alvar-
lega að segja af sér
vegna heilsubrests
árið 2000, fimm ár-
um áður en hann
lést.
Einkaritari páf-
ans, Stanislaw Dziw-
isz kardináli, stað-
festir þetta í bók sem
gefin verður út í
febrúar. Hann segir að Jóhannes Páll hafi
íhugað að breyta reglum kaþólsku kirkj-
unnar til að gera páfum kleift að draga sig
í hlé um áttrætt.
Í bókinni, sem nefnist „Líf með Karol“,
kemur einnig fram að páfinn og kardínál-
inn voru sannfærðir um að sovéska leyni-
þjónustan KGB hefði staðið á bak við til-
raunina til að myrða páfa árið 1981.
Dziwisz segir að stjórnvöld í Kreml hafi
litið á páfa sem ógn við Sovétríkin.
„Öll böndin berast að sovésku leyniþjón-
ustunni KGB,“ skrifar Dziwisz sem var
einn af nánustu aðstoðarmönnum páfa í
fjóra áratugi.
Páfi íhugaði að
segja af sér
Stanislaw Dziwisz
kardináli með páfa.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
TALIÐ er mjög varasamt fyrir
ferðafólk að fara til fjalla næstu
daga vegna snjóflóðahættu sem
ágerist með degi hverjum í hlýinda-
kaflanum sem nú er hafinn eftir
langvarandi frost.
Snjóflóð hafa á undanförnum vik-
um fallið bæði sunnanlands og norð-
an, nú síðast með alvarlegum afleið-
ingum þegar vélsleðamaður lenti í
djúpu snjóflóði í Hlíðarfjalli á
sunnudag. Þá hafa fjallgöngumenn í
Esju lent í snjóflóði en sluppu
naumlega við alvarleg meiðsl. Einn-
ig hafa snjóflóð fallið á Vestfjörðum
og teppt umferð m.a. í Óshlíð.
Að sögn Leifs Arnar Svavarsson-
ar, sérfræðings hjá Veðurstofu Ís-
lands, hafa snjóalög að undanförnu
verið afar óstöðug, þótt þau hafi á
hinn bóginn ekki verið mjög mikil.
„Við höfum alltaf áhyggjur af snjó-
flóðum þegar hitastig hækkar, eink-
um þegar hitastigið fer yfir frost-
mark,“ bendir hann á.
Snjórinn ummyndaðist illa
Fyrr í vetur náði víðtækur hláku-
kafli nánast yfir landið allt og í kjöl-
farið lagðist þunn snjóþekja yfir,
samfara töluverðum kulda. Það
gerði það að verkum að snjór um-
myndaðist illa á þann hátt að hann
fauk til og myndaði lausbundna
skafla ofan á hjarninu. Þetta við-
kvæma ástand snjóalaga hefur ver-
ið staðfest með snjóflóðamælingum
í fjöllum víðsvegar um landið.
Veðurstofan fylgist að jafnaði
með snjóflóðahættu á þekktum
stöðum yfir byggð en ástandið hef-
ur ekki gefið tilefni til að óttast snjó-
flóð í byggð. „En það hefur samt
verið full ástæða fyrir ferðamenn til
að fara varlega og nú þegar hlýnar
til fjalla má búast við fleiri snjóflóð-
um af náttúrulegum orsökum,“ seg-
ir Leifur.
Með náttúrulegum orsökum er
átt við snjóflóð sem ekki eru af
mannavöldum, þ.e. önnur flóð en
þau sem falla t.d. þegar skíða- eða
göngumenn skera í sundur snjó-
fleka eða þegar vélknúnum öku-
tækjum er ekið upp í brekkur með
sömu afleiðingum.
Það sem gerist er að í hlýindum
þyngist snjórinn og getur runnið
sjálfkrafa af stað.
Stóraukin snjóflóðahætta
í hlýindunum framundan
Sérfræðingar telja varasamt fyrir ferðafólk að fara til fjalla næstu daga
Í HNOTSKURN
»Snjóflóð hafa falliðbæði sunnanlands og
norðan undanfarna daga.
»Vélsleðamaður slas-aðist alvarlega á
sunnudag þegar hann
lenti í snjóflóði.
»Hætta á snjóflóðumeykst þegar hitastig
hækkar.
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik tryggði sér sæti í milli-
riðli heimsmeistaramótsins með
öruggum sigri á Evrópumeist-
urum Frakka í Magdeburg í
Þýskalandi í gærkvöld. Íslend-
ingar voru með yfirhöndina allan
leikinn, náðu hvorki meira né
minna en tíu marka forskoti í
fyrri hálfleik og unnu að lokum
átta marka sigur, 32:24. Íslenska
liðið náði efsta sætinu í B-riðli
með þessum stóra sigri og fer
áfram í milliriðilinn með tvö stig
og átta mörk í plús en Frakkar
fara áfram án stiga og með átta
mörk í mínus.
Ísland mætir Túnis í fyrsta leik
sínum í milliriðlinum á morgun og
leikur síðan við Pólland, Slóveníu
og Þýskaland.Morgunblaðið/Günter Schröder
Magnaður
sigur á
Frökkum