Morgunblaðið - 23.01.2007, Side 2

Morgunblaðið - 23.01.2007, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag þriðjudagur 23. 1. 2007 íþróttir mbl.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA íþróttir Karl Jóhannsson í heimsókn í höllina sem hann lék í á HM 1958 >> 2 ÍVAR LÉK 400. DEILDALEIKINN VAR AÐEINS 13 ÁRA GAMALL ÞEGAR HANN LÉK SINN FYRSTA DEILDALEIK Í MEISTARAFLOKKI >> 7 Sigurinn er einn sá magnaðasti sem íslenskt handknattleikslandslið hef- ur unnið. Þar með tryggði íslenska landsliðið sér efsta sætið í B-riðli og tvö stig áfram í milliriðlakeppnina sem fram fer í Dortmund og Halle/ Westfalen og hefst á miðvikudag. Ólafur sagði í viðtali við Morg- unblaðið eftir tap fyrir Úkraínu í fyrradag að hann hefði brugðist lið- inu sínu. Fyrir leikinn í gær hengdu íslenskir stuðningsmenn landsliðs- ins upp skilti í Bördelandhalle sem á stóð: Óli, þú bregst okkur ALDREI! Og Ólafi brást ekki bogalistin í gær og hann lék eins hann getur best, eins og reyndar allt íslenska lands- liðið. Erum snarklikkaðir eins og íslenska veðrið „Ég er kannski orðinn of gamall til þess að draga vagninn sjálfur og því var ég m.a. hvíldur á stundum í varnar- og sóknarleiknum. Ég lét mig flæða um völlinn í rólegheitum, gerði mitt og horfði síðan á mína menn gera það sem þeir áttu að gera. Það var alveg æðislegt,“ sagði Ólafur við Morgunblaðið. Er það eingöngu hugarfarið sem breytist á einum sólarhring? „Já, klárlega var það bara hug- arfarið sem breyttist. Við erum eins og íslenska veðrið; snarklikkaðir. Það er eina orðið sem ég á yfir þetta allt saman. Veðrið heima er líka svona eins og við, breytist rosalega hratt. Síðan má heldur ekki gleyma því að við byrjuðum leikinn einstaklega vel, sem gaf verulegan byr í seglin og menn fengu um leið trú á því sem þeir þurftu að gera til þess að vinna Frakka. Leikurinn við Úkraínu var hneisa en nú snúast hlutirnir upp í góðan draum,“ sagði Ólafur Stef- ánsson. „VIÐ verðum að geta prentað það hugarfar inn hjá okkur sem ríkti í liðinu í kvöld, líka þegar við er- um álitnir betra liðið og eigum að vinna. Þessi leik- ur var alveg stórkostlegur og allir leikmenn liðsins eiga hrós skilið. Eins og við vorum ömurlegir í gær vorum við frábærir í dag,“ sagði Guðjón Valur Sig- urðsson, hornamaður ís- lenska landsliðsins, við Morgunblaðið eftir sig- urleikinn á Frökkum, 32:24, á heimsmeist- aramótinu í handknattleik í Magdeburg í gærkvöldi. Við höfum ekkert unnið ennþá „Þótt við fögnum eins og heimsmeistarar núna höf- um við ekki unnið neitt ennþá, aðeins tryggt okkur sæti í milliriðlakeppninni. Við tökum tvö stig áfram í milliriðil og ég vonast til þess að það hjálpi okkur í baráttunni í honum. Við vorum rétt stemmdir og náðum hreinlega að kaf- færa Frakkana strax á fyrstu mínútunum,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson og viðurkenndi að hann gæti vart mælt sökum gleði. Morgunblaðið/Günter Schröder  Glæsisigur Íslensku landsliðsmennirnir fagna innilega eftir frækinn sigur á frönsku Evrópumeisturunum í Magde- burg í gærkvöld. Átta marka sigur sem tryggði Íslandi sigur í B-riðli keppninnar og liðið fer með tvö stig í milliriðilinn þar sem það mætir Túnis í fyrsta leik á mið- vikudaginn. „Ég lét mig flæða um völlinn“ „NÚ lét ég mig flæða um völlinn og treysti á liðið mitt og um leið kemur í ljós hversu sterkt það getur verið. Ég óskaði eftir kraftaverki og sú ósk rættist,“ sagði Ólafur Stef- ánsson, fyrirliði íslenska landsliðs- ins, við Morgunblaðið eftir fræki- legan sigur þess á Evrópumeisturunum, Frökkum, 32:24, í gríðarlegri stemningu í Bördelandhalle í Magdeburg. Ömurlegir í gær en frábærir í dag Óskaði eftir kraftaverki og óskin rættist, sagði Ólafur Eftir Ívar Benediktsson í Magdeburg iben@mbl.is Yf ir l i t                                  ! " # $ %          &         '() * +,,,                        Í dag Sigmund 8 Forystugrein 24 Staksteinar 8 Viðhorf 26 Veður 8 Umræðan 26/29 Úr verinu 12 Bréf 27 Viðskipti 13 Minningar 30/35 Erlent 14/15 Leikhús 38 Menning 16/17, 37/40 Myndasögur 40 Akureyri 18 Dagbók 42/45 Austurland 18 Staður og stund 42 Suðurnes 19 Víkverji 44 Landið 19 Velvakandi 44 Daglegt líf 20/23 Ljósvakamiðlar 46 * * * Innlent  Snjóflóðahætta ágerist með hverjum degi í hlýindakaflanum sem nú er hafinn eftir langvarandi frost. Er því talið mjög varasamt fyrir ferðafólk að fara til fjalla næstu daga. Snjóflóð hafa á undanförnum vikum fallið bæði sunnanlands og norðan. » Forsíða  Þriðju umræðu um Ríkisútvarpið ohf. lauk á Alþingi laust fyrir hádegi í gær með því að stjórnarandstaðan gaf út sameiginlega yfirlýsingu um framgang málsins og stefnu sína í málefnum RÚV. Atkvæðagreiðsla um frumvarpið fer fram í dag. Þriðja umræða um Ríkisútvarpið ohf. hafði þá þegar tekið rúmar 56 klukku- stundir og 46 ræður verið fluttar. » 10 Viðskipti  Úrvalsvísitala Kauphallarinnar, OMX, náði hæsta lokagildi frá upp- hafi eða 6.930 stigum. En lokagildið var líka sögulegt að því leyti að fyrir tæpu ári eða 15. febrúar var loka- gildi vísitölunnar 6.925 stig og það var ekki fyrr en í gær sem hærra lokagildi náðist. » 13 Erlent  Evrópusambandið hvatti til þess í gær að mynduð yrði sem fyrst rík- isstjórn í Serbíu sem legði áherslu á gott samstarf við sambandið. Stjórn- málaskýrendur í Serbíu búast við að flokkar, sem vilja góð samskipti við ESB og Vesturlönd, muni að lokum mynda samsteypustjórn en telja að þröskuldarnir séu margir. »14  Minnst hundrað manns biðu bana þegar tvær bílsprengjur sprungu svo til á sömu stundu í miðborg Bagdad í gær. Er þetta mannskæð- asta árásin sem gerð hefur verið í Írak það sem af er árinu. » 14  Forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum á næsta ári verða lengstu og dýrustu kosningar í sögu lands- ins, að mati fyrrverandi formanns al- ríkiskjörstjórnarinnar. »15  Ríkissaksóknari hefur heimild til að krefjast þess að öryggisráðstöf- unum verði beitt gegn Ágústi Magnússyni, dæmdum kynferð- isafbrotamanni. Ágúst, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi árið 2004, beit á agn fréttaskýringaþáttarins Kompáss. Barnaklám fannst í tölvu hans. » 6 Risa útsa la H im in n o g h af /S ÍA Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16 og sunnud. 12–16 FRAMLEIÐSLA á kjöti jókst um 4% milli áranna 2005 og 2006. Mest jókst framleiðsla á alifuglakjöti eða um 15,3% en framleiðsla á bæði nautakjöti og kindakjöti dróst hins vegar saman. Framleiðsla á hrossa- kjöti jókst um 11,5% og sala innan- lands um 39%. Framleiðsla og sala á svínakjöti jókst um 8,4%. Framleiðsla kindakjöts dróst sam- an um 1,1% og sala um 3,2%. Út- flutningur var 9,5% minni á árinu 2006 en 2005. Framleiðsla á naut- gripakjöti dróst saman um 9,9% og sala um 10,8%. Framleiðsla og sala mjólkur og mjólkurvara var með besta móti á árinu. Innvigtun hefur ekki verið meiri síðan 1980 en þá nam fram- leiðsla 117,2 milljónum lítra en var nú tæplega 117,1 milljón lítra eða 7% meiri en árið 2005. Aukning varð í sölu flestra vöruflokka, m.a. drykkjarmjólkur og osta. Samdrátt- ur varð hins vegar í sölu á skyri og jógúrtvörum. Engin grillstemning „Það var söluaukning á dilkakjöti árið 2005 og frameftir ári 2006, en hún virðist frekar hafa gengið til baka,“ segir Jóhannes Sigfússon, formaður Landssambands sauðfjár- bænda. Hann bendir á að samdrátt- urinn hafi verið mestur síðustu þrjá mánuði ársins. Jóhannes bendir á að undanfarin misseri hafi verið söluaukning á öllu kjöti. „Við viljum þakka það mun betri framsetningu á dilkakjöti. Það er aukin fjölbreytni. En það hefur ekki verið auglýst mikið í sumar og haust.“ Þá hafi sala í grillkjöti sl. sumar verið léleg sem skýrist af veðurfari. „Það var bara engin stemning í grill- inu og það hefur veruleg áhrif.“ Jóhannes segir ljóst að samkeppni á kjötmarkaði sé harðnandi. Þá muni tollalækkun hafa sín áhrif. „Við munum leggjast yfir þetta, spýta í lófana og reyna að gera bet- ur.“ Framleiðsla á kjöti jókst um 4% í fyrra Útflutningur á kindakjöti dróst saman um 9,5% Í HNOTSKURN »Innbyrðis skipting kjötteg-unda á markaði breyttist milli áranna 2005 og 2006. »Alifuglakjöt náði 27,9%hlutdeild og svínakjöt 24,7% hlutdeild en hlutur kindakjöts var 30,6% og naut- gripakjöts 13,7%. SIGURÐUR Hlöðversson, skip- stjóri á Hlödda VE 98, hefur aflað vel undanfarna daga á línu. Hann rær einn á báti sínum frá Vest- mannaeyjum og hefur undanfarið lagt í kringum Þrídranga vestur af Heimaey. Á sunnudag landaði hann um þremur tonnum sem fengust á tólf bjóð og í gær tveimur og hálfu tonni sem fengust á tíu bjóð, það eru 250 kg á hvert bjóð eða bala. Sigurður sagði í samtali við Morg- unblaðið að illa hefði viðrað til sjó- sóknar undanfarið, en hann hefði fengið viðbragð þegar hann komst á Drangasvæðið. „Þetta er bara ýsa, fín ýsa,“ sagði Sigurður. Hann sagði að fjórir til fimm bátar reru nú með línu frá Eyjum. „Þetta er með því betra sem gerist hér á línu. Ég byrj- aði að róa með línu í fyrrahaust og þetta er annað haustið sem ég ræ með línu. Þegar ég byrjaði sögðu mér menn að það væri talið gott að fá hundrað kíló á bala. Maður er bara sáttur við þennan afla.“ Nú er spáð brælu, en skyldi Sig- urð dreyma fyrir aflabrögðum og veðri? „Það kemur nú fyrir, en ég er bara svo lélegur að lesa úr því,“ sagði Sigurður. „Mig dreymdi oft eina rauðhærða sem ég þekki. Það passaði að þá gerði vitlaust veður. Svo var ég á loðnu á Kap VE og við vorum fyrir norðan land. Einu sinni sagði ég við skipstjórann: Jæja Helgi minn, nú er ástand á því. Mig hefur oft dreymt þessa rauðhærðu – en nú dreymdi mig mömmu hennar. Ég held við ættum bara að koma okkur heim. Það passaði að í tíu daga var kolvitlaust veður og við keyrðum bara heim til Eyja.“ Morgunblaðið/Sigurgeir Línuýsa Uppistaðan í aflanum er góð ýsa og fengust 250 kg á hvern bala. Morgunblaðið/Sigurgeir Skipstjórinn Sigurður Hlöðversson á Hlödda VE var ánægður með aflann sem hann landaði. „Þetta er bara ýsa, fín ýsa“ SAMSTARFSMENN Margrétar Sverrisdóttur í borgarstjórnarflokki Frjálslynda flokksins hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir heita henni fullum stuðningi til forystu- starfa í flokknum. „Við undirrituð, samstarfsfólk Margrétar Sverrisdóttur, styðjum hana heilshugar til forystustarfa í Frjálslynda flokknum. Verk Margrétar bera vott um víð- sýni og þau stefnumál sem Margrét hefur staðið vörð um eru mikilvægt innlegg í landsmálin. Meðal þeirra málaflokka sem hún hefur sinnt af alúð eru velferð, menntun, umhverfi og aðrir almannahagsmunir án þess að skerða frelsi einstaklinga til fram- kvæmda. Hún hefur í störfum sínum sýnt það og sannað að hún er trúverðugur leiðtogi sem fylgir af festu yfirlýstri stefnu. Margrét hefur flesta kosti sem prýða góðan stjórnmálamann. Hún leysir mál af fagmennsku á grundvelli þekkingar og reynslu sem hún hefur öðlast í gegnum fjölbreytt ábyrgðarstörf í borgarstjórnarflokki F-listans og víðar. Við treystum Margréti vel til góðra verka og teljum að flokkurinn sé mun sterkari með Margréti í for- ystusveit. Samstarfsfólk í borgarstjórnar- flokki F-lista, frjálslyndra og óháðra, Guðrún Ásmundsdóttir, Kjartan Eggertsson, Ólafur F. Magnússon, Ásta Þorleifsdóttir, Anna Sigríður Ólafsdóttir.“ Styðja Margréti Sverrisdóttur ♦♦♦ TVEIMUR skotvopnum, riffli og haglabyssu, var stolið úr sumarhúsi í Miðfellslandi við Þingvallavatn. Inn- brotið var tilkynnt til lögreglunnar á Selfossi síðdegis í gær. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar er ekki skylt að hafa byssur í læstum skáp- um nema þær séu þrjár saman eða fleiri. Hins vegar bendir lögreglan á að varasamt sé að skilja skotvopn eftir í sumarhúsum sem oft standa ónotuð. Málið er í rannsókn. Skotvopnum stolið úr sumarbústað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.