Morgunblaðið - 23.01.2007, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 23.01.2007, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 11 FRÉTTIR Varadero eða Havana í 10 nætur eða Havana í 5 nætur og Varadero í 5 nætur í í í Sértilboð - aðeins 15 herberg i í boði á þessum gististöðum 22. febrúar frá kr. 89.990 frábær 10 daga ferð Heimsferðir bjóða frábær tilboð á aukaflugi til Kúbu 22. febrúar. Bjóðum gistingu á nokkrum af hinum vinsælu gististöðum okkar á hinni einstöku Varaderoströnd eða í Havana. Kúba er ævintýri sem lætur engan ósnortinn. Ekki aðeins kynnist maður stórkostlegri náttúrufegurð eyjunnar, heldur einnig þjóð sem er einstök í mörgu tilliti. Fjölbreyttir gistivalkostir í boði á frábæru verði. Varadero - 10 nætur Verð frá kr. 89.990 Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Villa Tortuga á Varadero með morgunverði í 10 nætur. Netverð á mann. Havana í 5 nætur - Varadero í 5 nætur Verð frá kr. 94.990 Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Hotel Occidental Miramar í Havana í 5 nætur með morgunverði og gisting í tvíbýli á Hotel Arenas Doradas á Varadero í 5 nætur með morgunverði. Netverð á mann. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is STJÓRNENDUR Bláfjalla munu á næstunni hefja innri skoðun á því hvað hefði mátt betur fara vegna at- viksins á föstudagskvöld þegar raf- magn fór af skíðasvæðinu með þeim afleiðingum að fólk sat fast í stóla- lyftu og aðrir á fleygiferð niður brekkurnar misstu allt skyggni vegna skyndilegrar myrkvunar. Fundur var haldinn í gær með forstöðumanni skíðasvæðanna og starfsfólki þar sem þetta kom fram, en einnig kom fram að björgun hefði tekist vel og að starfsfólkið og björg- unarlið hefði staðið sig mjög vel. Eins og kunnugt er var rafmagns- bilunin rakin til þess er bíll frá Rík- isútvarpinu rakst á rafmagnsleiðslu í nágrenni skíðasvæðisins. Í kjölfar atviksins er helst horft til möguleika á því að setja upp vara- lýsingu í fjallinu og eins hvort Orku- veita Reykjavíkur sé reiðubúin að leggja rafmagnsleiðsluna undir Blá- fjallaveginn upp á skíðasvæðið. Þegar rafmagnið fór sat fólk fast í stólalyftunni og á bloggsíðu sinni spyr einn ungur Bláfjallagestur sem lenti í atvikinu, hvort ekki mætti setja upp kallkerfi í brekkunum til að koma upplýsingum til fólks í stól- unum. Nefnir pilturinn þetta þar sem hann telur að fólk gæti orðið hrætt við slíkar aðstæður með þeim afleiðingum að einhverjir gætu grip- ið til óskynsamlegra ráða í stress- inu. Öflugra kallkerfi í brekkurnar Grétar Hallur Þórisson, for- stöðumaður skíðasvæðanna, er sam- mála þessu sjónarmiði og nefnir að sjálfur hefði hann viljað að nýja lyft- an í Kóngsgili yrði keypt með slíkum búnaði á sínum tíma en ekki hafi orðið af því, einhverra hluta vegna. „Kallkerfi er eitt af því sem þarf að skoða,“ segir hann en bendir á að ekið hafi verið á vélsleðum meðfram lyftunni og kallað upp til fólksins með gjallarhorni til að segja frá því hvað hafði gerst. Misjafnt var þó hvað heyrðist vel í tækinu og segir Grétar Hallur að þessi búnaður hefði mátt vera öflugri. Hann bendir jafnframt á að fólkið sem sat í lyft- unum hafi í raun verið miklu örugg- ara en þeir sem voru að bruna niður brekkurnar þegar rafmagnið fór af. Þar á hann við þann aðstöðumun sem er á því að sitja kyrr og láta bakka sér niður á sléttlendi eins og raunin varð – og vera á ferðinni í skíðabrekku þegar allt myrkvast. Snjótroðari með flóðlýsingu hafi verið sendur upp í brekkurnar til að hjálpa skíðafólkinu að rata niður. „Það var því enginn að paufast lengi í myrkrinu til að komast niður,“ seg- ir hann. „En starfsfólkið fór rétt að og all- ur búnaður reyndist í lagi. Ég vil þakka gestum skíðasvæðisins fyrir að sýna stillingu í aðstæðunum.“ Hætta á ferð fyrir vanbúna Á svæðinu var Einar Sveinbjörns- son veðurfræðingur á skíðum með fjölskyldu sinni og bloggaði hann um atvikið þar sem hann bendir á að í raun hafi beinlínis verið hætta á ferð fyrir þá sem voru ekki vel klæddir til að standa af sér allt að 25 stiga frost í stólalyftunni miðað við þá vindkælingu sem var. Þá um kvöldið hafi verið 9 metrar á sekúndu og 7 stiga frost. „Hímandi í loftinu í stól lyftunnar gerir það að verkum að sá sem þar er getur sig lítið hreyft og vindkæling á bert hörund er mikil,“ segir Einar. „Í mínum huga voru að- stæður [...] beinlínis hættulegar þeim sem ekki voru vel búnir. Ég sá m.a. nokkra húfulausa sem vitanlega er algert glapræði. Miklu fleiri voru hins vegar vel gallaðir og útbúnir,“ segir hann. Íhuga að setja upp varalýs- ingu, kallkerfi og jarðstreng Morgunblaðið/Kristinn Myrkur Snjótroðarar lýstu upp brekkurnar til að vísa fólki niður á jafn- sléttu en þeim sem sátu í lyftunni var bakkað niður eftir 20–25 mínútna bið. Aðgerðir vegna rafmagnsleysis í Bláfjöllum taldar vel heppnaðar BERTRAM Henry Möller, fyrrverandi lögregluvarðstjóri í Reykjavík og söngv- ari, er látinn, 64 ára að aldri. Bertram fæddist í Reykjavík 11. janúar 1943. Foreldrar hans voru Guðrún Möller, starfsmaður Lands- símans, og Bertram Mallet sem var yfir- maður í breska hern- um. Bertram ólst upp í Vesturbæ Reykjavík- ur og stundaði nám í Melaskóla og Hagaskóla. Að grunnskóla loknum stundaði hann nám í Verzlunarskóla Íslands. Bertram hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík árið 1964 og starfaði lengi sem lögregluvarðstjóri. Hann lét af störfum árið 2003, sextugur að aldri. Tónlistin átti hug og hjarta Bertrams og allt frá unglingsárum söng hann og lék á gítar á böll- um víða um land með fjölda hljómsveita, m.a. Sextett Berta Möllers, Svavari Gests og lengst af með Lúdó og Stefáni. Þá starfaði Bertram af krafti með frímúrararegl- unni frá árinu 1982. Bertram kvæntist Guðríði Erlu Halldórsdóttur árið 1964. Hann lætur eftir sig fjögur börn. Bertram Henry Möller Andlát NEYTENDASAMTÖKIN hafa birt á heimasíðu sinni lista yfir verðhækkanir matvöruheildsala og innlendra framleiðenda, sem tilkynntar hafa verið að und- anförnu. Segja samtökin, að þetta sé ekki síst gert til að neytendur geti betur áttað sig á því hvað sé að gerast í matvöruversluninni. Um leið hvetja Neytenda- samtökin framleiðendur sem selj- endur til að halda aftur af sér hvað varðar verðhækkanir. Neyt- endasamtökin segjast með mikilli ánægju munu taka þau fyrirtæki út af þessum lista ef þau draga til baka hækkanir sínar, hvort sem þær hafa tekið gildi nú þegar eða eru væntanlegar. Einnig hvetja samtökin heildsala og innlenda framleiðendur, sem ekki hækka verð hjá sér nú, til að tilkynna það til Neytendasamtakanna. Heimasíða samtakanna er www.ns.is. Birta lista yfir verðhækkanir á matvörum KAUPÞING stendur, ásamt Fær- eyska líftryggingafélaginu, að baki jarðgangagerð milli Þórs- hafnar á Straumey og byggða- kjarna á Austurey, en göngin stytta verulega ferðatíma milli byggðarlaganna. Göngin verða um ellefu kíló- metrar á lengd og er áætlað að þau geti kostað um ellefu millj- arða króna. Innheimtur verður vegtollur til að greiða fyrir bygg- ingu ganganna, en göngin stytta leiðina verulega. Nú tekur um 45 mínútur að fara á milli, en ferða- tíminn styttist í 5–10 mínútur. Lögþing Færeyja þarf að taka málið fyrir og samþykkja en gert er ráð fyrir að göngin geti verið tilbúin árið 2012. Kaupþing að baki göngum í Færeyjum AUKAKJÖRDÆMISÞING fram- sóknarmanna í Suðurkjördæmi fer fram laugardaginn 27. janúar nk. á Selfossi. Að sögn Skúla Þ. Skúlason- ar, formanns kjörstjórnar í prófkjöri Framsóknarflokksins í Suðurkjör- dæmi, mun kjörstjórnin á þeim fundi leggja fram tillögu að uppstillingu listans. Aðspurður hvernig þriðja sætið verði mannað eftir að Hjálmar Árna- son alþingismaður tilkynnti að hann tæki ekki það sæti segist Skúli ekki geta tjáð sig um það á þessu stigi, en tók fram að allir möguleikar væru opnir í stöðunni og að verið væri að vinna í málinu. Ekki liggur því á þessu stigi ljóst fyrir hvort þeir sem lentu í fjórða sæti og niðurúr í prófkjörinu færist upp um eitt sæti eða hvort fenginn verði utanaðkomandi aðili, t.d. af Suðurnesjum, til þess að skipa þriðja sætið í stað Hjálmars. Hjálmar segir í viðtali við Víkur- fréttir að hann horfi til þess að Suð- urnesjamaður komi í hans stað í þriðja sæti framboðslista framsókn- armanna í Suðurkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar. Sagðist hann í raun telja það afskaplega vafasamt ef svo yrði ekki. Aðeins tveir Suðurnesjamenn tóku þátt í prófkjöri framsóknar- manna í Suðurkjördæmi um nýliðna helgi. Auk Hjálmars var Brynja Lind Sævarsdóttir, flugöryggismað- ur úr Reykjanesbæ, í framboði. Eygló Harðardóttir, sem hafnaði í fjórða sæti í prófkjörinu um helgina, segir eðlilegt að þar sem Hjálmar taki ekki þriðja sætið, færist aðrir fyrir neðan hann upp um eitt sæti. Eygló býr í Vestmannaeyjum, en segist bera hagsmuni alls kjördæm- isins fyrir brjósti og því eigi póst- númer ekki að skipta máli í þessu sambandi. „Framboðsfrestur til að taka þátt í prófkjörinu rann út 15. desember og beiðni kom eftir þá dagsetningu frá fulltrúaráði Reykjanesbæjar um að framlengja frestinum. Þeirri beiðni var hafnað af kjörstjórninni.“ Hún segist telja það mjög eðlilegt, eins og gerst hafi í öðrum prófkjörum Fram- sóknarflokksins sem haldin hafi ferið upp á síðkastið, að fólk færist upp listann við þær aðstæður sem hafa skapast með brotthvarfi Hjálmars. Tillaga að uppstillingu tilbúin fyrir næstu helgi VIÐGERÐ á Cantat-3-sæstrengn- um hefur verið frestað vegna veð- urs. Viðgerðarskip kom á bilunar- stað fyrir viku en veður og sjólag á svæðinu hefur verið mjög slæmt og því hefur ekki tekist að hefja við- gerð. Vegna veðurútlits hafa rekstr- araðilar því ákveðið að fresta við- gerð að sinni. Var strengurinn gangsettur að nýju til Evrópu fyrir helgi og er vonast til að fjar- skiptaumferð í þá átt verði með eðlilegum hætti, þar til tækifæri gefst til viðgerðar. Viðgerð frestað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.