Morgunblaðið - 23.01.2007, Síða 14

Morgunblaðið - 23.01.2007, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is FULLTRÚAR Evrópusambandsins hvöttu eindregið til þess í gær að sem fyrst yrði mynduð ríkisstjórn í Serbíu er legði áherslu á gott sam- starf við ESB. Hún þyrfti einnig að vera reiðubúin að takast á við stöðu Kosovo-héraðs sem að nafninu til er enn undir stjórn Serbíu en í reynd undir vernd alþjóðasamfélagsins. Flokkur harðlínu-þjóðernissinna, Róttæki flokkurinn, fékk flest at- kvæði í þingkosningunum í Serbíu á sunnudag eða rúm 28%. Formaður hans, Vojislav Seselj, er í haldi hjá stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag, grunaður um aðild að fjöldamorðum í Balkan-stríðun- um á liðnum áratug. Flokkurinn vill ekkert gefa eftir í málum Kosovo og boðar jafnvel stríð til að tryggja að héraðið verði áfram serbneskt. Einnig er flokkurinn mjög andvígur samstarfi við ESB en aðrir flokkar landsins vilja aðild Serbíu að sam- bandinu. Stjórnmálaskýrendur í Serbíu búast við að flokkar sem vilja góð samskipti við ESB og Vestur- lönd muni að lokum mynda sam- steypustjórn en þröskuldarnir séu margir. „Það verður geysilega erfitt að mynda nýja stjórn,“ sagði Drag- oljub Zarkovic, dálkahöfundur í vikublaðinu Vreme. Síðast var kosið til þings í Serbíu 2003. Flokkur Boris Tadic forseta, hinn hægrisinnaði Lýðræðisflokkur, vann að þessu sinni stærsta sigurinn, nær tvöfaldaði þingsætafjölda sinn og er með 65 sæti af alls 250 á þingi. Flokkur Seselj er með álíka mörg sæti og síðast, 81 en Lýðræðisflokk- ur Serbíu, samtök Vojislav Kost- unica forsætisráðherra, tapaði 10 sætum og er nú með 47. Flest bendir samt til þess að Kostunica verði í oddaaðstöðu, hvorug fylkingin getur myndað stjórn án hans. Kostunica fer fyrir minnihluta- stjórn en hann var í fararbroddi þeirra sem steyptu einræðisherran- um Slobodan Milosevic af stóli árið 2001. En á hinn bóginn er Kostunica sjálfur mjög eindreginn þjóðernis- sinni og berst hart gegn því að Kos- ovo verði látið af hendi. Vill hann og er í þeim efnum sammála Tadic að Kosovo fái sjálfstæði innan vébanda Serbíu. En báðir taka skýrt fram að þeir vilji leysa deiluna með friðsam- legum aðferðum, ekki vopnavaldi. Búist við langri og erfiðri stjórnarmyndun í Serbíu Harðlínumenn þjóðernissinnans Seselj fengu flest atkvæði í þingkosningum                                3 45  6789            París. AFP. | Kaþ- ólski presturinn Abbé Pierre lést í Frakklandi í gær, 94 ára að aldri. Abbé Pierre var víðfrægur og dáð- ur fyrir störf sín að mannúðarmál- um fyrir fátæka og heimilislausa en einnig fyrir afrek í stríðinu er hann vann með andspyrnuhreyfing- unni og aðstoðaði gyðinga við að flýja undan nasistum. Abbé Pierre var hvarvetna minnst með virðingu, m.a. í Páfagarði auk þess sem leiðtogar helstu samtaka múslíma í Frakklandi lýstu harmi sínum yfir fráfalli hans. Jacques Chirac forseti sagði hann hafa verið „samvisku“ Frakka. Allir Frakkar þekktu Abbé Pierre sem oftast klæddist svartri hempu og svartri húfu en hann var liðsmað- ur reglu kapútsína-munka. Hann stofnaði 1949 hreyfingu er nefndist Emmaus-fararnir með vísan til sög- unnar er Kristur birtist lærisveinum sínum eftir upprisuna. Hreyfingin starfar nú í um 50 löndum og rekur um 10.000 íbúðir og hús fyrir heim- ilislausa í París einni. Abbé Pierre vakti fyrst þjóðarat- hygli með útvarpsávarpi sínu 1954 er óvenjukaldur vetur herjaði á lands- menn. „Vinir mínir – veitið hjálp! Kona fraus í hel klukkan þrjú í nótt,“ sagði hann. Abbé Pierre lát- inn í París Abbé Pierre Belfast. AFP. | Yfirmenn bresku lög- reglunnar á Norður-Írlandi voru í vitorði með liðsmönnum öfgasam- taka mótmælenda sem myrtu að minnsta kosti tíu manns og reyndu að myrða tíu til viðbótar á síðasta áratug. Þetta kemur fram í 160 síðna skýrslu umboðsmanns lögreglunnar á Norður-Írlandi eftir þriggja og hálfs árs rannsókn. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að yfirmennirnir hafi verndað uppljóstrara í öfgasam- tökunum þegar lögreglumenn hafi reynt að rannsaka glæpi þeirra. Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, sagði skýrsluna vekja mik- inn óhug. Talsmaður Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, tók í sama streng og sagði athæfi lög- reglumannanna óréttlætanlegt. Vernduðu vígamenn Tókýó. AP. | Hneyksli hefur orðið til þess að forstjóri samsteypunnar Fujiya í Japan varð að segja af sér. Forstjóri fyrirtækisins, Rintaro Fujji, hefur viðurkennt að notað hafi verið of gamalt hráefni í vörurnar sem eru einkum kökur og sælgæti. Fyrirtækið var stofnað árið 1910 og hefur ávallt notið mikillar virðingar og vinsælda fyrir gæðakökur. Nýr forstjóri, Yasufumi Sakurai, var kjörinn á stjórnarfundi í gær. Fram kom í yfirlýsingu Fujiya, sem rekur um 800 verslanir, að rann- sókn hefði leitt í ljós að notast hafði verið við mjólk, rjóma, egg, bláberja- mauk og eplafyllingu sem komin voru fram yfir síðasta söludag. Ljóstrað hefur verið upp um svipuð hneyksli hjá mörgum þekktum fyr- irtækjum í Japan, gæðaeftirlit hefur reynst vera í molum. Leynt hefur verið göllum í bílum Mitsubishi- verksmiðjanna, viðskiptavinir mjólk- urvöruframleiðandans Snow Brand Milk Products fengu matareitrun. Fujiya hefur einnig viðurkennt að reynt hafi verið fyrst í stað að leyna hneykslinu. Svona gerir mað- ur ekki Notuðu gamalt hráefni í kökurnar ALLRA augu voru á Edmund Stoiber, forsætisráð- herra í Bæjaralandi, í gær er hann heimsótti borgina Ingolstadt í kjölfar þess að hann tilkynnti fyrir helgi að hann hygðist láta af embætti og einnig sem leiðtogi Kristilega sósíalsambandsins (CSU) í september. CSU er systurflokkur CDU sem fer með völdin í Þýskalandi. Stoiber, sem er 65 ára gamall, hefur farið með völdin í Bæjaralandi sl. fjórtán ár og hann var kanslaraefni kristilegu flokkanna í þýsku þingkosningunum 2002. Óveðursskýin tóku að hrannast upp yfir höfði Stoibers nýverið þegar starfsmannastjóri hans neydd- ist til að segja af sér eftir ásakanir um að hann hefði látið njósna um einn pólitískra andstæðinga Stoibers. Stoiber jók svo enn á ólguna með því að lýsa því yfir að hann hygðist sitja í embætti til 2013. Þegar nýlegar kannanir sýndu svo, að CSU myndi tapa völdum í Bæj- aralandi í kosningum sem fram eiga að fara á næsta ári, fór þrýstingur á Stoiber að magnast til muna. AP Stoiber hyggst hætta í haust ♦♦♦ Bagdad. AP. | Að minnsta kosti hundrað manns biðu bana þegar tvær bílsprengjur sprungu svo til á sömu stundu í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Á annað hundrað manns særðist í tilræðinu. Sprengj- urnar sprungu í verslunarhverfi, Bab al-Sharki, í miðborg Bagdad, þar sem bæði er að finna sjíta og súnníta en umferð á þessu svæði er mjög mikil og margir jafnan á ferli. Um er að ræða mannskæðustu árásina í Bagdad á þessu ári, en ekki er vika síðan sjötíu manns týndu lífi í sprengjutilræði í háskóla í borginni. Bab al-Sharki er meðal fátækustu hverfa Bagdad-borgar en ódæðis- menn hafa margítrekað staðið fyrir sprengjutilræðum þar. Í síðasta mánuði dóu til að mynda 63 þegar maður sprengdi sjálfan sig þar í loft upp. Vitni í gær sögðu að aðstæður á vettvangi hefðu verið afar ljótar og þurfti að stafla hinum látnu og særðu saman upp á kerrur, svo mörg voru fórnarlömbin. Eldur komst í a.m.k. tólf bíla við sprengingarnar og gjör- eyðilögðust nokkrar þeirra í brun- anum. Mannfall í röðum óbreyttra borg- ara er áfram mjög mikið í Írak en jafnframt hafa margir bandarískir hermenn týnt lífi á undanförnum mánuðum. Árið byrjar eins og því síðasta lauk, nú hafa fjörutíu og sex bandarískir hermenn fallið það sem af er þessu ári. Tugir manna týndu lífi í Írak Mannskæðasta árásin í Bagdad á árinuOyadao-þorp. AP. | Fjölmargir hafagert sér ferð til Oyadao í norðaust- urhluta Kambódíu til að skoða konu sem talin er hafa eytt síðustu nítján árunum meðal dýra úti í frumskóg- inum. Konan fannst fyrir tíu dögum en hún var þá að reyna að stela mat frá bónda á svæðinu. Hún var nakin og hreyfði sig eins og api og hún talar ekki mannamál. Um helgina reyndi konan þríveg- is að flýja aftur út í frumskóginn. Sal Lou, lögreglumaður í þorpinu, er sannfærður um að þarna fari dóttir hans, Rochom P’ngieng, sem týndist er hún var átta ára gömul. Vísar hann til þess að hún beri gam- alt ör sem hann þekki. Sumir velta hins vegar fyrir sér hvernig konan geti haft jafn mjúk- ar hendur og raun ber vitni, hafi hún lifað sem villt dýr sl. 19 ár og hvers vegna hárið á henni sé ekki verr farið. Þá vekja furðu ör sem hún hefur á höndunum en þau virð- ast benda til að hún hafi verið bund- in langtímum saman. „Við teljum að þessi kona sé fórnarlamb einhvers konar pyntinga, kannski kynferð- islegra eða líkamlegra,“ segir Kek Galabru, formaður mannréttinda- samtakanna Licadho. Hafa þau boðist til að greiða kostnaðinn af því að flytja Rochom og fjölskyldu hennar til Phnom Penh svo hún geti fengið þá læknisaðstoð sem þurfi. Hefur þrisv- ar reynt að flýja AP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.