Morgunblaðið - 23.01.2007, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
VÆNLEGASTA lega jarðganga í
gegnum Vaðlaheiði gerir ráð fyrir
7,4 km löngum göngum. Munni
ganganna Eyjafjarðarmegin verður
í um 60 metra hæð yfir sjávarmáli
hjá þjóðvegi 1 við Halllandsnes og í
Fnjóskadal verður munninn í um 160
metra hæð yfir sjávarmáli hjá Skóg-
um. Þetta er meðal þess sem kemur
fram í ítarlegri skýrslu Ágústs Guð-
mundssonar, jarðfræðings hjá Jarð-
fræðistofunni ehf., sem hann hefur
unnið fyrir Greiða leið ehf.
Skýrslan er samantekt á niður-
stöðum rannsókna í Vaðlaheiði sem
Jarðfræðistofan hefur haft umsjón
með undanfarin ár, en í þeim var
sjónum beint að jarðfræðilegum að-
stæðum til gangagerðar.
Skýrsla Jarðfræðistofunnar stað-
festir að aðstæður til jarðgangagerð-
ar í gegnum Vaðlaheiði eru í með-
allagi góðar. Í Vaðlaheiði er
berggrunnurinn töluvert brotinn og
„haggaður“ með allmörg misgengi
og bergganga. Setberg á áformaðri
jarðgangaleið er sambærilegt við
setberg í göngunum í Blönduvirkjun
og Fáskrúðsfjarðargöngum. Í
skýrslu Jarðfræðistofunnar er það
orðað svo að í almennum samanburði
við hérlend veggöng megi ætla að
basaltið á gangaleið í Vaðlaheiðar-
göngum verði í betra meðallagi til
gangagerðar en setbergslög í lakara
meðallagi.
Jarðfræðirannsóknum vegna
Vaðlaheiðarganga er að mestu lokið,
en þó er ætlunin að bæta við seg-
ulmælingum til sprunguleitar á efri
hluta heiðarinnar.
Vegna gerðar Vaðlaheiðarganga
og vegaframkvæmda sem tengjast
þeim fékk Greið leið ehf. fornleifa-
deild Byggðasafns Skagfirðinga til
þess að annast fornleifaskráningu
við austari munna jarðganganna,
þ.e. í landi Skóga í Hálshreppi. Í
skýrslu um málið kemur fram að ein
tóft muni lenda innan framkvæmda-
svæðis við austari gangamunna og
þurfi framkvæmdaaðili að sækja um
leyfi til Fornleifaverndar ríkisins til
þess að mega fjarlægja hana. Innan
20 metra frá brún fyrirhugaðs fram-
kvæmdasvæðis eru skráðar þrjár
minjar og innan 20–50 metra eru
fjórar minjar, þar af bæjarstæði
gamla Skógabæjarins.
Aðstæður taldar
í meðallagi góðar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Göng Séð til Akureyrar frá Hall-
landsnesi, sem er beint á móti.
Í HNOTSKURN
»Gert er ráð fyrir því að veg-göng í gegnum Vaðlaheiði
verði 7,4 kílómetra löng.
»Jarðfræðilegar aðstæður tilgangagerðar eru taldar í
meðallagi góðar.
MIKIÐ hefur snjóað á Akureyri undanfarið en nú er að
hlýna aftur. Þessir strákar úr Brekkuskóla skemmtu
sér í lítilli brekku steinsnar frá skólanum. Frá vinstri:
Bjarmi, Kjartan, Alexander Jósep og Páll Erlingur.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gaman að leika sér í snjónum
KRISTJÁN Þór Júlíusson, forseti
bæjarstjórnar, og Sigfús Helgason,
formaður Íþróttafélagsins Þórs, hafa
slíðrað sverðin, en þeir deildu opin-
berlega eins og greint var frá í Bæj-
arlífspistli fyrir helgi. Í yfirlýsingu
segja þeir að deilur á opinberum
vettvangi um hugsanlega uppbygg-
ingu frjálsíþróttaaðstöðu á fé-
lagssvæði Þórs hafi verið óheppileg-
ar og engum til hagsbóta, og að hluta
til á misskilningi byggðar.
Kristján og Sigfús slíðruðu sverð
Egilsstaðir | Í dag gefst íbúum á
Fljótsdalshéraði tækifæri til að
kynnast verkefninu Vistvernd í
verki á fundi í Ráðhúsinu í Fellabæ.
Verkefnið er alþjóðlegt umhverf-
isverkefni fyrir heimili sem hefur
það að markmiði að styðja og
hvetja fólk til að taka upp vistvænni
lífsstíl. Það gengur út á að aðstoða
íbúa undir leiðsögn leiðbeinanda
við að gera breytingar á heim-
ilishaldi og daglegum venjum.
Markmiðið er að draga úr álagi á
umhverfið sem hefur einnig í för
með sér fjárhagslegan ávinning
fyrir þátttakendur. Ísland er eitt af
þeim 19 löndum sem Vistvernd í
verki hefur fest rætur í en verk-
efnið er hið eina sinnar tegundar í
heiminum svo vitað sé. Í dag hafa
um 650 íslensk heimili tekið þátt í
verkefninu, þar af 30 á Fljótsdals-
héraði. Fundurinn hefst kl. 17.
Vistvernd í verki
kynnt íbúum á
Fljótsdalshéraði
AUSTURLAND
Fáskrúðsfjörður | Fáskrúðsfirð-
ingar líta á bæinn sinn sem góðan
búsetukost fyrir fjölskyldur í þeim
miklu breytingum sem nú ganga yf-
ir í Fjarðabyggð. Þetta kom m.a.
fram á íbúaþingi sem þar var haldið
fyrir helgina og er liður í slíku
þinghaldi á öllum þéttbýlisstöðum
Fjarðabyggðar. Hin franska arf-
leifð Fáskrúðsfjarðar var íbúum of-
arlega í huga, en þeir telja að í
henni felist mörg tækifæri á sviði
menningar og sögutengdrar ferða-
þjónustu. Einnig frekari efling
öldrunarþjónustu, umhverfismálin
og afþreying, eins og t.d. sjósport. Í
gærkvöldi var fyrirhugað íbúaþing
í Mjóafirði og í kvöld á Reyðarfirði.
Góður búsetukost-
ur fyrir fjölskyld-
ur á þenslutímum
Reyðarfjörður | Á laugardag frum-
sýndu þeir Garðar Bachmann
Þórðarson og Hákon Unnar Seljan
Jóhannsson heimildarmyndina
„Okkar skoðun“ í Fjarðabíói á
Reyðarfirði.
Myndin fjallar um viðhorf ungs
fólk á Austurlandi til virkjana- og
stóriðjuframkvæmdanna og er um
hálftímalöng. Garðar og Hákon eru
báðir Austfirðingar á tvítugsaldri.
„Aðsóknin var fín,“ segir Garð-
ar. „Við gerðum myndina til að fá
fram skoðanir unga fólksins á
Austurlandi á virkjun, álversbygg-
ingu og öðru því sem er að gerast á
Austurlandi. Þá rödd hefur vantað
í umræðuna.“
Garðar og Hákon halda hlut-
lausri afstöðu í myndinni og eru
tekin viðtöl við fólk sem er bæði
með og á móti. „Margar skoðanir
eru í gangi og sumum er alveg
sama. Mest kom á óvart hversu
margir höfðu enga skoðun og voru
orðnir þreyttir á umræðunni og
hraðanum á Austurlandi og nenntu
bara ekki að pæla í þessu meira.
Svo var fólk sem sá tækifæri fyrir
sig í þessu öllu saman,“ segir Garð-
ar, sem hefur undanfarin ár feng-
ist við kvikmynda- og vídeógerð,
þó hér sé um frumraun að ræða í
kvikmyndagerð af þessum toga.
Hann segir ekki frekari pólitískar
kvikmyndir vera í deiglunni en þó
hafi verið orðað við sig að gera
mynd um veggangagerð á Austur-
landi.
Okkar skoðun var aðeins sýnd
einu sinni í Fjarðabíói, en hug-
myndir eru uppi um að sýna mynd-
ina í Menntaskólanum á Egils-
stöðum í vikunni og á Seyðisfirði á
næstunni og bjóða hana jafnframt
sjónvarpsstöðvum til sýninga.
Ljósmynd/GG
Nýstárlegt Félagarnir Hákon og Garðar frumsýndu um helgina mynd um
afstöðu ungra Austfirðinga til virkjunar- og álversframkvæmdanna.
Unga fólkið sumt
þreytt á hraðanum
Neskaupstaður | Þegar fagnað var
hálfrar aldar afmæli Fjórðungs-
sjúkrahússins í Neskaupstað á dög-
unum komu í hús góðar gjafir.
Hollvinasamtök FSN, sem lengi
hafa stutt dyggilega við bakið á
sjúkrahúsinu, færðu því nýtt og full-
komið ómskoðunartæki, en verð-
mæti þess er um fimm milljónir
króna. Nýja tækið leysir af hólmi 5
ára gamalt tæki og er af nýrri og
gjörólíkri kynslóð. Með því verður
hægt að gera skoðanir á hjarta og
æðum til viðbótar við þær skoðanir
sem gerðar hafa verið með gamla
tækinu, þ.e. fósturskoðanir og óm-
skoðanir á gallvegum.
Ný sjúkrarúm á deildir
Samvinnufélag útgerðarmanna í
Neskaupstað gaf fjögur ný og afar
fullkomin sjúkrarúm á sjúkradeild
FSN og er hægt að stilla þau með
fjarstýringum. Fyrirtækið A. Karls-
son gaf einnig rafdrifið sjúkrarúm til
FSN en það verður nýtt á gjörgæslu.
Hjón í Neskaupstað afhentu og veg-
lega peningagjöf. Valdimar O. Her-
mannsson, rekstrarstjóri FSN, seg-
ist vita af öðrum góðum gjöfum sem
berast muni sjúkrahúsinu á afmæl-
isárinu. Meginhátíðarhöld vegna af-
mælisins verði þegar framkvæmdum
við endurbyggingu og nýfram-
kvæmdir við FSN ljúki í byrjun apríl
eða þar um bil.
Traustir bakhjarlar
komu færandi hendi
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Röntgenstofa Tækjakostur á FSN
hefur tekið örum stakkaskiptum.
Seyðisfjörður | Bæjarstjórn Seyð-
isfjarðar vill að bæjarfélagið taki
þátt í að stofna félag sem leiti leiða til
að láta heilbora þrjátíu kílómetra
löng veggöng frá Eskifirði, um
Norðfjörð, Mjóafjörð og Seyðisfjörð
til Héraðs. Setur bæjarstjórn í bók-
un fram það skilyrði að bæjarstjórn-
ir Fjarðabyggðar og Fljótsdalshér-
aðs gerist einnig stofnaðilar að
verkefninu. Stjórn félagsins skal
vera skipuð bæjarstjórum sveitarfé-
laganna en ráðinn framkvæmda-
stjóri verkefnisins í allt að 6 mánuði.
Sveitarfélögin samþykki að verja allt
að kr. 10 milljónum til verkefnisins
sem skiptist á þau eftir höfðatölu. Í
greinargerð segir að um sé að ræða
stærsta hagsmunamál svæðisins
með ómælanlegum áhrifum á sam-
félag þess og sveitarfélögin þrjú
verði að taka frumkvæðið.
Stærstu sveitarfélögin
beiti sér fyrir veggöngum
ÞÓRODDUR Bjarnason, prófessor í
HA, heldur í dag kl. 16.30 erindi um
svæðisbundinn mun á félagslegri
þátttöku grunnskólanema af erlend-
um uppruna. Erindið flytur hann í
stofu 16 í Þingvallastræti 23.
Fræðslufundur