Morgunblaðið - 23.01.2007, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 23.01.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 19 SUÐURNES SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Liprar og léttar körfulyftur með mikla lyftigetu i l i l Beltadrif eykur notkunarmöguleika Hafið samand við sölumann! Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Mér finnst ekkert vera nema jákvætt við skólafötin. Það jákvæðasta er frelsi fyrir persónuleikann. Börnin verða per- sónuleiki en ekki fatnaður,“ sagði Jóhannes Kristbjörnsson, faðir Ásdísar Hjálmrósar, stúlku á þriðja ári og nemanda í leikskólanum Gimli, en þar var skólafatnaður tekinn í notk- un í vikunni. Karen Valdimarsdóttir leik- skólastjóri sagði það jákvæði og samvinnu for- eldra að þakka hversu vel hefði tekist til við að koma skólafatnaði í framkvæmd en hún sagði það lið í að gera góðan skóla betri. Hluti af stefnu leikskólans Leikskólinn Gimli í Reykjanesbæ er fyrsti leikskólinn á öllu Reykjanesinu sem tekur formlega í notkun skólafatnað. Leikskólinn er rekinn samkvæmt Hjallastefnunni og þar er skólafatnaður hluti af stefnunni. Að sögn Kar- enar Valdimarsdóttur leikskólastjóra og rekstraraðila Gimlis er flest sem mælir með skólafatnaði. Það jafni til að mynda aðstöðu nemenda og minnki neikvæða samkeppni. Þá njóti einstaklingurinn sín betur og verði frekar sjálfbjarga í svo þægilegum fatnaði, sem skóla- fatnaðurinn sé. ,,Þær gagnrýnisraddir sem hafa heyrst eru að skólafatnaður minnki sjálf- stæði barna og sköpunargáfa eigi á hættu að lúta í lægra haldi. Þar sem mikil áhersla er lögð á sjálfstæði og skapandi hugsun í skólum sem vinna eftir hugmyndafræði Hjallastefn- unnar teljum við okkur á Gimli vera í góðum málum hvað þessa þætti varðar. Við styrkjum sjálfsmynd barnsins með því að kenna því að það sé frábært eins og það er,“ sagði Karen í samtali við Morgunblaðið. Jóhanna Björk Pálmadóttir, formaður stjórnar foreldrafélags Gimlis, sagði stjórnina hafa komið með ósk varðandi skólafatnað til Karenar, sem samstundis hefði tekið jákvætt í beiðnina. Foreldrum nýrra leikskólabarna var strax í haust kynnt áform um skólafatnað og var hugmyndinni tekið fagnandi. Í framhaldi af þessum góðu viðbrögðum var undirbúnings- vinna hafin og Karen sagði það ánægjulegt að geta byrjað nýtt ár með nýjum áherslum. Í til- efni af 35 ára afmæli leikskólans á síðasta ári ákvað stjórn foreldrafélagsins ásamt Karen leikskólastjóra að gefa öllum börnum bol sem er hluti af skólafatnaðinum í stað þess að halda opinbera afmælisveislu. Þeir þrír foreldrar leikskólabarna á Gimli sem blaðamaður ræddi við voru mjög jákvæðir í garð skólafatnaðarins og höfðu öll fjárfest í nokkrum umgöngum til að börnin hefðu til skiptanna. Skólafatnaðurinn samanstendur af dökkbláum buxum, rauðri flíspeysu, rauðum háskólabol og rauðum eða bláum stutt- ermabol. Stofnkostnaðurinn getur verið mikill, til dæmis hjá hjónunum Helgu Rósu Atladóttur og Karli Þórhallssyni, sem eiga tvo drengi á Gimli, Ingvar Breka, 4 ára, og Marinó Mána á þriðja ári. „Já, stofnkostnaðurinn er kannski mikill en til lengri tíma litið felur skólafatn- aðurinn í sér sparnað. Þetta verður líka miklu þægilegra og það jákvæðasta er að ég á eftir að geta klætt strákana,“ sagði Karl brosandi og viðmælendur voru sammála um að það vefðist stundum fyrir feðrum að klæða börn sín. Unnið að ýmsu jákvæðu Foreldrarnir voru allir með nýnema síðast- liðið haust og fengu því kynningu um leið og börnin byrjuðu í leikskólanum. Þau sögðust öll hafa verið hlynnt skólafatnaði frá upphafi. „Nú eru allir í sama liði og allir fá að njóta sín á sín- um forsendum. Það væri gott ef það væri einn- ig skólafatnaður í grunnskólunum, hann myndi spara mörg vandræði þar,“ sagði Helga Rósa en þau Karl eiga eina dóttur á grunn- skólaaldri. Blaðamaður sem sjálfur á barn á leikskólaaldri sér fyrir sér daglegan þvott og jafnvel að einhverjir foreldrar muni gefast upp á einsleitum fatnaði. „Ég lít nú á þvottinn sem smávægilegan og ef foreldrar ætla að gefast upp á þessu held ég að þeir verði að aga sig, því það er jú þeirra að láta þetta ganga. Börnin vilja klæðast þessum fatnaði og eru alsæl,“ sagði Jóhannes Kristbjörnsson og foreldrarnir voru sammála um að skólafatnaðurinn væri bara einn af þeim mörgu jákvæðu þáttum sem verið væri að vinna með á Gimli. Nú eru öll börnin í sama liðinu Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Allir í sama liði Foreldrar barna á Gimli eru ánægðir með nýju skólafötin. Jóhannes Krist- björnsson, Helga Rósa Atladóttir og Karl Þórhallsson ásamt börnum sínum og félögum þeirra. Í HNOTSKURN » Skólabúningar voru teknir upp íGimli að ósk foreldra. » Allir fá að njóta sín á sínum for-sendum. Það væri gott ef það væri einnig skólafatnaður í grunnskólunum, segir foreldri barns í Gimli. Skólafatnaður tekinn í notkun í leikskólanum LANDIÐ Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is MEÐALAFURÐIR kúastofnsins voru meiri á síðasta ári en áður hefur þekkst. Nythæstu kýrnar mjólkuðu yfir 13 tonn en það hefur ekki gerst áður og meðalafurðir á afurðahæsta kúabúinu voru tæplega 7.900 kg sem einnig er það mesta sem þekkist. Niðurstöður eru fengnar úr skýrsluhaldi nautgriparæktarfélag- anna fyrir árið 2006. Þær mótast mjög af framleiðsluaðstæðum, sam- kvæmt upplýsingum Jóns Viðars Jónmundssonar, nautgriparæktar- ráðunautar Bændasamtakanna. Eft- ir langvarandi fækkun kúa fjölgar þeim nú. Er þetta vegna þess að bændur hafa haft markað fyrir alla þá mjólk sem þeir geta framleitt, að sögn Jóns Viðars. Þetta hefur leitt til stórfelldrar stækkunar búanna, meðalbúið í skýrsluhaldinu hefur stækkað um liðlega 10% milli ára og er nú liðlega 33 kýr. Meðalafurðir eru þær mestu sem nokkru sinni hafa mælst, 5.383 kg mjólkur eftir hverja árskú. Er þetta liðlega 100 kg meira en á árinu á undan. Mestu afurðir á árskú voru á Stakkhamri á Snæfellsnesi, hjá Laufeyju Bjarnadóttur og Þresti Að- albjarnarsyni. Mjólkuðu kýrnar þeirra 7.896 kg. að meðaltali yfir ár- ið. Soffía Jónsdóttir á Efri-Brunná í Dalabyggð varð í öðru sæti, með 7.742 kg mjólkur eftir hverja kú. Kýrin Blúnda 468 á Helluvaði á Rangárvöllum mjólkaði mest á árinu 2006, 13.327 kg. Subba 53 á Kvenna- brekku stóð henni ekki langt að baki með 13.011 kg. Er þetta í fyrsta skipti sem íslenskar kýr skila yfir 13 tonnum í meðalafurðum. Í fyrsta sinn sem kýr mjólka yfir 13 tonn Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Metafurðir Laufey Bjarnadóttir og Þröstur Aðalbjarnarson settu Íslands- met í mjólkurframleiðslu, kýr þeirra mjólkuðu tæplega 7.900 kg á liðnu ári. Mikil mjólkur- framleiðsla í fyrra 8 : // %& ;   %+ + #+ '+ %+ %+%% %%+$ %%+%# %%+   , ;9 3 / 7 ,B 9 3 >60 39,? 9 3 >60 B; 6 , C CC  6 ,<  )!  < =   =  1   "! %%+  1  B0 ,/1 2  $&O $@!2    !6 !O$ !3        D >6  3 ,B  6 CC, +9 6 ? 2;,> 7,> E0 066 <7 6, 63,F  B   / GG, 06 ,?6H; %+ + #+ +$& +# +% +''  $&O $@!2    !6 !O$ !3    27 I 1 "$,) $%,( #',$ "',& B0  ;;  , )!  < : /:     8:  %  =  ! „HÚN hefur ekki fengið annað at- læti en hinar kýrnar en hún bara mjólkar og mjólkar,“ segir Ari Árnason, bóndi á Helluvaði á Rang- árvöllum, eigandi afurðahæstu ís- lensku kýrinnar, Blúndu 468. Ari og Anna María Kristjánsdóttir, kona hans, standa saman að bú- rekstrinum. Blúnda skilaði rúmum 13 tonnum af mjólk og það aðeins á um það bil ellefu mánuðum. Flestar þær kýr sem komast efst á listann mjólka í tólf mánuði. Skömmu eftir burð, þegar afurðirnar voru sem mestar, skilaði hún 60 lítrum eftir daginn. Það var raunar utan mæl- ingar en Ari segist ekki hafa séð slíkar tölur í annan tíma. Einstakur kostagripur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.