Morgunblaðið - 23.01.2007, Síða 20
ÞÆR eru heldur betur vel búnar til höfuðsins, þessar dansmeyjar
sem hér fylgjast með hátíðarhöldum í tilefni dags dýrlingsins heil-
ags Sebastíans í borginni Aldan á Norður-Spáni á sunnudag. En
þar í borg hefur degi dýrlingsins verið fagnað þennan dag með
dansi heilags Sebastíans síðastliðin 350 ár.
|þriðjudagur|23. 1. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Nemendur úr MK tóku þátt í
Kómeníusarverkefni um fornar
pílagrímaleiðir í Evrópu nýverið
og héldu til Ítalíu. » 22
menntun
Á skautasvellinu í Egilshöll æfa
víkingar og valkyrjur íshokkí en
þau eru í 5. flokki í skautafélag-
inu Birninum. » 23
tómstundir
Fyrirhugað er að reisa fimleika-
hús á nýja íþróttasvæðinu
vestan Reykjaneshallar og taka
það í notkun vorið 2009. » 21
bæjarlíf
Ég er hrifinn af ljóðskáld-unum Snorra Hjartarsyniog Hannesi Péturssyni,“segir Toshiki Toma sem
er prestur innflytjenda á Íslandi.
„Mér finnst þeir semja óskaplega fal-
leg ljóð, þótt þau séu ekki alltaf auð-
skilin,“ segir hann og brosir. „Tómas
Guðmundsson er líka í uppáhaldi hjá
mér eins og mörgum aðfluttum Ís-
lendingum en það er miklu auðveld-
ara að skilja ljóðin hans.“
Sjálfum hafði Toshiki aldrei flogið í
hug að yrkja ljóð, hvorki á japönsku
né íslensku, fyrr en á jólanótt fyrir
fimm árum þegar andinn kom
skyndilega yfir hann. „Í japönsku eru
til ákveðnir bragarhættir eins og ís-
lensku og kallast þær algengustu
hækur og tanka. Ég yrki hins vegar
ekki eftir ákveðnum bragarháttum,
þetta er ákaflega frjálslegt hjá mér
og tilraunakennt. Í ljóðunum má
segja að hinn ópólitíski Toshiki birt-
ist,“ segir hann hlæjandi.
Þar á presturinn sem er einnig
stjórnmálafræðingur að mennt, við
að hinn pólitíski Toshiki sé vel sýni-
legur í greinaskrifum í blöðum og í
fyrirlestrum á ráðstefnum og fundum
um innflytjendamál. „Ég vil hins veg-
ar ekki vera pólitískt skáld og ekki
sérstaklega kristið heldur. Í ljóð-
unum tjái ég frekar eigin tilfinningar
og stemningu. Ég lít á þjóðerni sem
aðeins tæknilega aðgreiningu á
manneskjum því við eigum miklu
meira sameiginlegt, eins og tilfinn-
ingalitrófið.“
Sendi danskri leikkonu jólakort
Presturinn á sér líka annað áhuga-
mál sem er algjör andstæða við ljóða-
lesturinn. „Ég er forfallinn spennu-
þáttaaðdáandi. Ég get legið
sólarhringum saman yfir „24“-
þáttunum sem mér finnst svo svaka-
lega spennandi að ég get varla sofið
þegar ég hef keypt nýjustu seríuna.
Hasarhetjan Jack Bauer er nátt-
úrlega ótrúlegur. Það er varla hægt
að segja að hann leiki, hann bara
hleypur. En ég myndi nú samt ekki
skrifa undir allar aðgerðir hans,“ seg-
ir Toshiki og bætir því við að sjálfur
segi hann stundum í gríni að hann sé
liðsmaður FBI. „Það er þá skamm-
stöfun fyrir „Félag bölvaðra innflytj-
enda“, eða „Félag blessaðra innflytj-
enda“ – eftir því hvernig á þá er litið.“
Staðalímyndin af japanska prest-
inum fýkur endanlega út í veður og
vind þegar hann segist hafa sent
danskri leikkonu Lotte Munk Fure,
sem birtist í fyrstu seríu „Arnarins“,
jólakort. „Hún var myrt og birtist
Hallgrími síðan í draumi. Ég var búin
að horfa fjórum fimm sinnum á ser-
íuna og mér fannst leikkonan virki-
lega góð. Mér datt sisona í hug að
senda henni jólakort en bjóst vita-
skuld ekki við því að fá svar. En svo
sendi leikkonan mér virkilega fallegt,
handskrifað jólakort þar sem hún
sagðist m.a. hafa skoðað vefsíðuna
mína og vera sammála mér um
margt. Þetta sannfærði mig bara um
það að maður á bara að láta slag
standa, prófa og sjá hvað gerist. Það
er ég búin að læra með árunum,“ seg-
ir ljóðskáldið og FBI-liðsmaðurinn
Toshiki Toma sem lætur reyna á
draumana þótt það þýði langa göngu
á móti straumnum.
Presturinn
orðhagi er
félagi í FBI
Morgunblaðið/Ásdís
Áhugamál Presturinn er forfallinn spennuþáttaaðdáandi og getur legið sólarhringum saman yfir „24“-þáttunum.
Morgunblaðið/Ásdís
Bréfaskriftir Toshiki sendi dönsku leikkonunni Lotte Munk Fure jólakort en
hann var búinn að horfa nokkrum sinnum á fyrstu seríu Arnarins og fannst
hún leika vel. Leikkonan sendi honum til baka fallegt, handskrifað jólakort.
Ást til þín fæddist
Ást til þín fæddist í mér þögul
eins og örsmá börn krabba
á strandargrynningu
Í tærum og glitrandi bárum
halda þau af stað í ferð sína
til lífs í hafinu
Nú veit enginn
hvert eru þau farin
– Toshiki Toma
Blómlegar
dansmeyjar
MATREIÐSLUMEISTARINN
Jose Andres kynnir nú nýstárlega
spánska matargerð fyrir íbúum
Washington í Bandaríkjunum við
góðan orðstír.
Á veitingahúsinu Minibar býður
hann upp á máltíð sem saman-
stendur af þrjátíu mismunandi
munnbitum og kosta herlegheitin
um 95 dollara eða nálægt sjö þúsund
íslenskum krónum.
Jose leggur mikinn metnað í að
Aðeins 12 við-
skiptavinir á dag
Lítill Staðurinn tekur sex í sæti. Upplifun Mikil vinna er lögð í hvern bita.
Munnbiti Hver
biti er sérstakur.
Veitingahúsið Minibar
405 Eighth St. NW,
Washington, DC 20004
sími: 001-202-393-0812
www.cafeatlantico.com/minibar
þjóna vel hverjum viðskiptavini og
staðurinn tekur einungis sex í sæti.
Panta þarf borð með mánaðar fyr-
irvara því einungis er tekið á móti
tólf viðskiptavinum á dag.