Morgunblaðið - 23.01.2007, Page 21
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 21
Það er ekki ýkja langt síðan ný
framtíðarsýn bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar leit dagsins ljós. Yfirskrift
sýningarinnar, sem nær til ársins
2010 er Tími til að lifa og njóta.
Áfram verður unnið að ýmsum góð-
um hlutum sem verið hafa í fram-
kvæmt jafnframt því sem sjónum
verður beint að nýjum verkefnum.
Nýr framhaldsskóli er eitt að því
sem hugað verður að og eru hug-
myndir uppi um að hann muni sér-
staklega tengjast listum, vísindum
og íþróttum. Þetta þykir mér áhuga-
verð og skemmtileg blanda.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar mun
komast undir eitt þak haustið 2009
samkvæmt framtíðarsýn, í svokall-
aðri Hljómahöll. Ég hef oft furðað
mig á því hvernig tónlistarskólinn
hefur geta haldið uppi svona frá-
bæru starfi við svo lélegar aðstæður
sem raunin er. En þar sannast hið
forkveðna enn og aftur, það eru ekki
húskynnin sem ráða úrslitum heldur
fólkið sem þar er. Sjálf sótti ég pí-
anótíma á mínum ungdómsárum í
einu nágrannasveitarfélaganna á
heimili kennarans.
Fimleikahús mun einnig rísa á
nýja íþróttasvæðinu vestan Reykja-
neshallar. Fimleikadeild Keflavíkur
hefur einnig lengi vel starfaði í
óhentugum húsakynnum en sam-
kvæmt framtíðarsýninni mun að-
staðan breytast vorið 2009. Bæði
kennarar, foreldrar og fimleikaiðk-
endur hljóta að taka þessum tíð-
indum fagnandi.
Nú er ljóst að þetta stærsta sveitar-
félag Suðurkjördæmis mun eiga fáa
fulltrúa á Alþingi eftir næstu alþing-
iskosningar ef nokkurn. Eftir ósigur
Hjálmars Árnasonar síðastliðna
helgi virðist sem Björk Guðjóns-
dóttir sé eina vona bæjarbúa og jafn-
framt svæðisins í heild.
Alls 280 foreldrar hafa sótt
kynningarnámskeið á vegum bæj-
arins þar sem farið er yfir þá þjón-
ustu sem stendur foreldrum 0–2 ára
barna til boða ásamt helstu uppeld-
isatriðum. Námskeiðin verða for-
eldrar að sækja til að geta sótt um
umönnunargreiðslur að loknu fæð-
ingarorlofi og að leikskóladvöl.
Námskeið hafa verið skipulögð einu
sinni í mánuði út þetta ár. Að með-
altali hafa 193 foreldrar nýtt sér 30
þúsund króna skattfrjálsar umönn-
unargreiðslur í hverjum mánuði til
að dvelja lengur hjá barni sínu eða
niðurgreiða daggæslu.
Revíur Leikfélags Keflavíkur hafa
löngum verið vinsælar og nú eru
hafnar æfingar á nýrri Suðurnesj-
arevíu undir leikstjórn Huldu Ólafs-
dóttur, sem jafnframt er höfundur.
Áætlað er að frumsýna verkið í
marsbyrjun.
Enn er unnið að lestrarmenningu í
Reykjanesbæ. Bókasafn Reykjanes-
bæjar er að hefja verkefni sem nefn-
ist Koffort í leikskólum Reykjanes-
bæjar. Koffortin eru farandbókasöfn
í trékössum sem staðsett verða í öll-
um leikskólum bæjarins. Úr koffort-
inu geta foreldrar fengið bækur að
láni og því tilvalið fyrir foreldra að
grípa bók eða bækur með sér heim
um leið og barnið er sótt á leikskól-
ann.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Íþróttir Aðstaða til fimleika-
iðkunar mun gjörbreytast í
Reykjanesbæ á þessu kjör-
tímabili þar sem fyrirhugað er
að byggja fimleikahús.
REYKJANESBÆR
Svanhildur Eiríksdóttir blaðamaður
Rúnari Kristjánssyni áSkagaströnd flaug í hug um
áramótin:
Árið nýja efli þjóð
allri dyggð til varnar,
þó að komi af falsi flóð
fyrir kosningarnar.
Og svo bætti hann um:
Mörkum nýja manndóms slóð
mennt og dáð til varnar,
svo að eflist okkar þjóð
eftir kosningarnar.
Ólafur Stefánsson er afar fróður
um kveðskap og rifjar upp sögu af
því þegar séra Helgi Sveinsson kom
inn á kennarastofuna í
barnaskólanum í Hveragerði og
heilsaði viðstöddum: „Góðan
daginn, Gunnar Ben., góðan daginn
Bjarni.“
„Heyrðu,“ segja þeir, „þetta er
hálf vísa, viltu ekki klára hana!“ Og
Helgi gegndi: „Er það satt hann
Ottesen, eigi von á barni.“ Þá var
vísan komin:
Góðan daginn Gunnar Ben.,
góðan daginn Bjarni.
Er það satt hann Ottesen,
eigi von á barni?
Það fylgir sögunni að Ottesen var
nágranni Helga og barn var á
leiðinni.
VÍSNAHORNIÐ
Allri dyggð
til varnar
pebl@mbl.is