Morgunblaðið - 23.01.2007, Síða 23

Morgunblaðið - 23.01.2007, Síða 23
tómstundir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 23 Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Íshokkí hefur á síðustu árumfengið byr undir báða vængimeð tilkomu yfirbyggðraskautasvella en afbrigði af leiknum hefur sennilega verið stundað hér á landi allt frá land- námi ef marka má frásagnir í Ís- lendingasögunum. Á skautasvell- inu í Egilshöll renna fjölmargir víkingar og tvær valkyrjur í 5. flokki í skautafélaginu Birninum sér á skautum með kylfur í hendi og rekja á undan sér gúmmípökk. – Er þetta ekki svolítil kúnst? „Nei, ekki þegar maður er bú- inn að æfa lengi,“ segja íshokkí- leikmennirnir Arnar Breki Elfar og Andri Már Helgason sem báðir eru 11 ára. „Ég er búinn að æfa í þrjú og hálft ár,“ segir Arnar Breki en Andri Már hefur æft einu ári skemur. „Við sáum ís- hokkíið fyrst í NHL-deildinni í sjónvarpinu, sem er úrvalsdeildin, og þannig fengum við áhugann. Þegar við byrjuðum að æfa dutt- um við auðvitað oft en ekki leng- ur,“ segja þeir félagar og það má sjá á svellinu þar sem þeir sýna ýmsar kúnstir. „Það eru fimm í hverri línu og yfirleitt tvær línur í hverju liði í íshokkíi auk markmannsins: sent- er, vinstri vængur, hægri vængur, vinstri vörn og hægri vörn, Leik- reglurnar eru alveg skýrar. Það eru engin slagsmál leyfð. Við höf- um engan áhuga á þeim,“ segir Arnar Breki ákveðinn. „Það er skemmtilegast að spila saman en stundum verða árekstrar. Ég hef einu sinni puttabrotnað.“ – Skipaði mamma þín þér þá ekki að hætta í þessu? „Nei, nei hún hefur svo mikinn áhuga á þessu sjálf.“ En búningarnir, þetta eru nú ansi miklir búningar? „Já og það er gaman að vera í þeim en stundum leiðinlegt að klæða sig í þá. Það tekur svo lang- an tíma,“ segir Andri Már og þeir svara brosandi í kór þegar spurt er hver sjái um þvottinn á þeim: „Mamma.“ Kapparnir segja að það sé góð- ur andi í hópnum og þeir hafi þeg- ar farið í keppnisferðir með Birn- inum til Danmerkur og Svíþjóðar og í febrúar verði farið til Kanada. „Við stefnum svo á að spila með meistaraflokki Bjarnarins og kannski í NHL-deildinni.“ Lengi vel eina stelpan á svellinu Kristín Ingvadóttir, 10 ára, hef- ur í fimm ár verið nánast eina stelpan í öllum strákahópnum og þykir mjög efnilegur íshokkíleik- ari. „Bróðir minn fékk bréf frá Birninum um íshokkíæfingar þeg- ar hann var sex ára og mig lang- aði líka að fara æfa. Ég er eig- inlega búin að vera ein með öllum strákunum á æfingum síðan en ég leik á vinstri væng.“ Langar þig ekki að fá fleiri stelpur í þetta? „Jú, ég væri alveg til í það. Ég vil endilega hvetja stelpur til þess að æfa íshokkí. Þetta er mjög skemmtileg íþrótt.“ Og nýlega fjölgaði stelpunum um helming á æfingunum þegar jafnaldra Kristínar, Soffía Jó- hannsdóttir, byrjaði að æfa. „Mig langaði að prófa því pabbi minn og bróðir voru báðir að æfa íshokkí. Mér líst bara ágætlega á þetta.“ Rjóð í kinnum renna þessir sæl- legu krakkar, sem búningarnir gera afar stælta, aftur út á ísinn og taka til við æfingar sem miðast að því að gera þau að hrað- skreiðum, sterkum, útsjónar- sömum og leiknum íshokkí- leikmönnum. Pökkinn í netið! Vígalegir víkingar og valkyrjur í íshokkíi Morgunblaðið/Golli Svellköld Þeim Andra Má, Soffíu, Kristínu og Arnari Breka þykir mjög gaman að æfa íshokkí. Fjölþætt Í íshokkíi þurfa leikmenn að sameina hraða, snerpu og tækni. Leikreglurnar eru alveg skýrar. Það eru engin slagsmál leyfð. Við höfum engan áhuga á þeim.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.