Morgunblaðið - 23.01.2007, Side 24

Morgunblaðið - 23.01.2007, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. BARÁTTAN FYRIR TJÁNINGARFRELSI Morðið á Hrant Dink, arm-ensk-tyrkneskum ritstjóra,í Istanbúl síðastliðinn föstu- dag beinir kannski athygli íbúa vest- rænna lýðræðisríkja um stund að hlutskipti blaðamanna víða um heim. Í fjöldamörgum ríkjum, ekki sízt í Mið-Austurlöndum, búa þeir ekki að- eins við stórlega skert mál- og prent- frelsi af hálfu stjórnvalda, heldur jafnframt stöðugar hótanir af hálfu öfgamanna. Stundum er gerð alvara úr þeim hótunum, eins og morðið á Dink sýnir. Ritstjórinn hafði beðið um vernd stjórnvalda eftir að honum hafði margoft verið hótað lífláti, en fékk ekki. Það er kannski heldur engin furða, því að á undanförnum árum hafði Dink nokkrum sinnum verið sóttur til saka af ríkisvaldinu í Tyrklandi, einkum fyrir að segja sannleikann um fjöldamorð tyrkneska hersins á Armenum í lok fyrri heimsstyrjald- arinnar og hvetja til uppgjörs við þá ljótu fortíð. Fjöldi annarra blaða- manna og rithöfunda hefur verið ákærður á undanförnum tveimur ár- um fyrir sömu sakir samkvæmt laga- grein, sem gerir refsivert að móðga „tyrkneska þjóðarvitund“. Frelsi fjölmiðla er þó mun meira í Tyrklandi en í flestum nágrannaríkj- um þess í Mið-Austurlöndum. Í öll- um þessum ríkjum er þrátt fyrir rit- skoðun og kúgun að finna fjölda- marga hugrakka blaðamenn og rithöfunda, sem berjast fyrir tján- ingarfrelsinu. Þetta fólk er líklega beztu bandamenn Vesturlanda í bar- áttu þeirra fyrir lýðræði og frelsi og gegn öfgastefnum og hryðjuverkum. En fær það þann stuðning, sem það verðskuldar? Láta vestrænar ríkis- stjórnir kannski iðulega sem þær taki ekki eftir því þegar blaðamenn eru fangelsaðir eða drepnir fyrir skrif sín, af því að viðkomandi ríki er í orði kveðnu bandamaður í hinu svo- kallaða stríði gegn hryðjuverkum? Barátta gegn hryðjuverkum er fyrst og fremst átök hugmynda. Þar takast á hugmyndir um frelsi, lýð- ræði og umburðarlyndi annars vegar og hins vegar öfgastefnur, sem oft sigla undir fölsku flaggi trúrækni eða þjóðhollustu. Sumt eiga þessi hugmyndafræðilegu átök sameigin- legt með átökum kalda stríðsins, á milli lýðræðis og alræðisstefnu. En þeir, sem berjast fyrir lýðræði og tjáningarfrelsi í einræðisríkjum í Mið-Austurlöndum, njóta ekki sömu athygli og stuðnings og andófsmenn í Sovétríkjunum og leppríkjum þeirra gerðu á sínum tíma. Margir sögðu þeir þó frá því, eftir að Berl- ínarmúrinn féll, að athygli og stuðn- ingur Vesturlanda hefði ekki sízt haldið þeim gangandi. Verðskuldar það hugrakka fólk, sem berst fyrir þeim lífsgildum, sem lýðræðissamfélög grundvallast á, ekki eindregnari stuðning þeirra, sem gjarnan líta á lýðræðið sem sjálfsagðan hlut? NÝTT TÆKIFÆRI Hér tölum við um það sem vel geng-ur og veltum engum upp úr fortíð sinni.“ Þessi orð mælir Hákon Gunn- arsson, sem ásamt Snæfríði Njálsdótt- ur, eiginkonu sinni, rekur bújörðina og meðferðarheimilið Árbót í Aðaldal. Heimilið er fyrir unglinga sem hafa lent í erfiðleikum og geta þeir tekið þátt í bústörfunum. Þau hjón hafa ann- ast börn fyrir barnaverndarnefndir í Kópavogi og Reykjavík frá árinu 1986 og hófu rekstur meðferðarheimilis sem ríkisstofnunar árið 1992. Nú er starf- semin tvískipt og stöðugildi fjórtán alls auk sálfræðings í hlutastarfi og kennara. Þau hafa því mikla reynslu eftir að hafa starfað með unglingum í rúm tuttugu ár. Meðferðarheimili eins og Árbót eru mjög mikilvæg í samfélaginu. Börn og unglingar, sem fara út af sporinu, þurfa að eiga leið inn í samfélagið á nýjan leik. Starfsemi slíkra heimila þarf að vera í föstum skorðum. Um hana þarf að vera skýr rammi og ekki er síður nauðsynlegt að fylgst sé með því að reksturinn og aðstæðurnar standist settar kröfur. Það er vitan- lega hagur skattborgara að svo sé, en fyrst og fremst eru það hagsmunir þeirra, sem þurfa á nýju tækifæri að halda. Rekstur meðferðarheimila get- ur kostað sitt, en hvað kostar manns- líf? Í umfjöllun Péturs Blöndal um Ár- bót í Morgunblaðinu á sunnudag kem- ur fram að sumir af skjólstæðingunum, sem dvelja í Árbót, eiga langan af- brotaferil að baki þótt ungir séu. „Auð- vitað skiptir mestu að hér fá krakk- arnir nýtt tækifæri,“ segir Hákon Gunnarsson. „Ég held að flestir átti sig á mikilvægi þess. En mikið er lagt upp úr tölum og uppgjörum nú til dags og þess vegna bendi ég stundum á það að þó að lagt sé út í nokkurn kostnað við að hjálpa þessum krökkum, þá held ég að þjóðhagslegur ávinningur sé mikill, því ef ekkert væri að gert er ekki ólík- legt að sumir af þeim krökkum sem hingað koma gætu kostað þjóðfélagið mun meira.“ Snæfríður Njálsdóttir segir að sér finnist íslenskt samfélag ekki vera barnvænt. Foreldrar séu undir miklu álagi vegna vinnu og eins sé mikið um einstæða foreldra og börnin einangr- ist: „Svo er hraðinn mikill og það eru gerðar miklar kröfur til krakka í skól- um. Ef þeir lenda utanveltu og stand- ast ekki kröfur geta þeir lent á jaðr- inum og í óheppilegum félagsskap.“ Ein leið til þess að komast á réttan kjöl er að skipta um umhverfi. Oft get- ur verið erfitt að byrja upp á nýtt í sama gamla umhverfinu innan um sömu gömlu vinina. Í Árbót er boðið upp á slíkt tækifæri og umsjónarmenn- irnir gera sér grein fyrir því að starfið er ekki bundið við venjulegan vinnu- dag, heldur útheimtir meira. Eins og Hákon segir er í Árbót fléttað saman heimilisstörfum, bústörfum, kennslu og sálfræðilegri meðferð og kallar hann þessa blöndu „umhverfismeð- ferð“. Í Árbót er unnið gott starf þar sem ungt fólk í vanda fær það sem mestu máli skiptir: nýtt tækifæri. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Fjórir nemar við lagadeild Háskóla Ís-lands vinna nú að nýju fræðiriti umíslenskt lagamál, sem er fyrsta ritsinnar tegundar hér á landi. Mark- miðið með verkinu er að varðveita og efla ís- lenskt lagamál en fyrirhuguðu verki svipar til lögfræðilegra orðabóka sem komið hafa út á Norðurlöndum um áratugaskeið. Íslenska lög- fræðiorðabókin verður á margan hátt sambæri- leg Juridisk ordbog sem fyrst kom út í Dan- mörku árið 1934. Að orðabókinni vinna laganemarnir Eggert Ólafsson, Helgi Valberg Jensson, Hildur Leifs- dóttir og Kristján Geir Pétursson sem vinna við orðtöku og frumvinnslu skýringa undir rit- stjórn Páls Sigurðssonar prófessors við laga- deild HÍ. Í ritnefnd eru Viðar Már Matthíasson lagaprófessor og formaður nefndarinnar, Páll Hreinsson lagaprófessor og Jóhann J. Ólafsson stórkaupmaður. Verkið er unnið á vegum Lagastofnunar HÍ sem mun annast útgáfuna og er stefnt að því að ritið komi út á miðju næsta ári. Ritið verður framlag lagadeildar HÍ og Lagastofnunar til að minnast 100 ára afmælis lagakennslu á Íslandi 1. október 2008. Að sögn Kristjáns Geirs Péturssonar laga- nema er hér um að ræða rit sem mun geyma öll helstu lagaorð og -hugtök íslenskrar lög- fræði á ólíkum réttarsviðum með stuttum skil- greiningum. „Hugmyndin er að gefa út hand- bók sem muni nýtast bæði lögfræðingum og öðrum sérfræðingum ásamt öllum almenningi,“ segir hann. „Á Norðurlöndunum og víðar er löng hefð fyrir bókum af þessu tagi en hér- lendis hefur ekki verið ráðist í útgáfu slíks verks. Hið eina sem út hefur komið í þessa veru á íslensku er Lögbókin þín sem er tals- vert frábrugðin því sem hér er verið að fást við.“ Skima allar bækur, ritgerðir og greinar um lögfræði Ljóst er að vinna við lögfræðiorðabókina er gríðarlega mikil, einkum í ljósi þess að fjór- menningarnir stóðu í upphafi frammi fyrir því að taka saman allt efni sem ritað hefur verið um lögfræði á íslensku síðastliðin 100 ár. „Þetta felur ekki aðeins í sér skimun á því sem hefur verið skrifað um lögfræði í fræðibók- um, heldur öllum ritgerðum, tímaritsgreinum og fleiru. Nú þegar erum við komin með orða- grunn upp á 10 þúsund orð og á síðari stigum verður tekin ritstjórnarleg ákvörðun um hvað verður valið inn í bókina að lokum. Hugmyndin er að hér verði þróað sívinnsluverkefni og að bókin verði gefin út í endurbættri mynd í fram- tíðinni eftir því sem við á.“ Að sögn Hildar hefur það komið hópnum talsvert á óvart hversu auðugur íslenskur laga- orðaforði er. n u s h l l s a a v i f e v e m Í V s d „Það er augljóst að íslenskt lagamál er ótrú- lega fjölbreytt og til samanburðar má nefna að í Juridisk ordbog eru ekki jafnmörg orð og við höfum þegar tekið saman,“ segir hún. „Þetta er sérstaklega áhugavert í ljósi þess að íslensk lögfræði sem akademísk grein á sér ekki svo langa sögu.“ Kristján Geir bætir við að sérstaða íslensks lagamáls felist að sumu leyti í því að enn lifir hluti hins forna lagamáls góðu lífi í nútímanum. „Ef við berum okkur saman við Dani, sem hafa talsvert af tökuorðum í sínu lagamáli, þá ein- kennist íslenska lagamálið af mikilli nýyrða- smíð. En að sjálfsögðu eru latnesk orð og orða- sambönd allt frá dögum Rómarréttar samofin íslensku lagamáli. Á hinn bóginn er unnið mik- ið þýðingastarf í nútímalögfræði og nægir þar að nefna umfangsmikið lagamál frá Evrópu- rétti sem kemur í hlut sérfræðinga Þýðing- armiðstöðvar utanríkisráðuneytisins að þýða á íslensku. Við samningu bókarinnar höfum við Laganemar vinna að fyrstu lögfræðiorðabók sinnar teg Geymir öll helstu h og heiti íslenskrar l Fræðirit Stefnt er að því að lögfræðiorðabókin kom eru Hildur Leifsdóttir, Kristján Geir Pétursson, Hel FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flutti í gærmorgun ræðu á al- þjóðlegri ráðstefnu um sjálfbæra þróun sem haldin er í Delhi á Indlandi. Í fyrirsvari fyrir ráðstefnunni er dr. R. K. Pachauri, aðalframkvæmdastjóri tækni- og vísindastofnunarinnar TERI á Indlandi. Dr. Pachauri stýrir jafn- framt vinnu IPCC (Intergovernmental Panel on Climate Change) en það er samstarf um 3000 vísindamanna um mat á hættum vegna loftslagsbreytinga. Niðurstöður af starfi IPCC eru væntanlegar á næstunni. Þá voru forseti Íslands og forseti Finnlands, Tarja Halonen, heiðursgestir á fundi indverskra fyrirtækja sem haldinn var sl. sunnudag, 21. janúar. Á fundinum var einkum rætt um samspil orkubúskapar, loftslagsbreytinga og efnahagslegrar þróunar. Þátttakendur voru forystumenn á fjölmörgum svið- um indversks efnahagslífs og fluttu báðir forsetarnir ræður á fundinum. Í ræðu sinni við setningarathöfn ráðstefnunnar í gærmorgun fjallaði for- seti Íslands um möguleika á samstarfi Indverja og Íslendinga um nýtingu hreinna orkulinda, svo sem jarðhita. Hann nefndi þann árangur sem orðið hefði í samstarfi þjóðanna eftir opinbera heimsókn forseta Indlands til Ís- lands árið 2005. Þá rakti forseti Íslands hvernig Ísland gæti orðið miðstöð fyr- ir samræður, rannsóknir og ákvarðanir á sviði hreinnar orku og stuðlað þann- ig að breyttri orkunýtingu á heimsvísu um leið og hamlað yrði gegn hættum vegna loftslagsbreytinga. Í ræðu sinni ítrekaði forsetinn þær áherslur sem fram komu í nýársávarpi hans hinn 1. janúar síðastliðinn og óskaði eftir sam- vinnu við rannsóknarstofnanir, fyrirtæki, samtök og sérfræðinga á Indlandi. Fjallað um hættuna af varanlegum loftslagsbreytingum Á ráðstefnunni verður m.a. fjallað um hættuna á varanlegum loftslags- breytingum og áhrif þeirra á lífshætti og lífsskilyrði í heiminum, þróun orku- mála í veröldinni og hlutverk endurnýjanlegra orkugjafa, ekki síst með tilliti til Indlands og Kína, vatnsbúskap í Asíu og Afríku, tækninýjungar og barátt- una gegn fátækt. Ráðstefnuna sækja, auk fjölmargra indverskra forystumanna, heims- þekktir vísindamenn og fræ stjórnmálamenn, leiðtogar ana og samtaka. Meðal þá lands, Kjell Magne Bonde fræðingurinn Jeffrey S forsætisráðherra Hollands, skýrslu um loftslagsmál. Nánari upplýsingar um r able Development Summit dsds/ Situr ráðstefnu á Indlandi um sj Ráðstefna Frá vinstri: Je seti Finnlands, forseti Ísla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.