Morgunblaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 25
Forseti Alþingis heimsóttinýlega Sádi-Arabíu í boðiforseta ráðgjafaþingslandsins, en sádi-arabískir
þingmenn höfðu komið til Íslands og
annarra Norðurlanda árið 2004.
Þess má geta að sendinefnd frá ut-
anríkismálanefnd norska Stórþings-
ins mun heimsækja Sádi-Arabíu síð-
ar í þessum mánuði. Forseti
Alþingis ákvað að taka með sér
sendinefnd kvenna til Sádi-Arabíu
og vakti það mikla athygli þar í
landi. Tilgangur heimsóknarinnar
var m.a. að ræða starfsemi þing-
anna, en ráðgjafaþingið í Sádi-
Arabíu hefur unnið að því að auka
samskipti sín út á við og fá upplýs-
ingar um starfsemi þjóðþinga á
Vesturlöndum. Hlýtur það að teljast
jákvætt skref og vill Alþingi leggja
sitt af mörkum til að kynna lýðræð-
isleg vinnubrögð í þessum heims-
hluta. Jafnframt vildi sendinefndin
fá tækifæri til að kynna sér þjóð-
félagsþróun í Sádi-Arabíu og ræða
málefni kvenna, sem vissulega er
ekki vanþörf á. Réttindi kvenna
voru rædd við alla fulltrúa stjórn-
valda sem sendinefndin hitti og
segja má með réttu að þau hafi verið
aðalumræðuefnið. Þá var þetta
tækifæri nýtt til að kynna, að beiðni
utanríkisráðuneytisins, framboð Ís-
lands til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Að lokum gafst í heim-
sókninni tækifæri til að ræða m.a.
viðskiptamál og umhverfismál, sem
og ástandið í Mið-Austurlöndum.
Mikið hefur verið rætt á und-
anförnum árum um nauðsyn þess að
auka skilning á milli menning-
arsvæða, að fá fólk á Vesturlöndum
og í Arabaheiminum til að ræða
meira saman. Mikilvægt er að slíkar
viðræður fari fram af gagnkvæmri
virðingu og í vinsemd, ef þær eiga
að hafa áhrif.
Mennt er máttur
Þar sem heimsókn okkar til
Riyadh hafa þegar verið gerð nokk-
ur skil viljum við í þessari grein
segja frá heimsókninni til Jeddah,
sem var ekki síður merkileg. Sam-
skipti kvenna og karla eru meiri í
Jeddah en annars staðar í landinu,
enda er þessi borg í fararbroddi
þjóðfélagsbreytinga. Konur eru enn
langt frá því að ná fram jafnrétti, en
þær eru þó mun meira áberandi,
sérstaklega á viðskiptasviðinu, en
konur annars staðar í Sádi-Arabíu. Í
Jeddah gafst gott tækifæri til að
ræða við konur. Umræður veittu
okkur innsýn inn í hugarheim sádi-
arabískra kvenna og þær kynntust
okkar sjónarmiðum.
Allir viðmælendur sendinefnd-
arinnar í ferðinni lögðu ríka áherslu
á aukna menntun kvenna og töldu
hana lykilinn að auknum réttindum
þeirra. Þess má reyndar geta að
meira en helmingur háskólanema í
landinu er nú konur. Við fengum
tækifæri til að heimsækja
kvennaháskóla í Jeddah sem starf-
ræktur hefur verið í sjö ár. Við hitt-
um rektor, kennara og aðra starfs-
menn, auk nokkurra nemenda, sem
allt voru konur. Í skólanum er fyrsta
verkfræðideildin ætluð konum í
Sádi-Arabíu, en jafnframt er hægt
að læra viðskiptafræði, tölvufræði
og fleiri fög. Rætt er um að stofna
stjórnmálafræðideild við skólann,
sem yrði spennandi nýjung.
Það var mjög gaman að ræða við
konurnar í skólanum, þær höfðu
greinilega mjög mikinn metnað,
voru stoltar af starfi sínu og bjart-
sýnar. Auðvitað hafa ekki allar
stúlkur aðgang að svo fínum skóla
sem þessum, en hann er ekki eins-
dæmi og þessi skóli vinnur t.d. að
því að veita kennurum úr öðrum
skólum þjálfun svo bæta megi
menntun kvenna annars staðar í
landinu. Þeir sem vilja auka mennt-
un kvenna og vinna þannig að aukn-
um réttindum þeirra eiga stuðning
okkar skilið. Áhugavert gæti verið
fyrir íslenskan háskóla að taka upp
samstarf við kvennaháskóla í Sádi-
Arabíu með það í huga að fá hingað
ungar konur sem skiptinemar.
Kvennasendinefnd
vekur athygli
Sendinefndin fékk jafnramt tæki-
færi til að heimsækja verslunarráð
borgarinnar, en þar sitja fjórar kon-
ur í átján manna stjórn. Fjölmargar
konur taka þátt í störfum ráðsins,
en á örfáum árum hefur þátttaka
kvenna í atvinnulífi borgarinnar
aukist umtalsvert, þó að margar
hindranir séu enn fyrir hendi. Að-
eins 25% Sáda eru á vinnumarkaði,
þar af 5–7% kvenna. Þessu þarf að
breyta. Sendinefndin átti fund með
stórum hópi úr viðskiptalífi borg-
arinnar, þar á meðal u.þ.b. 20 kon-
um, meðal annars bankastjórar,
konur í fyrirtækjarekstri og fjöl-
miðlakonur. Forseti Alþingis hélt
þar inngangserindi,
en síðan fóru fram
mjög opnar og líf-
legar umræður.
Konur í Jeddah hafa
sótt mjög fram á við-
skiptasviðinu á und-
anförnum árum,
unnið mikið frum-
kvöðlastarf og er það
farið að hafa áhrif í
öðrum borgum. Við-
mælendur, bæði
karlar og konur, áttu
von á því að þetta
ætti smátt og smátt
eftir að skila sér á
pólitíska sviðinu.
Margir viðmælendur
lögðu áherslu á að
breytingar á löggjöf
og þjóðfélagsskipan í
Sádi-Arabíu yrði að
gera í sátt við þeirra
hefðir og menningu.
Konurnar, og reynd-
ar karlarnir líka,
töldu mjög spenn-
andi tíma framundan
í Sádi-Arabíu. Það
var sérstaklega
áhugavert að heyra
sjónarmið kvenna í viðskiptaráðinu,
ekki síst um áherslur þeirra í bar-
áttunni fyrir auknu frelsi, en þær
eru ekki alltaf í samræmi við okkar
hugmyndir. Þó er alltaf hægt að
finna sameiginlegar áherslur, eins
og kom fram t.d. í umræðum um
dagvistarmál. Jafnframt var sagt
frá því að fyrir fimm árum hefði ver-
ið óhugsandi að tala um heimilis-
ofbeldi í landinu, en nú væri búið að
stofna eitt kvennaathvarf. Kannski
teljast þessi skref ekki ýkja merki-
leg í okkar þjóðfélagi, en það er ljóst
að aukin samskipti út á við og
menntun eru lykilatriði til að auka
réttindi kvenna.
Konur í Sádi-Arabíu vilja og
þurfa aukin samskipti við kynsystur
sínar á Vesturlöndum. Þær lögðu
áherslu á að það væri mjög mik-
ilvægt fyrir þær að þessi sendinefnd
skipuð eingöngu konum hefði komið
til landsins. Það vekti athygli og
veitti þeim meðbyr. Stjórnarkona í
verslunarráðinu sagði eina setningu
sem má segja að hafi verið meg-
ininntakið í þeirra málflutningi: „Við
þurfum stuðning ykkar, ekki þrýst-
ing, við þurfum skilning, ekki dóm-
hörku.“
Að sýna gest-
gjöfum virðingu
Sendinefndin ákvað í upphafi
heimsóknar að eigin frumkvæði að
klæða sig að hluta samkvæmt siðum
landsins og bera slæðu yfir hárinu á
fundum með ráðamönnum. Það er
hefðbundið í opinberum heimsókn-
um sem þessum að taka tillit til sið-
venja þess lands eða þjóðhöfðingja
sem sóttur er heim. Við fundum það
þó greinilega, bæði hjá körlum og
konum, að þau voru þakklát að við
skyldum leggja okkur fram um að
sýna menningu landsins virðingu
með þessum hætti. Við erum ekki í
vafa um að þessi ákvörðun okkar
hafi orðið til þess að viðmælendur
okkar hafi verið opnari og tilbúnari
til viðræðna um viðkvæm mál en
þeir hefðu annars verið.
Konur sem sendinefndin hitti í
höfuðborginni voru allar með blæju
fyrir andlitinu þegar karlar voru ná-
lægir, sem var mjög sláandi fyrir
okkur. Við lítum svo á að það hafi
verið jákvætt fyrir konur í Riyadh
að sjá konur frá erlendu þjóðþingi
sem voru einar á ferð og ekki huldu
andlit sitt. Þess ber að geta að
Jeddah er mun frjálslegri borg en
Riyadh, en konur sem sendinefndin
hitti þar báru slæðu yfir hárinu ein-
göngu. Þær kunnu að meta að við
skyldum bera slæðu á höfði eins og
þær og sögðu það virðingarvott við
sig og sína menningu.
Það er ljóst að ef Sádi-Arabía ætl-
ar að njóta velgengni og virðingar í
samfélagi þjóðanna, ef það ætlar að
ná árangri í efnahagsmálum og í
samkeppni á alþjóðamarkaði, í þess-
um hnattvædda heimi sem við lifum
í í dag, þá verður að gera átak í mál-
efnum kvenna og mannréttinda-
málum almennt. Okkur fannst því
mjög jákvætt að fara til Sádi-Arabíu
sem sendinefnd þingkvenna frá Ís-
landi, ræða þessi mál og kynna okk-
ar viðhorf. Okkur í sendinefndinni
dettur ekki í hug að halda því fram
að þessi heimsókn ein og sér muni
leiða til einhverra stórfelldra breyt-
inga á högum kvenna í Sádi-Arabíu
eða að hún muni leysa þau vandamál
sem herja á þennan heimshluta, en
við höldum því fram að slíkar heim-
sóknir séu af hinu góða og opni
kannski smám saman einhverjar
gáttir. Við kynntum okkar sjón-
armið og ræddum af hreinskilni við
viðmælendur okkar, en lögðum
áherslu á að sýna þeim virðingu og
vera lausar við þá fordóma sem
stundum eru einkennandi fyrir sam-
skipti á milli menningarsvæða. Oft
er auðveldara fyrir stjórnvöld í ríkj-
um sem gagnrýnd eru af Vest-
urlöndum að heyra slíka gagnrýni
frá litlu landi eins og Íslandi en frá
stórþjóðum. Við eigum að nýta þau
tækifæri sem bjóðast til að láta rödd
okkar heyrast, að leggja lóð á vog-
arskálarnar í baráttu fyrir auknu
lýðræði, mannréttindum og rétt-
indum kvenna.
Kvennasendinefnd
í Sádi-Arabíu
Eftir Sólveigu Pétursdóttur,
Rannveigu Guðmundsdóttur,
Arnbjörgu Sveinsdóttur og
Kolbrúnu Halldórsdóttur
»Mikilvægt er aðslíkar viðræður
fari fram af gagn-
kvæmri virðingu og í
vinsemd, ef þær eiga að
hafa áhrif.
Sólveig
Pétursdóttir
Sólveig er forseti Alþingis, Rannveig
er 1. varaforseti Alþingis, Arnbjörg
er alþingismaður og Kolbrún er
alþingismaður.
Sólveig Pétursdóttir skrifar kveðju frá Alþingi til verslunarráðsins í Jeddah að viðstöddum formanni ráðsins.
Kolbrún
Halldórsdóttir
Rannveig
Guðmundsdóttir
Arnbjörg
Sveinsdóttir
notið góðs af því þýðingarstarfi sem þar er
unnið og hin mikla vinna sem fram fer hjá mið-
stöðinni endurspeglar vel þá grundvallar-
hugsun að þýðingarstarfsemi er bráðnauðsyn-
leg ef ætlunin er að viðhalda íslensku
lagamáli.“
Framundan hjá hópnum er mikil vinna við
skilgreiningar lagahugtaka og samræming-
arvinna vegna orðasafnsins, en þær verða unn-
ar í nánu samstarfi við prófessora og kennara
við lagadeild HÍ. „Við gerum okkur einnig von-
ir um að verkið verði aðgengilegt á Netinu í
framtíðinni hvort sem það verður gegn gjaldi
eða ekki.“ segir Kristján Geir. Hópurinn mun
vinna að verkinu samhliða námi og hefur verk-
efnið fengið styrki frá Alþingi, mennta-
málaráðuneytinu og Rannsóknasjóði Háskóla
Íslands. Fjármögnun verksins er þó ekki lokið.
Verkefnið verður kynnt sérstaklega á Rann-
sóknadögum Stúdentaráðs Háskóla Íslands
dagana 24. til 25. janúar nk.
gundar hérlendis
hugtök
lögfræði
Morgunblaðið/RAX
i út á næsta ári. Höfundar af hálfu laganema
lgi Valberg Jensson og Eggert Ólafsson.
æðimenn, forstjórar alþjóðlegra stórfyrirtækja og
á vettvangi umhverfismála og forystumenn stofn-
átttakenda eru m.a. Tarja Halonen, forseti Finn-
evik, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, hag-
Sachs, Ruud F. M. Lubbers, fyrrverandi
, og Nicholas Stern, höfundur svokallaðrar Stern-
ráðstefnuna, sem á ensku ber heitið Delhi Sustain-
t, má finna á heimasíðu hennar www.teriin.org/
álfbæra þróun
effrey Sachs hagfræðingur, Tarja Halonen, for-
ands og dr. Pachauri á ráðstefnunni í Delhi.