Morgunblaðið - 23.01.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 27
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
UNDIRHEIMAR Íslands eru með
þeim margflóknustu í heiminum og
eru þá öll hin stærri lönd meðtalin.
Oft hefur fólk hér á landi talað um
undirheimana sem eitthvað þoku-
kennt og lítt hönd á festandi. Flestir
óttast undirheimana. Fáir hafa litið
þá augum. Einungis einn maður hef-
ur hingað til ferðast um þann heim
allan. Fyrir hans tilstuðlan er nú svo
komið að Ísland er eina landið í
heiminum sem eignast hefur heil-
stætt yfirlit um undirheima sína.
Stórvirkið Íslenskir hellar eftir
Björn Hróarsson hefur verið a.m.k.
25 ár í vinnslu. Um er að ræða tvær
bækur í öskju. Verkið í heild er 672
blaðsíður. Ljósmyndir í bókinni eru
um 1000 talsins, auk um 100 upp-
drátta af hraunhellum. Í þessu stór-
kostlega verki, sem er í rauninni
hreint afrek út af fyrir sig, er lýst
undraveröld hraunhellanna á Ís-
landi. Hellarnir mynda undirheima
landsins. Þeir eru yfir 100 km að
lengd og að rúmmáli eru þeir yfir
fimm milljónir rúmmetra.
Með stórfenglegum ljósmyndum
og uppdráttum er lýst á fimmta
hundrað hellum og um fæsta þeirra
hefur verið fjallað á prenti fram til
þessa. Bókin færir lesendum gríð-
arlega viðbót við lýsingu landsins og
gefur nú öllum kost á að berja þá
augum. Sérhver hellisrás hefur sín
sérkenni og lögun. Litadýrð undir-
heimanna er mikil. Samsetning lita
er komin beint frá móður náttúru,
svo og önnur jarðmyndunarlista-
verk, sem þar er að finna. Hug-
myndaauðgi manna getur verið fjöl-
breytt, en henni eru takmörk sett og
hún verður í rauninni léttvæg þegar
staðið er andspænis afurð náttúr-
unnar. Hún birtist m.a. í hellunum,
sem hafa fengið að vera ósnertir í
þúsundir ára.
Hellafræðin er kynnt ítarlega til
sögunnar og tilurð hraunhella út-
skýrð á glöggan og aðgengilegan
hátt. Fjallað er um hraunrennsli og
þær einstæðu myndanir sem ís-
lenskir hraunhellar geyma og gerð
grein fyrir hellarannsóknum, hella-
mennsku og umgengni í hellum svo
eitthvað sé nefnt. Með hjálp stór-
fenglegra ljósmynda er hulunni
svipt af óþekktri en heillandi veröld
og lesendum boðið í ferðalag sem
seint gleymist.
Björn sagði við
útgáfu bókarinnar
að eitt af mark-
miðum útgáfunnar
væri að kynna
þessa undirheima
og upplýsa um
undur þeirra og
hvernig skuli um
þá gengið. Bókinni
er beinlínis ætlað
að koma í staðinn
fyrir hellaferðir
enda nú hægt að
njóta hellanna
heima í stofu eða
„sitja kyrr á sama
stað en samt að
vera að ferðast“.
Þótt bókin sé eðlilega búin til fyrir
lesendur sína eins og aðrar bækur
þá er hún einnig og ekki síður sett
saman fyrir hellana sjálfa. Þeir
þurfa á því að halda að um þá sé vit-
að og um þá sé fjallað. Það er hvorki
hægt að skoða, virða, nýta né vernda
heim sem ekki er vitað um. Þetta
mikla verk fjallar þannig ekki bara
um hellana heldur var hún einnig
hugsuð fyrir þá.
Í hinu mikilfenglega ritverki Ís-
lenskir hellar leggst allt á eitt við að
ljúka upp ævintýralegri veröld und-
irheima landsins sem fáir þekkja –
en allir geta nú fræðst um, skoðað og
dáðst að.
Til hamingju, Björn Hróarsson –
til hamingju Íslendingar.
ÓMAR SMÁRI ÁRMANNSSON,
lögreglumaður.
Undirheimar Íslands
Frá Ómari Smára
Ármannssyni:
Úr hellinum Ferli í Brennisteinsfjöllum.
Í TILEFNI af skrifum Björg-
vins Sigurðssonar alþingismanns
í Morgunblaðið um íbúakosningu
vegna samninga okkar um álver
í Helguvík vil ég upplýsa hann
um eftirfarandi:
„Pacta sunt servanda“ er meg-
inregla samningaréttarins. Halda
ber gerða samninga.
Í gerðum samningum okkar
um lóð undir álver við Helguvík
eru engir fyrirvarar um að málið
skuli lagt undir sérstaka kosn-
ingu íbúa.
Meginsamningarnir, sem
tengjast þjónustu hafnarinnar og
úthlutun og gerð lóðar við
Helguvík, voru samþykktir sam-
hljóða í bæjarstjórn í maí í
fyrra, stuttu fyrir bæjarstjórn-
arkosningarnar.
Engin tillaga kom fram um
íbúakosningu, engin bókun var
gerð um það.
Samningarnir núna ganga ein-
göngu út á að færa álverið norð-
ar og fjær byggð.
Það var samþykkt samhljóða í
bæjarstjórn sl. þriðjudag.
Bæjarfulltrúum er fullljóst að
mikill stuðningur íbúa er við
málið, sérstaklega eftir að við
færðum staðsetningu fjær
byggð.
Samningunum tilheyra fyr-
irvarar um niðurstöður af mati á
umhverfisáhrifum, orkuöflun og
stjórnsýslulega meðferð málsins.
Það ferli fer nú fljótlega af
stað með vönduðum kynningum.
Pacta sunt servanda-reglan
hefur gilt og verið í heiðri höfð
frá örófi alda.
Trúverðugleiki manna hefur
jafnan verið metinn eftir því
hvernig þeir standa við orð sín.
Þeir sem ekki standa við
gerða samninga eru að jafnaði
ekki hátt skrifaðir og fáir vilja
eiga viðskipti við slíka aðila.
Mikilvægt er fyrir sveitarfélag
að stjórnvöld þess standi vörð
um trúverðugleika þess.
Aðilar sem leita til sveitarfé-
lags um uppbyggingu á atvinnu-
rekstri verða að geta treyst því
að samningar sem þeir gera við
til þess bær stjórnvöld í sveitar-
félaginu standi.
Stjórnvöld í Reykjanesbæ
standa við gefin loforð og gerða
samninga.
Það gildir jafnt um kosninga-
loforð og samninga sem gerðir
eru við lögaðila.
Árni Sigfússon
„Pacta sunt
servanda“
Höfundur er bæjarstjóri
í Reykjanesbæ.
Miðvikudagur, 24.janúar
Deildakynningar kl 12:30 til 15:30
* Raunvísindi..............................................Askja, sal 132
* Félags- og hugvísindi.............................Oddi, sal 101
* Lögfræði og Viðskipta- og hagfræði....Lögberg, sal 101
* Heilbrigðisvísindi....................................Læknagarður, 2.hæð
* Verkfræði.................................................VR-II, 1.hæð
Kynnt verða fjölmörg verkefni framhaldsnemenda ásamt hugmynd
nemenda um nýsköpunar- og frumkvöðlasetur við Háskóla Íslands,
InnoVit.
Fyrir utan nemendur munu eftirfarandi aðilar meðal annarra koma
fram á deildakynningum:
* Ólafur Þ. Harðarson, deildarforseti Félagsvísindadeildar HÍ
* Kristinn Andersen, rannsóknastjóri Marels hf.
* Þorleifur Finnsson, sviðstjóri nýsköpunar Orkuveitu Reykjavíkur
* Sigurður Reynir Gíslason, vísindamaður/rannsóknaprófessor HÍ
STÚDENTARÁÐS 2007
annsóknadagarR
Aðalstyrktaraðilar:
Aðrir styrktaraðilar:
24. - 25. janúar
Fimmtudagur, 25.janúar
Lokahóf, hátíðarsal aðalbyggingu kl 15:00
Kynnt verða tvö framúrskarandi verkefni
nemenda við HÍ. Einnig munu eftirfarandi
aðilar ávarpa samkomuna:
* Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
* Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur
* Þróunarstjóri Háskóla Íslands
* Formaður Stúdentaráðs
www.rannsoknadagar.hi.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111