Morgunblaðið - 23.01.2007, Page 29

Morgunblaðið - 23.01.2007, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 29 Á UNDANFÖRNUM árum hef- ur sjónum verið beint að geðfötl- uðum og aðstæðum þeirra. Árni Magn- ússon, þáverandi félags- málaráðherra, í sam- vinnu við Jón Kristjánsson, þáverandi heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, hratt af stað sérstöku átaki til að bæta bú- setuúrræði geðfatlaðra en ekki síst þá þjónustu sem þeir þurfa eins og starfsendurhæfingu, stoðþjónustu og ýmis úrræði. Útgangs- punktur verkefnisins er aukin lífsgæði og sjálfstæði geðfatl- aðra. Nýlega voru kynntir mikilvægir áfangar í þessu átaki félagsmála- ráðherra til eflingar þjónustu við geðfatlað fólk. Í byrjun október kynnti verkefnisstjórn stefnu og framkvæmdaáætlun áranna 2006– 2010 á blaðamannafundi og síðan þá hefur verið unnið hörðum höndum að því að koma henni í framkvæmd. Heimili fyrir heimilislausa Magnús Stefánsson félagsmála- ráðherra og Reykjavíkurborg gerðu nú á dögunum með sér samstarfs- samning um stofnun og rekstur heimilis fyrir heimilislausa í Reykjavík. Á heimilinu geta 10 heimilismenn dvalið samtímis og verður boðið upp á almenna og sér- hæfða heilbrigðis- og hjúkr- unarþjónustu og heildstæða fé- laglega ráðgjöf og stuðning til þess að ná tökum á lífi sínu, meðal ann- ars að sækja áfengis- og fíkniefna- meðferð. Um er að ræða til- raunaverkefni til þriggja ára og af hálfu félagsmálaráðuneytisins er verkefnið hluti af átakinu til efl- ingar þjónustu við geðfatlað fólk. Nú þegar er farið að leita að hús- næði og óskað hefur verið eftir samvinnu og aðild heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, heilsu- gæslunnar og lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu. Í könnun sem félagsmálaráðu- neytið lét gera 2005 og átakið bygg- ist á kom fram að á annað hundrað manns, geðfatlað fólk, hafði þörf fyrir betri búsetu og stoðþjónustu en það bjó við og hluti þess hóps var heimilislaus. Heimilið er mik- ilvægt skref í að auka þjónustuna við þennan hóp sem aðstæðna sinna vegna og oft vegna veikinda á ekki lengur í nein hús að venda. Þetta fólk þarf því á mjög sértækum úrræðum að halda til þess að geta stigið fyrstu skrefin til bata. Í vel- ferðarríki eins og því sem við búum í er ótækt að fólk þurfi að búa við langvarandi húsnæðisleysi og ör- yggisleysi sem af því stafar, sama hverjar aðstæður þess eru. Úttekt á þjónustu við geðfatl- aða og aukin fræðsla Annar áfangi í átakinu varð að veruleika milli jóla og nýárs þegar félagsmálaráðherra og fulltrúar AE starfsendurhæfingar skrifuðu undir samning um mat á þjónustu við geðfatlað fólk og átak í ráðgjöf og fræðslu. AE starfsendurhæfing, með þær Elínu Ebbu Ásmunds- dóttur og Auði Axelsdóttur í far- arbroddi, sérhæfir sig í starfs- og atvinnuendurhæfingu öryrkja, eink- um með áherslu á þá sem eru með geðröskun. Samningurinn tekur til áranna 2007 og 2008 og felur meðal annars í sér að AE starfsendurhæf- ing tekur að sér gerð fræðsluefnis um þjónustu við geðfatlaða og miðl- un á efninu til starfsmanna svæð- isskrifstofa um málefni fatlaðra. Á fyrri hluta samningstímans verður lögð sérstök áhersla á fjögur svæði úti á landi þar sem þjónusta við geðfatlaða er veitt á vegum ráðu- neytisins. Svæðin tengjast Ísafirði, Egilsstöðum, Húsavík og Akureyri. Fræðsluefnið verður byggt á val- deflingu og notendarannsóknum/ batarannsóknum, erlendum sem innlendum. Geðfatlaðir hafi áhrif Í úttekt sinni á þjónustu við geð- fatlaða notar AE starfsendurhæfing NsN-aðferð eða Notandi spyr Not- anda. Geðfötluðum er gefið tæki- færi til að miðla af reynslu sinni og þekkingu en ekki síst að hafa áhrif á þjónustuna. Þessi hugmyndafræði fellur mjög vel að stefnu félags- málaráðuneytisins í málefnum geð- fatlaðra sem sett er í samstarfi við hagsmunasamtök þeirra sem búa við fötlun og aðstandendur þeirra. Framtíðarsýn stefnunnar er að þeir sem búa við fötlun eigi, jafnt og aðrir, kost á stuðningi til sjálfstæðis og lífsgæða svo að þeir fái notið sín sem fullgildir þegnar samfélagsins á forsendum eigin getu og styrk- leika og njóti virðingar og jafn- réttis. Sú hugmyndafræði sem þær stöllur hafa þróað og auðvitað fleiri hafa tileinkað sér hér heima og er- lendis byggist einnig á þessum gild- um. Lífsgæði einstaklinganna sem um ræðir eru útgangspunkturinn og þeim er gefið færi á að hafa áhrif á þjónustuna og stefnuna. Sem dæmi um það starfar við hlið verkefnisstjórnarinnar svokallaður ráðgjafarhópur sem samansettur er af fulltrúum notenda þjónustunnar, aðstandenda og hagsmunahópa. Frumraun verkefnisins NsN varð sumarið 2004 og heppnaðist mjög vel og veitti nokkrum geðfötluðum einstaklingum í Hugarafli gott tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Verkefnið hefur svo sannarlega undið upp á sig og sprotar þess orðnir margir. Nú eru framundan enn fleiri spennandi verkefni og mikilvægt að okkur takist vel upp í þessu átaki. Ég held og veit reynd- ar að við munum taka mörg risa- skref til framtíðar heppnist okkur ætlunarverk okkar um að auka lífs- gæði geðfatlaðra í samfélaginu. Mikilvægir áfangar átaks í málefnum geðfatlaðra Sæunn Stefánsdóttir fjallar um átak til eflingar þjónustu við geðfatlað fólk Sæunn Stefánsdóttir »Nú eru framundanenn fleiri spennandi verkefni og mikilvægt að okkur takist vel upp í þessu átaki. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins og situr í verkefnisstjórn átaksins. FRAMTÍÐARSÝN framsókn- armanna er skýr. Við viljum áfram starfa að alhliða framförum fyrir alla þjóðina og allar byggðir lands- ins. Við byggjum hugmyndir okk- ar á hugsjónum samvinnu og sam- hjálpar með öflugt og þroskað atvinnu- og viðskiptalíf, sam- keppnisfært við nágrannalöndin, sem grundvöll fyrir margþættu velferðarkerfi, menningar- og þjóðlífi. Við framsóknarmenn viljum áfram vinna að þeirri framtíðarsýn að hér eflist og þroskist þekking- arsamfélag með öflugu mennta- kerfi og menntasókn og skapandi greinum, vísindum og tækni sem blómstrar ekki síst í fjölbreyti- legum litlum og meðalstórum fyr- irtækjum sem njóta svigrúms fyrir frjálst ábyrgt framtak. Öflugt og lýðræðislegt þekking- arsamfélag er það svar sem fram- sóknarmenn vilja gefa við kalli nýrrar aldar. Við viljum efla menntun, vísindi og tækni til þess að Íslendingar stefni áfram inn í framtíðina með sterkum metnaði. Forsendur fyrir þessu eru í öflugu opnu hagkerfi og samkeppnishæfu viðskiptalífi sem stendur að baki menningarlífi, félagsmálum og vel- ferðarkerfi. Á síðustu árum hefur orðið hér bylting í málefnum háskólastigsins og í vísindamálum þjóðarinnar. Þessu þurfum við að fylgja eftir með öflugri menntasókn í þágu allrar þjóðarinnar. Hér þarf mikill metnaður að ríkja því að í þessu er vaxtarbroddur gróandi þjóðlífs. Íslendingar verða að stefna að langvarandi stöðugleika og jafn- vægi í efnahagsmálum, til þess m.a. að arði hagvaxtarins verði dreift til allra byggða landsins og til allrar þjóðarinnar, einkum til þeirra sem mest eru þurfandi. Nú lýkur brátt stærstu fram- kvæmdum þjóðarsögunnar og þá er tímabært að vinna að þessu mikilvæga framtíðarverkefni. Jón Sigurðsson Framtíðarsýn framsóknarmanna Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.