Morgunblaðið - 23.01.2007, Side 31

Morgunblaðið - 23.01.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 31 fjóra vel gerða syni sem hafa eignast sína maka og börn, sem ég veit að voru þeim báðum miklir gleðigjafar. Missir allrar fjölskyldunnar er mikill og sár en ég veit að minning- arnar eru þeim hjartfólgnar og dýr- mætar. Hið sama er með mig. Minning- arnar um mína hjartkæru vinkonu eru mér dýrmætar. Það er eins og maðurinn minn sagði svo oft: „Hún Þóra er perla“. Elsku Tómas, synir og þeirra fjöl- skyldur. Við Stefán og börn okkar vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín vinkona Guðrún Sigurjónsdóttir. Í upphafi búskapar síns áttu þau Þóra og Tómas heima á Akureyri um hríð og þar eignuðust þau fyrsta son sinn. Kynni okkar hófust um það leyti, sem við stofnuðum fyrsta heim- ili okkar fyrir næstum 60 árum. Þóra var þegar í upphafi hjúskapar síns glæsileg húsmóðir. Návist hennar var ævinlega sérstaklega þægileg. Heimilinu stjórnaði hún alla tíð af dæmalausum myndarskap, smekk- vísi og kærleika en leiðir skildust er Þóra og Tómas settust að í Reykja- vík og við í Kaupmannahöfn og þann- ig liðu árin án þess að færi gæfist á að hittast. Þegar við fluttum aftur heim voru gömul kynni endurnýjuð. Það var engu líkara en við hefðum aldrei farið. Þóra og Tómas höfðu ekkert breyst. Viðmót Þóru var slíkt að frá henni stafaði yl og birtu hvar sem hún fór. Það er um okkur eins og alla, sem kynntust Þóru að fallega og hlýja brosinu hennar gleymum við aldrei. Slíkar minningar er gott að eiga að skilnaði. Tómasi og fjölskyldu hans vottum við einlæga samúð. Anna og Birgir. Kveðja frá Kópavogsdeild Rauða krossins Óhætt er að segja að Þóra Kristín hafi verið frumkvöðull og fremst meðal jafningja til margra ára í öfl- ugu starfi sjúkravina Kópavogs- deildar Rauða krossins. Hún var í hópi kvenna sem hittust í september 1984 til að undirbúa heimsóknaþjón- ustu deildarinnar í hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð. Hún starfaði æ síðan af einstökum eldmóði og hlýju að þessu verkefni, hafði lengi forystu um skipulag starfsins og var drif- kraftur í því. Þóra Kristín lét ekki þar við sitja heldur sat hún einnig um árabil í stjórn deildarinnar. Frábært framlag hennar sem sjálfboðaliða vakti verðskuldaða at- hygli innan hreyfingarinnar. Hún hlaut sérstaka viðurkenningu Rauða kross Íslands fyrir starf sitt að mál- efnum sjúkravina og á aðalfundi Kópavogsdeildar á síðasta ári var hún heiðruð fyrir vel unnin störf í þágu deildarinnar. Kópavogsdeild Rauða krossins naut starfskrafta hennar og áhuga svo lengi sem heilsa hennar leyfði. Við kveðjum nú góðan félaga og minnumst hennar með þakklæti og virðingu fyrir framlag hennar í þágu hugsjóna Rauða kross- ins. Innilegar samúðarkveðjur send- um við Tómasi og fjölskyldunni. Garðar H. Guðjónsson, formaður. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran.) Með hryggð í hjarta kveðjum við, sjúkravinir í Kópavogsdeild RKÍ, Þóru Kristínu Eiríksdóttur, leiðtoga okkar og fyrirmynd. Þegar Hjúkrunarheimilið Sunnu- hlíð tók til starfa 1982 var það Soffía Eygló Jónsdóttir, félagi í Kópavogs- deild RKÍ, sem dreif í því að fá lista- menn og skemmtikrafta öðru hvoru til að stytta vistmönnum stundir og lífga upp á heimilislífið. En fljótlega tók Þóra við þessu starfi og skipulagði það. Hún fékk nokkrar konur til liðs við sig, en bar sjálf ábyrgð á verkefninu og stjórn- aði hópnum. Það varð til góður hópur kvenna, sem kallaði sig sjúkravini. Þær mættu á ákveðnum tímum í Sunnuhlíð og héldu uppi samveru- stundum fyrir vistmenn með upp- lestri, söng og annarri tilbreytingu. Öllu starfinu stýrði Þóra af slíkri elskusemi og umhyggju að brátt voru allar í hópnum tengdar vináttu- böndum. Það ríkti gleði og sam- heldni, þegar hópurinn hittist á vinnu- og fræðslufundum eða til að skemmta sér saman, oft á fallegu heimili Þóru, þar sem hún veitti af rausn og myndarskap. Einstök hlýja einkenndi öll hennar störf í þágu Kópavogsdeildar RKÍ og sjúkravinanna og það andrúmsloft streymdi til hópsins og mótaði við- horf hans til starfsins í Sunnuhlíð. Aldrei sparaði hún fyrirhyggju eða fyrirhöfn til að hlú að skjólstæðing- unum og skapa hátíðarstemmningu á samverustundunum, innan heimilis- ins og í stuttum ferðum utan þess. Síðasta starf hennar sem sjálf- boðaliði var á sambýli aldraðra á Skjólbraut. Hún vann þar frábært starf við góðar undirtektir, enda við- mót hennar þannig að fólk laðaðist að henni. Vistmenn og starfsfólk sam- býlisins minnast hennar með inni- legu þakklæti og mikilli eftirsjá. Stjórn Rauða kross Íslands heiðr- aði Þóru með því að veita henni í september 1991 viðurkenningu fyrir störf hennar sem sjálfboðaliði. Sjúkravinum Kópavogsdeildar var boðið í hóf með henni. Við vorum stoltar af henni og glöddumst fyrir hennar hönd. Ennfremur að finna að sjálfboðið starf er metið að verðleik- um. Mannkærleikur var aflið, sem dreif Þóru áfram í sínu frumkvöðla- og sjálfboðaliðastarfi. Vonandi verð- ur það áfram leiðarljós í starfi sjálf- boðaliða Rauða krossins um ókomna tíð. Það er mannbætandi að kynnast manneskju eins og Þóru og lætur engan ósnortinn. Við þökkum af ein- lægum huga samfylgdina. Við hugsum til eiginmanns henn- ar, barna og afkomenda og sendum þeim hugheilar samúðarkveðjur. Fyrir hönd sjúkravina Kópavogs- deildar RKÍ, Pálína Jónsdóttir. Á árunum 1977–94 vorum við und- irritaðir í forsvari fyrir Rauðakross- deild Kópavogs, einu þeirra góðgerð- arfélaga í bænum sem stóðu að stofnun Sunnuhlíðarsamtakanna ár- ið 1979 og uppbyggingu þeirra síðan. Í þeim samtökum birtist leiftrandi dæmi þess hverju frjálst framtak fær til vegar komið þegar afl opinberrar stjórnsýslu þrýtur. Allt var það reist á sjálfboðnu áhugastarfi, fagurri lífs- sýn, dugnaði og kunnáttu einstak- linga sem skipuðust saman í sveit. Þar var Þóra Kristín Eiríksdóttir liðsmaður sem um munaði. Hlutur hennar var m.a. sá að hún var lengi í forystu fyrir hópi kvenna á vegum Rauðakrossdeildarinnar sem kölluðu sig sjúkravini og hafa veitt heimilisfólki á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð margvíslega lífsfyllingu að vetrarlagi með daglegri samveru af ýmsu tagi, viðræðum, lestri, list- flutningi, ferðum og hreyfingu auk veitinga og gjafa. Þetta var á margan hátt brautryðjandastarf sem hefur mótast og vaxið í tímans rás. Forysta Þóru Kristínar í þessu starfi var á þann veg að hverjum sem fylgdist þar með fannst hann verða ríkari og betri af þeim kynnum. Því réð fágað viðmót hennar, nærfærni, greind og góðvild. Auk þessa annaðist Þóra Kristín um árabil stjórnarstarf og skrifstofu- hald fyrir Rauðakrossdeild Kópa- vogs. Allt þetta sjálfboðna starf innti hún af hendi með önnum á stóru heimili og skyldum sem fylgja því að vera eiginkona þingmanns, ráðherra og seðlabankastjóra. Mannúðarstarf sitt rækti hún meðan heilsa leyfði af óbrigðulli alúð og þeim góða hug sem vegur ei verk sín mót gjöldum. Fyrir vináttu, tryggð og allt henn- ar góða starf vottum við Þóru Krist- ínu Eiríksdóttur einlæga virðingu og þökk. Við munum ævinlega minnast dýrmætra kynna við þessa merku konu. Tómasi Árnasyni og fjölskyldu hans vottum við og eiginkonur okkar dýpstu samhryggð. Ásgeir Jóhannesson, Ólafur Pálmason. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning ✝ ARI JÓNSSON bóndi á Sólbergi, Svalbarðsströnd, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstu- daginn 19. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd barnanna okkar og annarra vandamanna, Svanhildur Friðriksdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BERTRAM HENRY MÖLLER, Tunguvegi 24, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans laugar- daginn 20. janúar. Guðríður Erla Halldórsdóttir, Hákon Gunnar Möller, Linda Möller, Guðrun Möller, Ólafur Árnason, Sóley Halla Möller, Hjörtur Bergstað, Einar Kári Möller og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐMUNDUR S.TH. GUÐMUNDSSON síldar- og fiskmatsmaður, Fiskhóli 5, Höfn, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 9. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Edda Guðbjörg Sveinsdóttir, Stefán Jónas, Guðmundur Ómar, Anna Ingólfsdóttir, Haraldur Huginn, Helga Ólafsdóttir, Sigríður Kristín, Rúnar Gylfason, Gunnar Örn, Stefanía Bragadóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og vinur, BJÖRN SIGURÐSSON bóndi, Sauðhaga, Völlum, andaðist laugardaginn 20. janúar. Útför hans fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardag- inn 27. janúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sjúkrahúsið á Egilsstöðum eða Krabbameinsfélagið. Jóhanna Freyja Björnsdóttir, Magnús S. Magnússon, Magnea Herborg Björnsdóttir, Sigmar Björnsson, Amalía Björnsdóttir, Sigurður Ragnar, Ásbjörg, Hrafnhildur, Magnús, Freyja, Björn Geir, Baldvin, Ólöf Sölvadóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HALLA BJARNADÓTTIR fyrrum húsfreyja á Hæli í Hreppum, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 20. janúar. Gestur Einarsson, Valgerður Hjaltested, Bjarni Einarsson, Borghildur Jóhannsdóttir, Eiríkur Einarsson, Ari Einarsson, Þórdís Bjarnadóttir, Þórdís Einarsdóttir, Bjarki Harðarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, SKÚLI ÓLAFSSON, lést á Landspítalanum að kvöldi laugardagsins 20. janúar. Jarðarförin verður tilkynnt síðar. Sigrún M. Ragnarsdóttir, Björg Skúladóttir, Vignir Elvar Vignisson, Ólafur Skúlason, Cristina Skúlason, Erna Gísladóttir, Rúnar Hreinsson, Haukur Gíslason, Hlíf Georgsdóttir, Elisabet Paulson (Bessy), Olaf Paulson og barnabörn. ✝ Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, BJARNEY HALLDÓRA ALEXANDERSDÓTTIR, Gnoðarvogi 82, Reykjavík, lést á elliheimilinu Grund sunnudaginn 21. janúar síðastliðinn. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Ólöf Elfa Sigvaldadóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.