Morgunblaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ásta Jósefsdóttirfæddist í Reykja- vík 21. apríl 1947. Hún lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans 13. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Jósef Magn- ússon, f. 1.11. 1920 í Vatnsdalshólum, Sveinsstaðahr. í A- Hún., d. 18.2. 1995, bóndi á Hvoli, og María Hjaltadóttir, f. 1.7. 1924 í Reykja- vík, d. 18.7. 1992, húsfreyja á Hvoli og síðar á Hvammstanga. Þau eign- uðust tíu börn en tvær stúlkur lét- ust á unga aldri. Ásta var næstelst í systkinahópnum. Systkini hennar eru: Magnús Jósefsson, f. 1945, Kristín Guðrún Jósefsdóttir, f. 1948, stúlka, f. 5.5. 1950, d. 11.6. 1950, Hjalti Jósefsson, f. 1951, Oddný Jósefsdóttir, f. 1953, Gréta Björg Jósefsdóttir, f. 1955, Gunnar Ásgeir Jósefsson, f. 1958, Jóhanna Kristín Jósefsdóttir, f. 1961, og stúlka, f. 7.9. 1964, d. 10.9. 1964. Sambýlismaður Ástu var Að- alsteinn Björn Hannesson, f. 1.9. 1948 á Ísafirði, sjómaður, lauk skip- stjóraprófi, d. 14.6. 1972. Foreldrar hans voru Hannes Guðjónsson, sjó- 2.12. 1894, d. 17.12. 1963, og Agnes Sigrún Jónsdóttir, f. 15.4. 1917, d. 22.8. 1948. Dætur Ástu og Björns Gunnars eru: 1) Ingibjörg Björns- dóttir, f. 28.2. 1980, maki Eyþór Örn Eyjólfsson, f. 1978. Barn þeirra er Daníel Örn, f. 2003. 2) Ásta Birna Björnsdóttir, f. 12.5. 1986, maki Þórður Sigmarsson, f. 1981. Sambýlismaður Ástu er Guð- laugur Þór Þorsteinsson, málm- smiður, f. 25.9. 1950. Ásta ólst upp hjá móðurömmu sinni og afa, Ástu Ásgeirsdóttur, f. 19.4. 1893, d. 2.9. 1986, og Hjalta Gunnarssyni, f. 2.12. 1891, d. 18.7. 1977, í Grænuhlíð 5 í Reykjavík. Hún bjó áfram í Grænuhlíðinni eft- ir andlát Aðalsteins og fram til árs- ins 1977 en flutti þá í Efstasund. Veturinn’64–65 stundaði hún nám við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Hún vann ýmis verslunarstörf á sínum yngri árum, starfaði hjá Sápugerðinni Frigg og einnig á Kópavogshæli. Hún bjó á Vopna- firði frá 1979 til ársins 1993. Hún flutti þá í Efstasund 92 í Reykjavík og bjó þar síðan. Hún starfaði við heimilishjálp á seinni árum, bæði á Vopnafirði og hjá Félagsþjónust- unni í Reykjavík en lengst af var hún húsmóðir bæði á Vopnafirði og í Reykjavík. Útför Ástu verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. og verkamaður, f. 19.4. 1898, d. 1.2. 1977, og Þorsteina Guðjónsdóttir hús- móðir, f. 30.10. 1907, d. 10.4. 1991. Börn Ástu og Aðalsteins eru: 1) Ásgeir Hannes Aðalsteinsson, f. 3.7. 1968, maki Hulda Gunnarsdóttir, f. 1968. Þau eiga eitt barn, Jósef, f. 2006. 2) Steinunn Birna Að- alsteinsdóttir, f. 24.8. 1972. Eiginmaður hennar er Þórður Sigurður Björns- son, f. 1965. Börn þeirra eru Katrín Líf, f. 1995, og Aðalsteinn Björn, f. 2000. Ásta eignaðist son, Ólaf Birgi Vigfússon, f. 5.5. 1971, sem hún gaf frá sér og ólst hann upp að Syðra- Álandi í Þistilfirði. Kjörforeldrar hans voru Vigfús Guðbjörnsson, bóndi, f. 30.6. 1931, d. 23.9. 2006, og eiginkona hans María Jóhanns- dóttir, húsmóðir, f. 6.12. 1931, d. 9.6. 2003. Maki Ólafs Birgis er Kar- en Rut Konráðsdóttir, f. 1975. Dæt- ur þeirra eru Anna María, f. 2000, og Erla Rós, f. 2003. Ásta giftist hinn 7. desember 1980 Birni Gunn- ari Björgvinssyni vélstjóra, f. 3.4. 1940, d. 12.9. 1992. Foreldrar hans voru Björgvin Sigfússon bóndi, f. Mig langar til að minnast mömmu sem er mér svo margt. Hún ól mig og systkini mín í heiminn, kom okkur til vits og ára og vildi að við stæðum á eigin fótum. Mamma einblíndi alltaf á það sem hún gat, hún bjó einnig yfir miklu skapgerðarþreki til að takast á við áföll. Ég held að hlýhugur vina og ættingja hafi gefið henni mikinn styrk bæði til að takast á við skyndi- legt fráfall stjúpa míns og eins þegar brjóstakrabbameinið greindist í jan- úar ’94. Amma hafði þá dáið úr brjóstakrabbameini 1½ ári áður. Þegar mamma greindist aftur í febr- úar ’05, reis gamall draugur upp sem ég var fyrir löngu búin að pakka nið- ur í skúffu og vildi helst gleyma. En mamma tók þessu af einstöku æðru- leysi: „Ég get ekki breytt þessu, þetta er bara komið og því verður ekki breytt. Steina mín, ég get ekki annað en spilað úr því sem að mér er rétt og ef ég ætlaði að gefast upp í hvert sinn sem ég hefði orðið fyrir áföllum í lífinu, ja … þá væri ég löngu dauð!“ Og svo brosti hún í ró sinni. Það fékk mikið meira á hana hvað við hin tókum þetta nærri okk- ur. Ég veit að mamma hefur aldrei verið hamingjusamari en með Gulla. Ég hef aldrei séð hana blómstra svo fallega fyrr. Hálfu ári eftir að þau drógu sig saman greindist hún aftur og mér fannst lífið vera ósanngjarnt. En mikið naut hún sín vel á ferðalög- unum í húsbílnum og á sjónum með Gulla en þessi tími sem þau fengu saman er ómetanlegur. Það var henni líka dýrmætt að endurnýja kynni sín við Ólaf Birgi sem hún gaf frá sér sem ung kona. Þar eignaðist hún tvö ný barnabörn, Önnu Maríu og Erlu Rós og varð aukaamma. Hún fékk frá þeim ynd- islega jólagjöf, myndaalbúm sem hún tók með sér hvert sem hún fór, sýndi og ljómaði. Mamma hafði upplifað raunir sem ég óska ekki nokkrum manni að ganga í gegnum en hún var ein sterkasta manneskja sem ég þekki. Elsku mamma, ég veit að þér líður vel þar sem þú ert núna og þú finnur ekki til. Ég man þegar ég var lítil stúlka í Grænuhlíðinni hjá lang- ömmu. Ég sat á gólfinu með liti og blað og raulaði með útvarpinu af inn- lifun: „Ég skal mála allan heiminn elsku mamma, svo að sólin skíni skært og bjart“. Ég faðmaði þig og sýndi þér myndina og í barnslegri einlægni minni fannst mér ég geta málað fegurðina og sólina inn í líf þitt og ég vildi að þú yrðir alltaf ham- ingjusöm. Þá vissi ég ekki hvaða spor lífið hafði sett í hjarta þitt né hvað framtíðin átti eftir að leggja á herðar þínar. Ég vildi að ég hefði geta málað allan heiminn handa þér mamma …, það er svo margt sem mig langar til að þakka fyrir, allt sem ég er vegna þín, allt sem þú kenndir mér. Mamma, ég vildi að ég þyrfti ekki að kveðja þig því ég veit einfald- lega ekki hvernig ég á að gera það, mér finnst ég bara litla stelpan henn- ar mömmu og vill ekki að hún fari en ég veit að ég þarf að kveðja. Elsku mamma, ég vona að þér líði vel og ég vona að þú finnir huggun og frið. Ég syng fyrir þig mamma: „Ég skal mála allan heiminn, elsku mamma, svo að sólin skíni skært og bjart …“ þín að eilífu, Steinunn. Í dag kveð ég Ástu, ömmu sonar míns. Ég hef ekki þekkt Ástu í lang- an tíma en sá tími sem við áttum samleið var ánægjulegur og sé ég mjög eftir þessari mætu konu. Ásta hefði haldið upp á 60 ára af- mæli sitt á þessu ári. Ævi hennar var ekki þrautalaus ganga en hug henn- ar og hjarta glöddu barnabörnin, börnin og hann Gulli. Ásta og Gulli sambýlismaður hennar áttu sér sam- eiginleg áhugamál. Þau þeystu um landið á húsbílnum sínum og renndu til fiskjar á bátnum sem bar nafn hennar. Ást þeirra og vinátta var sönn fegurð og létti Ástu baráttuna í veikindum hennar. Í erli dagsins reyndi hún að fylgj- ast með högum barna sinna og barnabarna. Þegar ég leit inn í kaffi til hennar sýndi hún mér ánægð af- rakstur liðinna daga. Hún prjónaði hverja flíkina á fætur annarri fyrir litlu krílin. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Ástu. Þakklát fyrir að hafa mynd af henni ætíð í hjarta mínu. Mynd og minningar sem ég get gripið til þeg- ar ég segi syni mínum frá ömmu sinni. Ömmu sem hossaði honum á hné sér, kyssti svo ofurblítt á vang- ann og fékk að launum tannlaust bros saklauss barns. Við kveðjum þig, elsku amma, og minning þín mun lifa í hjarta okkar. Hulda og Jósef. Hulda Gunnarsdóttir Hún Ásta systir er farin svo allt, allt of fljótt, við vissum að hverju stefndi en aldrei er maður viðbúinn. Maður trúir þessu varla ennþá, hún sem átti eftir að gera svo margt. Hún Ásta Jósefsdóttir ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR, Efstaleiti 12, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 14. janúar, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 23. janúar kl. 15.00. Tómas Árnason, Eiríkur Tómasson, Þórhildur Líndal, Árni Tómasson, Margrét Birna Skúladóttir, Tómas Þór Tómasson, Helga Jónasdóttir, Gunnar Guðni Tómasson, Sigríður Hulda Njálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR PÁLSSON símvirki, hjúkrunarheimilinu Eir, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðviku- daginn 24. janúar kl. 13.00. Arnbjörg Handeland, Dag Handeland, Páll Guðmundsson, Anna Guðmundsdóttir, Óskar Þór Þráinsson, Þórhalla Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJARNA HERMANNS FINNBOGASONAR, Hrafnistu, Hafnarfirði. Brynhildur Bjarnadóttir, Guðmundur B. Aðalsteinsson, Ólafur Kr. Hermannsson, Ragnheiður B. Brynjólfsdóttir, Guðbjörg Jóna Hermannsdóttir, Gunnsteinn Sigurðsson, Anna Sigrún Hermannsdóttir, Kristjana M. Hermannsd. Bjordal, Jan Arild Bjordal, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Lokað í dag, þriðjudaginn 23. janúar, frá kl. 13.30 vegna útfarar ÞÓRU KRISTÍNAR EIRÍKSDÓTTUR. Skóverslunin Iljaskinn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR FRIÐGEIRS HELGASONAR, Ísafirði, sem andaðist mánudaginn 8. janúar sl. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Hlíf og Fjórð- ungssjúkrahússins á Ísafirði. Friðrik Sigurðarson, Sigríður M. Gunnarsdóttir, Rannveig Sigurðardóttir, Hólmgeir Hreggviðsson, Pálína Sigurðardóttir, Guðni Geirsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ALEXÍA MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR, Skipholti 6, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi föstudaginn 19. janúar. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtu- daginn 25. janúar kl. 13.00. Jens Stefán Halldórsson, Ólöf Jóna Jensdóttir, Björn Grímsson, Ástbjörn Jensson, May Brit Kongshaug, Jenný Stefanía Jensdóttir, Grettir Grettisson, Ingibjörg Jensdóttir, Gunnar Smith, ömmu- og langömmubörn. ✝ Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS KR. GUÐMUNDSSON fv. kaupmaður, áður til heimilis í Sörlaskjóli 62, lést á Hrafnistu, Reykjavík, sunnudaginn 21. janúar. Jarðsett verður frá Neskirkju föstudaginn 26. janúar kl. 15.00. Ólöf Magnúsdóttir, Hilmar E. Guðjónsson, Guðmundur Valur Magnússon, Eva Egilsdóttir, Kristbjörg Magnúsdóttir, Axel Axelsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGUNN ÓLAFSDÓTTIR, Álftamýri 16, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 18. janúar, verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 24. janúar kl. 15.00. Sólveig Pétursdóttir, Ólafur Pétursson, Margrét Þorgeirsdóttir, Guðný Pétursdóttir, Auður Pétursdóttir, Ríkharður Sverrisson, ömmubörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.