Morgunblaðið - 23.01.2007, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 23.01.2007, Qupperneq 35
vonaðist til að fá aðeins lengri tíma, helst nokkur ár svo hún gæti fylgst með börnunum og barnabörnunum eldast, en það verður ekki, en ég hef trú á að hún fylgist með þeim annars staðar frá. Ásta greindist fyrst með þennan illvíga sjúkdóm fyrir þrettán árum, hún tók tíðindunum af slíku æðruleysi og var staðráðin í að sigr- ast á sjúkdómnum. Það tókst henni, framtíðin virtist björt og hann Gulli hennar kominn inn í hennar líf og henni aldrei liðið betur á ævinni eins og hún sagði, því hann Gulli var svo óskaplega góður við hana. En krabb- inn lét hana ekki í friði og hún greindist aftur fyrir tveimur árum, sama yfirvegunin en henni tókst ekki að sigra í þetta sinn. Nú hefur fækkað í stóra systkina- hópnum, við vorum átta systkinin sem komumst á legg. Ásta ólst að mestu upp í Reykjavík hjá afa okkar og ömmu, ég held hún hafi saknað þess að hafa ekki alist upp hjá for- eldrum sínum og þessum stóra systkinahópi. Við Ásta náðum mjög vel saman og sagði hún mér ýmislegt sem hún hefði aldrei sagt öðrum. Ásta mátti þola mikið mótlæti í einkalífi sínu sem hefði verið mörg- um ofviða en ég man aldrei eftir að hafa séð hana tárast eða gráta, oft var nú tilefni til þess. Eitt skipti man ég þegar hún var unglingur og var að lesa ástarsögur og eitt sinn gat hún varla lesið fyrir gráti og tárin runnu í stríðum straumi, nokkrir vasaklútar orðnir blautir og ég krakkabjáninn sagði: „Aumingjaskapur er þetta, geturðu ekki lesið bók án þess að grenja eins og smá krakki!“ Þá sagði hún hneyksluð: „Skilurðu ekki að þetta er svo sorglegt?“ Ásta var bara svona, yfirvegunin algjör en ofboðs- lega þrjósk, það hálfa hefði verið nóg. Hún systir mín hafði mjög gaman af handavinnu og ef henni leið illa, þá náði hún sér í prjóna eða heklunál og skapaði þessar fínu peysur, húfur og dúka, en Ásta gat aldrei farið eftir prjónauppskriftum, hún sagði að það færi allt í vitleysu hjá sér. Nú getur maður ekki lengur kíkt til hennar ef farið er suður, eða hún komið hingað, hún fór aldrei hér um nema koma við eða gista. Björn og Ásta komu oft hér og voru oft nokkra daga, þá bjuggu þau á Vopnafirði. Síðast komu hún og Gulli hér í júní á hús- bílnum þeirra, þá var hún orðin sár- lasin. Ég sakna mest að geta ekki hringt í hana eða hún í mig, oft var talað í hálftíma, klukkutíma, stund- um lengur, um allt og ekki neitt, að- allega til að heyrast. Við viljum að lokum þakka Ástu fyrir samfylgdina. Elsku Gulli, Ásgeir, Óli, Steina, Ína, Ásta, systkini og fjölskyldur. Guð gefi ykkur styrk í sorginni, þín systir Oddný og fjölskylda. Mikil hvunndagshetja hefur kvatt. Hvað getur maður sagt þegar það er frá svo miklu að segja um ein- stakling og hversdagshetju eins og hún Ásta var og allt það sem hún gekk í gegnum. Þegar maður hugsar um að hafa þekkt einhvern í hálfa öld virðist það ákaflega langur tími, en í raun, þeg- ar litið er á það á annan hátt núna, er það eins og nokkur augnablik í eilífð- inni, þrungin mjög mikilli og djúpri reynslu og upplifun. Við vorum tíu ára gamlar þegar við hittumst fyrst í Grænuhlíðinni, sem þá var í byggingu og vorum ekki einu sinni í sama skóla, hún var í Austurbæjarskólanum en ég í Breiðagerðisskólanum. Við tengd- umst strax böndum sem erfitt er að útskýra nema að segja að hugsan- lega hafa sálir okkar þekkst síðan einhvern tíma. Uppeldi okkar var með mjög ólíku móti. Við vorum dag- lega á heimili hvor annarrar. Að tala saman, leika okkur saman, drekka saman, borða kökur, góðan mat og það var ekkert verið að spá í línurnar þegar heilu terturnar voru hesthúsa- ðar, annaðhvort hjá henni eða mér og við greinilega brenndum því sem við borðuðum í þá daga. Ásta kom með okkur fjölskyldunni í bíltúra og fleira. Svo tóku unglingsárin við með sín- um átökum þegar hormónar fara í gang og sumir með meiri örvun í þeim en aðrir. Ég var með mjög hæga starfsemi en hún hraðari. Ég skynjaði hvernig hún upplifði þetta. Svo fór hún norður um tíma til foreldra sinna, en hún ólst samt mik- ið til upp hjá ömmu sinni í Grænu- hlíðinni. Kom aftur og þá heldur okk- ar sameiginlega lífsferð áfram. Þráðurinn var alltaf til staðar. Ásta fór síðar í Húsmæðraskólann á Blönduósi en ég fór í hússtjórn- ardeild í Húsmæðraskólanum í Reykjavík. Báðar töldum við ein- hvern veginn að það ætti að vera okkar hlutskipti. Ásta var snillingur í hannyrðum og eru heil reiðinnar ósköp af fötum og listaverkum til eft- ir hana sem hún prjónaði, saumaði, heklaði og saumaði út með kross- saumi, góbelínsaumi og hverju sem var, einnig rúmföt. Hún var mun meira fyrir þetta en ég var nokkurn tíma. Við erum af kynslóð sem var fædd áður en heimurinn vaknaði að neinu ráði til þess að lifa og vita hvernig maður myndi þurfa að vinna tilfinn- ingalega reynslu. Vissum ekki held- ur hver var leynilykillinn að því að ná í þessa svokölluðu „eilífu ást“ né hvernig unnið væri að því að halda ástinni sem við héldum að við hefð- um gripið. Tíma þegar ekki var talað um mikilvægi þess að þekkja sjálfan sig, en mun mikilvægara að reyna að finna einhvern annan til að fylla í eyður í hjarta og sál. Það var því hlutskipti margra, eins og Ástu, að leita gæfunnar á þessum sviðum. Það var talið sjálfsagt að þegar einstaklingur næði tvítugsaldri eða svo, þá væri aðalmarkmiðið að finna maka og drífa í því að eignast börn. Enginn var hvattur til að velta því fyrir sér hvort það væri þetta sem hann vildi gera við líf sitt, eða eitt- hvað annað. En það voru engin meiraprófsnámskeið í því heldur hvernig það væri með þessa ást og við sáum bara hillingar sem auðvitað stóðust ekki veruleikann. Sumarið 1967 fórum við Ásta sam- an á Þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum og þar kynnist Ásta Aðalsteini föður Ásgeirs Hannesar, leiðir þeirra skildu um tíma og hún eignast Ólaf Birgi, sem gott fólk ættleiddi en hún vissi hver þau voru og hún sleppti ekki barni sínu úr hjartanu og vissi hvar drengurinn var og hafði samband og hélt því. Svo ná þau saman um smá tíma aftur, hún og Aðalsteinn, og hún varð barns- hafandi að Steinunni Birnu. Aðalsteinn dó 14. júní 1972, þegar Steinunn var í móðurkviði. Við vorum samferða í ýmsum til- finningalegum tilraunum sem kyn- slóðir höfðu verið að gera með það að geta lifað með öðrum aðila og augu okkar opnuðust fyrir að hlutirnir voru ekki eins og kirkjan reyndi að telja okkur trú um að lífið eða hjóna- band væru. Nokkur ár var Ásta var einstæð móðir, en seinna hitti hún og giftist Birni Björgvinssyni og þau eignuðust tvær dætur, Ingibjörgu og Ástu Birnu. Björn dó svo árið 1992. Erfiðir tímar. Nýr veruleiki birtist, sem engin formúla er fyrir í þekkingarkistunni að vinna úr. Engar bækur, engin fræði sem leiddu fólk í gegnum úr- vinnslu, um þann mun sem er á ein- staklingum og hlutskipti þeirra og að „hamingjan kemur ekki af himnum ofan“ eins og englar í kór! Það var það sem við stríddum við, við Ásta og mörg af þessari kynslóð, sem flest- um öðrum. Ég horfði á þessa baráttu sem Ásta háði til að finna sína ham- ingju og öðlast næga sjálfsþekkingu til að halda sjálfri sér uppi og lifa. En eftir allt sem þeir vita sem þekkja og hafa þekkt Ástu í gegnum árin, þá náði hún að öðlast þessa gleði og hamingju, þó það kæmi ekki til sinn- ar fullnustu fyrr en líkamleg heilsa var komin á undanhald. Það er það sem mér finnst svo sorglegt, að þeg- ar Ásta virkilega hafði fundið þann frið og þá innri gleði í sér að vera hún og með Guðlaugi, að þá var tími fyrir hana að fella tjald lífs síns og hann að sjá á eftir öðrum maka eftir langvar- andi umönnun og veikindi. Ásta hélt sambandinu við Ólaf Birgi sem hún gaf öðrum til að ann- ast og elska en geymdi alltaf í hjart- anu sem barnið sitt eins og hin, og það veitti henni mikla gleði síðustu ár ævinnar þegar hún hitti hann og fjölskyldu hans fyrir norðan að börn- in hans fagna henni innilega og kalla hana ömmu. Ásta var hreinskilin og ekkert fyr- ir að fela neina hluti og það áttum við sameiginlegt. Við ræddum margt og hún var inni í andlegu málunum eins og ég og hún öðlaðist innsýn og skilning fyrir sig í gegnum árin sem fengin voru frá eldvígslum lífs henn- ar. Eldskírnum hennar verða ekki gerð nein skil í einni minningargrein en við sem vorum með henni í þeim og í lífinu geymum þær í hjörtum okkar. Nú hefur hún tækifæri til að fá beina upplifun sjálf að því að vera hinum megin tjaldsins mikla og halda áfram að læra. Matthildur Björnsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 35 Raðauglýsingar Til sölu Vorum að taka inn Pit Bike 125cc. Ro ck etb ike á tilboðsverði aðeins kr. 159.000 Nú til afgreiðslu Lýsing: Upside down fram demparar. Allt úr áli. Stillanlegur gas afturdempari. Diskabremsur að aftan og framan. Burðargeta 130 kg. ECC samþykkt. Mótor & Sport - Vélasport Tangarhöfða 3 - Símar 578 2233 & 845 5999 Félagslíf  HLÍN 6007012319 IV/V Heim- sókn frá Helgafelli og Heklu I.O.O.F. Rb.1  1561238 - 9.0* HELGAFELL 6007012319 IV/V Heimsókn til Hlínar HAMAR 6007012319 I Þorraf. FJÖLNIR 6007012319 I H.v EDDA 6007012319 III Alfa 1 og 2 hefst í dag kl. 19:00. Skráning og uppl. í síma 535 4700 eða á www.gospel.is eða mæta á staðinn, við tökum vel á móti þér. Fíladelfía, Hátúni 2. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ÖNNU ÞORBJARNARDÓTTUR frá Akbraut, Eyrarbakka, Vallholti 16, Selfossi. Elín Sigurðardóttir, Sigríður Inga Sigurðardóttir, Þorbjörn Sigurðsson, Jón Sigurðsson, Elsa Sigurðardóttir, Ester Kláusdóttir, Magnús Gunnarsson, Björgólfur Gunnarsson, Geir Gunnarsson, Hjörtur Gunnarsson. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BIRNU ÞURÍÐAR JÓHANNESDÓTTUR, Suðurgötu 15-17, Keflavík. Þórunn Sveinsdóttir, Jóhann G. Sigurbergsson, Kolbrún Sveinsdóttir, Ólaf Clausen, Jón Sveinsson, Eunice Sveinsson, Þuríður Sveinsdóttir, Bjarni M. Jóhannesson, Sveinn Sveinsson, Kristín Nielsen, Auður Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. FRÉTTIR BJÖRGUNARSVEITIN Súlur á Akureyri fékk nýlega afhenta fjóra Lynx- vélsleða frá Bílasalanum, umboðsaðila Ellingsen. Um er að ræða þrjá Lynx xtrim 800 powertec og einn Lynx st 600. Sleð- arnir verða útbúnir GPS VHF-talstöðvum og öllum öðrum nauðsynlegum búnaði. Myndin var tekin þegar sleðanir voru afhentir; frá vinstri: Heimir Þor- steinsson frá Bílasalanum, Skúli Árnason, formaður björgunarsveitarinnar, Ólafur Tr. Ólafsson, Guðmundur Guðmundsson og Gunnar Þór Garðarsson. Súlur fá fjóra nýja vélsleða FYRIRTÆKIÐ Intus, sem gefur út kvikmyndir á einnota mynddisk- um hér á landi, hefur hafið samstarf við Scanbox, sem er kvikmynda- dreifingarfyrirtæki á Norðurlönd- um, um dreifingu á einnota mynd- diskum á Norðurlöndum. Verður þeim þar dreift á myndbandaleigur, að sögn Árna Jensen, fram- kvæmdastjóra Intus. Árni sagði að kostirnir við það að vera með einnota disk væri að fólk gæti horft á mynddiskinn þegar því hentaði. Þá þyrfti ekki að skila mynddiskinum, auk þess sem þetta stórminnkaði líkurnar á því að fá disk með takmörkuðum myndgæð- um vegna þess að hann væri risp- aður eða eitthvað slíkt. Einnota mynddiskar eru þannig úr garði gerðir að þeir eyðileggjast 48 tímum eftir að þeir eru spilaðir. Um er að ræða franska uppfinningu og eru diskarnir framleiddir þar í landi. Árni segir að einnota mynd- diskar hafi fengið mjög góðar viðtökur hér á landi, en þeir eru seldir víða í verslunum. Myndbandaleigur hér á landi hafi hins vegar ekki viljað fara þessa leið. Árni sagði að fyrsta sendingin væri farin af stað til Danmerkur og hefðu sjötíu myndbandaleigur þar í landi tekið þá inn. Hinar Norður- landaþjóðirnar myndu síðan fylgja í kjölfarið. Einnota mynddiskar til Norðurlandanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.