Morgunblaðið - 23.01.2007, Page 37

Morgunblaðið - 23.01.2007, Page 37
|þriðjudagur|23. 1. 2007| mbl.is staðurstund Gagnrýnandi var á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sl. fimmtudag þar sem Judith Ing- ólfsson lék einleik. » 38 tónlist Sæbjörn Valdimarsson segir kvikmyndaárið 2006 vera ár Mýrarinnar, en hún var mest sótta mynd ársins. » 39 af listum Nótt á safninu með Ben Stiller og Babel voru mest sóttu myndir síðustu helgar í hér- lendum kvikmyndahúsum. » 41 kvikmyndir Mike Tyson er enn einu sinni kominn í kast við lögin. Í þetta sinn á hann m.a. að hafa ekið undir áhrifum. » 44 fólk Aðra vikuna í röð trónir dans- myndin Stomp the Yard á toppi bandaríska bíólistans. Nótt á safninu er í öðru sæti. » 45 kvikmyndir Hugmyndin kemur út fráþví að við höfum verið aðleita allra leiða til að fáinn aukið fjármagn til reksturs Skaftfells,“ segir Þórunn Eymundardóttir, framkvæmdastjóri menningarmiðstöðvarinnar Skaft- fells á Seyðisfirði. Fyrirhugað er að halda uppboð á verkum sem lista- menn hafa ánafnað Skaftfelli og nýta ágóðann til að renna styrkari stoðum undir reksturinn, sem stöðugt vex fiskur um hrygg. „Aðalheiður Eysteinsdóttir mynd- listarmaður benti okkur á þennan möguleika,“ heldur Þórunn áfram. „Það var því ákveðið að biðja lista- menn að leggja verk til Skaftfells, bjóða þau upp og verja ágóðanum til rekstursins. Við eigum gríðarlegan fjölda af góðum listamönnum á bak við okkur sem vilja allt fyrir Skaftfell gera. Björn Roth og Guðmundur Oddur fóru að vinna að þessu sl. vor ásamt Tinnu Guðmundsdóttur, nema við Bifröst, sem tekur verkefnið inn sem hluta af námi sínu, þ.e. að halda utan um listmunauppboð. Þau höfðu samband við fjölda listamanna sem sýnt hafa í Skaftfelli eða á listahátíð- inni á Seyði síðustu 11 ár. Nið- urstaðan varð 40 verk eftir 36 lista- menn. Listamennirnir gefa verkin og sumir taka einhverja þóknun sem er reiknuð af matsverði verkanna.“ Sýning á verkunum var opnuð í Skaftfelli í lok október sl. þar sem þau héngu uppi fyrir gesti og gang- andi um mánaðarskeið. Þeim var svo pakkað í lok nóvember og fara nú á uppboð hjá Jóni Sæmundi Auðarsyni og Hrafnhildi Hólmgeirsdóttur í versluninni Liborious. „Vonin er að fá eins gott verð fyrir verkin og mögulegt er og að í kringum þetta myndist spenna og eftirvænting,“ segir Þórunn. „Öll verkin eru með grunnverð og búið að vinna uppboðs- skrá með helstu upplýsingum. Verð- mæti sýningarinnar er mjög gróf- lega áætlað í kringum tvær og hálf til þrjár milljónir króna.“ Töluverður áhugi er fyrir uppboð- inu og segir Þórunn m.a. fólk fyrir austan hafa hug á að bjóða í verk. Unnt sé að bjóða fyrirfram í þau, senda fulltrúa á uppboðið eða bjóða símleiðis. „Þetta eru margir og fjölbreyttir myndlistarmenn, allt frá því að vera fulltrúar yngstu kynslóðar íslenskra myndlistarmanna og yfir í stærðar kanónur í myndlistinni.“ Metnaðarfullt og mikilsvert Skaftfell hefur nú verið rekið í átta ár sem sjálfseignarstofnun af Skaft- fellshópnum, sem er félag um mynd- list og menningu. Auk þess sitja í stjórn hússins fulltrúar frá sveitarfé- laginu, Sambandi íslenskra mynd- listarmanna og gefendum hússins, þeim Garðari Eymundssyni og Kar- ólínu Þorsteinsdóttur. Garðar er list- málari og húsasmiður, rak trésmiðju í húsinu en gaf það árið 1996 til nota fyrir myndlist og menningar- starfsemi, sem nú teygir anga sína víða. Sýningar í húsinu eru að mestu reknar fyrir sjóðstyrki, en síðasta ár- ið hafa Seyðisfjarðarkaupstaður og menningarráð Austurlands komið að fjármögnun sem á að standa undir sýningarhaldi og starfsmanni í hálfu starfi. Með þeim samningi tekur Skaftfell að sér hlutverk miðstöðvar myndlistar á Austurlandi. Þetta fjár- magn nægir þó hvergi til. „Við höfum með þessum samningi tryggt rekstrarfé upp á sex milljónir á ári, þetta hefur einhvern veginn gengið upp síðustu ár en eðli málsins samkvæmt spila aðrir styrkir stórt hlutverk. Eðlileg fjárhagsáætlun fyrir þá starfsemi sem er í gangi myndi hljóða upp á 12–15 milljónir króna á ári. Hins vegar hefur verið unnið hér gríðarlega mikið sjálfboða- starf sem er frábært en manni finnst að svona fullorðin stofnun eigi ekki að vera rekin fyrir sjálfboðavinnu og vart hægt að gera þá kröfu á fólk að það verji áratugum í að gefa vinnu sína. Skaftfell hefur fyrir löngu sann- að sig sem stofnun sem er verð þess að fá almennilegt fjármagn til að reka þá starfsemi sem er hér. Það er metnaðarfullt og mikilsvert starf sem hér hefur verið unnið og þessi átta ár hafa skilað miklum árangri og einnig lagt mikið inn í bæjarfélagið þó að erfitt sé að meta slíkt til fjár. Þetta er mikil kynning fyrir Seyð- isfjörð og hingað hafa menn flutt og keypt sér hús og varið miklum tíma, gagngert út af Skaftfelli.“ Þéttskipað sýningahald Gestavinnustofa Skaftfells er í stöðugri notkun og hefur þurft að vísa frá fólki á hverju ári. Hið sama gildir um aðalsýningarsalinn og Vesturvegginn, sem er óhefðbundn- ara gallerí í Bistrói Skaftfells. Fyrsta sýning ársins 2007 í Skaft- felli verður frá útskriftarnemum og erlendum gestanemum við Listahá- skóla Íslands, undir leiðsögn Björns Roth og Dieter Roth listaakademí- unnar. Er sú sýning skömmu fyrir páska, að undangengnum vinnubúð- um nemendanna í Skaftfelli. Þrjátíu umsóknir bárust um sýningar fyrir árið 2007 og úr þeim hópi var m.a. valið á vorsýninguna og eru þar á ferð Finnur Arnar, Jón Garðar og Þórarinn Blöndal með samsýningu. Sumarsýningin er í vinnslu en haust- sýningin verður frá Erlu Þórarins- dóttur, Huldu Hákon, Jóni Óskari og Steingrími Eyfjörð. Í októberlok verða sett upp klassísk íslensk verk og er sú sýning hugsuð sem fræðslu- sýning. „Við viljum taka alvarlega það hlutverk okkar að fræða og miðla inni á svæðinu. Sú sýning er því hugsuð fyrir skólahópa og al- menning og verður unnið fræðslu- efni sérstaklega fyrir hana og með því reynt að brúa bilið milli klass- ískrar myndlistar og samtímalistar, en það bil er geysilega breitt í vitund flestra sem ekki eru innanbúð- armenn í myndlist. Það er mikil þörf á að útskýra að þetta er sami hlut- urinn og mjög sterkt samhengi þarna á milli þó að ekki sé það aug- ljóst við fyrstu sýn.“ Aðventusýning 2007 verður bókverkasýning, en sú hefð hefur skapast að opnun hennar helst í hendur við árlegan upplestur rithöfunda í Skaftfelli. Sýningarárið endar svo á fyrstu mánuðum ársins 2008 með úrvali íslenskrar samtíma- listar og er hún hugsuð sem eft- irfylgni við klassíska sýningu í upp- hafi vetrar. Mörg bókverka Dieter Roth Í Skaftfelli er rekið Bistró, með það fyrir augum að vera samastaður fyrir íbúa gestaíbúðarinnar og sam- bræðingur Seyðisfirðinga sjálfra og þess sem er að gerast í húsinu. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að hafa Bistróið opið árið um kring. Þar er afar áhugavert bókasafn, m.a. fjöl- margar bækur Dieters Roth, en þær er sumar hverjar erfitt að nálgast og væru sjálfsagt víðast hvar geymdar undir gleri en eru í Skaftfelli hafðar frammi fyrir gesti að fletta. Þórunn segir áhugann á Skaftfelli fara vaxandi og megi merkja það á því að æ fleiri þungavigtarmenn í myndlist innan lands og utan leiti hófanna um sýningarhald. „Skaftfell þarf að fá að vaxa og dafna. Ýmsar forsendur, eins og t.d. fjárhagslegar, vantar til þess að slíkt geti gerst. Það væri óskandi að við gætum gert betur við myndlist- armennina sem sýna í Skaftfelli, sinnt almennu fræðsluhlutverki hússins mun betur en gert er, náð betra sambandi við fólkið á svæðinu og haft bolmagn til að ráða fólk til þeirra fjölmörgu starfa sem hér þarf að vinna. Draumurinn er að unnt sé að fylgja eftir þeim gríðarlegu mögu- leikum sem Skaftfell býr yfir, til framgangs og virðingarauka mynd- listarinnar, jafnt innan fjórðungs sem utan,“ segir Þórunn að endingu. Skaftfell býður upp listaverk í Reykjavík Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Skaftfell Menningarmiðstöðin á Seyðisfirði. Ljósmynd/Skaftfell Flutningar Verkunum pakkað niður í sýningarsal Skaftfells. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Framkvæmdastjórinn Þórunn Eymundardóttir vonast til að uppboðið hjá Liborius styrki rekstur menningarmiðstöðvarinnar. Skaftfell á Seyðisfirði efnir til uppboðs á verkum eftir fjölda listamanna sem komið hafa að sýning- arhaldi menningarmiðstöðvarinnar. Uppboðið fer fram í Liborius í byrjun febrúar. Þórunn Ey- mundardóttir sagði Steinunni Ásmundsdóttur frá uppboðinu og starfsemi Skaftfells. steinunn@mbl.is. Sýningin opnar 9. febrúar. Upp- boðið verður haldið 17. febrúar. Ekki hefur verið tilkynnt um ná- kvæma tímasetningu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.