Morgunblaðið - 23.01.2007, Síða 39

Morgunblaðið - 23.01.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 39 menning Málið er ljóst. Þess ágætakvikmyndaárs 2006 verð-ur fyrst og fremst minnst sem árs Mýrarinnar. Hún er fyrsta, íslenska myndin til að vinna það afrek í áratugi að verða mest sótta mynd ársins og sú langtekjuhæsta. Árangurinn er enn glæsilegri þeg- ar rýnt er í listann því þá kemur í ljós að Mýrin tók inn jafn mikið og myndirnar sem voru í næstu tveim- ur sætum. Þar eru sannarlega eng- ir aukvisar á ferð, eða Sjóræn- ingjar Karíbahafsins 2 og Casino Royale, nýjasta Bond-myndin. Fok- dýrar afþreyingarmyndir sem fóru sigurför um heiminn, bæði vegna gæðanna og studdar af tuga millj- óna dala auglýsingaherferðum.    Það þarf nánast allt að gangaupp til að ná á níunda tug þús- unda gesta á bíómynd á Íslandi og það er lítið hægt að finna að Mýr- inni. Meginástæðurnar fyrir vel- gengninni eru tvær. Í fyrsta lagi framúrskarandi fagmennska hvar sem á hana er litið að slíkt er næsta óvenjulegt þegar um inn- lenda framleiðslu er að ræða. Í öðru lagi er hún byggð á frábærri metsölubók Arnaldar Indr- iðasonar, ókrýnds konungs ís- lenskra krimmahöfunda. Það eru því tugir þúsunda ánægðra lesenda sem bíða spenntir eftir kvikmynda- gerðinni. Slíkt bakland jafnast á við hreina og klára forsölu. Þegar mynd spyrst að auki einstaklega vel út, blasir metaðsókn við. Það dregur ekki úr ánægju land- ans að auk afreks Mýrarinnar, litu nokkrar, aðrar íslenskar gæða- myndir dagsins ljós í fyrra, þó þær næðu ekki inn á listann yfir mest sóttu myndirnar. Að auki eru fjöl- margar forvitnilegar myndir í framleiðslu. Það fer ekki á milli mála að íslensk kvikmyndagerð er á uppsiglingu eftir mögur ár. Stóru kvikmyndahátíðirnar nutu vinsælda, en þær tölur eru ekki all- ar taldar með, frekar en aðsókn- artölur þeirra mynda sem sýndar voru á nokkrum, minni þemadög- um.    Hollywood brást ekki skyndi-bitaframleiðslan. Af 30 vin- sælustu myndunum má rekja 29 þeirra að mestu eða öllu leiti til kvikmyndaborgarinnar. Gömul saga og ný að Evrópubúar kunna ekki tökin á smellagerðinni, skort- ir fjármagn og eru að róa á allt önnur mið. Á máli þjóðar sem hef- ur löngum átt allt sitt undir sjáv- arfangi, má segja að kvikmynda- verin hugsi um magnið frekar en gæðin á meðan Gamli heimurinn leitar uppi fáséðari og bragðmeiri stofna. Á hinn bóginn skreyta myndir úr austri þess oftar listann yfir 10 bestu myndir ársins. Evr- ópumenn eiga að vísu þátt í örfá- um verkum á metaðsóknarlist- anum, en fjármagnið kemur að vestan. Að venju eru framhaldsmyndir áberandi, í fyrra eru þær tæpur þriðjungur, af þeim 30 vinsælustu, eða níu, og endurgerðirnar fjórar. Þegar á heildina er litið kemur í ljós að sumarið er, sem fyrr, drýgsti aðsóknartíminn. Þó má merkja breytingar því aðsóknin dreifist jafnar yfir árið 2006 en oft- ast áður og stórir smellir stinga upp kollinum á óhefðbundnum tím- um. Annars kemur fátt á óvart, vin- sældir Garfield 2, Click, Hoodw- inkled og Step-Up, vekja samt furðu og eru í litlu samræmi við gang þeirra í öðrum löndum. Sama má segja um Hostel, en „íslenskar rætur“ hennar hafa greinilega skilað sér.    Ef myndirnar eru grófflokkaðarí gaman-, spennu-, fjöl- skyldumyndir og drama, er mjótt á mununum á milli spennumynd- anna, sem hafa vinninginn, og gamanmyndanna. Tölvuteikni- myndirnar eru fastar í sessi og endurspeglar staða þeirra á listan- um þá miklu áherslu sem kvik- myndaframleiðendur leggja á greinina. Stjörnuskinið hjálpar tví- mælalaust nokkrum myndanna, ekki síst nærvera Toms Hanks í Da Vinci Code og Johnny Depp er að líkindum stærsta karlkyns kvik- myndastjarna samtímans. Ár Mýrarinnar AF LISTUM Sæbjörn Valdimarsson » Það dregur ekki úránægju landans að auk afreks Mýrarinnar, litu nokkrar, aðrar ís- lenskar gæðamyndir dagsins ljós í fyrra Frábær Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki rannsóknarlögreglumannsins Erlendar í Mýrinni. saebjorn@heimsnet.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Fyrsti konsert er frír SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Ljósið í myrkrinu FIMMTUDAGINN 25. JANÚAR KL. 19.30 Hljómsveitarstjóri ::: Roland Kluttig Einleikari ::: Guðrún Birgisdóttir Martial Nardeau myrkir músíkdagar í háskólabíói Örlygur Benediktsson ::: Eftirleikur Karólína Eiríksdóttir ::: Konsert fyrir tvær flautur Erik Mogensen ::: Rendez-vous Herbert H. Ágústsson ::: Concerto breve í boði FL Group og Sinfóníuhljómsveitarinnar Hátíð Tónskáldafélagsins, Myrkir músíkdagar, skipar veglegan sess í tónlistarlífi okkar og vekur eftirtekt langt út fyrir landsteinana. Nú er komið að þætti Sinfóníunnar á hátíðinni. LAGADEILD HÁSKÓLI ÍSLANDS Lagadeild Háskóla Íslands, Lagastofnun, Mannréttindastofnun. Fræðafundir, málstofur og ráðstefnur. Á miðvikudögum kl. 12:15 í Lögbergi, stofu 101. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar á www.lagadeild.hi.is 24. janúar Rannsóknadagar Stúdentaráðs Háskóla Íslands Dagskrá lagadeildar og viðskipta- og hagfræðideildar: 12:30-12:35 Opnun Sigurður Örn Hilmarsson 12:35-13:05 Þorleifur Finnsson Sviðsstjóri nýsköpunar Orkuveitu Reykjavíkur 13:05-13:15 Guðjón Ólafur Jónsson Alþingismaður 13:15-13:45 InnoVit, nýsköpunar- Andri Heiðar Kristinsson og Frumkvöðlasetur 13:45-14:00 Hlé 14:00-14:20 Íslensk lögfræðiorðabók Rannsóknaverkefni á vegum Lagastofnunar HÍ 14:20-14:40 Kvikverðlagning Baldur Thorlacius, MA í hagfræði 14:40-15:00 Hvernig var kvóta í botnfiski Helgi Áss Grétarsson, sérfræðingur Lagastofnun úthlutað árin 1994-1990? 15:00 Lokaávarp 7. febrúar Málstofa í stjórnskipunarrétti Hlutverk stjórnmálaflokka og ný löggjöf um fjármál þeirra Borgar Þór Einarsson lögfræðingur og formaður SUS Dr. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor við félagsvísindadeild HÍ 9. febrúar Málþing - Jafnréttislögin í 30 ár föstudagur Mannréttindastofnun HÍ og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við HÍ 28. febrúar Málstofa um kennslu í lagadeild Háskóla Íslands Orator félag laganema og lagadeild 14. mars Málstofa í stjórnskipunarrétti Landgrunnið við Ísland Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur 28. mars Auðlindaréttur – Vatnalög Aagot Vigdís Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá Lagastofnun 2. apríl Alþjóðleg ráðstefna um mannréttindasamninga Sameinuðu þjóðanna mánudagur Mannréttindastofnun HÍ og Mannréttindaskrifstofa Íslands 11. apríl Verkefni sveitarfélaga Trausti Fannar Valsson, doktorsnemi við lagadeild HÍ 25. apríl Réttarstaða aldraðra Kristín Benediktsdóttir, doktorsnemi við lagadeild HÍ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.