Morgunblaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÉG HELD AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ TAKA TIL Í ÍSSKÁPNUM AF HVERJU SEGIR ÞÚ ÞAÐ? SPÆGIPYLSAN ER BYRJUÐ AÐ JÓÐLA ÉG HELD AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ BÍÐA ÞANGAÐ TIL HÚN BYRJAR AÐ DANSA ÞAÐ ERU ALLTAF BÖRN SEM ERU FÖRNARLÖMB SYNDARINNAR! ÞEGAR EITTHVAÐ FER ÚRSKEIÐIS Í HEIMINUM ÞÁ ERU ÞAÐ ALLTAF BÖRNIN SEM FINNA FYRIR ÞVÍ! JÁ, OG HUNDAR LÍKA... ÞEIR ERU LÍKA FÓRNARLÖMB TAKK KALVIN, VIÐ ERUM AÐ FARA. TAKTU SAMAN DÓTIÐ ÞITT LOKSINS EKKI SEGJA SVONA, ÞAÐ ER ÝMISLEGT GOTT VIÐ ÞESSAR FERÐIR OKKAR EINS OG HVAÐ? VIÐ LÆRUM ÝMISLEGT UM OKKUR SJÁLF Á ÞVÍ AÐ VERA ÖLL HÉRNA SAMAN EINS OG ÞAÐ HVAÐ VIÐ GETUM VERIÐ LENGI Á SAMA STAÐ ÁN ÞESS AÐ VERÐA BRJÁLUÐ JÁ HRÓLFUR! ÞETTA ER ÓVIÐEIGANDI GJÖF HANDA FÓLKI SEM Á BRÚÐKAUPS- AFMÆLI! RÓLEG, ÞETTA ER BARA GRÍN ÉG Á LÍKA ÞRJÁ LITLA FRÆNDUR... SEM ÉG VEIT AF EF VIÐ GETUM EKKI FLUTT Í ANNAÐ HVERFI, HVAÐ MEÐ AÐ SENDA KRAKKANA Í EINKASKÓLA EINKASKÓLAR ERU DÝRIR. AUK ÞESS SEM SKÓLINN HÉRNA ER FÍNN „FÍNN“ ER EKKI NÓGU GOTT FYRIR KRAKKANA OKKAR. AF HVERJU ÆTTU AÐRIR KRAKKAR AÐ HAFA ÞAÐ BETRA? VEGNA ÞESS AÐ FORELDRAR ÞEIRRA ERU RÍKIR ÞETTA ER ÍSLAND, VIÐ TÖKUM BARA LÁN! ÉG VERÐ AÐ DRÍFA MIG ÚR ÞESSU ÉG VONA AÐ ENGINN TÆMI RUSLIÐ ÁÐUR EN ÉG KEMST Í ÞAÐ ÉG VERÐ AÐ DRÍFA MIG, HANN ER BÚINN AÐ SLÖKKVA Á ÞJÓFAVÖRNINNI FYRIRGEFÐU, HERRA PARKER. VONA AÐ ÞÉR HAFI EKKI VERIÐ BRUGÐIÐ EKKI FYRST ÞETTA VAR MÉR AÐ KENNA Stúdentaráð Háskóla Íslandsheldur Rannsóknadaga SHÍ2007 dagana 24. og 25. jan-úar. Jan Herman Erlingsson er aðstoð- arframkvæmdastjóri Rann- sóknadaga: „Við höldum tveggja daga ráðstefnu um nýsköpun og rannsóknir nemenda á meistara- og doktorsstigi, þar sem megináhersla er á að kynna rannsóknarverkefni þeirra, bæði fyrir almenningi, fyrir háskólasamfélaginu og atvinnulífi,“ segir Jan. „Ellefu deildir háskólans halda fimm ráðstefnur sem haldnar verða samhliða 24. janúar, en 25. jan- úar höldum við lokahóf og kynnum nýjan rannsóknarsjóð.“ Í Öskju verða haldnir fyrirlestrar raunvísindadeildar, í Odda fyr- irlestrar félags-, guðfræði- og hugvís- indadeilda, í Lögbergi lagadeildar og viðskipta- og hagfræðideildar. Fyr- irlestrar verkfræðideildar verða í VR II og fyrirlestrar heilbrigðisvís- indadeilda í Læknagarði. Hefjast ráðstefnurnar allar kl. 12.30. Hugmyndir um nýsköp- unarsetur kynntar „Sautján rannsóknarverkefni verða kynnt í fyrirlestrum, en til við- bótar verður mikill fjöldi veggspjalda við hvern fyrirlestrasal þar sem kynnt eru fleiri verkefni,“ segir Jan en einnig verður blaði með útdráttum úr fyrirlestrum dreift og bæklingar gefnir út fyrir hverja ráðstefnu. „Við fáum til okkar fulltrúa atvinnulífs, há- skóla og stjórnmála, og á öllum ráð- stefnum verða kynntar hugmyndir nemenda um nýsköpunar- og frum- kvöðlasetur við Háskóla Íslands, sem er verkefni sem nokkrir nemenda hafa unnið að. Með slíku setri mætti auka virkni hins íslenska þekking- arsamfélags og stuðla að aukinni ný- sköpun og frumkvöðlastarfsemi, og ekki síst bæta aðgengi íslenskra fyr- irtækja að framúrskarandi nem- endum og sprotafyrirtækjum.“ Hóf fimmtudagsins verður haldið í hátíðarsal Aðalbyggingar. Þar taka meðal annars til máls Jón Sigurðsson ráðherra iðnaðar- og viðskiptamála, og Guðlaugur Þór Þórðarson stjórn- arformaður OR sem kynnir hinn nýja umhverfis- og orkurannsóknarsjóð Orkuveitunnar. Þá verða kynnt tvö valin rannsóknarverkefni nemenda við Háskólann. Aðalstyrktaraðilar Rann- sóknadaga 2007 eru Actavis, Orku- veita Reykjavíkur og Marel, en að auki styrktu viðskipta- og iðnaðarráð, Félagsstofnun stúdenta og Stúd- entasjóður dagskrána. Jan segir Rannsóknadaga 2007 minna á hve mikilvægt er að Háskóli Íslands bjóði upp á öflugt rannsókn- artengt framhaldsnám: „Skrifað var undir tímamótasamning á dögunum um auknar fjárveitingar hins op- inbera til rannsókna við Háskólann, “ segir Jan. „Með dagskránni 24. og 25. janúar sýnum við af hverju slíkur samningur á rétt á sér, og verður dagskráin vonandi til þess að efla þá umræðu sem hefur átt sér stað á Ís- landi um rannsóknar- og vísinda- starf.“ Nánari upplýsingar má finna á slóðinni http://rannsoknadagar.hi.is, þar sem meðal annars má finna skjal með dagskrá Rannsóknadaga 2007. Menntun | Rannsóknadagar SHÍ 2007 í Háskólanum á miðvikudag og fimmtudag Lifandi rann- sóknarstarf  Jan Herman Erlingsson fædd- ist á Ísafirði 1985 og ólst upp á Ak- ureyri. Hann lauk stúdents- prófi frá Mennta- skólanum á Ak- ureyri 2005 og leggur nú stund á nám í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands. Jan hefur fengist við verslunarstörf og þjónustustörf, en hann situr nú í stjórn Vöku – félags lýðræðissinnaðra stúdenta. For- eldrar Jans eru Erlingur Níelsson verslunarstjóri og Ann Merethe Jakobsen hjúkrunarfræðingur. LEIKKONAN Sienna Miller gengur yfir Aðalstræti í bænum Park City í Utah-fylki í Bandaríkjunum. Þar fer nú fram kvikmyndahátíðin Sundance þar sem fleiri en 120 kvikmyndir óháðra kvikmyndargerðarmanna verða sýndar til 28. janúar. Miller leikur ásamt Steve Buschemi í kvikmyndinni Interview (Viðtal) sem sýnd er á kvikmyndahátíðinni í ár. Reuters Óháðar stjörnur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.