Morgunblaðið - 23.01.2007, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Strætó til Selfoss og
Keflavíkurflugvallar?
HVAÐ getum við gert til að fækka
slysum í umferðinni? Þeirri spurn-
ingu hafa menn velt fyrir sér að und-
anförnu – og ekki að ástæðulausu.
Nægir að leggja betri vegi með fleiri
akreinum? – Leysir það vandann? – Í
Bandaríkjunum og löndum Evrópu-
sambandsins verða árlega yfir
100.000 dauðaslys í umferðinni, þrátt
fyrir langtum fullkomnara vegakerfi
en hér á landi. (Í Bandaríkjunum
einum fórust 44.000 manns á sl. ári
samkvæmt Time).
Eru bílarnir ef til vill orðnir alltof
margir? Er ekki brýnt að draga úr
umferð á þjóðvegum þar sem hún er
allra þyngst, svo sem á Keflavík-
urveginum og um Hellisheiði? – En
hvernig?
Er e.t.v. reynandi að taka upp
strætisvagnaferðir milli Reykjavík-
ur, Selfoss, Reykjanesbæjar og
Keflavíkurflugvallar með sama far-
gjaldi og gildir innan höfuðborg-
arsvæðisins? Gæti sú ráðstöfun létt á
örtröð bíla og aukið öryggi vegfar-
enda? Eru líkur á að menn nýti sér
þá þjónustu? Reynslan af stræt-
isvagnasamgöngum milli Reykjavík-
ur og Akraness er reyndar mjög góð.
Vagnarnir oftast þéttsetnir. Stræt-
isvagnaferðir milli þessara staða
hljóta að teljast sjálfsagðar.
Reykjanesbær og Selfoss eru í
reynd orðin úthverfi Reykjavíkur.
Og eitt og sama vinnusvæðið. Er
hugsanlegt að semja við fyrirtækin,
sem nú hafa sérleyfi til fólksflutn-
inga á þessum leiðum, að taka upp
strætisvagnaferðir í stað núverandi
fyrirkomulags? – A.m.k. meðan
samningar þeirra eru í gildi? Ríki og
viðkomandi sveitarfélög yrðu eflaust
að leggja til nokkuð fé, eigi þær
breytingar að ná fram.
Reykjanesbrautin er einn fjölfarn-
asti þjóðvegur landsins og flestir
sem aka þar um eru á leið til og frá
Keflavíkurflugvelli. – Er hægt að
létta á umferðinni á þeim slóðum? –
Lítum á þetta: Boeing 757-300 tekur
um 220 farþega. Gefum okkur að
þeir komi allir frá höfuðborgarsvæð-
inu. Sláum því líka föstu að 1⁄3 hluti
farþeganna – nálægt 70 – fari á milli í
rútum eða leigubílum. Hinir 150 í 80–
90 einkabílum. (Einkabílarnir fara
stundum fjórar ferðir til að koma
einum eða tveimur flugfarþegum til
og frá vellinum. – Án farþega aðra
leiðina). 30, 40 eða e.t.v. 60 flugferðir
til og frá Keflavíkurflugvelli á hverj-
um degi? Hver og einn getur síðan
spreytt sig á að reikna út ferðafjölda
einkabílanna í hverjum mánuði!
Þrjár 75 manna rútur/stræt-
isvagna þarf til að flytja alla farþeg-
ana í fullhlaðna Boeing 757-vél.
Nýlega var sagt frá því að Flug-
félag Íslands hygðust hefja beinar
ferðir milli Akureyrar og Keflavík-
urflugvallar á sumri komanda. Þar
er komið til móts við flugfarþega sem
eru á leið til útlanda frá Norðurlandi.
(Það þýðir jafnframt færri ferðir um
Reykjanesbraut!). Athyglisvert er að
í tengslum við þessa nýbreytni gefst
mönnum kostur á að innrita sig norð-
ur á Akureyri.
Hvers vegna ætti ekki það sama
að gilda um aðra farþega? – Menn
innrita sig þá á flugafgreiðslu í
Reykjavík, losna við farangurinn,
setjast upp í rútu/strætó og greiða
250 kr. fyrir ferðina suður á flugvöll.
– A la Akranes-strætó!
G.S.S.
Ánægja með mokstur
á gangstéttum
ÉG vil láta í ljós ánægju og þakklæti
fyrir góðan mokstur á gangstéttum í
Bústaðahverfi. Eins er búið að gera
aðgengi að strætisvagnabiðstöðvum
aðgengilegra. Finnst ástæða til að
þakka það sem vel er gert.
Eldri kona.
Gott mál
MÉR finnst það gott mál ef Sam-
hjálp ætlar að koma skjólstæðingum
Byrgisins til aðstoðar. Það er stað-
reynd að margir sem þola ekki AA-
staglið hafa náð árangri í gegnum
trúarleiðina og er ég sjálf í þeim
hópi. Þess eru mörg dæmi að guð
hefur komið fólki til hjálpar í erfiðum
aðstæðum. Ég hef persónulega
reynslu af Samhjálp og sú reynsla er
mjög góð. Nú hef ég ekki smakkað
vín í mörg ár og hef enga löngun til
þess en ég fer aldrei á AA-fundi.
Kona í Reykjavík.
Brjótum blað
ÍSLENDINGAR voru fyrstir til að
kjósa kvenforseta í heiminum. Sköp-
um líka fordæmi í kjöri formanns
KSÍ. Gefum bisnessköllunum frí og
kjósum Höllu.
Ingi Stein.
Ullarfrakki týndist á Ölstofunni
GRÁR ullarfrakki með hvítu fóðri
týndist á Ölstofunni. Skilvís finnandi
vinsamlega hafi samband við Kjart-
an í síma 892 3924.
Svartur herrajakki tekinn í mis-
gripum
SVARTUR herrajakki frá Friendtex
var tekinn í misgripum á þorrablóti
Stjörnunnar 19. janúar sl. Á sama
stað fannst gullúr. Upplýsingar í
síma 899-4520.
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Kominn á miðjanaldur er Víkverji
farinn að nota strætó,
einn fárra í sínum ald-
ursflokki, enda þessi
samgöngumáti aðallega
notaður af unglingum
og öldruðum. Þó að
þokkalega þægilegt sé
að ferðast með strætó
kom þessi lífsstíls-
breyting ekki til af
góðu. Fyrirtækið sem
Víkverji vinnur hjá
flutti upp í sveit og þar
sem aðeins einn bíll er á
heimilinu þykir ráð-
legra að hafa hann til
taks miðsvæðis í borg-
inni fyrir húsmóðurina, svo hún geti
reddað börnunum í frístundirnar,
keypt í matinn og dedúað við sjálfa
sig.
Á meðan Víkverji var fjarverandi í
orlofi munu starfsfélagar hans marg-
ir hverjir hafa barist hart fyrir því að
strætóleið nr. 5 yrði opnuð á ný, sem
Strætó bs. hafði lagt niður sökum
manneklu og lítillar eftirspurnar á
leiðinni. Með undirskriftum og hvatn-
ingum var leiðin opnuð á ný, reyndar
á takmörkuðum tíma dagsins, að
morgni frá kl. 7–9 og síðdegis frá kl.
15–18.
Víkverji hefur síðustu mánuði tekið
þennan strætó alloft og kollegarnir
eru ekki íkja margir til viðbótar. Fyr-
ir kemur að Víkverji
sitji einn eftir í vagn-
inum þegar á leiðarenda
er komið og þegar nýir
bílstjórar hafa verið á
ferð hafa þeir stundum
gleymt heimreiðinni að
vinnustað Víkverja, og
snúið vagninum við til
að þjónusta þennan eina
farþega. Hefur Víkverji
aldrei setið í stærri
einkabíl um ævina. Ef
fram heldur sem horfir
væri ekki að undra að
Strætó bs. hætti að aka
þessa leið. Hún svarar
ekki kostnaði og liggur
við að Víkverji sé farinn
að hafa áhyggjur af borgarsjóði og
nagandi samviskubit yfir því að sitja í
tómum vagni. Borgin gæti alveg eins
greitt afborganir af nýjum bíl fyrir
Víkverja eins og að setja undir hann
heilan strætisvagn.
Skyldi engan undra að Strætó bs.
hafi í gær hækkað gjaldskrána. Það
eykur hins vegar ekki líkurnar á að
fleiri starfsfélagar Víkverja fari að
nota strætó. Annaðhvort hafa þeir
keypt sér annan bíl á heimilið, eru
svona teprulegir að geta ekki tekið
strætó eða halda slíku ríghaldi í eina
ökutækið að makar og börn þurfa að
notast við tvo jafnfljóta, reiðskjóta
eða strætó. Víkverji telur síðast-
nefnda farkostinn langólíklegastan.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Orð dagsins: Þegar þú leggst til hvíldar, þarft þú
ekki að hræðast, og hvílist þú mun svefninn verða
vær. (Ok. 3, 24.)
Fyrrverandi heimsmeistarinn íþungavigt karla í hnefaleikum,
Mike Tyson, neitaði því í dag er hann
mætti fyrir dómara í Phoenix í Ari-
zona í Bandaríkjunum að hafa haft
fíkniefni í fórum sínum og að hafa ek-
ið undir áhrifum.
Tyson, sem er fertugur, var hand-
tekinn í Scottsdale seint í desember
eftir að hafa verið nálægt því að
klessa á lögreglubíl. Lögreglumenn-
irnir leituðu í framhaldinu í bifreið
Tysons og fundu þar kókaín. Tyson
lýsti sig hinsvegar saklausan í dag.
Hann mun aftur mæta fyrir dóm-
ara í lok febrúar.
Hnefaleikakappinn fyrrverandi,
sem var eitt sinn þekktur sem „harð-
svíraðasti maður á jörðinni“, hefur
þegar setið inni fyrir nauðgun og of-
beldisverk.
Framleiðendur þáttanna Americ-an Idol hafna þeirri gagnrýni að
aldrei hafi verið meiri illkvittni í þátt-
unum en í nýjustu röðinni, sem hófst
á þriðjudaginn. Einn dómaranna,
hinn alræmdi Simon Cowell, sagði
einn keppandann líta út eins og
„frumskógardýrin með risastóru aug-
un ... hálfapa“.
Rúmlega 37 milljónir sjónvarps-
áhorfenda fylgdust með fyrsta þætt-
inum í nýju röðinni, og hefur áhorf á
þættina aldrei verið meira. Cowell
sagði við fréttamann: „Þeir sem þola
ekki að heyra svona lagað eiga ekki
að taka þátt.“
Cowell sagði að hálfapalíkingin
hefði verið alveg óundirbúin. Ef
keppandanum hefði verið misboðið
„biðst ég afsökunar. Það er ekki víst
að ég kalli neinn hálfapa aftur.“
Ken Warwick, framleiðandi þátt-
anna, sagði að áhorfendur vildu fá að
sjá þá söngvara sem stæðu sig verst.
„Það eru verstu söngvararnir sem
auka áhorfið mest,“ sagði Warwick
og kemur það í sjálfu sér engum á
óvart.
Fólk folk@mbl.is
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
/ KEFLAVÍK
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 8 - 10:15 LEYFÐ
THE PRESTIGE kl. 10:15 B.i. 12 ára
KÖLD SLÓÐ kl. 8 B.i. 12 ára
/ AKUREYRI
BABEL kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
THE PRESTIGE kl. 8 B.i. 12 ára
CHILDREN OF MEN kl. 10:20 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:40 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
FORELDRAR kl. 6 - 8 - 10
BABEL kl. 6 - 9 - 10:30 B.i. 16 ára
THE PRESTIGE kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára
CHILDREN OF MEN kl. 5:50 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 - 8 B.i. 16 ára
THE DEPARTED kl. 10:30 B.i. 16 ára
THE HOLIDAY kl. 8 B.i. 7 ára
DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i. 12 ára
Með stórstjörnunum BRAD PITT og CATE BLANCHETT.
Frá leikstjóra AMORES PERROS og 21 GRAMS
eeee
- LIB, TOPP5.IS
eeee
- PANAMA.IS
eeee
- FRÉTTABLAÐIÐ
EF ÞÚ VILT FÁ
ÞARFTU AÐ
HLUSTA
SKILNING…
GOLDEN GLOBE
BESTA MYND ÁRSINS
ÁHORFENDAVERÐLAUNIN Á CANNES.
LEIKSTJÓRAVERÐLAUNIN Á CANNES.FORELDRAR
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
6 TILNEFNINGAR
TIL BAFTA VERÐLAUNA.
FRÁ ÞEIM SÖMU OG
GERÐU VERÐLAUNA-
MYNDINA BÖRN
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
H.J. MBL.
M.M.J
KVIKMYNDIR.COM
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er þriðjudagur
23. janúar, 23. dagur
ársins 2007