Morgunblaðið - 23.01.2007, Síða 48
Í HNOTSKURN
» Heimild er til að dæmamenn í öryggisgæslu eft-
ir að afplánun lýkur, skv.
heimild í 67. grein almennra
hegningarlaga.
» Þar segir að sé sennilegtað viðkomandi haldi
áfram að brjóta af sér, m.a.
vegna eðlis afbrota hans og
andlegs ástands, megi beita
tilteknum öryggisráðstöf-
unum.
» Hægt er að ákveða þettaí refsidómi eða í sérstöku
máli síðar.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
RÍKISSAKSÓKNARI hefur heim-
ild til að krefjast þess að öryggis-
ráðstöfunum verði beitt gegn
Ágústi Magnússyni, dæmdum kyn-
ferðisbrotamanni, eftir að afplánun
hans lýkur, jafnvel þótt kröfu um
slíkt hafi verið hafnað þegar dómur
var kveðinn upp.
Ágúst var dæmdur í fimm ára
fangelsi í mars 2004 en var að af-
plána síðasta hluta dómsins á
Vernd þegar hann beit á agn frétta-
skýringaþáttarins Kompáss. Að
sögn Valtýs Sigurðssonar, for-
stjóra Fangelsismálastofnunar, var
það með vitneskju ríkissaksóknara
að Ágúst hóf afplánun hjá Vernd.
Samkvæmt lögum og vinnu-
reglum Fangelsismálastofnunar
afplána menn sem hafa verið
dæmdir fyrir alvarleg afbrot 2⁄3
hluta dóma en er síðan sleppt á
reynslulausn, nema sérstakar
ástæður mæli gegn því. Valtýr
sagði að ekki hefði verið um það að
ræða í þessu tilviki, enda hefði
Ágúst sýnt mikla iðrun og sam-
starfsvilja meðan hann afplánaði á
Litla-Hrauni. Aðspurður hvaða
áhrif varsla barnakláms hefði á
möguleika hans á reynslulausn
sagðist Valtýr ekki geta sagt það á
þessari stundu.
Getur krafist
öryggisgæslu nú
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 23. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
V 13–23 m/s,
hvassast á annesj-
um NV til. Búast
má við hvössum
vindhviðum NA til og á SA-
landi. Skýjað að mestu. » 8
Heitast Kaldast
8°C 0°C
BLÚNDA 468 á Helluvaði á Rangárvöllum
var nythæsta kýr landsins á síðasta ári.
Skilaði hún 13.327 kg mjólkur á árinu. Er
þetta í fyrsta skipti sem íslensk kýr mjólk-
ar meira en 13 tonn á einu ári.
Blúnda er einstakur gripur, að sögn eig-
andans, Ara Árnasonar, sem stendur að
búinu á Helluvaði ásamt Önnu Maríu Krist-
jánsdóttur, konu sinni. „Hún hefur ekki
fengið annað atlæti en hinar kýrnar, hún
bara mjólkar og mjólkar,“ segir Ari. Það
vekur einnig athygli að Blúnda mjólkaði
aðeins í ellefu mánuði á síðasta ári. | 19
Blúnda skil-
aði 13 tonnum
Ljósmynd/Ari Árnason
Met Blúnda mjólkaði 13 tonn í fyrra.
MÝRIN gnæfir yfir aðrar myndir þegar
litið er yfir tölur um aðsókn að íslenskum
kvikmyndahúsum á síðasta ári. Alls sáu
rúmlega 81.500 manns Mýrina en næst á
eftir koma framhaldsmynd Sjóræningja
Karíbahafsins, Dauðs manns kista, með
rúma 65.400 áhorfendur og James Bond-
myndin Casino Royal, sem rúmlega 51.500
kvikmyndahúsagestir sáu.
Heildartekjur af miðasölu Mýrarinnar
námu rúmum 88 milljónum sem er nálægt
því að vera samanlagðar tekjur af fyrr-
nefndum myndum.
Aðrar íslenskar myndir ná ekki inn á
lista yfir 30 mest sóttu kvikmyndir síðasta
árs. | 39
Um 81.000 manns
sáu Mýrina í fyrra
BJARKI Birgisson hyggst hjóla hringinn um
meginland Bandaríkjanna, tæplega 30 þúsund
kílómetra leið, og afla með því stuðnings til
stofnfrumurannsókna. Hann stefnir að því að
hefja ferðina um mitt ár 2008 og telur að ferða-
lagið geti tekið allt að þremur árum. Bjarki er
afreksmaður í sundi og vakti ganga hans og
Guðbrands Einarssonar hringinn í kringum
landið 2005 undir yfirskriftinni „Haltur leiðir
blindan“ mikla athygli. Einnig hjólaði Bjarki í
kringum Ísland sumarið 2006 ásamt Gyðu Rós
Bragadóttur til stuðnings BUGL. Bjarki er
hreyfihamlaður vegna CP (cerebral palsy).
Bjarki sagði í samtali við Morgunblaðið að
undirbúningur ferðarinnar væri að hefjast.
Hann er farinn að æfa hjólreiðar og undirbúa
sig líkamlega. Einnig er unnið að því að afla
stuðnings forystumanna lands og þjóðar við
ferðina og eins fyrirtækja og annarra mögu-
legra stuðningsaðila hér heima og erlendis.
Bjarki telur að stofnfrumurannsóknir skipti
alla máli og gefi mörgum von. Því sé mikilvægt
að styðja þær.
„Ég veit ekki hvað margir eru í hjólastól eða
með CP í heiminum en ef hægt er að laga það
sem veldur fötluninni þá getur hreyfihamlað
fólk fengið styrk í fæturna og farið að ganga.
Það er eitthvað að öllum, en það er líka til
lækning við öllu , bara eftir að finna hana við
ýmsum sjúkdómum. Mér finnst þetta nóg til
að drífa mig áfram. Mér finnst peningum
vera vel varið í svona rannsóknir,“ sagði
Bjarki.
Stefnt er að því að íslenskir aðstoðarmenn
verði með í ferðinni. Eins er Bjarki á förum
utan bráðlega til að afla sér stuðnings og að-
stoðar. Þá er talsverð pappírsvinna við leyf-
isumsóknir varðandi ferðalagið framundan.
Hann segist ekki síst vilja vekja athygli
bandarískra yfirvalda með ferðinni í því
skyni að fá þau til að leyfa stofnfrumurann-
sóknir í meiri mæli en nú er.
Ætlar að hjóla kringum Bandaríkin
Bjarki Birgisson áformar að hjóla tæplega 30 þúsund kílómetra leið kringum Bandaríkin og afla með
því stuðnings til stofnfrumurannsókna Bjarki gekk kringum Ísland 2005 og hjólaði hringinn í fyrra
Morgunblaðið/ÞÖK
Hjólar Bjarki Birgisson áformar að hjóla
hringinn í kringum Bandaríkin.
Í ÖRUGGUM faðmi pabba renndi þessi snót
sér niður Ártúnsbrekkuna og spennan skein
bókstaflega úr andliti hennar.
Þó að snjórinn og ísilögð vötn séu skemmti-
legur leikvöllur, þá er ýmislegt að varast.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins brýnir fyrir
fólki að hreinsa vel úr niðurföllum í dag til að
koma í veg fyrir að vatn flæði inn í hús þar
sem von er á mikilli hláku. Þá er ís á vötnum
þunnur og mjög varhugaverður þessa dagana.
Lögreglan beinir því til foreldra að ræða hætt-
una við börn sín.
Morgunblaðið/Golli
Spennuþrungin sleðaferð
MYNDLISTARMAÐURINN Ólafur Elías-
son mun hanna þakhæð á Listasafnið í Ár-
ósum í Danmörku en hugmynd Ólafs þótti
taka fram öðrum sem bárust í samkeppni
um hæðina. Meðal þess sem kemur fram í
úrskurði dómnefndar er að hugmyndin
uppfylli kröfur um að þakflötur safnsins
verði einstakt byggingarlistaverk, sem
sameini list og arkitektúr af fágun.
Áætluð verklok við framkvæmdina eru
sumarið 2008 og hljóðar kostnaðaráætlun
upp á 30 milljónir danskra króna.
Verkið byggist á samspili lita, ljóss,
sjóndeildarhrings og gesta. | 16
Ólafur hannar
þakhæð listasafns
FRUMVARP um Ríkisútvarpið
ohf. verður að lögum í dag þegar
greidd verða atkvæði um frum-
varpið. Lögin taka gildi 1. apríl nk.
Stjórnarandstaðan tilkynnti form-
lega í gær að umræðu um RÚV
væri lokið af hennar hálfu en að
málinu væri þó ekki lokið þar sem
stjórnarandstöðuflokkarnir væru
allir staðráðnir í að breyta starfs-
umhverfi RÚV kæmust þeir til
valda eftir kosningar.
„Ríkisstjórnarflokkarnir, Sjálf-
stæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur, hafa kosið að afgreiða
frumvarp um Ríkisútvarpið í mikl-
um ágreiningi við stjórnarandstöð-
una. Forystumenn þessara flokka
hafa hafnað öllum sáttaboðum,“
segir í yfirlýsingu frá Samfylking-
unni, Vinstri grænum og Frjáls-
lynda flokknum. | 10
Ný lög um
RÚV sam-
þykkt í dag