Morgunblaðið - 15.03.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
)
*
+ !"
#$
% & ,-) . )
/)
01 1
+ )$
1 +- )$
2
*
1
3-4 5-6
7##8
9
3-
#
:! !'
!::
&! &!'
:!&
(! ; ; ;!'
;'! ; ;!(
; ;!'
<'!'
& & & & & ' ' ' ' ' (
)
&!*
+
&!*
)
*
+
'
=> )
#
=?
>
= @
@3
= #
A )$ #
3B #
*
2?C
4
# ?D
"A*
B *
E
E
>3
, 4FA1
G
0HCI J
K
3L,C
/EI
::&M K
?+
3
* E J
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
FJÁRFESTAR hafa áhyggjur af
þróun fasteignamarkaðarins í
Bandaríkjunum. Vanskil af íbúða-
lánum vestra eru meiri en þau hafa
verið frá því mælingar hófust.
Lækkun vísitalna í kauphöllum í
fyrradag er að stórum hluta rakin til
nýrra upplýsinga um vanskil frá
samtökum veðlánabanka, Mortgage
Bankers Association (MBA), en Dow
Jones-visitalan, Nasdaq og S&P
lækkuðu þá allar um 2%.
Í frétt í New York Times (NYT)
segir að hætta sé talin á því að fram-
undan sé niðursveifla á fasteigna-
markaðinum. Vanskil og gjaldþrot
íbúðaeigenda hafi aukist víða um
Bandaríkin, og séu ekki lengur
bundin við ríki sem hafi átt við efna-
hagserfiðleika að stríða. Þannig hafi
vandinn til að mynda aukist í ríkjum
eins og Kaliforníu, sem til þessa hafi
ekki sýnt merki um slíkt.
Minni kröfur auka vandann
Vandinn á fasteignamarkaðinum
vestanhafs er mestur í tengslum við
auknar lánveitingar fjármálafyrir-
tækja sem hafa ekki gert jafn stífar
kröfur til lántakenda og önnur fyr-
irtæki hafa gert. Hlutdeild þeirra á
markaðinum hefur aukist mikið á
umliðnum árum. Þessi fjármálafyr-
irtæki hafa veitt hærra lánshlutfall
en önnur en eru jafnframt með hærri
vexti. Þau hafa, að því er fram kemur
í frétt NYT, orðið verr úti en önnur
að undanförnu vegna vanskila íbúða-
eigenda, og hefur gengi hlutabréfa
þeirra sem eru skráð á markaði
lækkað mikið.
Vandi eykst á íbúða-
markaði vestanhafs
Vanskil hafa ekki verið meiri en nú frá því mælingar hófust
Reuters
Áhrif Vanskil af íbúðalánum hafa áhrif á hlutabréfamarkaði. Á myndinni
er framhlið New York Stock Exchange á Wall Street í New York.
VERÐBÓGA í Kína í febrúar
mældist 2,7% og hækkaði hún um
0,5 prósentustig frá janúarmánuði.
Í kjölfarið eykst þrýstingur á seðla-
banka landsins um hækkun stýri-
vaxta, samkvæmt frétt Bloomberg,
sem segir þetta ekki koma á óvart
því hagfræðingar hafi spáð 2,8%
verðbólgu.
Undirliggjandi verðbólguþrýst-
ingur er töluverður og í ljósi mik-
illa áhrifa Kína á heimshagkerfið
er talið brýnt að brugðist verði við.
Matvæli var sá flokkur sem leiddi
hækkunina en eftirspurn eftir mat
virðist stöðugt aukast í Kína sam-
tímis því sem landnæði til ræktunar
fer minnkandi.
Reuters
Eftirspurn Matvæli leiða hækkun
verðbólgunnar í Kína.
Þrýstingur
á seðla-
banka Kína
EFNAHAGS- og framfarastofnun
Evrópu (OECD) segir að verð-
bólga á evrusvæðinu, í Bandaríkj-
unum og Japan réttlæti ekki frek-
ari hækkun á stýrivöxtum á
þessum myntsvæðum. Þetta er
haft eftir aðalhagfræðingi OECD
á fréttavef BBC-fréttastofunnar.
Hann segir að verðbólgan á þess-
um svæðum sé vel innan marka.
Seðlabanki Everópu hækkaði
stýrivexti sína fyrr í þessum mán-
uði úr 3,50% í 3,75%. Seðlabanki
Japans hækkaði vextina í febrúar
úr 0,25% í 0,50% en vextirnir hafa
verið óbreyttir í Bandaríkjunum,
5,25%, frá því á miðju síðasta ári.
Hagfræðingur OECD útilokar
þó ekki að til greina geti komið
að það muni þurfa að hækka
stýrivextina á evrusvæðinu, í
Bandaríkjunum eða Japan. Sá
tími sé hins vegar ekki kominn
enn.
Engin þörf
á hækkun
stýrivaxta
AFÞREYINGAR- og fjölmiðlafyr-
irtækið Viacom Media ætlar í mál
við netleitarfyrirtækið Google og
netveitu þess,
YouTube. Mun
Viacom fara
fram á einn
milljarð dollara
í bætur, um 67
milljarða ís-
lenskra króna,
vegna meintrar
heimild-
arlausrar notk-
unar YouTube á
efni frá Viacom,
að því er fram
kemur í frétt á fréttavef BBC.
Viacom, sem á meðal annars
sjónvarpsstöðvarnar MTV, VH1
og Nickelodeon, segir að You-
Tube noti efni frá stöðvunum
óspart án þess að hafa haft fyrir
því að fara fram á heimild til
þess. Segir Viacom að um það bil
160 þúsund myndskeið frá stöðv-
unum hafi verið niðurhöluð á
YouTube.
Haft er eftir talsmanni Google í
frétt BBC að hann sé sannfærður
um að YouTube hafi virt höfund-
arréttinn á því efni sem þar sé í
boði. Og dómstólar muni komast
að þeirri niðurstöðu.
Viacom ætlar í
mál við Google
Á MTV Christina
Aguilera
LEYND varðandi launakjör stjórn-
enda opinberra stofnana og fyr-
irtækja í Póllandi verður aflétt ef
frumvarp pólsku ríkisstjórnarinnar
þar um verður samþykkt.
Í frétt á fréttavef pólska blaðsins
Gazeta Wyborcza segir að stjórn-
endur ríkisstofnana og fyrirtækja
sem ríkið á meira en 50% hlut í
verði að upplýsa um heildartekjur
sínar og maka sinna einnig. Segir í
fréttinni að sérstakri stofnun sem
hefur það hlutverk að fylgjast með
hugsanlegri spillingu í Póllandi
(CBA), verði falið að yfirfara upp-
lýsingar stjórnendanna.
Pólska viðskiptaráðið hefur mót-
mælt frumvarpinu og sagt það fæla
hæfa stjórnendur frá því að sækjast
eftir því að stýra opinberum stofn-
unum eða fyrirtækjum. Þá hefur
því verið haldið fram að hætta sé á
því að glæpamenn komist yfir upp-
lýsingarnar og muni hugsanlega
geta misnotað þær.
Launaleynd af-
numin hjá pólsk-
um stofnunum
L
4
L
4
L
4
L
4
(
&
&
'
'
!&
!'
!'
:
:
(
(
&
E
E
<!:
< ;
E
E
<!(
<!'
;
E
E
< ; ;
E
E
< ; ;!&
- ?
* 4 - ?
* 4
- ?
* 4 - ?
* 4
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
HJÓL hagkerfanna á evrusvæðinu
snúast hratt og ef eitthvað er er
hraðinn að aukast og sér raunar ekki
fyrir endann á keyrslunni ef marka
má nýjar spár sérfræðinga OECD
sem hafa nú hækkað aðeins þriggja
mánaða gamla hagvaxtarspá sína
umtalsvert.
Þeir gera nú ráð fyrir að vöxturinn
á fyrri helmingi þessa árs verði 3%
en fyrir þremur mánuðum spáðu
þeir því að hagvöxturinn á evru-
svæðinu allt þetta ár yrði 2,2% en nú
bendir sem sagt allt til þess að hann
kunni að verða nokkru meiri. Það er
áframhaldandi traust mál í þýska
efnahagsmótornum sem einkum
skýrir aukna bjartsýni sérfræðinga
OECD; margir óttuðust að hækkun
virðisaukaskattsins í Þýskalandi um
áramótin myndi draga úr hagvext-
inum þar en nú virðist ljóst að fyrst
sá þýski er kominn á ferð verði hann
ekki svo glatt stöðvaður. Og nýleg
vísitala ZEW í Þýskalandi sem mæl-
ir væntingar fjárfesta þar virðist
staðfesta áframhaldandi bjartsýni
þar í landi. Og þótt hökt og hikst hafi
einkennt stjórnmálin á Ítalíu virðist
gangurinn þar það sem af er ári hafa
verið meiri en menn áttu von á.
Beggja skauta byr í
evruhagkerfunum
VILTU?
ÞÁ ÁTTU ERINDI TIL OKKAR!
... aðskilja innheimtuna frá rekstrinum?
... auka rekstrarhæfni fyrirtækis þíns?
... bæta fjárstreymi fyrirtækisins?
... vernda viðskiptasamböndin?
... spara fé, tíma og fyrirhöfn?
Hlíðasmára 15 | 201 Kópavogur | Sími 530-9100 | www.innheimtulausnir.is
Bergstaðastræti 37 Sími 552 5700
holt@holt.is - www.holt.is
Borðapantanir
í síma 552 5700
og holt@holt.is
EINSTAKT UMHVERFI,
FRÁBÆR MATUR OG
ÚRVALSÞJÓNUSTA