Morgunblaðið - 15.03.2007, Side 8

Morgunblaðið - 15.03.2007, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf E kki eru allir á eitt sáttir um ágæti svokallaðra „private equity“-fjár- festinga, eða þeirra að- ila sem sérhæfa sig í slíkum fjárfestingum. Sumir finna þeim allt til foráttu og telja þá nánast handbendi þess er býr í neðra á með- an aðrir telja þá nánast himnasend- ingu fyrir hagkerfi heimsins. Ekki hefur verið til gott íslenskt hugtak yfir „private equity“ en í þessu tilviki er best að tala um óskráð hlutafé. Þessi fjárfestingarstefna felst í stuttu máli í því að kaupa hlutafélög sem ekki eru skráð á markað – eða kaupa skráð félög og afskrá þau – hagræða í rekstri þeirra á einn eða annan hátt og selja þau síðan með hagnaði. Þessi hugmyndafræði fer mikið fyrir brjóstið á mörgum sem telja hana til marks um græðgi mannskepnunnar en þeir sem telja fræðina af hinu góða benda á að hún leiði til aukinnar skilvirkni og því sé hún til þess fallin að efla efnahags- kerfi heimsins. Hér skal ekki skorið úr um hvort þetta sé góð eða slæm hugmyndafræði heldur fjallað um þann mann sem nefndur hefur verið „nýi kóngurinn á Wall Street“. Sá heitir Stephen Schwarzman og er forstjóri Blackstone Group, sem í dag er að margra mati öflugasta og áhrifamesta fjárfestingarfyrirtæki heims. Valdaþróun á Wall Street „Á 9. áratugnum voru valdhafarnir á Wall Street með rauð axlabönd, snæddu á Le Cirque og græddu pen- inga á ruslskuldabréfum og misvirð- iskaupum. Áratug síðar voru þeir í pólóbolum og spiluðu fótboltaspil í áhættufjárfestingarfyrirtækjunum sem standa við Sand Hill Road í Sili- con Valley og uppskáru milljarða eft- ir fjárfestingar í hátækni. Í dag má finna nýjustu risana á Wall Street sitjandi á hverjum mánudagsmorgni við langt, svolítið slitið, fundarborð í gluggalausu stjórnarherbergi langt fyrir ofan Park Avenue, þar sem Blackstone Group er til húsa.“ Á þessum orðum hefst nýleg um- fjöllun bandaríska viðskiptatímarits- ins Fortune um Schwarzman en hann er annar stofnenda fyrirtækis- ins og eins og það er orðað í Fortune er það hann sem stýrir mánudags- fundunum í Blackstone Group. Það er hann sem leggur línurnar og Blackstone leggur ekki fé í neitt verkefni án samþykkis hans. Sagt að hann þurfi ekki einu sinni að hækka róminn á fundum því þegar Steve Schwarzman talar leggja menn við hlustir og orð hans eru lög. Stærsta yfirtakan í þriðju tilraun Rætur Blackstone liggja í fjárfest- ingum í óskráðu hlutafé, þótt vissu- lega sinni fyrirtækið öllum þeim greinum sem talist geta til litrófs fjárfestingalistarinnar. Þetta kemur berlega í ljós þegar litið er yfir dag- skrá mánudagsfundanna áður- nefndu. Það var á einum slíkum fundi sem Schwarzman og vopnabræður hans lögðu á ráðin um yfirtökuna á fast- eignafyrirtækinu Equity Office Pro- perties Trust (EOP), stærsta eig- anda skrifstofuhúsnæðis í Bandaríkjunum. Það var ekki fyrr en í þriðju tilraun sem Blackstone hreppti hnossið en tveimur fyrri til- boðum fyrirtækisins í EOP hafði verið hafnað. Yfirtakan varð að veru- leika hinn 9. febrúar síðastliðinn og þegar upp var staðið þurftu Schwarzman og menn hans að punga út 39 milljörðum dollara, jafngildi um 2.700 milljarða króna, og voru það stærstu PE-viðskipti til þess tíma. Síðan hefur verið tilkynnt um 45 milljarða dala yfirtöku nokkurra fyrirtækja á orkufyrirtækinu TXU og er sú yfirtaka sú stærsta til dags- ins í dag. Mikil bjartsýni ríkir á markaði óskráðra hlutabréfa um þessar mundir og til marks um það hefur Schwarzman látið hafa eftir sér að hann sé þess fullviss að fyrir árslok muni eiga sér stað yfirtaka að verð- mæti yfir 50 milljarða dala. Ekki fylgir þó sögunni hvort þessi vissa hans byggist á innherjaupplýsing- um, þ.e. að hann hafi sjálfur hug á að framkvæma slíka yfirtöku. 8.500 milljarða króna fjárfestingargeta Schwarzman er fæddur á degi heil- ags Valentínusar (14. febrúar) árið 1947 og er hann því nýorðinn sextug- ur. Hann er alinn upp í úthverfum Fíladelfíuborgar og gekk í almennan skóla, sem oft er talið til marks um að menn séu ekki fæddir með silfur- skeið í munni. Hann hefur þó senni- lega verið afbragðsnámsmaður því úr almenningsskólakerfinu lá leiðin í hinn virta Yale-háskóla og þaðan í Harvard Business School en þaðan lauk Schwarzman MBA-gráðu. Að námi loknu hóf hann störf hjá Lehm- an Brothers, einum þekktasta fjár- festingarbanka heims. Þar reis stjarna hans hratt því árið 1978, aðeins 31 árs að aldri, var sögu- hetjan okkar skipaður framkvæmda- stjóri samruna- og yfirtökudeildar þar sem hann starfaði allt til ársins 1984. Miklar sviptingar innan Lehman Brothers leiddu til þess að Schwarzman yfirgaf fyrirtækið og stofnaði Blackstone Group árið 1985 í félagi við Peter Peterson, sem hafði verið forstjóri Lehman frá 1973– 1984. Peterson þessi, sem í dag er stjórnarformaður Blackstone Group, hefur einnig unnið sér það til frægð- ar að hafa verið viðskiptaráðherra Bandaríkjanna í stjórnartíð Rich- ards Nixons. Eigið fé Blackstone var í upphafi um 400 þúsund Bandaríkjadalir og hjá fyrirtækinu störfuðu fyrst um sinn fjórir starfsmenn, að þeim Schwarzman og Peterson meðtöld- um. Nú þegar rúmlega tveir áratugir eru liðnir frá stofnun fyrirtækisins er fjárfestingageta þess metin á um 125 millarða dala, jafngildi um 8.500 milljarða króna, og hjá fyrirtækinu starfa nú um 750 manns en þar af eru 52 meðeigendur. Fyrir yfirtöku Blackstone á Equity Office Proper- ties hafði fyrirtækið töglin og hagld- irnar í 47 fyrirtækjum og voru sam- anlagðar tekjur þeirra meiri en 85 milljarðar dala á ári. Eftir kaupin á EOP er ljóst að þær tekjur munu aukast eitthvað. Óhætt er að fullyrða að Schwarzman er á hátindi ferils síns en persónuleg auðæfi hans eru metin á um 3,5 milljarða Bandaríkjadala, um 238 milljarða króna, og er hann talinn 73. ríkasti maður Bandaríkj- anna. Schwarzman þykir gífurlega metnaðargjarn og að sögn gamals skólafélaga hans kom metnaður hans þegar í ljós á skólaárunum. „Hann hafði ekki einungis vilja til þess að ná langt, hann vildi ná lengra en aðrir,“ segir þessi skólafélagi hans og mark- miðinu var náð. Schwarzman var meðal ráðstefnu- gesta á Heimsviðskiptaþinginu í Da- vos í Sviss nýlega. Meðal annarra gesta var þýska ofurfyrirsætan Claudia Schiffer og greinir blaða- maður Fortune frá því að hún hafi átt athygli allra gesta ráðstefnunnar. Allra nema Schwarzman. Sá hafði mun meiri áhuga á að ræða viðskipti við títtnefndan blaðamann og þykir það lýsandi dæmi um hversu ein- staklega einbeittur maðurinn er. Hræðist ekki sviðsljósið Það hefur löngum þótt einkenna þá sem starfa innan fjárfestinga á óskráðum bréfum að þeir forðast sviðsljósið en Schwarzman er ekki einn þeirra. Árið 2000 flutti hann inn í núver- andi íbúð sína sem er í húsinu númer 740 við Park Avenue á Manhattan- eyju en það mun vera dýrasta fjöl- býlishús veraldar. Meðal fyrri eig- enda íbúðarinnar má nefna John D. Rockefeller hinn yngri og George nokkurn Brewster. Sá tilheyrir einni af fjölskyldum þeim sem komu til Bandaríkjanna með skipinu sögu- fræga Mayflower árið 1620 en fátt ku þykja fínna en að geta rakið ættir sínar til Mayflower. Íbúðina mun hann hafa greitt um 30 milljónir dala fyrir, jafngildi ríflega tveggja millj- arða króna, en jafnframt á hann hús í St. Tropez á frönsku Rivíerunni. Af þessu má ljóst vera að Schwarzman berst töluvert á og sannaðist það svo um munar þegar hann hélt upp á sex- tugsafmæli sitt fyrir um þremur vik- um með pomp og prakt. Fyrirmenni í veislu Meðal gesta voru Colin Powell, fyrr- verandi utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, og Michael Bloomberg, borgarstjóri Nýju Jórvíkur, en há- punktur kvöldsins mun hafa verið þegar Rod Stewart steig á svið og skemmti gestum í um hálfa klukku- stund. Fyrir ómakið mun hann hafa þegið eina milljón dala, um 70 millj- ónir króna, og hefur uppátækið vakið mikla athygli meðal fjölmiðla vestra. Einn gestanna mun hafa látið hafa eftir sér að hátíðahöldin mörkuðu endalok einhvers en aðeins tveimur vikum síðar tóku hlutabréfavísitölur að lækka hratt og hafa margir viljað tengja þessa atburði saman þótt aug- ljóslega sé um tilviljun að ræða. Eða hvað? Nýi kóngurinn á Wall Street Maður er nefndur Steve Schwarzman og er hann af mörgum tal- inn sá allra voldugasti í einum af nöflum fjár- málaheimsins. Guð- mundur Sverrir Þór fræddist um nýja kónginn á Wall Street. Kóngurinn Stephen Schwarzman, forstjóri fjármálafyrirtækisins Blackstone, er meðal ríkustu Bandaríkjamanna. Í HNOTSKURN »Stephen Schwarzman, for-stjóri Blackstone Group, fæddist á Valentínusardeginum (14. febrúar) árið 1947 og því ný- lega orðinn sextugur. »Bauð hann vinum sínum ogvelunnurum til veislu og sparaði hvergi aurinn, enda 73. ríkasti maður Bandaríkjanna. »Meðal viðstaddra í afmæl-isveislunni voru Colin Po- well, fv. utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Michael Blo- omberg, borgarstjóri New York. »Schwarzman fékk Rod Stew-art til að stíga á svið og syngja fyrir afmælisgesti. Skoski popparinn fékk litlar 70 milljónir króna fyrir og hneykslaði sú greiðsla margan fjölmiðlamann- inn vestanhafs. sverrirth@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.