Morgunblaðið - 15.03.2007, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
E
kki eru allir á eitt sáttir
um ágæti svokallaðra
„private equity“-fjár-
festinga, eða þeirra að-
ila sem sérhæfa sig í
slíkum fjárfestingum. Sumir finna
þeim allt til foráttu og telja þá nánast
handbendi þess er býr í neðra á með-
an aðrir telja þá nánast himnasend-
ingu fyrir hagkerfi heimsins. Ekki
hefur verið til gott íslenskt hugtak
yfir „private equity“ en í þessu tilviki
er best að tala um óskráð hlutafé.
Þessi fjárfestingarstefna felst í
stuttu máli í því að kaupa hlutafélög
sem ekki eru skráð á markað – eða
kaupa skráð félög og afskrá þau –
hagræða í rekstri þeirra á einn eða
annan hátt og selja þau síðan með
hagnaði. Þessi hugmyndafræði fer
mikið fyrir brjóstið á mörgum sem
telja hana til marks um græðgi
mannskepnunnar en þeir sem telja
fræðina af hinu góða benda á að hún
leiði til aukinnar skilvirkni og því sé
hún til þess fallin að efla efnahags-
kerfi heimsins. Hér skal ekki skorið
úr um hvort þetta sé góð eða slæm
hugmyndafræði heldur fjallað um
þann mann sem nefndur hefur verið
„nýi kóngurinn á Wall Street“. Sá
heitir Stephen Schwarzman og er
forstjóri Blackstone Group, sem í
dag er að margra mati öflugasta og
áhrifamesta fjárfestingarfyrirtæki
heims.
Valdaþróun á Wall Street
„Á 9. áratugnum voru valdhafarnir á
Wall Street með rauð axlabönd,
snæddu á Le Cirque og græddu pen-
inga á ruslskuldabréfum og misvirð-
iskaupum. Áratug síðar voru þeir í
pólóbolum og spiluðu fótboltaspil í
áhættufjárfestingarfyrirtækjunum
sem standa við Sand Hill Road í Sili-
con Valley og uppskáru milljarða eft-
ir fjárfestingar í hátækni. Í dag má
finna nýjustu risana á Wall Street
sitjandi á hverjum mánudagsmorgni
við langt, svolítið slitið, fundarborð í
gluggalausu stjórnarherbergi langt
fyrir ofan Park Avenue, þar sem
Blackstone Group er til húsa.“
Á þessum orðum hefst nýleg um-
fjöllun bandaríska viðskiptatímarits-
ins Fortune um Schwarzman en
hann er annar stofnenda fyrirtækis-
ins og eins og það er orðað í Fortune
er það hann sem stýrir mánudags-
fundunum í Blackstone Group. Það
er hann sem leggur línurnar og
Blackstone leggur ekki fé í neitt
verkefni án samþykkis hans. Sagt að
hann þurfi ekki einu sinni að hækka
róminn á fundum því þegar Steve
Schwarzman talar leggja menn við
hlustir og orð hans eru lög.
Stærsta yfirtakan
í þriðju tilraun
Rætur Blackstone liggja í fjárfest-
ingum í óskráðu hlutafé, þótt vissu-
lega sinni fyrirtækið öllum þeim
greinum sem talist geta til litrófs
fjárfestingalistarinnar. Þetta kemur
berlega í ljós þegar litið er yfir dag-
skrá mánudagsfundanna áður-
nefndu.
Það var á einum slíkum fundi sem
Schwarzman og vopnabræður hans
lögðu á ráðin um yfirtökuna á fast-
eignafyrirtækinu Equity Office Pro-
perties Trust (EOP), stærsta eig-
anda skrifstofuhúsnæðis í
Bandaríkjunum. Það var ekki fyrr en
í þriðju tilraun sem Blackstone
hreppti hnossið en tveimur fyrri til-
boðum fyrirtækisins í EOP hafði
verið hafnað. Yfirtakan varð að veru-
leika hinn 9. febrúar síðastliðinn og
þegar upp var staðið þurftu
Schwarzman og menn hans að punga
út 39 milljörðum dollara, jafngildi
um 2.700 milljarða króna, og voru
það stærstu PE-viðskipti til þess
tíma. Síðan hefur verið tilkynnt um
45 milljarða dala yfirtöku nokkurra
fyrirtækja á orkufyrirtækinu TXU
og er sú yfirtaka sú stærsta til dags-
ins í dag.
Mikil bjartsýni ríkir á markaði
óskráðra hlutabréfa um þessar
mundir og til marks um það hefur
Schwarzman látið hafa eftir sér að
hann sé þess fullviss að fyrir árslok
muni eiga sér stað yfirtaka að verð-
mæti yfir 50 milljarða dala. Ekki
fylgir þó sögunni hvort þessi vissa
hans byggist á innherjaupplýsing-
um, þ.e. að hann hafi sjálfur hug á að
framkvæma slíka yfirtöku.
8.500 milljarða króna
fjárfestingargeta
Schwarzman er fæddur á degi heil-
ags Valentínusar (14. febrúar) árið
1947 og er hann því nýorðinn sextug-
ur. Hann er alinn upp í úthverfum
Fíladelfíuborgar og gekk í almennan
skóla, sem oft er talið til marks um að
menn séu ekki fæddir með silfur-
skeið í munni. Hann hefur þó senni-
lega verið afbragðsnámsmaður því
úr almenningsskólakerfinu lá leiðin í
hinn virta Yale-háskóla og þaðan í
Harvard Business School en þaðan
lauk Schwarzman MBA-gráðu. Að
námi loknu hóf hann störf hjá Lehm-
an Brothers, einum þekktasta fjár-
festingarbanka heims.
Þar reis stjarna hans hratt því árið
1978, aðeins 31 árs að aldri, var sögu-
hetjan okkar skipaður framkvæmda-
stjóri samruna- og yfirtökudeildar
þar sem hann starfaði allt til ársins
1984.
Miklar sviptingar innan Lehman
Brothers leiddu til þess að
Schwarzman yfirgaf fyrirtækið og
stofnaði Blackstone Group árið 1985
í félagi við Peter Peterson, sem hafði
verið forstjóri Lehman frá 1973–
1984. Peterson þessi, sem í dag er
stjórnarformaður Blackstone Group,
hefur einnig unnið sér það til frægð-
ar að hafa verið viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna í stjórnartíð Rich-
ards Nixons.
Eigið fé Blackstone var í upphafi
um 400 þúsund Bandaríkjadalir og
hjá fyrirtækinu störfuðu fyrst um
sinn fjórir starfsmenn, að þeim
Schwarzman og Peterson meðtöld-
um. Nú þegar rúmlega tveir áratugir
eru liðnir frá stofnun fyrirtækisins
er fjárfestingageta þess metin á um
125 millarða dala, jafngildi um 8.500
milljarða króna, og hjá fyrirtækinu
starfa nú um 750 manns en þar af eru
52 meðeigendur. Fyrir yfirtöku
Blackstone á Equity Office Proper-
ties hafði fyrirtækið töglin og hagld-
irnar í 47 fyrirtækjum og voru sam-
anlagðar tekjur þeirra meiri en 85
milljarðar dala á ári. Eftir kaupin á
EOP er ljóst að þær tekjur munu
aukast eitthvað.
Óhætt er að fullyrða að
Schwarzman er á hátindi ferils síns
en persónuleg auðæfi hans eru metin
á um 3,5 milljarða Bandaríkjadala,
um 238 milljarða króna, og er hann
talinn 73. ríkasti maður Bandaríkj-
anna. Schwarzman þykir gífurlega
metnaðargjarn og að sögn gamals
skólafélaga hans kom metnaður hans
þegar í ljós á skólaárunum. „Hann
hafði ekki einungis vilja til þess að ná
langt, hann vildi ná lengra en aðrir,“
segir þessi skólafélagi hans og mark-
miðinu var náð.
Schwarzman var meðal ráðstefnu-
gesta á Heimsviðskiptaþinginu í Da-
vos í Sviss nýlega. Meðal annarra
gesta var þýska ofurfyrirsætan
Claudia Schiffer og greinir blaða-
maður Fortune frá því að hún hafi átt
athygli allra gesta ráðstefnunnar.
Allra nema Schwarzman. Sá hafði
mun meiri áhuga á að ræða viðskipti
við títtnefndan blaðamann og þykir
það lýsandi dæmi um hversu ein-
staklega einbeittur maðurinn er.
Hræðist ekki sviðsljósið
Það hefur löngum þótt einkenna þá
sem starfa innan fjárfestinga á
óskráðum bréfum að þeir forðast
sviðsljósið en Schwarzman er ekki
einn þeirra.
Árið 2000 flutti hann inn í núver-
andi íbúð sína sem er í húsinu númer
740 við Park Avenue á Manhattan-
eyju en það mun vera dýrasta fjöl-
býlishús veraldar. Meðal fyrri eig-
enda íbúðarinnar má nefna John D.
Rockefeller hinn yngri og George
nokkurn Brewster. Sá tilheyrir einni
af fjölskyldum þeim sem komu til
Bandaríkjanna með skipinu sögu-
fræga Mayflower árið 1620 en fátt ku
þykja fínna en að geta rakið ættir
sínar til Mayflower. Íbúðina mun
hann hafa greitt um 30 milljónir dala
fyrir, jafngildi ríflega tveggja millj-
arða króna, en jafnframt á hann hús í
St. Tropez á frönsku Rivíerunni. Af
þessu má ljóst vera að Schwarzman
berst töluvert á og sannaðist það svo
um munar þegar hann hélt upp á sex-
tugsafmæli sitt fyrir um þremur vik-
um með pomp og prakt.
Fyrirmenni í veislu
Meðal gesta voru Colin Powell, fyrr-
verandi utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, og Michael Bloomberg,
borgarstjóri Nýju Jórvíkur, en há-
punktur kvöldsins mun hafa verið
þegar Rod Stewart steig á svið og
skemmti gestum í um hálfa klukku-
stund. Fyrir ómakið mun hann hafa
þegið eina milljón dala, um 70 millj-
ónir króna, og hefur uppátækið vakið
mikla athygli meðal fjölmiðla vestra.
Einn gestanna mun hafa látið hafa
eftir sér að hátíðahöldin mörkuðu
endalok einhvers en aðeins tveimur
vikum síðar tóku hlutabréfavísitölur
að lækka hratt og hafa margir viljað
tengja þessa atburði saman þótt aug-
ljóslega sé um tilviljun að ræða.
Eða hvað?
Nýi kóngurinn á Wall Street
Maður er nefndur
Steve Schwarzman og
er hann af mörgum tal-
inn sá allra voldugasti
í einum af nöflum fjár-
málaheimsins. Guð-
mundur Sverrir Þór
fræddist um nýja
kónginn á Wall Street.
Kóngurinn Stephen Schwarzman, forstjóri fjármálafyrirtækisins Blackstone, er meðal ríkustu Bandaríkjamanna.
Í HNOTSKURN
»Stephen Schwarzman, for-stjóri Blackstone Group,
fæddist á Valentínusardeginum
(14. febrúar) árið 1947 og því ný-
lega orðinn sextugur.
»Bauð hann vinum sínum ogvelunnurum til veislu og
sparaði hvergi aurinn, enda 73.
ríkasti maður Bandaríkjanna.
»Meðal viðstaddra í afmæl-isveislunni voru Colin Po-
well, fv. utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Michael Blo-
omberg, borgarstjóri New York.
»Schwarzman fékk Rod Stew-art til að stíga á svið og
syngja fyrir afmælisgesti. Skoski
popparinn fékk litlar 70 milljónir
króna fyrir og hneykslaði sú
greiðsla margan fjölmiðlamann-
inn vestanhafs.
sverrirth@mbl.is