Morgunblaðið - 15.03.2007, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
LAUNÞEGUM í Færeyjum fjölgaði
nokkuð á síðasta ári. Í nóvember í fyrra
voru þeir 25.260 en 24.540 á sama tíma
árið áður, samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Færeyja.
Fjölgunin var sú sama hjá konum og
körlum, en á hinn bóginn mjög mismikil
milli atvinnugreina og landsvæða. Laun-
þegum fjölgaði mest á Vogey og á Suð-
urey. Í Vogey var fjölgunin 4,5% og 4,3%
á Suðurey. Á Norðureyjum var fjölgunin
aðeins 2%, á Sandey 3,6% en á Austurey
og Straumey var fjölgunin tæp 3%.
Vaxandi fjölgun launþega er hjá
einkafyrirtækjum í þjónustugeiranum,
svo sem verzlun, samgöngum, lánastofn-
unum, tryggingum og fleiru. Þar var
fjölgun launþega um 6%, sem er mesti
vöxturinn innan þjónustu í einkageir-
um 9,5% af starfandi fólki á
Eyjunum. Þetta hlutfall var
12,2% árið 1990. Þá fækkaði
starfsfólki í fiskvinnslu um 200,
sem er 10% samdráttur frá
árinu áður. Samdrátturinn hef-
ur verið nokkuð stöðugur síðan
þá.
Fjölgun í fiskeldi
Á hinn bóginn hefur störfum
við fiskeldi fjölgað mikið á síð-
asta ári. Þá störfuðu 440 manns
við eldið og í sláturstöðvum,
sem er tæplega 70% aukning frá árinu 2005.
Þá unnu aðeins 270 manns við eldið. Þegar
mest umsvif voru í fiskeldinu, á árunum
1999 til 2002, störfuðu þar um 700 manns.
Störfum við húsbyggingar fjölgaði um
tæp 200. Lítill vöxtur hefur verið þar síð-
ustu árin, þar til í fyrra, að fjölgun starfa
var hvað mest.
áhrif til hins verra. Því er talið rétt að
hafa á því nokkurn fyrirvara að störfum
í sjávarútvegi hafi fækkað um 3%.
Þá hefur það verið ákveðin þróun í at-
vinnumálum í Færeyjum að launþegum í
sjávarútvegi hefur farið fækkandi og
hlutfall þeirra af heildinni dregizt sam-
an. Í fyrra voru sjómenn 2.400, sem voru
anum. Í einstökum grein-
um þar, eins og í sam-
göngum og lánastofn-
unum, var aukningin
meira en 10%. Miðað við
fjölda var vöxturinn samt
mestur í versluninni.
Fjölgun launþega hjá
hinu opinbera var lítil, að-
eins 1,5% og er minnst í
helztu flokkunum, sem eru
frumvinnsla (sjávar-
útvegur og landbúnaður),
vöruframleiðsla, einka-
geirinn og hið opinbera.
Fækkun í sjávarútvegi
Það vekur athygli að launþegum í
sjávarútvegi fækkaði milli ára. Það get-
ur hins vegar hafa haft áhrif á nið-
urstöðuna, sem miðast við nóv-
embermánuð að veðurfar getur haft þar
Launþegum fjölgar í Færeyjum
2
*
2-
<
=:>
?&=:>
.531
5800
733.
8383
.56/
7/.6
1061
34./
! " #$ %&
'
FRÆGASTI fjárfestir á okkar
tímum, Warren Buffett, hefur aldr-
ei sjálfur skrifað bók um
fjárfestingar. Ekki er svo að skilja
að hann hafi unnið eftir leynd-
ardómsfullri fjárfestingarstefnu
sem menn hafa í tugi ára verið að
reyna að komast til botns í. Hann
hefur þvert á móti verið afar op-
inskár varðandi þá þætti sem hann
telur að skipti máli varðandi fjár-
festingar. Hann aðstoðaði læriföður
sinn, Benjamin Graham, við upp-
færslu á riti þess síðarnefnda, The
Intelligent Investor, þrátt fyrir að
koma ekki fram sem meðhöfundur
verksins á síðustu endurútgáfu bók-
arinnar sem gerð var árin 1971–72.
Þetta rit var reyndar Buffett ekki
alveg að skapi enda var Graham
töluvert áhættufælnari en hann.
Buffett hefur hins vegar nú í um
það bil 40 ár skrifað vangaveltur
varðandi fjárfestingar sínar í árs-
skýrslu fjárfestingarfyrirtækis
síns, Berkshire Hathaway. Hafa
þær fyrir löngu öðlast fastan sess
sem skyldulesning fjárfesta sem
vilja laga sig að Buffett-stefnunni,
sem hefur reyndar þróast töluvert í
gegnum tíðina.
Ávöxtun
Nýverið birtist nýjasta árs-
skýrslan og er fjöldamargt áhuga-
vert í henni. Enn eitt árið var ávöxt-
un eigin fjár Berkshire Hathaway
betri en ávöxtun S&P 500-
hlutabréfavísitölunnar. Þó hefur
ávöxtun þessara viðmiða verið svip-
uð síðustu fjögur árin, sem er frek-
ar lítið á Buffett-mælikvarða, því
umframávöxtun hans gagnvart
hlutabréfavísitölunni hefur að með-
altali verið heil 11% á ári. Auk þess
var 2006 áttunda árið í röð þar sem
innra virði bréfa Berkshire jókst
minna en meðaltal þess síðasta 41
ár. Er Buffett að fatast flugið?
Tryggingar
Að venju fjallar Buffett töluvert
um tryggingar, enda eru fjárfest-
ingar í þeim geira ein af und-
irstöðum ríkidæmis hans í dag. Í
ársskýrslu sinni fyrir tveimur árum
var Buffett með ítarlega umfjöllun
um tryggingageirann. Þar kom
fram að hann hefur mikið álit á
þeim stjórnendum sem þora að
sigla á móti straumnum. Í kjölfar
stórra skaðabótakrafna, til dæmis
vegna náttúruhamfara, haldi trygg-
ingafélög almennt að sér höndum,
einmitt þegar tryggingagjöld eru
sem hæst verðlögð. Þá er almenna
reglan hjá félögum í eigu Buffetts
að auka áhættuþor og skrifa samn-
inga í gríð og erg. Þegar önnur fé-
lög fara á ný að taka á sig trygg-
ingaskuldbindingar eykst
verðsamkeppni og gjöldin sem
tryggingafélög fá fyrir að taka á sig
áhættu minnka. Það er á þeim tíma-
punkti sem tryggingafélög í eigu
Berkshire fara að draga saman
seglin.
Þó svo að Buffett þakki móður
náttúru að stórum hluta hversu
mikill hagnaður var á síðasta ári hjá
tryggingafélögum í hans eigu stenst
hann ekki mátið að benda á að nú
séu tryggingafélög á hans snærum
að minnka áhættugrunn sinn vegna
aukinnar verðsamkeppni í geir-
anum. Hann segir að þetta sé í sam-
ræmi við almenna fjárfesting-
arstefnu sína: „Vertu hræddur
þegar aðrir eru gráðugir og vertu
gráðugur þegar aðrir eru hræddir.“
Buffett er augljóslega nokkuð
ánægður með sjálfan sig hvað þetta
varðar. Það kemur þó ekki fram að
það að fylgja eftir slíkri stefnu er
hægara sagt en gert þegar margir
eigendur eru til staðar í trygginga-
félögum. Þeir stjórnendur sem sigla
á móti almenningsálitinu þegar vel
gengur fá klapp á bakið en þegar
þeir veðja á rangan hest virðast
þeir aftur á móti vera kjánalegir og
fá iðulega að gjalda þess.
Ný hlutabréf
í safninu
Það vakti athygli hversu lítið
Buffett fjárfesti í hlutabréfum þeg-
ar gengi hlutabréfa tók dýfu niður á
við í kjölfar hjöðnunar netbólunnar
og uppgötvunar tíðra bókhaldssvika
hjá ótrúlegustu fyrirtækjum. Í ár
birtast aftur á móti fimm ný skráð
fyrirtæki metin með hærra mark-
aðsvirði en 700 milljónir dollara í
eignasafni hans.
Þau eru:
Conoco Phillips – orka
Johnson & Johnson –
neysluvörur
POSCO – stáliðnaður
Tesco – verslunarkeðja í
matvælum
US Bancorp – fjármál
Auk þess hafa tvö fyrirtæki bæst
við í hópinn og er Buffett enn að
auka fjárfestingar sínar í þeim.
Hann segir á gamansaman hátt í
skýrslunni að hann gæti vissulega
sagt einhverjum hvaða fyrirtæki
það væru en slíkt mundi kosta líf
viðkomandi. Greinarhöfundur gisk-
ar á að eitt þessara fyrirtækja sé
Home Depot. Fyrirtækið passar af-
ar vel í þá fjárfestingarstefnu sem
Buffett hefur fylgt í gegnum tíðina.
Það er fremst á sínu sviði og eins og
hjá Wal-Mart, sem Buffett fjárfesti
mikið í árið 2005, hefur Home De-
pot mikla möguleika á að verða stór
þátttakandi í þeirri efnahags-
uppsveiflu sem nú á sér stað í Kína.
Helstu hlutföll tengd markaðsvirði
bréfa Home Depot í dag eru í ódýr-
ari kantinum, sem hefur haldið pæl-
ingum um yfirtöku á lofti. Einn
þeirra sem nefndir eru í því tilliti er
Edward Lampert, sá sem vann sér
það helst til frægðar að kaupa stór-
an hluta í Sears og margfalda virði
þeirrar fjárfestingar.
Framkvæmdastjóri
óskast
Ofangreindur Lampert er reynd-
ar einn af fáum sem hugsanlega
þykja koma til greina sem eft-
irmaður Buffetts hjá Berks-
hire. Fram kemur í skýrslunni
að Berkshire hefur valið þrjá aðila
sem hugsanlegan eftirmann Buf-
fetts og ef Buffett mundi því falla
skyndilega frá veit stjórn Berkshire
hver tekur við. Buffett, sem er
orðinn 76 ára gamall, tekur fram
að allir þessir aðilar séu töluvert
yngri en hann, enda sé stefnan
sú að fá framtíð-
arframkvæmda-
stjóra. Enn virðist þó
vera tími til að sækja um þessa
stöðu því hann bætir við að í
þessu ferli verði hugsanlega
fleiri umsækjendur kallaðir til
viðtals.
Buffett vill augljóslega fá
einhvern sem er nánast ná-
kvæmlega eins og hann.
Helstu atriði sem skipta
máli eru að maðurinn
búi yfir visku til að
þekkja og forðast al-
varlega áhættu, þar
með talið hættu á
hlutum sem aldrei
hafa áður gerst, sjálf-
stæðri hugsun, sálarlegu
jafnvægi og skilningi á eðli
manna og stofnana. Ekki
kemur þó fram hvert
senda eigi umsóknir en
ágætis byrjun er heima-
síða fyrirtækisins,
www.berkshirehatha-
way.com.
Er Buffett að fatast flugið?
Eftir Má Wolfgang Mixa » FjárfestingarstefnaBuffetts er: Vertu
hræddur þegar aðrir
eru gráðugir og vertu
gráðugur þegar aðrir
eru hræddir.
Auðkýfingur Warren Buffett hefur skilað frá sér ársskýrslu fjárfestingafélags síns, Berkshire Hathaway, og
greinarhöfundur veltir því m.a. fyrir sér hvort karlinum sé eitthvað farið að förlast í fjárfestingum sínum.
Höfundur er sérfræð-
ingur hjá
verðbréfafyrirtækinu
Nordvest.