Morgunblaðið - 15.03.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 17
viðskipti/athafnalíf
SIGRÍÐUR
Lára Árnadóttir
hefur verið ráðin
fjármálastjóri Ice-
land Express.
Hún tók við starf-
inu 1. febrúar sl.
en hafði áður
starfað sem flug-
kostnaðarstjóri
hjá félaginu í rúmt
ár. Áður en hún
hóf störf hjá Iceland Express starfaði
hún sem skrifstofustjóri hjá flug-
félaginu JetX ehf. sem hafði starfsemi
sína á Ítalíu, bæði í áætlunarflugi og
leiguflugi. Þar áður var Lára skrif-
stofu- og fjármálastjóri hjá eMR
Hugbúnaði. Lára stundaði viðskipta-
nám við Byggeteknisk højskole í Dan-
mörku og hefur tekið fjölda lengri
jafnt sem skemmri námskeiða á sviði
viðskipta, rekstrar og tungumála.
Eiginmaður Láru er Halldór
Karlsson byggingafræðingur og sam-
an eiga þau tvær dætur.
Fjármálastjóri hjá IE
Sigríður Lára
Árnadóttir
AÐSTANDENDUR sýningar-
innar Tækni og vits 2007, sem fram
fór um liðna helgi, eru ánægðir
með aðsóknina en talið er að um 15
manns hafi komið á sýninguna í Fíf-
unni í Kópavogi. Þar kynntu yfir
100 sýnendur vörur sínar og þjón-
ustu fyrir fagaðilum og almenningi.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu voru fjölmargir við-
burðir tengdir sýningunni, m.a.
heimsókn forseta Íslands þar sem
hann gróðursetti sprota á sýning-
arsvæði Samtaka iðnaðarins,
Sprotatorginu, sem hlaut síðan
fyrstu verðlaun í samkeppni um at-
hyglisverðasta sýningarsvæðið.
Önnur verðlaun hlaut fyrirtækið
CAOZ, sem sérhæfir sig í gerð
tölvugerðra teiknimynda. Hugbún-
aðarfyrirtækið Rue de Net og
hönnunarfyrirtækið H2 hönnun
hlutu svo bæði þriðju verðlaun.
Jafnframt voru tilkynnt úrslit at-
kvæðagreiðslu um athyglisverð-
ustu vöruna eða þjónustuna á
Tækni og viti 2007 að mati fagaðila.
Það reyndust vera rafræn skilríki
en þau voru kynnt á sýningunni á
vegum Auðkennis, Landsbankans
og fjármálaráðuneytis. Kosningin
fór fram á sýningarsvæði mbl.is á
Tækni og viti 2007.
AP sýningar stóðu að Tækni og
viti 2007 í samstarfi við forsæt-
isráðuneytið, fjármálaráðuneytið,
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið,
Samtök iðnaðarins, Háskólann í
Reykjavík, Orkuveitu Reykjavíkur
og TM Software.
Tækni og vit laðaði til
sín 15 þúsund manns
SOLRESOR, systurfyrirtæki
Heimsferða, hefur verið valið besti
ferðaskipuleggjandi ársins í Svíþjóð
og hlotið Grand Travel-verðlaunin,
annað árið í röð. Að verðlaununum
standa ferðatímaritið Travel News,
sænsk ferðaþjónustufyrirtæki og
starfsmenn þeirra.
Solresor er í eigu Primera Travel
Group, sem jafnframt er móðurfyr-
irtæki Heimsferða og fjögurra ann-
arra fyrirtækja í ferðaþjónustu á
Norðurlöndunum. Solresor áætlar
að flytja 200 þúsund farþega á þessu
ári og veltan verði um 15 milljarðar
króna. Innan Primera Travel Group
eru einnig Terra Nova auk ferða-
skrifstofanna Solresor í Svíþjóð,
Bravo Tours í Danmörku, Solia í
Noregi og Matkavekka og Loma-
matkaat í Finnlandi. Flugfélagið
JetX er einnig hluti af fyrirtækinu.
Svíar verðlauna Solresor
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING?
HLUNNINDI SEM FYRIRTÆKJASAMNINGUR VEITIR:
• Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki
• Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn
- alla daga ársins
• Afsláttur sem býðst á fargjöldum til áfangastaða
Icelandair og sérkjör á tengifargjöldum
• Sveigjanlegri fargjaldaskilmálar
• Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum
+ Skráðu fyrirtækið þitt núna á www.icelandair.is
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
A C D E FB
€ ÞJÓNUSTA SEM
SPARAR FYRIRTÆKJUM
TÍMA OG PENINGA
+ Nánari upplýsingar og bókanir á www.icelandair.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
61
11
0
3
/0
7
‘07 70ÁR Á FLUGI