Morgunblaðið - 02.04.2007, Page 2

Morgunblaðið - 02.04.2007, Page 2
2 F MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ                                                                      !"         # # # # $                %        !    " # %!        ! !       % !  % %     % & ' ( )   *  +           , -. /             &   ' ( +  )   *  %!    $ #%                     !   ! ! %  %   %! 01 - '     2 3 45 678 2 . 9 3 3 . ,  45 '3 *3    : ;  < ! & # (#%  : ;  < ! & # ) *  "+! ! : ;  < ! & # Efnisyfirlit 101Reykjavík ....................... 28–29 Akkurat .......................................... 17 Ás .................................................. 44 Berg ............................................... 51 Borgir ................................... 38–39 DP-fasteignir .............................. 16 Eignaborg .................................... 54 Eignamiðlunin ..................... 20–21 Eik fasteignafélag ..................... 32 Fasteignakaup ............................. 19 Fasteign.is .................................. 53 Fasteignamarkaðurinn ..... 22–23 Fasteignamiðlun Grafarvogs .. 52 Fasteignamiðstöðin ................... 10 Fasteignasala Íslands ............... 14 Fasteignasala Mosfellsbæjar .. 18 Fasteignastofan ......................... 27 Fjárfesting ...................................... 3 Fold ....................................... 24–25 Foss ............................................... 40 Garðatorg .................................... 50 Gimli ...................................... 36–37 Heimili .............................................. 7 Híbýli ............................................. 45 Hof ................................................... 6 Hóll ............................................. 4–5 Hraunhamar ................ 33-34-35 Húsakaup .................................... 56 Húsavík ......................................... 15 ÍAV ................................................. 47 Ísleifur Jónsson .......................... 16 Kjöreign ......................................... 11 Klettur ....................................... 8–9 Lundur ................................... 42–43 Miðborg ................................. 48–49 Neseignir ..................................... 26 Remax Stjarnan ........................ 46 Skeifan ........................................... 41 Stórhús ........................................ 55 Valhöll ...................................... 12–13 Heiðar segist ekki hafaætlað sér að búa áSauðárkóki, en örlöginséu einfaldlega þannig að maður ráði ekki um úrslit mála. Hann fór í fjölbrautaskóla á Króknum árið 1990 og kynntist þar konu sinni og þegar námsárin voru hjá liðin fluttist fjölskyldan til Sauðárkróks og hefur búið þar síð- an 1999. Klisjur sem eru sannar „Þótt það hljómi kannski eins og klisja þá verð ég að segja að mér líður afskaplega vel hérna á Króknum af því að mannlífið er svo gott, enda eru Skagfirðingar þekktir fyrir auðugt menningarlíf, tónlist og kveðskap. Svo eigum við líka mjög skemmtilegan vinahóp hérna og þá er umhverfið eins og það á að vera og skiptir litlu máli hvar maður býr,“ segir Heiðar. Hjónin eiga tvær stelpur, átta og tíu ára, báðar í fiðlunámi og mjög virkar í félagslífi og menningar- starfsemi bæjarins. „Ég er bara stoltur af skólakerf- inu hérna af því að ég veit að stelp- unum mínum líður mjög vel. Það er svo frábært að krakkarnir komast þangað sem þau vilja án þess að þú þurfir að hafa einhverjar áhyggjur, hér er ekkert flókið og engar flóknar leiðir að fara, allt er sára- einfalt.“ Gutlar við golf og tónlist Heiðar er bróðir Magna Ásgeirs- sonar og þar af leiðandi frá Borg- arfirði eystra. En honum hefur verið tekið vel á Króknum þótt hann búist ekki við að verða ekta „kræklingur“ í þessu lífi. „Hér er svo margt sem hægt er að gera, ég horfi mikið á fótbolta – og körfubolta að sjálfsögðu – og spila reyndar svolítið sjálfur „old boys“ fótbolta, svo eru skíðabrekk- urnar skammt undan og níu holu golfvöllur á frábærum stað. Reynd- ar er ég bara á fyrsta teignum í golfinu, en þetta kemur allt saman með tímanum,“ segir Heiðar. Tónlist er lífið. Heiðar segist elska tónlist og allt sem tónum fylgir, hvort sem það er klassískt eða nútímatónlist. „Ég fer svolítið á skíði þegar færi gefst en annars erum við bara á svo góðum stað að það er ekkert mál að fara í leikhús, Akureyri er hérna við hliðina og auk þess er lít- ið mál að keyra til Reykjavíkur ef svo ber undir. En tónlist er mér svo kær að ég get ekki án hennar verið og Skagfirðingar eiga sterka tónlistarhefð sem ég met mikils.“ Stöðugleiki í bænum Heiðar segir að Sauðárkrókur einkennist af stöðugleika og unir því vel. Hlutirnir mjakist áfram en alltaf í rétta átt. „Það er búið að leggja ljósleiðara fyrir allan bæinn og það er mikilvægur búsetuþáttur fyrir okkur. Svo er náttúrlega ver- ið að leggja hitaveitu til Hofsóss og um sveitina og það gerir málin bara betri. Atvinnulífið er stöðugt og mér finnst vera vel unnið að uppbyggingu Hólaskóla og það skiptir héraðið miklu máli,“ segir Heiðar. Fasteignamarkaðurinn er róleg- ur þó mikið sé byggt á Króknum. „Ég held að búið sé að byggja um hundrað íbúðir á síðustu árum og allavega hafa verið byggðir fleiri tugir íbúða á Hólum. Hér er mikið byggt fyrir eldra fólk og að sjálfsögðu koma yngri kynslóð- irnar, sem eru með börn, og kaupa einbýlishúsin sem losna þegar selt er,“ segir Heiðar. „Það er gott að búa hérna, Krók- urinn heldur í horfinu, ef svo má að orði komast.“ Áskell Heiðar Ásgeirsson, landfræðingur og húmanisti, býr á Sauðárkróki og finnst þar gott að vera. Reyndar er hann ekki Skagfirðingur en kona hans er það og þau átta ár sem hann hefur búið þar hafa bara verið góð. Eins og hann segir sjálfur – „Krókurinn heldur í horfinu.“ Kristján Guðlaugsson hringdi í hann og spjallaði við hann um hvernig er að búa á Sauðárkróki. Morgunblaðið/Einar Falur Stöðugleiki Miðbær Sauðárkróks er að breytast, en það gerist ekki með stökkbreytingu. Krókurinn heldur í horfinu Falleg Sauðárkrókskirkja er falleg hvort sem er á sumri eða að vetri. Á Króknum Mér líður afskaplega vel hérna á Króknum af því að mannlífið er svo gott. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.