Morgunblaðið - 02.04.2007, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 02.04.2007, Qupperneq 46
46 F MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Það hefði einhvern tíma þótttíðindum sæta að menntækju upp á því að keppa íþví sem þeir starfa við. Við höfum vanist því í gegnum árin að fylgjast með landsliðum okkar í knattspyrnu, handknattleik og fleiri flokkaíþróttum og erum aftur farin að fylgjast með einstaklingum í frjálsum íþróttum. Elstu borgarar þessa lands muna enn gullöldina í frjálsum íþróttum um miðja síðustu öld. En þó okkur hérlendis finnist það nýstárlegt að keppa í handverki, eða því sem unnið er við dags daglega, þá er þetta ekki eins nýtt af nálinni á heimsvísu og ætla mætti. Samtökin World Skills hafa í áratugi staðið fyrir heimsmeistarakeppni í hand- verki og iðngreinum og það er tæp- lega til sú iðn sem ekki tekur þátt í þeim heimsmótum. En snúum okkur aftur að um- ræðuefni dagsins sem er það að við höfum eignast Norðurlandameist- ara í pípulögnum. Sá sem þann titil ber er ungur Kópavogsbúi að nafni Árni Már Heimisson. Eins og venja er hérlendis vilja menn vita um ætt og uppruna en Kópavogur er ungt byggðarlag sem ekki á sér langa sögu sem þéttbýli. Þess vegna telja sumir Kópa- vogsbúar, sem námu þar land um miðja síðustu öld á hrjóstrugum hálsum og nesi, að þeir séu með blátt blóð sem frumbýlingar. En þessi ungi Norðurlandameistari rekur ættir sínar lengra aftur í tímann sem Kópavogsbúi en fyrrnefndir frum- býlingar því hann er af þeirri ætt sem á langa sögu í Kópavogi; langafi hans og langamma bjuggu síðust búi í Fífuhvammi fram eftir tuttugustu öldinni. En aftur til nútímans og afreks þessa unga manns. Norðurlanda- keppnin í pípulögnum fór að þessu sinni fram í Málmey í Svíþjóð en þessi keppni á sér ekki langa sögu. Í henni er einn þátttakandi frá hverri norrænni þjóð, þar af leiðandi fimm keppendur og þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingur sigrar. Í áratugi hefur verið starfandi norræn samvinnunefnd pípulagn- ingamanna sem hefur samræmt menntunarkröfur og atvinnuréttindi pípulagningamanna á Norð- urlöndum. Lengi vel voru Íslend- ingar aðeins meðreiðarsveinar og ekki teknir sem fullgildir aðilar að þessu samstarfi en fyrir rúmum ára- tug lögðust fulltrúar Íslands á árar og þrýstu á fulla aðild. Hún fékkst en þó nokkuð dræmt í byrjun, því verður ekki neitað. Það var þessi samvinnunefnd sem ákvað að stofna til Meistarakeppni Norðurlanda í pípulögnum sem haldin skyldi annað hvert ár. Fyrsta keppnin var í Tromsö í Noregi 1999 og fyrsti Norðurlandameistarinn var heimamaður. Fulltrúar Íslands höfðu hug á að Ísland tæki fullan þátt í þessu samstarfi og ættu þar með fulltrúa í keppninni. Það tókst 2001 þegar ungur Búðdælingur, Vigfús Baldvin Heimisson, tók þátt í keppninni í Bella Center í Kaup- mannahöfn og stóð sig með miklum sóma. Það sama má segja um aðra fulltrúa landsins í keppninni, þeir hafa ætíð staðið sig frábærlega. Árið 2005 var keppnin í fyrsta sinn haldin á Íslandi. Keppt var í Perlunni og tókst með ágætum. En hvað tekur nú við hjá Norð- urlandameistaranum unga? Hann var tekinn tali í stórhýsi í Hafn- arfirði en rétt er að geta þess að meistari hans er Garðar Ingþórsson þótt hann hafi farið nokkuð á milli meistara til að víkka sjóndeild- arhringinn. Framtíðin er enn óráðin hjá meistaranum unga en þegar rætt er um möguleika á frekara námi þá getur gamall lagnamaður ekki annað en undrast og fagnað því hve tímarnir eru breyttir frá því sem var fyrir ekki lengri tíma en hálfri öld. Nú býðst frekari menntun fyrir unga duglega og framsækna pípu- lagningamenn bæði innanlands og utan. Það þykir ekki lengur nein goðgá að pípulagningamaður fari í háskóla innanlands og einkanlega í Danmörku er um fjölmargar náms- brautir í píplögnum að ræða. Að lok- um skal þessum unga Norð- urlandameistara í pípulögnum óskað til hamingju með sigurinn, sem ekki aðeins útheimti einbeitingu og dugn- að í keppninni, heldur líka strangan undirbúning og þjálfun. Bæjarstjór- inn í Kópavogi mætti líka skreppa í blómabúð og óska síðan þessum unga Kópavogsbúa til hamingju, Norðurlandameistari í íþróttum hefði örugglega fengið nokkrar rós- ir. Íslenskur Norðurlandameistari í pípulögnum Höfundur er pípulagningameistari siggigretar@internet.is LAGNAFRÉTTIR Sigurður Grétar Guðmundsson Ýttu úr vör. Norræna samvinnunefndin sem gerði Norræna meist- arakeppni í pípulögnum að veruleika. Á þessum fundi sumarið 2000 er verið meta árangur fyrstu keppninnar í Tromsö og undirbúa keppnina í Bella Center. Fundurinn er haldinn á Klarålven í Svíþjóð á bjálkafleka sem nefndarmenn smíðuðu sjálfir. F. v: Christer Bölin, Svíþjóð; Christer Hägg, Finnlandi; Poul Houmöller, Danmörku, Ole Larmerud, Noregi; Sigurður Grétar Guðmundsson, Íslandi Meistarinn. Árni Már Heimisson Norðurlandameistari í pípulögnum ár- ið 2007 við lagnaverk í stórhýsi í Hafnarfirði STJARNAN Láttu okkur vinna fyrir þig, sýna og selja þína eign. Hringdu í síma 8600-299 eða 8200-747Björn S Ingólfsson.Sölufulltrúi. S 8600-299, bjorn@remax.is Björgvin Pétursson. Sölufulltrúi. S 8200-747, bjorgvin@remax.is Rúnar S Gíslason. Hdl og löggildur fasteignasali. Vilt þú selja þína eign hratt og örugglega? Suðurmýri - Ásett verð 65.900.000 Vesturhús - Ásett verð 83.000.000 Frakkastígur - Ásett verð 23.000.000 Leifsgata - Ásett verð 15.900.000 Blikaás - Ásett verð 28.900.000 Þorláksgeisli - Ásett verð 25.400.000 Við sýnum og seljum þína eign Sel dis t á 2 d ögu m Sel dis t á 2 tí mu m Sel dis t á 37 tím um Sel dis t á 28 dög um Sel dis t á 27 dög um Sel dis t á 14 dög um

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.