Morgunblaðið - 25.04.2007, Blaðsíða 4
4|Morgunblaðið
Kolviður er kolefnissjóðursem stofnaður var sum-arið 2006 að frumkvæðiSkógræktarfélags Ís-
lands og Landverndar en þessi fé-
lög hafa unnið að undirbúningi
sjóðsins um nokkurt skeið. Reynd-
ar kom hugmyndin frá hljómsveit-
inni Fræbbblunum í tilefni minn-
ingartónleika sem hún hélt um
enska pönkarann Joe Strummer,
en hann var þekktur fyrir áhuga
sinn á umhverfisvernd og sérlega
loftslagsmálum.
Alþjóðlega viðurkennt
Hlutverk Kolviðar er að gera ein-
staklingum, félagasamtökum,
stofnunum og fyrirtækjum kleift að
jafna kolefnalosun sína vegna sam-
gangna við skógrækt, segir í nýút-
komnum fræðslubæklingi um starf-
semi og markmið sjóðsins.
Starfsemi sjóðsins er í samræmi
við alþjóðlega viðurkenndar aðferð-
ir til að hamla gegn hlýnun and-
rúmsloftsins með bindingu kolt-
víoxíðs. Bakhjarlar sjóðsins eru
auk ríkisstjórnarinnar, Orkuveita
Reykjavíkur og Kaupþing.
Eins og alþjóð veit hafa gróð-
urhúslofttegundir aukist gríðarlega
á síðustu áratugum og nýbirtar
skýrslur um rannsóknir á áfram-
haldandi þróun loftslagsmála, sem
gerðar voru af mörg þúsund vís-
indamönnum úr öllum heiminum,
sýna að voveiflega horfir ef ekki
verður spornað við.
Aukinn vöxtur í útblæstri koltví-
sýrings er fyrst og fremst afleiðing
aukinnar brennslu jarðefnaelds-
neytis. Hugmyndafræðin að baki
Kolviðar, og erlendra sjóða með
sömu markmið, er að binda kolefni
úr andrúmsloftinu með skógrækt,
en tré og gróður binda kolefni og
leysa súrefni í stað þess út í and-
rúmsloftið.
Nafn fornkappa
Nafnið á sjóðnum er rakið til
Kolviðar á Vatni, en hann var forn-
kappi sem drepinn var á Kolvið-
arhóli og heygður þar. Sagt er að
hann hafi birst síðari tíma fólki og
látið illa en nú birtist hann í gervi
velgjörðarmanns mannkynsins.
Aðstandendum sjóðsins þykir við
hæfi að kalla hann til liðsinnis til að
minna landsmenn á það að um
þriðjungur landsins var skógi vax-
inn milli fjalls og fjöru á landnáms-
öld, eins og segir frá í kynning-
arbæklingnum um sjóðinn.
Markmið sjóðsins er að auka vit-
und almennings og atvinnulífsins
um losun kolefna og fá fólk til að
taka ábyrgð á eigin losun.
Kolviður vill hvetja Íslendinga til
þess að verða fyrsta þjóð heims til
að kolefnisjafna útblástursáhrif
samgöngutækja sinna með skóg-
rækt. Sjóðurinn vill ennfremur
stuðla að gerð kennsluefnis um
loftlagsmál og vinna markvisst með
nemendum á fleiri skólastigum, en
sérstaklega grunnskólabörnum.
Ný vefsíða opnuð
Kolviður hyggst gera langtíma-
samning við landeigendur og skóg-
ræktendur um ræktun kolefn-
isskóga á áður skóglausu landi.
Fyrsta skógræktarland Kolviðar
mun verða Geitasandi á Suður-
landi.
Vefsíða Kolviðar, www.kolvid-
ur.is, mun verða opnuð formlega og
kynnt landsmönnum 15. maí næst-
komandi og gefst þá almenningi
kostur á að reikna út á einfaldan
hátt það magn koltvísýrings sem
þeir losa út í andrúmsloftið með
samgöngum sínum.
Jafnframt gefst mönnum kostur
á að greiða fyrir þann fjölda trjáa
sem þarf til að kolefnisjafna sam-
göngur þeirra.
Samkvæmt kynningarbæklingi
sjóðsins er kostnaðurinn við að af-
kola hvern bíl mismunandi eftir
akstri og notkun, en þumalputt-
areglan þó sú að nóg sé að greiða
andvirði einnar fyllingar á bens-
íntankinn á ári til þess að afkola
ökutækið.
Kolviður tekur á móti greiðslum
frá þeim sem vilja taka þátt í verk-
efninu og styðja hugsjónir sjóðsins
og sér einnig um að planta trjánum.
Kolviður berst
gegn kolefnum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Byrjun Geir Haarde forsætisráðherra, óskar Kolviði velgengni.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdót
Skógur Kolviður vill stuðla að aukinni skógrækt gegn kolefnum.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Uppgræðsla Kolviður vill græða upp landið og gera það skógi vaxið aftur. Myndin er frá Hafnarfjalli.
Dagur umhverfisins er ídag, 25. apríl. Eitt af þvísem gert verður til þessað efla vitund fólks um
íslenska náttúru og umhverfisvernd
er að opna nýja vefsíðu sem heitir
Náttúran.is.
Ráðherrann opnar vefinn
Umhverfisráðherra Jónína Bjart-
marz opnar vefinn á hádegisfundi
sem ráðuneytið býður til að Kjar-
valsstöðum.
Eftir opnun vefsins mun kynn-
ingin halda áfram í verslunarmið-
stöðinni Kringlunni þar sem virkni
vefsins verður kynnt og umhverf-
isvænt kynningarefni gefið þeim
sem þiggja vilja.
Náttúran.is – vefur með umhverf-
isvitund er óháð samskiptaveröld og
þjónustuvefur þar sem þú finnur ít-
arlegar upplýsingar um umhverf-
isvottuð fyrirtæki, vörur og þjón-
ustu á Íslandi í dag. Þar eru einnig
„grænar síður“ sem er listi yfir
„græn“ fyrirtæki og stofnanir, en
listinn kemur t.a.m. inn á umhverf-
ismerkingar, umhverfisstjórnun og
umhverfisviðurkenningar.
Náttúrulegur netmarkaður
En vefsíðan er ekki bara fróðleg-
ur upplýsingamiðill um flestar hlið-
ar íslenskrar náttúru. Vefurinn
starfrækir einnig „náttúrumarkað“
(netverslun) þar sem fyrrnefnd um-
hverfisviðmið tengjast skráðum
vörum og koma þannig upplýs-
ingum á framfæri í samhengi við ít-
argögn annars staðar á síðum Nátt-
úrunnar.is.
Náttúran.is er myndrænn upplýs-
ingavefur sem sinnir umhverf-
ismennt á breiðum grundvelli og
talar til allra aldurshópa.
Það eru þau Guðrún Tryggva-
dóttir listakona og Einar Berg-
mundur Arnbjörnsson, for-
stöðumaður tölvusviðs Listaháskóla
Íslands, sem hafa hannað vefinn og
komið honum á koppinn. En hug-
myndin er þó nokkru eldri og und-
irbúningsstarfið hefur tekið langan
tíma.
„Hugmyndin byrjaði eiginlega úti
í berjamó þegar ég fór að hugsa um
Grasa-guddu. Þetta var fyrir um
fjórum árum og hún hefur verið í
þróun æ síðan. Hugmyndin byggist
á því að nota veraldarvefinn sem
tæki fyrir þá sem áhuga hafa á að
kynnast leyndarmálum náttúrunnar
nánar og gera neytendum umhverf-
isvænar lausnir sýnilegri og að-
gengilegri,“ segir Guðrún.
Grasagudda hefur gengið í gegn-
um langt ferli en tók stórt skref
þegar höfundur hennar fór á Braut-
argengisnámskeið Iðntæknistofn-
unar veturinn 2004.
„Ég kunni hreinlega of lítið um
fjármál og rekstur og varð að þjálfa
mig í að halda utan um „stóra hug-
mynd“ og láta hana verða að veru-
leika.“
Frá árinu 2005 hefur verið unnið
að því að byggja upp tengslanet og
afla samvinnuaðila og styrkja fyrir
hina ýmsu hluta vefsins. Starfinu
hefur miðað hægt en örugglega og
kórónan á verkið er opnun vefsíð-
unnar nattura.is í dag.
„Mikilvægir opinberir aðilar hafa
nú þegar styrkt verkefnið. Í byrjun
nóvember 2005 var viðskiptaáætlun
að vefsetrinu Grasagudda.is / Nat-
ure.is tilnefnd sem ein af tólf við-
skiptaáætlunum sem komust í loka-
úrslit í samkeppninni Nýsköpun
2005,“ segir Guðrún.
Náttúran.is – vefur með umhverfisvitund
Morgunblaðið/Kristinn
Vefskaparar Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur Arnbjörnsson