Morgunblaðið - 25.04.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.04.2007, Blaðsíða 17
Morgunblaðið |17 Metangasbílar ganga eingöngu fyr- ir metangasi sem verður til af sjálfu sér á sorphaugum. Metan er skæð gróðurhúsalofttegund og þess vegna er óskynsamlegt að hleypa henni út í andrúmsloftið. Til að eyða metangasi er það brennt, annaðhvort á sorphaugum eða sem eldsneyti. Kosturinn við að brenna metan sem eldsneyti fyrir bíla er að við það sparast notkun á óumhverfisvænu jarðefnaeldsneyti. Metangas er unnið úr sorpi í Álfs- nesi. Talið er að hægt sé að fram- leiða þar metan fyrir allt að 4000 bíla. Á Akureyri er talið að hægt sé að framleiða metan fyrir um 2000 bíla. Dreifikerfið er visst vandamál Dreifikerfið er visst vandamál varðandi metangasið því ekki er til nægjanlegt magn metans í landinu til að dreifa því um landið allt. Því hefur verið lögð áhersla á að helstu notendur metanbíla verði fyrirtæki og stofnanir sem reka stóra bíla- flota og hafi auðvelt aðgengi að sölustöðum metans. Einn þessara sölustaða er við Bíldshöfða í Reykja- vík. Ókosturinn við metanbílana er helst sá að þeir eru búnir tvöföldu eldsneytiskerfi og tveim eldsneyt- istönkum (annar fyrir bensín og hinn fyrir metan) en vélartölvan skiptir sjálf yfir á bensín þegar met- angasið hefur klárast. Líklegt er talið að framleiðsla metanbíla eigi eftir að aukast á næstu misserum og verði hún brátt hluti af fjöldafram- leiðsluferli margra bílaframleið- enda. Citroën Berlingo er gott dæmi um metanbíl en Brimborg flutti t.d. inn 25 metanbíla frá Citroën í tengslum við verkefni Sorpu og Metans og einnig var fluttur inn Volvo S80 bíll í sama tilgangi. Citroën býst við að setja metanbíl af C3 gerð á markað næsta haust og sama á við um Ford sem mun líklega bjóða Ford C-Max í metanútfærslu. Volvo hefur boðið metanbíla af S80 og S60 gerð. Morgunblaðið/Ómar Vistvænn VW Touran er tvíorkubíll sem gengur fyrir metani, en er til nægjanlegt magn metans í landinu? Metangasbílar Vetnisbílar eru mikið í umræðunni. Þeir eru þó á til- raunastigi. Vetni er umhverfisvæn orka en ef framleiða þarf vetni með brennslu á kolum eru umhverfisáhrif jafn slæm og við hefðbundna losun koltvíoxíðs. Dreifikerfi er ekki til staðar og miklum fjárhæðum þarf að verja til að byggja það upp. Aðeins ein þróun- arvetnisstöð er komin upp í Reykjavík og er hún á veg- um olíufélagsins Skeljungs og samstarfsaðila þess. Vetnisbílar Morgunblaðið/Golli Vetnisbíll Vetni er vistvænt en dreifingarkerfið getur orðið vandamál. Frá vetnisstöð Skeljungs. Stór hluti af okkar framleiðslu prentast á umhverfismerktan pappír eða viðurkenndan pappír af umhverfismerkinu Svaninum. Svansmerktur pappír / viðurkenndur pappír uppfyllir ströng skilyrði sem pappírsframleiðendur þurfa að uppfylla. Krafan er að minnst 15% trefjanna komi frá skógum sem hafa vottun um sjálfbæra nýtingu eða 50% hráefnis sé endurnýttur. Við hjá GuðjónÓ – vistvænni prentsmiðju höfum ákveðna stefnu varðandi nýtingu á pappír og náðst hefur góður árangur með að auka nýtingarhlutfall pappírs við prentun, í afskurði og frágangi. Mikilvægt er að öll flokkun pappírs sé mjög nákvæm. Þess vegna skilum við frá okkur góðum hvítum gæðapappir sem nýtist aftur til pappírsframleiðslu og lituðum pappír sem nýtist til endurvinnslu í grófari pappírsafurðir. Göngum hreint til verks! Sími 511 1234 • w w w.gudjono.is Félag umhverfisfræðinga boðar til opins umræðufundar á Degi umhverfisins: Loftslagsbreytingar: Tækifæri til aðgerða! einstaklingar - fyrirtæki - stjórnvöld í dag kl. 16:30–18:30 í Öskju Náttúrufræðahúsi, stofu 132 Markmið fundarins er að skapa frjóa umræðu um hvað einstaklingar, fyrirtæki og stjórnvöld geta gert til að draga úr loftslagsbreytingum. Dagskrá: 16:30 Ávarp formanns Félags umhverfisfræðinga (FUM) - Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisstjórnunarfræðingur 16:40 Hugmyndir og hugrekki er allt sem þarf! - Birna Helgadóttir, umhverfisfræðingur og félagi í FUM 17:10 Framsaga frambjóðenda stjórnmálaflokkanna 17:40 Pallborðsumræður Þátttakendur: Guðjón Ólafur Jónsson Framsóknarflokki (B), Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokki (D), Guðrún Þóra Hjaltadóttir Frjálslyndum (F), Ósk Vilhjálmsdóttir Íslandshreyfingunni (I), Dofri Hermannsson Samfylkingu (S), Katrín Jakobsdóttir Vinstri grænum (V) Fundarstjóri: Rut Kristinsdóttir, umhverfisfræðingur og félagi í FUM Allir velkomnir Heildarlausn í umhverfisvottuðum hreinlætisvörum STANGARHYL 4 // SÍMI 567 4142 // WWW.RAESTIVORUR.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.