Morgunblaðið - 02.05.2007, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 02.05.2007, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is BÆJARYFIRVÖLD í Kópavogi hafa farið fram á það við umhverf- isráðherra að hann endurskoði ákvörðun sína um synjun á staðfest- ingu á óverulegri breytingu á svæðisskipulagi á Glaðheimasvæð- inu. Í bréfi til ráð- herra kemur m.a. fram að ákvörð- unin hafi byggst á röngum og ófull- nægjandi upplýs- ingum auk þess sem hún brjóti í bága við jafnræðisreglu. Umhverfisráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu hinn 18. apríl sl. að þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á Glaðheimasvæðinu geti ekki talist óverulegar, og er ákvörðunin einna helst byggð á athugasemdum bæjaryfirvalda í Garðabæ auk at- hugasemda Vegagerðarinnar. Gunn- ar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópa- vogs, var að vonum ósáttur við ákvörðun Jónínu Bjartmarz um- hverfisráðherra og funduðu þau um málið í síðustu viku. Í kjölfar fund- arins ritaði bæjarstjórinn ráðherra bréf þar sem óskað er eftir endur- skoðun ákvörðunarinnar og sökum þess hversu málið hefur dregist er óskað eftir svari innan fjórtán daga. Í bréfi Gunnars kemur m.a. fram að ráðherra hafi ekki haft allar upp- lýsingar um málsatvik. Er m.a. vísað í bréf ráðherra þar sem segir að ekk- ert samráð hafi verið haft við Vega- gerðina vegna málsins. „Í ljósi þessara fullyrðinga Vega- gerðarinnar sem eru hluti af for- sendum ákvörðunar ráðherra vill Kópavogsbær leggja fram fundar- gerð vegna fundar með Vegagerð- inni, dagsetta 25. ágúst 2006. Á þeim fundi voru Vegagerðinni afhentar til- lögur að breytingum á skipulagi,“ segir m.a. í bréfi Gunnars en jafn- framt að bæjaryfirvöld hafi orðið við athugasemdum Vegagerðarinnar sem komu fram í kjölfarið. „Auk þessa voru Vegagerðinni, með bréfi dagsettu 11. september, kynntar til- lögur að breytingu á aðal- og deili- skipulagi Glaðheimasvæðisins og henni gefinn kostur á að svara þeim innan tilskilins frests. Tekið skal fram að engar athugasemdir bárust frá Vegagerðinni innan þess lög- bundins frests sem kveðið er á um í skipulags- og byggingarlögum.“ Að sögn Gunnars bárust athuga- semdir Vegagerðarinnar hins vegar í janúar sl., rúmum þremur mánuðum eftir að lögbundinn athugasemda- frestur var liðinn. Hann bætir því við að þetta hafi ekki legið fyrir hjá ráðuneytinu þegar ákvörðun um synjun var tekin, en hann hafi staðið í þeirri trú að svo væri. Hafa sterkt mál í höndunum Jafnframt bendir Gunnar ráð- herra á í bréfi sínu að engar athuga- semdir hafi borist frá Garðbæingum fyrir þann athugasemdarfrest sem kveðið var á um, en með erindi dag- settu 16. ágúst á sl. ári var bæjar- stjóra Garðabæjar tilkynnt um óverulega breytingu á svæðisskipu- laginu vegna Glaðheima – og sam- bærilegt erindi sent til allra annarra sveitarstjóra sem aðilar eru að svæð- isskipulaginu. Beiðnin um endurskoðun ákvörð- unarinnar er jafnframt lögð fram vegna þess að bæjaryfirvöld í Kópa- vogi telja að ekki hafi verið gætt jafnræðissjónarmiða. Er þar m.a. vísað til breytinga á svæðisskipulagi í Urriðaholti í Garðabæ sem ná til mun stærra svæðis. „Þegar greinar- gerð og uppdrættir með svæðis- skipulagi Urriðaholts er skoðað kemur í ljós að sú skipulagsbreyting tók til um 90 ha svæðis eða um nífalt stærra en Glaðheimasvæðið. Í svæð- isskipulagsbreytingunni fólst jafn- framt að breytingar yrðu á umferð- artengingum við Reykjanesbraut sem á ekki við um Glaðheimana,“ segir í bréfi til ráðherra. Gunnar segir að muni ráðherra ekki endurskoða ákvörðun sína verði farið með málið fyrir dómstóla. „Við teljum okkur hafa það sterkt mál í höndunum gagnvart öllum aðilum,“ segir Gunnar sem hefur miklar áhyggjur af því að fari þetta mál fyr- ir dómstóla verði svo einnig um skipulagsbreytingar sem fyrirhug- aðar eru hjá nágrannasveitarfélög- um. „Þessi úrskurður ráðherrans myndi setja öll skipulagsmál á höf- uðborgarsvæðinu til framtíðar í upp- nám.“ Ákvörðunin mun setja öll skipulagsmál í uppnám Morgunblaðið/Eggert Glaðheimar Óvíst er hvenær uppbygging getur hafist eftir synjun umhverfisráðherra á umsókn um óverulega breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Bæjarstjóri Kópavogs fer fram á endurskoðun á ákvörðuninni. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÞAÐ ER ekki laust við að blaðamaður svitni í lóf- unum þegar hann gengur til fundar við karate- snillinginn Katrínu Hrefnu Demian, enda upp- lýsir hún að hún hafi gaman af því að berja á karlpeningnum. „Samnemendur mínir eru ekki hræddir við neinn þegar þeir eru með mér,“ segir Katrín, sem segir mikinn aga fylgja því að æfa karate og að brýnt sé fyrir iðkendum að beita ekki ofbeldi. „Hún hefur náð alveg sérstökum árangri,“ seg- ir Vicente Carrasco, þjálfari Katrínar, hún hafi hlotið 42 gull á 49 mótum sem sé met. Hugur hennar stendur til að þjálfa kumete, og læra aðrar greinar sjálfsvarnarlistar, en beltin hefur hún fengið í kata, líkt og yngri systir hennar Karen Tinna, sem er átta ára og þegar með það brúna og eina strípu af þremur. „Ég hef fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari í einstaklingsflokki og einu sinni í hópkata, þar sem eru þrír saman,“ segir Katrín og leggur áherslu á mikilvægi þess að geta varið sig. Aðspurð um aðdraganda þess að hún fór að æfa karate segir hún föður sinn Karl hafa haft áhuga á bardagaíþróttum og að hún hafi strax haft gaman af æfingum. Karl hefur 19 ára reynslu úr öryggisvörslu og hefur sömu þjálfun og sérsveitir bandaríska sjó- hersins og ísraelsku sérsveitirnar, Kravmaka. Hann hefur, í félagi við Dan Sommer, þjálfað sjálfsvarnaraðferðina SATOD, sem hann segir þeir kenna hér án vopna. Margir hafi nú atvinnu sem lífverðir eftir námskeiðið. Katrín hefur æft karate hjá knattspyrnufélag- inu Víkingi frá hún var fimm ára gömul og langar að keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeist- aramótinu í framtíðinni. Hún er langyngsti Ís- lendingurinn til að ná þeim áfanga að fá svarta beltið í karate, gerði það nokkrum vikum fyrir 11 ára afmælið í apríl. „Börn yngri en tíu ára fá ekki einu sinni belt- ið,“ segir Arndís Kjartansdóttir, móðir Katrínar, um afrekið. „Það held ég að sé hvergi leyft í heim- inum. Ástæða þess að hún fær beltið er hversu oft hún hefur orðið Íslandsmeistari í sínum aldurs- flokki. Með því er hægt að hoppa yfir belti. Hún valtar yfir strákana og stórkostlegt hvað henni gengur vel.“ Barðist við fjóra í einu á lokaprófi Virðingaröðin í karate er þannig að keppendur fá fyrst hvíta beltið, svo rautt, þá gult, hið appels- ínugula, græna, bláa, fjólubláa, brúna og loks hið svarta. Stigin eru í raun fleiri, því beltin eru merkt strípum, einskonar millistigum. Innan svartabelt- isins eru svo tíu dan og eru aðeins tveir til þrír í heiminum með hæsta stigið, að sögn Katrínar, sem þurfti að berjast við fjóra í lokaprófi til að fá það svarta. Að öðru leyti byggist kata á listrænum hreyfingum gegn ímynduðum óvini. Arndís kynntist eiginmanni sínum er hún var við tungumálanám á Kýpur fyrir 17 árum, á þeim tíma er borgarstyrjöldin í Líbanon stóð sem hæst. Þau fluttu í framhaldinu til Íslands og hafa verið hér síðan. Ellefu ára og með svarta beltið í karate  Katrín Hrefna Demian brýtur blað í íslenskri íþróttasögu  Litla systir þegar með það brúna Morgunblaðið/G.Rúnar Karatestúlkur Katrín, Karen og móðir þeirra, Arndís Kjartansdóttir. GUNNAR I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, ritaði ekki aðeins bréf til umhverfisráðherra heldur einnig til Jóns Rögnvaldssonar vegamálastjóra. Þar biður hann um svör við nokkrum spurningum er varða skipulags- mál á Glaðheimsvæðinu. Ein spurninga Gunnars lýtur að athugasemdum Vegagerðarinnar, en þar segir að ekki hafi verið haft samráð við stofnunina vegna skipulagsins og er það meðal forsendna synjunar umhverfisráðherra á um- sókn um óverulega breytingu á svæðisskipulagi. „Spurt er: Er Vegagerðin búin að gleyma fundi, sem haldinn var um málið 25. ágúst 2006? Síðan sendi Kópavogsbær bréf um málið hinn 11. september 2006 undirritað af skipulagsstjóra, en því bréfi var svarað í lok janúar 2007, þ.e. 5 mánuðum síðar! Spurt er hvernig á þá sam- ráðið að vera og hvað um tímamörk á því?“ Hvernig á samráðið þá að vera? Bæjarstjóri Kópavogs hefur miklar áhyggjur af því að ef umhverfisráð- herra endurskoðar ekki ákvörðun sína vegna Glaðheima muni deilur sveitarfélaga vegna skipu- lagsbreytinga aukast. Gunnar I. Birgisson VEGURINN yfir Hólssand að Dettifossi var opnaður á mánudag, en þess finnast vart dæmi að veg- urinn hafi verið opnaður jafn- snemma vors. Óvenjulítill snjór var á svæðinu í vetur og hafði það þau áhrif að hægt var að opna veg- inn á mánudag. Umferð ferða- manna er þegar hafin um veginn og hófst raunar um leið og opnað var, en mjög mikið hafði verið spurt um ástand vegarins í að- dragandanum. Fimm tonna öxul- þungi er þó á veginum en búist er við að þeim þungatakmörkunum verði aflétt á næstu dögum eða vikum. Búast má við stöðugri umferð á veginum til loka september miðað við umferðarþungann á liðnum ár- um og er vegurinn fær öllum bíl- um þótt hann sé óheflaður. Vanalega er opnað fyrir umferð í lok maí og hefst því sumarum- ferðin þetta árið óvenjusnemma. Vegurinn að Dettifossi opnaður HÓLMFRÍÐUR Garðarsdóttir, hjúkrunarfræð- ingur og ljós- móðir, heldur í dag til starfa sem sendifulltrúi Rauða krossins í Mósambík. Hólm- fríður mun næstu sex mánuði hafa yfirumsjón með og starfa að samhæfingu verkefna á sviði lýðheilsu og heilsugæslu á veg- um Alþjóðasambands Rauða kross- ins og Rauða hálfmánans (IFRC) vegna neyðarástands sem skapaðist í kjölfar flóða og fellibylja í landinu í febrúar síðastliðnum. Starfið er þátt- ur í uppbyggingarstarfi í framhaldi af neyðaraðstoð sem veitt var strax eftir hamfarirnar. Hólmfríður mun starfa með lands- félagi Rauða krossins í Mósambík í náinni samvinnu við þarlend heil- brigðisyfirvöld að skipulagningu verkefna á sviði heilsugæslu, skyndi- hjálpar og neyðarviðbragða. Nína Helgadóttir, verkefnisstjóri Rauða kross Íslands í sunnanverðri Afríku, sem er með aðsetur í Mósambík, hef- ur einnig tekið þátt í samhæfingu hjálparstarfsins. RKÍ hefur lagt þrjár milljónir til viðbótar við þriggja milljóna króna framlag ríkisstjórnar Íslands til að styðja við starf mósambíska Rauða krossins vegna hamfaranna. Fer til starfa í Mósambík Hólmfríður Garðarsdóttir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.