Morgunblaðið - 02.05.2007, Side 47

Morgunblaðið - 02.05.2007, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 47 TÓNLISTARMAÐURINN Jo-Jo stóð fyrir tónleikum í Hressingarskálanum á baráttudegi verkalýðsins í gær, 1. maí. Talsverður fjöldi fólks lagði leið sína í Hressingarskálann enda margir á ferli þennan frídag sem og dagskráin skemmtileg. Baráttuandi á Hressó Yfir kaffibolla Tóbías Brynjólfsson, Ellert Hreinsson og Jón Árni Jónsson. Tónlist Hljómsveitin Nýbúarnir sungu og léku. Hressir Helgi Rúnar Jónsson og Þórir Jónasson. Morgunblaðið/G.Rúnar Listamaðurinn Jo-Jo stóð fyrir tónleikum og lék sjáfur fyrir gesti. Honum innan handar var Pálmi Sigurhjartarson á orgel. Hugsandi.Egill Ólafsson og Hrafn Jökulsson nutu tónlist- arinnar en Hrafn var jafnframt kynnir á tónleikunum. FÁKLÆDDIR Spartverjar etja kappi við slynga sjóræningja á MTV- kvikmyndahátíðinni sem fram fer í Los Angeles hinn 3. júní næstkomandi. Kvikmyndirnar 300 og Pirates of the Caribbian eru til- nefndar í flokknum besta myndin ásamt Blades of Glory, Little Miss Sunshine og Borat. Það er grínistinn Sarah Silverm- an sem verður kynnir hátíðarinnar. Þetta verður í fyrsta sinn sem hátíðin verður sýnd í beinni sjón- varpsútsendingu, en meðal keppn- isflokka er besti kossinn og besta bardagaatriðið. Sjóræningjastjörnurnar Johnny Depp og Keira Knightley eru bæði tilnefnd fyrir bestan leik. Þau keppa við Gerard Butler (300), Will Smith (The Pursuit of Happyness) og Beyonce Knowles og Jennifer Hudson (báðar í Dreamgirls). Leikararnir Bill Nighy (Dead Man’s Chest), Rodrigo Santoro (300), Tobin Bell (Saw III), Jack Nicholson (The Departed) og Me- ryl Streep (The Devil Wears Prada) eru öll tilnefnd í flokknum Besta illmennið. Borat berrassaður Þá þykja eftirfarandi kossar eft- irminnilegastir á árinu: Cameron Diaz og Jude Law í The Holiday, Will Ferrell og Sacha Baron Co- hen í Talladega Nights: The Ballad of Ricky Bobby, Columbus Short og Meagan Good í Stomp the Yard, Mark Wahlberg og Eliza- beth Banks í Invincible og Marlon Wayans og Brittany Daniel í Little Man. Þá eru ótalin bestu bardagaat- riði ársins þar sem slagur Jack Black og Hectors Jimenez í Nacho Libre og bardagi Gerards Butler og „Öfga skrímslisins ósigrandi“ í 300 þykja koma til greina. Einnig þóttu Will Ferrel og Jon Heder slást eftirminnilega í Blades of Glory sem og Uma Thurman og Anna Faris í My Super Ex- Girlfriend. Sigurstranglegastur í flokknum hlýtur þó að vera slagur Sacha Baron Cohen og Ken Daviti- an allsberra í Borat: Cultural Le- arnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazak- hstan. Eitt eftirminnilegasta atriði kvikmyndasögu síðasta árs þar á ferð. Keppt í kossum Tilnefningar til MTV- kvikmyndaverðlaunanna Sjóræningjar Berjast til sigurs til síðasta manns. Eftirminnilegt Cameron Diaz gerir sig líklega til að smella einum á Jude Law. 300 Maður myndi trúlega ekki vilja mæta Leonídasi í myrkri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.