Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÓSTAÐFASTUR orðrómur er uppi um að Abu Ayyub al-Masri, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Írak, sé allur. Tíðindin bárust frá ættbálkum í Írak og hefur stjórn Nuri al-Malikis forsætisráðherra sent frá þér yfirlýsingu um að hún muni ekki staðfesta andlát hans fyrr en hún hafi borið kennsl á líkið. Fregnir af dauða hryðjuverkafor- ingjans bárust eftir átök súnnískra ættbálka og samtaka hans við brú á svæði undir stjórn þeirra fyrrnefndu fyrir skömmu. Þá lét talsmaður íraska innanríkisráðuneytisins hafa eftir sér í gær að „traustar leyni- þjónustuupplýsingar“ væru fyrir hendi um að al-Masri hefði fallið í átökum vígahópa norður af höfuð- borginni Bagdad. Al-Masri, sem gengur einnig undir nafninu Sheikh Abu Hamza al-Muhaj- er, varð leiðtogi samtakanna eftir að Abu Musab al- Zarqawi var myrtur í loftárás Bandaríkjahers í júní sl. Samtökin vísuðu því á bug að al- Masri hefði fallið, hann berjist enn gegn „óvinum Guðs“. George W. Bush Bandaríkjafor- seti beitti í gær neitunarvaldi gegn frumvarpi demókrata um brotthvarf hersins í áföngum. Al-Masri allur? Al-Masri ÞEIR fengju ugglaust aðsvif, mat- gæðingarnir í ítölsku matreiðslu- akademíunni yrðu þeir vitni að ís- lenskri túlkun á pastadisk – suðræn hjörtun tækju kipp og aukaslög litu þau augum mauksoðið pastað löðr- andi í dósasósu með riffluðum brauðostinum. Sem betur fer er ekki sérstaklega minnst á Ísland í nýrri skýrslu aka- demíunnar um „villimannlega“ og óábyrga túlkun erlendra matsveina á ítölskum réttum. Útgáfa plaggsins hefur farið sem höggbylgja um mat- reiðsluheiminn, enda akademían með 73 skrifstofur í um 40 löndum og kennivald hennar dýrt. „Einn fulltrúa okkar pantaði spaghetti alle vongole í Edinborg. Þetta er einfaldur réttur, bara skel- fiskur, smávegis hvítlaukur, stein- selja og pasta. Í staðinn fékk hann rétt með salati og jafnvel tómats- sósu yfir!“ segir Giuseppe Dell’Osso, með fyrirlitningartóni sem minnir á niðrandi ummæli Jacques Chiracs Frakklandsforseta og Silvio Berlus- coni, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, um mat á norðurslóðum. Írar, Finnar og Portúgalar eru sérstaklega teknir á beinið og sak- aðir um að blanda ýmsum hráefnum saman við ítalska rétti svo þeir höfði meira til smekks heimamanna. Hollendingar fá líka á baukinn. „Á hollenskum veitingahúsum, getur þú fundið „pastasalat“ eða „bakaður fiskur með pesto“ á mat- seðlinum, sem yrði hverjum Ítala aðhlátursefni,“ segir í skýrslunni og hvergi dregið undan í háðinu. Bandaríkjamenn eru einnig hund- skammaðir fyrir pitsugerð sína sem sé „óítölsk“. Evrópumenn eru þó sagðir verstir, þeir reki ítölsk veit- ingahús án þess að hafa nokkra reynslu af ítölsku eldhúsi. Líklegra sé að finna sæmilegan ítalskan mat- sölustað í Kína eða Rússlandi, þar komi kokkarnir gjarnan frá Ítalíu. Bretar, sem helst eru þekktir fyrir pöbbamat, bakaðar baunir og of steikt beikon, fá uppreisn æru, að minnsta kosti í bili, „Locanda Locatelli“ veitingahúsið í London er talið í hópi bestu ítölsku matsölu- staða heimsins. Ítalir hneykslaðir yfir „villimannlegri“ eldun Gæði Pitsa er ekki sama og pitsa. ÞJÓÐÞEKKT listafólk og vís- indamenn í Frakklandi vara við því að franska þjóðin eigi á hættu að „fara í stríð gegn sjálfri sér“ verði hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy kjörinn forseti í annarri umferð forsetakosninganna á sunnudag. Þá hvatti öfga-þjóðernissinninn Jean-Marie Le Pen stuðningsmenn sína til að sniðganga kosningarnar. Flokkar frambjóðendanna tveggja hefðu fært Frakka að siðferðilegu og efnahagslegu hyldýpi. Sameinast gegn Sarkozy Nicolas Sarkozy FIDEL Castro, leiðtogi Kúbu, var hvergi sjáanlegur í 1. maí hátíða- höldunum í Havana í gær. Orðróm- ur hefur verið um að hann myndi láta sjá sig eftir að hafa braggast af erfiðum veikindum. Castro víðs fjarri AÐ MINNSTA kosti 30 óbreyttir borgarar, þar á meðal konur og börn, týndu lífi í bardögum banda- rískra hersveita og liðsmanna talib- ana í vesturhluta Afganistans um helgina, að því er lögregla landsins fullyrðir. Bandaríkjaher og liðs- sveitir Atlantshafsbandalagsins, NATO, felldu 136 talibana í átök- unum og voru fjöldamótmæli vegna mannfallsins víða um landið í gær. Hart var barist í Afganistan í gær og er talið að minnst 56 talibanar, þ. á m.fjöldi Pakistana, hafi týnt lífi í stórsókn hersveita NATO í suður- hluta landsins. Tugir óbreyttra borgara féllu NÆSTUM fimm prósent dauðsfalla og sjúkdóma í 21 ríki, sem flest eru í Afríku, má rekja til mengunar innanhús samfara bruna eldsneytis á heimilum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar, WHO. Að sögn WHO væri hægt að bjarga 1,5 millj- ón manna með hreinna eldsneyti. Banvænt óloft APRÍLMÁNUÐUR hefur verið óvenju hlýr í mörgum Evrópulönd- um og hefur ekki mælst meiri hiti í Frakklandi síðan 1950. Mældist hit- inn fjórum gráðum á Celsíus yfir meðaltalinu, 10 gráðum. Sérstaklega hlýtt var í norðurhluta Frakklands þar sem hitinn var 8 til 12 gráðum meiri en í meðalári á tímabilinu 1. til 24. apríl, að sögn veðurstofunnar Meteo. Danir hafa einnig búið við óvenju- lega veðursæld síðastliðna 12 mán- uði og segir veðurfræðingurinn Jens Hesselbjerg Christensen í viðtali við Jyllands-Posten að þeir séu þeir hlýjustu frá víkingatímanum fyrir um 1.000 árum. Meðalhitinn á tíma- bilinu var 10,8 gráður sem er langt yfir 7,7 gráða hita í meðalári. Var hitametið í apríl slegið um 0,9 gráð- ur, meðalhiti nú var 9,3 gráður. Bretar hafa einnig fylgst í for- undran með hitamælunum, apríl- mánuður var sá heitasti síðan mæl- ingar hófust árið 1659. Var meðalhiti í miðhluta Englands áætlaður rúmar 11 gráður í mánuðinum. Velti blaðið Independent þeirri spurningu upp fyrir nokkrum dögum, hvort hitinn myndi í fyrsta sinn fara yfir 40 gráð- ur í sumar. Hitametin falla í Evrópu HART var tekið á þátttakendum í 1. maí mótmælunum í Istanbúl í gær og hátt í 700 manns teknir höndum í námunda við Taksim-torgið. Á sama tíma skýrði Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrk- lands, frá því að hann myndi biðja þingið um að efna til nýrra kosn- inga og að hann myndi beita sér fyrir stjórnarskrárbreytingum sem myndu gera þjóðinni kleift að kjósa sér forseta. Kom yfirlýsingin í kjöl- far þess að stjórnarskrárréttur landsins ógilti fyrri umferð kosn- ingar þingsins á föstudag til for- seta, fjöldi þingmanna sniðgekk hana í mótmælaskyni við framboð Abdullah Gul utanríkisráðherra. Reuters Vill Tyrki að kjörborðinu 88,00 kr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.