Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU H ö n n u n / S m í ð i / V i ð g e r ð i r / Þ j ó n u s t a Þorlákshöfn | Áframhaldandi mok- fiskirí er rétt utan við hafnar- mynnið í Þorlákshöfn. Hvanney SF kom í land í kvöld með um 30 tonn af slægðum fiski. Þorsteinn Guð- mundsson skipstjóri sagði að þetta væri hreint ævintýri. „Við komum á miðin hérna á fimmtudaginn var og erum búnir að landa um 210 tonnum. Fiskurinn er vænn eða um og yfir sjö kíló- grömm, við höfum slægt allan fisk- inn í þrem síðustu túrum og bætt- um við einum manni þannig að í dag erum við 11 í áhöfninni. Það tekur okkur aðeins tíu mín- útur að sigla á miðin. Ég hef aldrei kynnst þessu fyrr – miðin nánast við bæjardyrnar, við erum tvær sjó- mílur frá hafnarkjaftinum þegar við látum fyrstu trossuna gossa. Þetta er magnað. Þar sem allur aflinn er slægður núna er mannskapurinn orðinn þreyttur en við reynum að vinna það upp, til að mynda fáum við löndunargengið hérna til að landa fyrir okkur núna, það munar um allt. Við leggjum þetta bara hérna vestur með ströndinni, að Háaleiti. Við fréttum af góðu fiskiríi smá- bátanna hérna og þar sem við vor- um búnir í netarallinu og áttum ekki að byrja á humrinum strax þá var þetta kærkomið. Aflinn er allur keyrður með flutningabílum og unninn hjá Skinney Þinganesi, sem á bátinn. Ljósmynd/Jón H. Sigurmundsson Bátarnir Hvanney á leið til hafnar og annar bátur á útleið. Ljósmynd/Jón H. Sigurmundsson Veiðar Þeir voru þreyttir en ánægðir, karlarnir á Hvanney SH frá Hornafirði, á bryggjunni í Þorlákshöfn. Hver væri það ekki eftir að hafa aflað um 210 tonna af góðum fiski á fimm dögum. Á myndina vantar nokkra skipverja en eldhress bílstjóri, Haukur, bættist í hópinn. Þorsteinn Guðmundsson skipstjóri er annar frá hægri. Hreint ævintýri Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is MIKIL umsvif eru hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu Kræki. Það er með útgerð og fiskmarkað í Grímsey og fiskverkun á Dalvík. Henning Jóhannesson er þar í far- arbroddi og stjórnar fiskvinnslunni á Dalvík. „Það er fjölskyldan öll orðin í þessu, jafnt í Grímsey sem á Dalvík. Við rekum fiskmarkað og útgerðina í Grímsey. Sonurinn Henning sér um fiskmarkaðinn og synirnir Jóhannes og Sigurður eru með bátana og eig- inkonan, Guðrún Gísladóttir, stýrir útgerðinni með þeim í eyjunni,“ seg- ir Henning. Krækir hóf starfsemi sína í núver- andi húsnæði á Dalvík fyrir rúmu ári. Þar er unninn þorskur, ýsa og steinbítur, í flug og frystingu. Unnin eru um 2.000 tonn á ári. Veðurguðirnir ráða miklu „Veðurguðirnir ráða gangi mála mikið hjá okkur. Við erum með þannig útgerð, smábáta í litla kerf- inu. Við erum með þrjá báta, en ger- um aðeins tvo þeirra út núna. Það hefur verið erfitt með leigukvóta, en þriðja bátinn ætluðum við að gera út á leiguna. Veðráttan búinn að vera voða leiðinleg við okkur í vetur, mjög vindasamt og erfitt að sækja. Þetta er eitthvað að lagast núna.“ Bátarnir eru gerðir út frá Grímsey og fiskurinn fluttur í land með Sæ- fara. Fyrirtækið hefur líka verið að kaupa á mörkuðum og verið með báta í viðskiptum austur á fjörðum, allt austur á Djúpavog. Þeir fá stein- bítinn að austan. Mest unnið ferskt í flug „Uppistaðan í vinnslunni er fersk- ur fiskur í flug, nokkuð fer í frost og svo erum við lítillega í salti líka. Við stílum upp á að koma sem mestu í flugið, því það gefur bezt. Það eru mest hnakkastykkin sem fara í flug- ið. Það sem ekki gengur í flugið fer í saltið hjá okkur eða frostið. Við höld- um okkur við þessar þrjár tegundir og vinnslan er nokkuð fjölbreytt. Við nýtum svo allt sem nýtanlegt er, hausa og fleira. Við erum með fés, kinnar og gellur. Það eina sem við erum ekki farnir að nýta eru stein- bítshausarnir, en kinnarnar af þeim eru mjög góðar. Það gengur ekki að vera með svona fiskvinnslu úti í Grímsey. Bæði hamlar veðráttan ferðum í land of mikið og svo vantar mannafla.Við með dálítið af Pólverjum í vinnslunni á Dalvík, líklega 17 eins og er. Þegar mest er eru 50 manns í vinnu hjá okkur þar í allt, en í vetur milli 25 til 30. Það er fyrir utan útgerð og ann- að, en það eru um 20 í Grímsey, sem eru við þetta hjá okkur. Það er því í nógu að snúast. Tregara fiskirí Markaðurinn fyrir afurðirnar er góður. Afkoman er þó ekkert til að hrópa húrra yfir. Það hefur verið mikil spenna í þessu að undanförnu og samkeppni um fiskinn mikil. Það sem hefur verið að hrjá okkur mest frá því í haust er veðráttan. Það hafa nánast verið samfelldar bölvaðar brælur frá því í október. Mjög ógæftasamt fyrir þessa smærri báta. Fiskirí hérna fyrir Norðurlandi er líka bara miklu tregara en það hefur verið undanfarin ár. Fiskigengdin hefur verið minni. Svo hefur veðr- áttan verið það slæm að beztu tím- arnir úr árinu hafa horfið í brælu. Það hefur líka háð okkur að mjög lítið framboð hefur verið á leigu- kvóta og verð það hátt, að menn sjá ekki tilganginn í því að vera að gera út á leiguna. Það er bara ekki að gera sig. Leiguverð er orðið allt of hátt og því liggur þriðji báturinn hjá okkur. Við ráðum ekki við þetta háa verð. Gangverðið á þorskinum í litla kerf- inu er komið í 160 til 170 krónur. Það er nokkuð sem við ráðum ekki við. Það er alveg út úr kortinu. Við erum annars bara bjartsýnir í þessu. Vonumst til þess að veðrátta og annað fari að lagast og það sé komið sumar. Veðrið í vetur er það sem hefur verið að skekkja mynd- ina,“ segir Henning Jóhannesson. Beztu tímarnir á árinu hafa horfið í brælu Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Þorskur Fiskurinn er flakaður og beztu stykkin send utan í flugi. Í HNOTSKURN »Uppistaðan í vinnslunni erferskur fiskur í flug, nokk- uð fer í frost og svo erum við lítillega í salti líka »Það sem hefur verið aðhrjá okkur mest frá því í haust er veðráttan. Það hafa nánast verið samfelldar bölv- aðar brælur frá því í október »Gangverðið á þorskinum ílitla kerfinu er komið í 160 til 170 krónur. Það er nokkuð sem við ráðum ekki við. Það er alveg út úr kortinu. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Steinbítur Töluvert er unnið af steinbít hjá Kræki og er hann flakaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.