Morgunblaðið - 02.05.2007, Qupperneq 21
tíska
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 21
SUMARNÁMSKEIÐ FRÁ 4. – 15. JÚNÍ.
Framhaldsnemendur frá kl. 9:00 – 14:45.
12 ára og eldri frá kl. 10:00 – 15:15.
Framhaldsnemendur á nútímabraut frá kl. 17:00 – 21:30.
NÁMSKEIÐ Í SKAPANDI BALLET FYRIR 8 – 11 ÁRA FRÁ 18. – 29. JÚNÍ.
Kennt verður frá kl. 9:00 – 12:00. Námskeiðið er byggt á balletverkinu
Þyrnirós og fá nemendur að kynnast tónlistinni, sögunni og öllu sem
viðvíkur verkinu.
Álfabakka 14a og Grensásvegi 14 - sími 587 9030 - www.ballet.is - signy@ballet.is - gudbjorg@ballet.is
Vorsýning Klassíska listdansskólans verður haldin í Borgarleikhúsinu
miðvikudaginn 2. maí kl 18:00. ALLIR VELKOMNIR.
<
>
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
D
A
G
SV
E
R
K
–
K
L0
1
0
5
0
7
INNTÖKUPRÓF vegna haustannar Klassíska listdansskólans verður haldið 19. maí 2007.
Framhaldsdeild frá kl. 9:00 – 12:30.
1. til 4. stig frá 9 ára aldri (1998) frá kl. 13:00 – 15:00.
FRAMHALDSKÓLANEMENDUR ATHUGIÐ:
Við erum með undirbúningskennslu í nútímadansi og klassískum ballet fyrir listdansbraut
framhaldsskólanna frá og með 7. maí.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, www.ballet.is
Tískuvikan í Sydney í Ástralíu
stendur yfir þessa dagana en sjötíu
og sex hönnuðir kynna framleiðslu
sína. Léttleiki var áberandi á tísku-
pöllunum í gær, fatnaður sem
minnir á þá árstíð sem er að bresta
á hérna megin á hnettinum, sum-
arið.
Blóm Léttur kjóll fyrir heita sum-
ardaga. Hannað undir vörumerk-
inu Maurie and Eve
Áströlsk hönnun
Rautt Hönnun sem kynnt
var undir heitinu Bowie.
Reuters
Seiðandi Sparilegur sumarklæðn-
aður frá Bowie.
Sumarlegt Hárskraut sem fylgdi með klæðnaði frá hönnuði sem framleiðir
fatnað undir merkinu Milk and Honey
Hálfdan Ármann Björnsson varað slóðadraga tún og gleymdi
tímanum við þetta:
Hvernig svosem kosning vorsins fer,
hér kemur sumar eftir þessa glímu.
Þá jörðin aftur klæðist grænni grímu
og gefur vöxt, ef nógur skítur er.
Þá verður eitthvað upp í dalli hrist,
en áfram þjóð mun nýta frjóva völlu.
Sjálfgefin pylsa, bláleit, ein með öllu,
áfram mun verða snædd af bestu lyst.
Hátt yfir landið veiðifálkinn fer,
á fjaðraskrautið horfir bústinn lýður.
Hljóðlátir aldnir horfa í gaupnir sér.
Ómar í lofti, syngur söngfugl hver.
Sólrún í heiði öllum faðminn býður.
Góður við beinið guðjón sérhver er.
Kristján Eiríksson bætir
við annarri sonnettu:
Já, hverjir munu fagna frægum sigri
og fylkja liði sínu best af öllum,
þar garpa hvetur Grímur rómi snjöllum,
og Guðjón Vestfirðinga kappinn digri?
Þó flestum víst mun hetjum hættuligri
herkænust Ingibjörg á stríðsins völlum
og knár sem svífur ofar efstu fjöllum
Ómar á Frúnni búinn grænum vigri.
Já, hver skyldi að lyktum standa uppi
einn
albúinn til að sigla þjóðarfleyi
um brimrót þar sem báran aldrei deyr?
Sá mun að lokum skína bjartur beinn
í brúnni og stýra á fögrum sumardegi
skipinu um haf með höfðingjanum Geir.
VÍSNAHORN
Sonnettur og pólitík
pebl@mbl.is