Morgunblaðið - 02.05.2007, Page 22

Morgunblaðið - 02.05.2007, Page 22
heilsa 22 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Sjón er sögu ríkari og upplifunarseturaf þessu tagi eru vel þekkt erlendis oghafa reynst þar vel,“ segir Herdís L.Storgaard, annar forstöðumanna Forvarnarhúss Sjóvár. ,,Þetta er fræðslu- miðstöð þar sem gestir eiga að verða betur meðvitaðir um þau lífsgæði sem felast í for- vörnum á ýmsum sviðum. Nú höfum við inn- réttað tvö örugg heimili í Forvarnarhúsinu, annað fyrir barnafólk og hitt fyrir eldra fólk en það er svo margt sem fólk getur gert almennt til þess að koma í veg fyrir slys í heimahúsum. Þau geta oft verið mjög alvarleg en slysatíðni þar er hæst hjá börnum og öldruðum og þess vegna beinum við sjónum okkar sérstaklega að þeim,“ segir forvarnarfulltrúinn. ,,Þegar fólk eldist, jafnvel þótt það sé full- frískt, þá er skynsamlegt aðlaga heimilið betur sínum þörfum og aldursskeiði því öldrun er ekki nokkuð sem gerist á einni nóttu. Það er það sem við erum í raun og veru að benda eldra fólki á, forvarnir felast í fleira en að setja upp hjálpartæki á heimilinu. Þegar árin færast yfir breytist geta flestra og viðbragðsflýtir og þá getur verið gott að huga að ýmsum einföld- um atriðum sem ekki aðeins draga úr slysa- hættu heldur eru einnig til þægindaauka. Sem dæmi um þetta má nefna atriði eins og að setja bolla og diska sem eru í mikilli notkun í neðri hillur í eldhússkápum eða jafnvel í neðri skápa. Eldra fólk ætti að reyna að forðast eins og kostur er að príla upp á stóla eða borð og geyma t.d. ekki kassa og krúsir sem stundum þarf að nota ofan á skápum, til þess að detta ekki þegar það er að ná í það. Fjárfesting í hita- stilltum blöndunartækjum Á baðherbergjum verða oft slæm slys. ,,Ég segi oft að besta fjárfesting fólks sé í hitastillt- um blöndunartækjum því brunaslysin eru mörg svo hræðileg. Þá ráðleggjum við fólki að fá sér gúmmímottur í bæði baðkör og sturtu- botna því þeir eru hálir og fólk rennur oft illa. Handfang til þess að styðja sig við þegar farið er í og úr sturtu ættu reyndar öll heimili að hafa, þau er líka gott að grípa í ef fólk hrasar. Forvarnarhúsið er nú í samstarfi við Lands- björg í fræðsluátaki fyrir eldri borgara um allt land og býður þá eins og alla landsmenn vel- komna í Forvarnarhúsið. ,,Við höfum um nokkurt skeið verið að afla upplýsinga um Eldri borgarar þurfa að huga að slysavörnum © Royalty-Free/Corbis Ekki ég Það er oft erfitt að kenna gömlum hundi að sitja og að breyta vana er hunderfitt. Er árin færast yfir þarf fólk samt að huga að ýmsum atriðum á heimilinu. hvernig slysum eldri borgarar lenda í og hvaða úrræði eru til staðar um landið. Auk fræðslunnar er ætlunin að fá heilbrigð- iskerfið í lið með okkur. Það er mjög mik- ilvægt að virkja heilsugæsluna og fá þær til samstarfs sem og að fyrirbyggja slys á öldr- uðum inni á sjúkrastofnunum. Eldhúsið Eldra fólk ætti að hafa leir- tau í neðri skápum í stað þess að teygja sig upp í þá efri. Baðherbergið Margar hættur leynast á bað- herberginu en margt er hægt að gera til þess að auka öryggið þar. Forvarnarhúsið er í Kringlunni 3 en óska verður eftir leiðsögn um húsið. Myndir af for- varnarheimilunum tveimur ásamt fræðslu er að finna á gagnvirkum vef, www.forvarna- husid.is við ættum að vita um foreldra okkar, beri vá að dyrum. Það var bandaríska sjúkra- stofnunin MayoClinic sem gaf þetta ný- lega út.  Nafn heimilislæknisins. Hann er sá að- ili, sem er líklegastur til að geta veitt frekari heilsufarsupplýsingar.  Fæðingardagur. Læknaskýrslur og tryggingaupplýsingar eru gjarnan skráðar undir fæðingardegi.  Ofnæmi. Mjög mikilvægt er að hafa vitneskju um ofnæmisviðbrögð gegn lyfjagjöf.  Meðferðaróskir. Mikilvægt er að vita um óskir varðandi endurlífganir.  Sjúkdómssaga. Gott er að vita um Allir þeir, sem eiga aldraða foreldra, ættu að búa til sína eigin gátlista, skapist þær aðstæður að foreldri verði ófært um að svara spurningum lækna. Hver er t.d. heimilislæknir aldraðra foreldra okkar? Veistu til þess að móðir þín sé á lyfjum eða hvort pabbi þinn hefur undirgengist aðgerðir? Það tekur aðeins örfáar mínútur að safna öllum nauðsynlegustu upplýsing- unum saman og þær geta sparað dýr- mætan tíma í neyðartilvikum. Líkt og við fyllum út heilsufarssögu fyrir börnin okkar, er tékklisti, sem lýtur að öldr- uðum foreldrum, ekki síður nauðsyn- legur. Hér að neðan eru tíu atriði, sem helstu veikleika, sér í lagi hvort við- komandi hefur átt við sykursýki eða hjartasjúkdóma að stríða.  Lyfjainntaka. Sérstaklega er nauðsyn- legt að vita hvort viðkomandi er á blóðþynningarlyfjum.  Trú. Mikilvægt er að vita um trú við- komanda ef aðstæður kalla á blóðgjöf.  Tryggingamál. Gott er að hafa kynnt sér tryggingafélag viðkomanda og helstu skilmála.  Skurðaðgerðir. Hefur viðkomandi sjúklingur farið í aðgerðir, t.d. hjarta- aðgerð.  Lífsstíllinn. Nota foreldrarnir áfengi eða tóbak. Allur er varinn góður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.