Morgunblaðið - 02.05.2007, Page 32

Morgunblaðið - 02.05.2007, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Súsanna Þor-láksdóttir fædd- ist á Siglufirði 17. mars 1929. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Garðvangi í Garði 7. apríl sl. Foreldrar Sú- sönnu voru Þorlák- ur Guðmundsson, f. í Saurbæ, Skaga- strönd, 22.7. 1894, d. 5.6. 1994, og Guðrún Jóhannsdóttir, f. á Ljótsstöðum á Höfð- aströnd, 6.6. 1897, d. 5.4. 1963. Systkini Súsönnu eru: Ingimar, f. 1924. Guðrún Jóhanna, f. 1925. Ingiberg Andres, f. 1926, d. 1963. Pálína Sigrún, f. 1928. Sveinn Jóhann, f. 1930. Pétur Þór, f. 1932, d. 1953. Karl Ásmundur, f. 1973, og Ásdísi Ósk, f. 1984, og eiga þau sjö barnabörn. 2. Halldór, f. 9.9. 1950, á hann eina dóttur, Viktoríu, f. 1992. 3. Þorlákur, f. 30.11. 1952, kvæntur Mariu Fa- tima, f. 1970, hann á einn son, Kristin Má, f. 1982. 4. Guðrún Pál- ína, f. 26.5. 1955, hennar börn eru Georg, f. 1975, Karl Halldór, f. 1977, Svanhildur, f. 1981, Pétur Þór, f. 1992, og á hún sjö barna- börn. 5. Pétur Þór, f. 4.4. 1957, d. 16.8. 1977, hann átti hann einn son, Ólaf Ragnar, f. 27.3. 1976, d. 12.3. 2002. 6. Súsanna Karlotta, f. 25.12. 1958, maki hennar Jan Inge And- ersen, f. 1953, þau eiga fjórar dæt- ur, Karlottu, f. 1976, Therese, f. 1977, Guðrúnu Bjarneyju, f. 1977, og Jennifer, f. 1981, og eiga þau fjögur barnabörn. 7. Andrea, f. 4.2. 1964, gift Ragnari Júníussyni, f. 1963, þau eiga tvær dætur, Agnesi Ósk, f. 1983, og Regínu, f. 1987. Útför Súsönnu hefur farið fram í kyrrþey. 1935. Sigurður Snorri, f. 1936. Skjöldur Kristinn, f. 1937, d. 2003. Súsanna var á Siglufirði til 15 ára aldurs en fór þá til Reykjavíkur að vinna. Ári seinna fluttist hún til Kefla- víkur og bjó þar alla tíð. 17 ára gömul kynntist Súsanna Karli Halldórssyni, f. 24.3. 1923, d. 19.6. 1975. Tveimur árum seinna gengu þau í hjónaband. Þau eignuðust sjö börn. Þau eru: 1. Ólöf Gíslína, f. 13.7. 1948, gift Vali Þor- geirssyni, f. 1946, þau eiga fjögur börn: Karl Halldór, f. 1968, Þor- geir Ragnar, f. 1970, Súsönnu, f. Hvað ég sakna þín, elsku mamma. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Nú erum við búin að búa í Svíþjóð í 28 ár. Þú skammaðir mig stundum fyrir að vera orðin svolítið rugluð í íslensku. Stelpurnar þínar tala ekki íslensku, að ég skuli ekki skammast mín. Elsku mamma, þú gast talað við þær, meira að segja í síma. Þú og Pinge sátuð við eldhúsborðið og spjölluðuð saman, hann sænsku og þú íslensku, þið skilduð hvort annað og það fannst mér frábært. Þú hafðir alltaf áhyggjur af okkur. Alltaf að hugsa um að við ættum hangikjöt og læri til jólanna. Ekki gleymdir þú stelpunum, jólagjafir og páskaegg sendir þú alltaf til þeirra. Takk elsku mamma og amma. Ég var allt of langt í burtu frá þér, ég gat ekki heimsótt þig eins oft og ég hefði viljað. Við komum heim árið 2000 þegar þú lentir á sjúkrahúsi í Reykjavík, þá var ég hrædd um að þú mundir fara. En þú varst svo sterk þá eins og alltaf. Andrea sagði við þig þegar þú vaknaðir að við hefðum verið heima. Þú gast varla talað en hringdir samt og baðst af- sökunar á að vera ekki vakandi þeg- ar við komum í heimsókn. Þú varst frábær, alltaf að biðjast afsökunar, þú hugsaðir meira um alla aðra en þig sjálfa. Á þessum sjö árum hefur heilsu þinni bara hrakað. Um páskana í fyrra gátum við talað saman. Í end- aðan febrúar í ár gat ég séð að ekki væri langt eftir. Andrea og ég vorum hjá þér hvern einasta dag og stund- um tvisvar á dag. Á laugardeginum sagðir þú við Andreu „svei mér þá, ég held ég sé að verða brjáluð, þú situr þarna og ég held ég sitji við hliðina á þér“ og þú brostir svo fal- lega (þú lást í rúminu og ég sat við hliðina á Andreu). Þú sást sjálfa þig í mér. Margir hafa sagt að við séum líkar, við erum það og þú sást það. Takk, elsku mamma, fyrir síðustu stundirnar sem við vorum saman. Nú ert þú búin að fá frið og þarft ekki að kveljast meira. Nú taka pabbi, Pétur og Óli á móti þér opnum faðmi. Við söknum þín svo en verðum að skilja að það að sofna var það besta fyrir þig. Þú ert alltaf hjá okkur í minningu, við sjáum þig alveg eins og þú varst. Takk, elsku Andrea systir, fyrir að hafa verið svona góð við mömmu og hjálpað henni í öll þessi ár. Þín dóttir Súsanna Karlotta og fjölskylda. Elsku Sússí amma. Við munum páskaeggin með strumpunum, jólagjöfum, öllum kök- um sem þú áttir alltaf þegar við komum í heimsókn. Við munum eftir myndinni sem hékk á veggnum yfir eldhúsborðinu, hvernig þú gerðir pláss fyrir okkur í herberginu þínu og sjálf svafst þú í stofunni. Við munum eftir að við hlógum í aftursætinu því þú keyrðir svo hægt á litla Skódanum þínum, glerborðinu í stofunni sem þú lagðir kapal á, ást og umhyggju sem þú gafst okkur, kveðjunum með þúsund kossum. Við munum og skulum aldrei gleyma hversu mikið þú elskaðir okk- ur. Við elskum þig, elsku amma, þú ert alltaf nálægt okkur. Þín barnabörn Karlotta, Guðrún og Jennifer. Elsku mamma mín, nú er komið að kveðjustund. Þetta er svo sárt, en nú ert þú komin á betri stað, engar áhyggjur eða veikindi, bara hvíld og þá líður okkur betur. Það er svo mik- ið sem búið er að leggja á þig, elsku mamma, helmingurinn hefði verið meira en nóg. Það er svona þegar alltaf er sagt já við öllu. Ég var oft búinn að segja þér að hætta að hugsa um aðra og hugsa bara um sjálfa þig, en það þýddi ekki neitt. Þú varst allt- af svo góð við alla nema sjálfa þig. Al- veg sama hve veik þú varst, hafðir samt áhyggjur af öðrum. Við höfum gengið í gegnum ýmislegt saman, veikindi þín árið 2000 þegar þú lentir inná spítala, þér var haldið sofandi í nokkrar vikur og þegar þú vaknaðir þurftir þú að þjálfa þig upp aftur. Þetta var erfiður tími, þú varst að niðurlotum komin en sterk varstu á lappir aftur. Þú fékkst heimilishjálp tvisvar í mánuði og heimahjúkrun þrisvar í viku. Dugleg varstu að halda öllu hreinu eins og alltaf. Heið- arlegri konu hef ég heldur ekki kynnst. Það varð alltaf að borga allt á réttum tíma. Ég gleymi aldrei þegar þú varst á sjúkrahúsinu árið 2000. Fyrsta sem þú spurðir um þegar þú vaknaðir var, ertu búin að borga reikningana? Ég var búin að segja við Ragga og Köllu systur, hún er ekki að fara núna, hún á eftir að borga reikningana og fór að hlæja. Svo í mars 2004 lentir þú aftur á sjúkrahúsi og fórst ekki aftur heim eftir það. Þá varstu búin að sækja um á elliheimili og fékkst herbergi á Garðvangi. Það voru viðbrigði fyrir okkur báðar, en þá gat ég sofið róleg því ég var alltaf með áhyggjur af þér og þetta var betra fyrir þig, þá gastu slappað af. Við vorum vanar því að hringja í hvor aðra þrisvar á dag og enduðum alltaf á því á hverju kvöldi að hringja og bjóða góða nótt. Það var búið að vera svoleiðis í mörg ár. Svo fóru hringingunum fækkandi í byrjun árs 2006. Heyrnin var orðin slæm og þú gast ekki hringt. Þetta urðu alveg rosaleg viðbrigði að geta ekki hringt í mömmu og boðið góða nótt. En ég vissi af þér í góðum hönd- um og þurfti ekki að hafa eins miklar áhyggjur af þér þó ég hafi alltaf haft þær, en ég gat þó verið róleg. Þú varst síðast hjá okkur um jól árið 2005. Jólin 2006 gat ég ekki tekið þig heim. Ég var alveg eyðilögð, það vantaði svo mikið við borðið, að hafa þig ekki við endann og í rúminu mínu mér við hlið um nóttina. Það var allt- af svo gott að sofa hjá mömmu. Okk- ur leið alltaf svo vel saman, núna ertu alltaf hjá mér. Þú varst búin að vera svo kvalin í marga mánuði. Eftir síð- ustu áramót fór þér hríðversnandi, en þú þekktir mig alltaf. Verkirnir voru orðnir svo miklir hjá þér að það mátti ekki koma við þig. Það var erf- itt að geta ekki gert neitt en það var hugsað vel um þig á Garðvangi og vil ég þakka starfsfólki góða umönnun. Betri móðir, tengdamóðir og ömmu hefðum við ekki getað átt, ég lærði helling af þér og á margar góðar minningar sem ég geymi í hjarta mínu. En nú tekur eitthvað annað við hjá þér og við eigum eftir að hittast aftur. Elsku mamma mín, ég kveð þig með söknuði og segi góða nótt. Þín Andrea. Súsanna Þorláksdóttir Það mun hafa verið á haustdögum 1974 sem við Árni hitt- umst fyrst en þá hófst udirbúningur undir stofnun Kiwanisklúbbsins Jörfa í Árbæj- arhverfi. Ekki minnist ég þess að við Árni þekktumst fyrir þennan tíma, en kynnin sem mynduðust við þessa klúbbsstofnun áttu eftir að vara á fjórða áratug. Eins og venja er til við stofnun nýrra Kiw- anisklúbba er það eldri klúbbur sem ákveður slíka stofnun í sam- ráði við áhugasama menn af því svæði sem stofnunin fer fram á. Það var Kiwanisklúbburinn Vífill í Breiðholtinu sem stóð að baki stofnuninni. Formlegur einskonar stofnfundur var síðan haldinn skömmu síðar og brátt tókust kynni með okkur félögunum og hjól starfseminnar tóku að snúast eftir að kosin hafði verið undirbún- ingsstjórn. Ekki vantaði áhugann og árangurinn lét heldur ekki á sér standa. Mörg þjónustuverkefn- in sem Jörfi beitti sér fyrir voru tengd börnunum í hverfinu okkar en fyrsta verkefnið var að fá borg- aryfirvöld í Reykjavík til að setja upp lýsingu við vesturenda Rauða- vatns, þangað sem börnin úr Ár- bæjarhverfinu sóttu til að leika sér á skautum og til annarra vetr- arleikja. Við höfðum ekki einu sinni verið formlega stofnaðir þeg- ar fyrsta samfélagsbætandi verk- efnið var í höfn, það birti við Rauðavatnið og við félagarnir vor- um stoltir af fyrsta tiltækinu. Formleg stofnun varð síðan 28. Árni H. Guðmundsson ✝ Árni HaraldurGuðmundsson fæddist í Reykjavík 8. apríl 1928. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 22. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fríkirkj- unni í Reykjavík 2. mars. maí 1975. Ég minnist okkar Jörfafélaga, flestra fremur ófélagsvanra, með eiginkonum okkar, fylgjast eilítið spennt með þegar fyrsti for- seti okkar, Ævar Breiðfjörð, tók við stjórn. Þetta var okk- ur öllum sæl stund. Ánægjustundirnar sem við Árni og fé- lagar okkar áttum eftir að eiga saman í góðu og árangursríku klúbbstarfi urðu með árunum margar. Á það jafnt við um vinnu- fundi, fjáraflanir, styrktarverkefni, skemmtiferðir, almenna fundi sem og stærri viðburði og skemmtanir sem Jörfi stóð ýmist einn að, eða með öðrum klúbbum. Félagsbæt- andi þátturinn í starfinu er síðan krafan um að taka að sér stjórnar- og nefndarstörf. Árni lét þar sitt ekki eftir liggja og var hann for- seti okkar starfsárið 1992–1993 auk þess að vera alla tíð virkur í margskonar stjórnar- og nefnda- störfum. Fyrir þátt Árna að allri starf- semi Jörfa erum við félagarnir þakklátir. Hið góða geð sem Árna var gefið, auk hnyttinna athuga- semda, leiddi til þess að stutt var í bros í hans nærveru. Hlátur hans, lágvær en smitandi, er okkur öll- um minnisstæður og við hugsunina um nærveru hans hlýnar okkur enn um hjartaræturnar. En Árni stóð lengi ekki einn í störfum sín- um og félagsstarfi, því við hlið hans stóð lengi Ingibjörg S. Stef- ánsdóttir, kona hans, en hún lést 1992. Við Jörfafélagar viljum votta eftirlifandi ættingjum og afkom- endum Árna H. Guðmundssonar dýpstu samúð okkar í fullvissu um að minningin um góðan dreng heldur áfram að lifa. F.h. okkar Jörfafélaga Þórarinn B. Gunnarsson. Elsku pabbi minn. Ég trúi því ekki að þú sért farinn. Ég sakna þín svo mikið. Þegar ég kem heim til mömmu þá ert þú ekki þar, en ég býst eiginlega við því að þú komir út úr herberginu þínu og fáir þér kaffi og setjist við eldhúsborðið og spjallir eins og þú varst vanur að gera. Þú komst til mín til Reykjavík- ur í læknisskoðun og fékkst að vita að þú værir með krabbamein, það var eins og köld vatnsgusa framan í okk- ur öll. Eins og venjulega tókstu þessu með jafnaðargeði og reyndir að bera höfuðið hátt en ég sá hvað þér leið illa. Ég verð þér eilíflega þakklát fyrir það hvað þér og mömmu tókust vel að ala dóttur mína Hafdísi Ósk upp, þú sást ekki sólina fyrir henni og hvað þú varst stoltur af að sonur minn varð al- Hafsteinn Már Sigurðsson ✝ Hafsteinn MárSigurðsson fæddist í Reykjavík 18. maí 1940. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Vest- mannaeyja föstu- daginn 30. mars síðastliðinn og var útförin gerð frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum 7. apr- íl. nafni þinn og þau elsk- uðu þig mikið. Við vor- um ekki alltaf sammála og rifumst stundum, þá hringdum við hvor- ugt í hvort annað, vor- um bæði jafnþrjósk, enda sagði mamma alltaf að ég væri eins og snýtt úr nefinu á þér. Ég get skrifað enda- laust um þig, þú varst ekki bara pabbi minn, þú varst líka vinur minn og alltaf þegar þú hringdir þá sagðir þú „Þetta er bara ég“. Ég elska þig og sakna þín mikið. Þín dóttir Sædís. Það er föstudagurinn 30. mars og mamma hringir, segir mér að Haf- steinn hafi kvatt þá um morguninn, ég vissi að sú stund væri að nálgast en það er enginn tilbúinn þegar hún rennur upp. Það eru ekki nema rúmir 8 mánuðir síðan meinið uppgötvaðist og var ég að vona að hann fengi meiri tíma með sínu fólki, en hann var orð- inn svo veikur, að það var viss léttir að vita að hann væri ekki lengur kval- inn. Mínar fyrstu minningar um Haf- stein tengjast sjómennsku hans, hann að koma heim af sjónum, og oft var hann ansi þreyttur, enda mikil vinna að vera á sjó. Hann var giftur móð- ursystur minni, henni Ástu. Ég, Siggi Þór sonur hans og Sædís dóttir hans lékum okkur mikið saman. Hafsteinn var rólyndismaður og hafði góða nær- veru. Hafsteinn átti bát sem hét Jökull og var hann sinn eigin herra, bæði skipstjóri og útgerðarmaður. Haf- steinn og Ásta frænka bjuggu á Há- steinsveginum eins og við, og var mikill samgangur á milli heimila. Svo þegar gosið í Eyjum byrjaði voru þau byrjuð að byggja sér hús og var þeirra hús það fyrsta sem steypt var eftir gosið og markaði það viss tíma- mót, að lífið hélt áfram og fólkið fór aftur heim til Eyja (eins og Eyja- menn taka til orða). Síðustu ár var sú hefð komin á að við fórum heim til Eyja með börnin okkar og þá tóku Ásta og Hafsteinn á móti okkur, og var Ásta frænka alltaf búin að elda þessa indælu mömmu- kjötsúpu. Svo næsta kvöld komu þau til okkar inn í dal í grill. Þetta voru góðar stundir, mikið spjallað og hleg- ið. Það verður því tómlegt í sumar er við förum heim til Eyja og Hafstein vantar. Þá hinsti garðurinn úti er ég eygi land fyrir stöfnum. Eftir sólfáðum sæ mig ber að sælum blælygnum höfnum. Ótal klukkur ég heyri hringja og hersing ljósengla Drottins syngja: „Velkominn hingað heim til vor.“ Lát ankeri falla, ég er í höfn. Ég er með frelsara mínum. Far vel, þú æðandi dimma dröfn. Vor Drottinn bregst ekki sínum. Á meðan ankeri í ægi falla ég alla vinina heyri kalla sem fyrri urðu hingað heim. (Sigurlaug Cýrusdóttir) Kæri Hafsteinn, hafðu þökk fyrir allt og allt, minning um góðan dreng lifir. Góði Guð, viltu styrkja Ástu frænku, börn og barnabörn á þessum erfiðum tímum. Þóra Lind, Salómon og börn. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.