Morgunblaðið - 02.05.2007, Síða 38

Morgunblaðið - 02.05.2007, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ER AÐ REYNA AÐ ÁKVEÐA HVAÐ ÉG Á AÐ ELDA HMM... ÉG HELD AÐ ÉG ELDI EITTHVAÐ MEÐ FÁLMURUM SJÁÐU! MATSEÐILL FRÁ KÍNVERSKUM SKYNDIBITASTAÐ! ANSANS! ÉG GLEYMDI EGGJA- SKURNINNI SNJÓ- HÝS? ÞETTA ER FLEIRTALA... EITT SNJÓHÚS... MÖRG SNJÓHÝS! KENNARINN BAÐ OKKUR UM AÐ KOMA MEÐ EGGJASKURN Í SKÓLANN Í DAG... VIÐ ÆTLUM AÐ BÚA TIL SNJÓHÝS Í DAG ÆTLA ÉG AÐ SÝNA YKKUR GEIMVERUNA SEM ÉG VEIDDI Í GARÐINUM HJÁ MÉR Í GÆR SÍÐAN ÞÁ HEF ÉG GEYMT HANA Í ÞESSUM SÉRSTAKA POKA SEM ER ÞAKINN MEÐ ZARNÍUMI! ÉG HEF GEFIÐ HENNI HREINT PLÚTÓNÍUM AÐ BORÐA! OG NÚNA ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ SEM ÞIÐ HAFIÐ ÖLL BEÐIÐ EFTIR HVERNIG GEKK? KENNARINN SAGÐI AÐ BÁÐIR FORELDRAR MÍNIR ÆTTU AÐ KOMA Á FUNDINN Í ÁR BANNAÐ AÐ RUPLA OG RÆNA EFTIR 1. MAÍ ANSANS! HVENIG Á ÉG NÚNA AÐ FÁ PENING TIL ÞESS AÐ FARA TIL SPÁNAR Í SUMAR?!? GRÍMUR, VIÐ ERUM LOKSINS KOMNIR Á NORÐURPÓLINN... OG HVAÐ GERIST? ÞÚ FESTIR ÞIG VIÐ HANN! FÆÐ ÉÐ KAÐÐSKI HJÁLÐP?! RAJIV, ÉG ÞARF AÐ FARA ÚR VINNUNNI Í HÁDEGINU Í NOKKRA KLUKKUTÍMA NOKKRA KLUKKUTÍMA? JÁ, ÉG ER AÐ SPILA Á BASSA Í NÝRRI HLJÓMSVEIT. ÞAÐ ER ÆFING HJÁ OKKUR KLUKKAN EITT ÆFING HJÁ NÝRRI HLJÓM- SVEIT? HA HA! ÞESSI VAR GÓÐUR! AF HVERJU ÞARFTU AÐ FARA? KIDDA ER VEIK OG ADDA ÞARF AÐ VINNA MIKIÐ SAKNA ÉG ÞÍN ELSKAN ÉG SAKNA ÞÍN LÍKA. AF HVERJU KEMUR ÞÚ EKKI BARA HINGAÐ TIL HOLLYWOOD? VILTU AÐ ÉG GERI ÞAÐ? AUÐVITAÐ! LANGAR ÞIÐ TIL AÐ KOMA? ÉG SKAL ÍHUGA ÞAÐ dagbók|velvakandi Samkynhneigðar ástir VINÁTTA, kærleikur, væntum- þykja, ást og sambúð eru falleg hugtök. Þau lýsa svo vel góðu sam- bandi milli gagnkynhneigðra. En þeir sem hneigðir eru til sama kyns eiga líka sín ástarsambönd, væntumþykju, hamingjubönd, vin- áttu og kærleik. Fyrir þrjátíu árum eða svo, og enn lengra aftur í tím- ann, vöktu slík sambönd hneykslan og eimir enn eftir af þeirri þröng- sýni hjá trúarofstækishneigðu fólki um allar jarðir sem sótt hefur lífs- viðhorf sitt í fornbókmenntir mis- jafnra og furðulegra sértrúarflokka sunnan úr Miðausturlöndum. Skort- ur á umburðarlyndi hins svokallaða rétttrúnaðar hefur um aldir og ár- þúsund níðst á frelsisunnendum og sannleiksást þeirra og vill ennþá halda því áfram út í hið óendanlega. Það er löngu tími til kominn að þjóðfélagið hleypi miðaldamyrkrinu út úr skápum sínum og hugar- fylgsnum og leyfi öllu fólki að lifa í friði, ást og hamingju, eins og Guð hefur skapað það, án þess að stag- ast á úreltum formúlum fornaldar um ástarsambönd fullorðins fólks. Ég vil óska samkynhneigðum til hamingju með það að geta orðið lif- að tiltölulega óáreittir í samfélagi nútímans og notið lífsins eins og annað fólk, með lífsförunaut sínum af sama kyni. Einar Ingvi Magnússon. Kynjahlutverk og melting ÉG sá nýlega meltidrauminn LGG auglýstan í Ríkissjónvarpinu. Ung kona er orkulítil og á í vandræðum með meltinguna í sér. Agalegt. Því leitar hún í drykkinn til að kippa því í liðinn. Afbragð. Auglýsingin endar síðan á að hún sparkar niður félaga sinn í léttum sparkboxleik þeirra tveggja. Mér er spurn: Hvað segðu menn ef konan stæði í spor- um karlmannsins og léti þrykkja sér í jörðina? Ja, þá held ég nú að kæmi annað hljóð í strokkinn. Tvö úr Bollagörðum. Slæm þjónusta í Bónus MÉR finnst þjónustan í Bónus í Skeifunni afar slæm. Þar er illa tekið á móti fólki sem þarf á aðstoð að halda. Starfsfólkið er dónalegt og ókurteist. Þau ættu að reyna að haga sér eins og venjulegt fólk og hætta þessum dónaskap og sýna örlitla hjálpsemi. Heldur ættu stjórnendur ekki að hækka verðið, eins og gert var um daginn. Það kemur mjög illa við eldra fólk og öryrkja. Jón Jónsson. Týndir þú kerruhlera? EINHVER óheppinn kerrueigandi sem ók um Njarðargötuna í Reykjavík, líklega helgina 21.–22. apríl sl. tapaði hleranum af kerr- unni sinni. Umræddur kerruhleri liggur á gangstéttinni við Njarðar- götu 43 ef eigandinn vill nálgast hann. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is ÞESSIR ,,bananar“ frá Kvennaskólanum strunsuðu að Alþingi og kröfðust þess að Ísland yrði gert að bananalýðveldi. Morgunblaðið/G. Rúnar Kröfuharðir bananar Á NÆSTU vikum munu Kiwanis- hreyfingin og Eimskip gefa öllum börnum í 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða sérstakt átak í samvinnu Kiwanis-hreyfingarinnar og Eim- skips. Þetta er í fjórða skiptið sem félögin standa að þessu verkefni en um 14.000 börn hafa nú þegar feng- ið hjálma. Í ár bætast í þennan hóp 4.500 börn til viðbótar en öll sjö ára börn á landinu munu fá afhenta reiðhjólahjálma og er heildarverð- mæti verkefnisins um 23 milljónir. „Þetta er verkefni sem stendur okkur mjög nærri en við leggjum mikla áherslu á öryggismál í allri okkar starfsemi,“ sagði Baldur Guðnason, forstjóri Hf. Eimskipa- félags Íslands. Verkefnið nýtur einnig ráðgjafar og stuðnings Herdísar Storgaard, forstöðumanns hjá Forvarnahús- inu. „Þetta er frábært tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi þess að börn noti reiðhjólahjálma rétt, en foreldrar verða að taka þátt í þessu með okkur og fylgja því eftir.“ Eimskip og Kiwanis gefa 4 ára börnum reiðhjólahjálma FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.