Morgunblaðið - 21.07.2007, Síða 1

Morgunblaðið - 21.07.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 197. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is GOTT AÐ HJÓLA KOMIN NÆRRI SJÖ MÁNUÐI Á LEIÐ EN HJÓLAR 12-13 KM Í VINNUNA >> 20 SÖGUSKOÐUN AÐ „HÆTTI HÚSSINS“ TYRKJARÁN „911“ >> LESBÓK FRÉTTASKÝRING Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl. EKKI virðist almenn sátt um það að verðlagseftirlitið færist til Hagstofu Íslands, líkt og SVÞ hefur lagt til. Eftir því sem blaðamaður kemst næst óttast menn að virkt verðlags- eftirlit muni stangast á við önnur hlutverk Hagstofunnar. Bent er á að þótt Hagstofan reikni út vísitölu neysluverðs, og þar með dagvöru, birti hún hvorki einstakt verð né nafngreini verslanir, en slík birting veitir markaðnum ákveðið aðhald. Að mati Jóhannesar Gunnarsson- ar, formanns Neytendasamtakanna, er mikilvægara að verðlagskannanir séu vandaðar og aðferðafræði þeirra óumdeild heldur en hver útfæri eða framkvæmi sjálfar kannanirnar. Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra telur ekki sjálfgefið að verðlagseftirlitið eigi betur heima hjá ríkisstofnun. Segir hann aðalat- riðið að sátt skapist milli hagsmuna- aðila um þá aðferðafræði sem notuð sé. Bendir hann á að hann hyggist funda með fulltrúum allra hags- munaaðila um næstu mánaðamót í því skyni að ná betri sátt um aðferða- fræðina. Eftir því sem blaðamaður kemst næst er sátt um aðferðafræði þó ekki töfralausnin, því menn vildu meina að þær verslanir sem illa kæmu út úr tilfallandi verðlagskönnun myndu ávallt verða ósáttar við niðurstöðuna og láta í sér heyra. Sögðu menn það til marks um að kannanirnar bitu og þjónuðu þar með hagsmunum neyt- enda. Aðrir bentu á að mikilvægt væri að hagsmunaaðilar slíðruðu nú sverð sín og næðu sátt, því ljóst mætti vera að það þjónaði ekki neyt- endum ef öll umræðan og athyglin flyttist frá könnununum sjálfum og niðurstöðum þeirra yfir á deilur um framkvæmd og úrvinnslu þeirra. Slík umræða væri aðeins til þess fall- in að varpa rýrð á kannanirnar og vekja efasemdir um þær. | 8 Sátt um að- ferðafræðina? Telja ekki sjálfgefið að verðlagseftirlitið eigi betur heima hjá ríkisstofnun en ASÍ Á ÍSLANDI hefur mikilvægi hestsins verið óumdeilt, allt frá landnámi og langt fram á 20. öld. Í raun er erfitt að gera sér í hugarlund hvernig forfeðrum okkar hefði tekist að þreyja þorrann á þessu strjálbyggða og harðbýla landi, án þess að mótorhjól, verri ör eftir sig í náttúrunni en hófar hestsins, eins og jarðvegurinn í Fossabrekkum við Heklurætur ber með sér. Lögreglan á Hvolsvelli segir að akstur utan vega sé með öllu bannaður á svæðinu eins og annars staðar á landinu. hesturinn kæmi þar mjög við sögu. Ný tækni hefur hins vegar rutt hestinum úr vegi sem fararskjóta og nú er hann eiganda sínum fyrst og fremst ómissandi félagi. Oft fylgir böggull þó skammrifi og skilja hinir nýju fararskjótar, bílar, fjórhjól og Morgunblaðið/RAX Torfærur við rætur Heklu „ÞEGAR ég sá bílinn fyrst stefndi hann á hús hinum megin við götuna og ég sá að kona hljóp á eftir honum. Næst þegar ég leit upp stefndi bíllinn á okkur og var að skella á mér og stelpunum.“ Þetta segir Ingunn Arnórs- dóttir en hún og tvær dætur hennar, önnur fimm ára og hin ekki orðin eins árs, lentu í þeirri óskemmtilegu lífs- reynslu að verða fyrir bíl þegar þær voru á gangi eftir friðsælli götu í Vestmannaeyjum. „Ég man ekki alveg hvað gerðist en þegar bíllinn lenti á mér kastaðist ég í götuna. Ég stóð strax upp, greip vagninn sem dróst með bílnum og náði að kippa honum til hliðar. Um leið og bíllinn hafnaði á veggnum datt ég niður aftur,“ segir Ingunn, en yngri dóttir henn- ar var í barnavagni sem hún ýtti á undan sér. Sú eldri var hins vegar á reiðhjóli og datt af því við áreksturinn. Þótt ótrúlegt megi virðast sluppu þær systur með skrámur þótt sömu sögu sé ekki að segja af móður þeirra, sem nú liggur mjaðmagrindarbrotin á sjúkra- húsinu í Eyjum. Hjólið er lítið skemmt en barnavagninn gerónýtur. Ökumaðurinn í yngri kantinum Það er bót í máli að sá sem óhappinu olli er hvorki ökuníðingur né fylliraftur, heldur fjögurra ára óviti, sem ætlaði sér alls ekki að troða illsakir við þær mæðgur. Sá stutti skaut móður sinni skelk í bringu þegar hann vipp- aði sér snarlega upp í bílstjórasæti bifreiðar hennar sem brátt fór að renna af stað. Ökumaðurinn náði að bjarga sér fyrir horn í orðsins fyllstu merkingu með því að taka 90 gráða beygju til hægri og halda sér á veginum, í stað þessa að enda á húsvegg. Sá galli var hins vegar á gjöf Njarðar að fyrrnefndar mæðgur voru að spóka sig á þessum sama vegi, með fyrrgreindum afleiðingum. Öku- ferðin endaði á garðvegg hægra megin götunnar, en þá hafði peyinn runnið um 200 metra að mati lögreglu. „Auðvitað var ég í sjokki á eftir; ætlaði aldrei að ná mér niður og þau voru mörg ef-in sem komu upp í hug- ann. Það er svo sannarlega guðsmildi að ekki fór verr, en mestu skiptir að stelpurnar sluppu,“ segir Ingunn. Óvænt ökuferð fjögurra ára Eyjapeyja tók snöggan endi „Það var guðsmildi að ekki fór verr“ Samheldnar Litlu systurnar eru eflaust farnar að sakna þess að komast út í göngutúr með mömmu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.