Morgunblaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Ómar Garðarsson omar@eyjafrettir.is INGUNN Arnórsdóttir átti sér einskis ills von þar sem hún var á gangi eftir Hrauntúni í Vestmannaeyjum. Með henni voru dæturnar tvær, Helga Sigrún, fimm ára, sem var á reið- hjóli, og Anna Margrét, 11 mánaða, í barna- vagni. Ingunn var að fara yfir götuna og komin upp á gangstéttina austanmegin á leið suður þegar hún sá bíl koma niður götuna úr beygju sem þarna er á Hrauntúninu. Næst þegar hún leit upp var bíllinn að skella á þeim mæðgum. Hún gerði sér ekki fulla grein fyrir því sem gerðist en hún varð fyrir bílnum og skall í götuna. Hún náði þó að rísa upp aftur og grípa í barnavagninn, sem dróst með bíln- um, rétt áður en hann skall á garðvegg. Þá uppgötvaði hún að það var barn sem sat und- ir stýri á bílnum, stórum sjö manna fólksbíl. Þetta gerðist síðdegis á miðvikudaginn og nú liggur Ingunn mjaðmagrindarbrotin á Sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum en dæturnar sluppu með skrámur. Hjólið er lítið skemmt en barnavagninn er ónýtur. gráta. Helga Sigrún datt á hjólinu, meiddi sig aðeins á olnboga en fór heldur ekki að gráta,“ segir Ingunn um viðbrögð dætra sinna. Strax dreif að fólk og Ingunn segir að ekki hafi liðið langur tími þar til lögregla og sjúkrabíll komu á vettvang. „Mín fyrstu við- brögð voru að hringja í mömmu,“ segir Ing- unn. „Þau voru óskemmtileg skilaboðin sem ég fékk – „það var keyrt á mig og ég ligg í götunni en ég held að stelpurnar hafi sloppið“ var það fyrsta sem hún sagði,“ skaut móðir Ingunnar, Svanhildur Eiríksdóttir, inn í. Ingunn var flutt á Sjúkrahúsið í Vest- mannaeyjum þar sem hún verður í einhverja daga en stelpurnar sluppu við alvarleg meiðsl. „Ég er brotin á mjaðmagrind og aum í fótunum, ég held að hjólið hafi farið yfir þá. Auðvitað var ég í sjokki á eftir, ætlaði aldrei að ná mér niður og þau voru mörg ef-in sem komu upp í hugann. Það er svo sannarlega guðsmildi að ekki fór verr en mestu skiptir að stelpurnar sluppu,“ sagði Ingunn sem vildi koma á framfæri þakklæti til allra sem að- stoðuðu hana. Kona hafði stöðvað bíl sinn í gangi rétt of- an við beygjuna til að ná í tæplega fjögurra ára son sinn. Hún fór út til að ná í strákinn, sem vippaði sér inn í bílinn, í aftursætið, en áður en móðir hans fékk nokkuð að gert skaust hann í bílstjórasætið og bíllinn rann af stað. Drengurinn náði að taka 90 gráða beygju til hægri og endaði á garðvegg hægra megin götunnar eftir að hafa runnið um 200 metra að mati lögreglu. „Þegar ég sá bílinn fyrst stefndi hann á hús hinum megin við götuna og ég sá að kona hljóp á eftir honum,“ segir Ingunn þegar hún rifjar atburðinn upp í samtali við Morg- unblaðið. „Næst þegar ég leit upp stefndi bíll- inn á okkur og var að skella á mér og stelp- unum. Ég man ekki alveg hvað gerðist en þegar bíllinn lenti á mér kastaðist ég í göt- una. Ég stóð strax upp, greip vagninn sem dróst með bílnum og náði að kippa honum til hliðar. Um leið og bíllinn hafnaði á veggnum datt ég niður aftur,“ segir Ingunn. Þótt vagninn væri allur skakkur og hjóla- búnaður ónýtur sat sú stutta uppi og lét sér hvergi bregða. „Hún fór ekki einu sinni að Morgunblaðið/Sigurgeir Fóru ekki einu sinni að gráta Mæðgur hætt komnar er fjögurra ára gamall Eyjapeyi ók á þær Hressar Þær sluppu ótrúlega vel mægðurnar í Vestmannaeyjum, Ingunn og dætur hennar Helga Sigrún og Anna Margrét. ENGIN ríkisstofnun hefur síðan í vor haft eftirlit með því hvort fæðubótarefni séu í samræmi við reglur sem gilda um innflutning þeirra ef einstaklingar sjá um innflutninginn. Fæðubótarefni eru málaflokkur sem heyrir undir Umhverfisstofnun en stofnunin telur sig ekki hafa lagaheimildir til að stöðva innflutning einstak- linga. Tollyfirvöld sjá um innflutn- ingseftirlit fyrir margar stofnanir en í tollalögunum sjálfum er ekki tilgreint hvaða vörur sé óheimilt að flytja til landsins. Tollstjóra- embættin senda því reglulega fyr- irspurnir til þeirra stofnana sem yfirumsjón hafa með tilteknum málaflokkum um hvort heimilt sé að flytja inn hinar og þessar vörur. Reglugerð um fæðubótarefni var sett síðla árs 2004 og var málaflokkurinn þá færður frá Lyfjastofnun yfir til Umhverfis- stofnunar. Regína Hallgrímsdótt- ir, sviðsstjóri eftirlitssviðs Lyfja- stofnunar, segir að reyndar hafi stofnunin svarað fyrirspurnum tollyfirvalda um fæðubótarefni nokkru lengur, eða þar til núna í vor. Var þá sú vinnuaðferð tekin upp, í samræmi við reglugerðina, að vísa fyrirspurnum tollyfirvalda um fæðubótarefni til Umhverfis- stofnunar. Markaðseftirlit er haft með efnum sem fyrirtæki selja Hörður Davíð Harðarson, að- aldeildarstjóri tolleftirlitsdeildar Tollstjórans í Reykjavík, segir hins vegar að þegar spurst hafi verið fyrir hjá Umhverfisstofnun hafi þau svör verið gefin að stofn- unin teldi ekki í verkahring sínum að fylgjast með innflutningi á veg- um einstaklinga. Þar sem engar athugasemdir hafi verið gerðar af hendi fagstofnana hefðu tollyfir- völd ekki lagastoð fyrir því að stöðva innflutninginn. Elín Guðmundsdóttir, forstöðu- maður matvælasviðs Umhverfis- stofnunar, staðfestir þetta. „Við höfum litið svo á að við höfum ekki lagaheimildir til að skipta okkur af innflutningi einstaklinga á fæðubótarefnum.“ Stofnunin fer hins vegar með markaðseftirlit með fæðubótar- efnum sem fyrirtæki selja. Stofn- unin hefur því ekki talið sig hafa heimild til að gera athugasemdir við það að einstaklingar flytji inn fæðubótarefni sem fyrirtækjum er óheimilt að bjóða til sölu. Að- spurð hvort þetta misræmi sé ekki einkennilegt segir Elín að Umhverfisstofnun sé bundin af þeim lögum sem um stofnunina gilda. Hún bendir jafnframt á að tollyfirvöld og lyfjastofnun hafi eftir sem áður eftirlit með inn- flutningi efna sem flokkist sem fíkniefni eða lyf. Engin ríkisstofnun telur sér skylt að fylgjast með innflutningi einstaklinga Fæðubótarefni eru flutt hingað til lands án eftirlits Í HNOTSKURN »Umhverfisstofnun hefurekki heimild til að stöðva innflutning einstaklinga á fæðubótarefnum. »Ekki er tilgreint í tolla-lögum hvaða vörur sé bannað að flytja inn. Leita tollyfirvöld því til viðkom- andi fagstofnana í slíkum málum. Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is ÓVÍST er um afdrif rækjuvinnslu Bakka- víkur hf. í Bolungarvík en eins og kunn- gert var í fjölmiðlum var 48 af 60 starfs- mönnum sagt upp störfum í apríl sl. Að sögn framkvæmdastjóra verður ákvörðun tekin eftir helgi. Bakkavík keypti fimm hundruð tonn af frosinni rækju sem verið er að vinna og reiknað er með að vinnslunni ljúki um mánaðamót. Á sama tíma rennur út upp- sagnarfrestur flestra starfsmanna. Agnar Ebenesersson, framkvæmda- stjóri Bakkavíkur, vildi lítið tjá sig um málið þegar eftir því var leitað en sagði þó að stjórn Bakkavíkur mundi ákveða fram- haldið næstkomandi þriðjudag. Ljóst er að aðstæður eru fyrirtækinu ekki hagstæðar en Agnar vonar þó að ekki komi til þess að rækjuvinnslunni verði hætt. Hann telur það mikið áfall fyrir bæjarfélagið og Bakkavík fari svo. Afdrif rækju- vinnslunnar ráðast eftir helgi Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson ENGAN sakaði í hörðum árekstri sem átti sér stað á vegamótum við sundlaugina í Lundi á Melrakkasléttu og þjóðveg um Ax- arfjörð á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Fólksbíl var ekið í veg fyrir jeppa með fyrrgreindum afleiðingum og er bíllinn mikið skemmdur. Lögregluvarðstjóri á Húsavík segir að frekari upplýsingar um óhappið liggi ekki fyrir að svo stöddu. Árekstur í ná- grenni Ásbyrgis FRÖNSKU flugmennirnir tveir sem brot- lentu á Grænlandsjökli aðfaranótt mið- vikudags eru nú veðurtepptir í Kulusuk, en þeir hugðust koma til Reykjavíkur í gær og fljúga áfram til Parísar í dag. Starfsmenn Flugfélags Íslands gera ráð fyrir að veður verði hagstæðara í dag og flugsamgöngur komist í samt lag, en ekki er vitað hvenær flugmennirnir eru vænt- anlegir til landsins. Áhöfn fisvélar veðurteppt ÞRÍR ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- akstur í umdæmi lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu á fimmtudag og aðfara- nótt föstudags. Hafði einn þeirra þegar verið sviptur ökuleyfi. Einn var stöðvaður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og annar fyrir að vera ófær um að stjórna ökutæki örugglega vegna veikinda. Lögreglan stöðvaði einnig ökumann sem hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Reyndi hann í fyrstu að halda því fram að ökuskírteinið hefði gleymst heima. Þrír teknir ölvaðir undir stýri HRAÐAKSTUR í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli var mikill í gær. Þrátt fyrir að lögreglumenn hafi ekki lagt sérstaka áherslu á hraðamælingar, höfðu þeir hendur í hári 25 ökumanna sem óku of hratt í Rangárvallasýslu. Sá sem hraðast ók á þjóðveginum mældist á 132 km hraða og allnokkrir mældust á 128. Ekki var ástandið skárra innanbæjar; þar mældist einn á 82 km hraða á 50 km kafla. Á hraðferð í Rangárvallasýslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.