Morgunblaðið - 21.07.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 9
FRÉTTIR
50% afsláttur
af öllum sumarfatnaði
Tilboðsslár
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Opið mán.-fös. kl. 10-18,
laugard. opið í Bæjarlind kl. 10-15
Bæjarlind 6 • sími 554 7030
Útsala - Útsala
Enn meiri verðlækkun
LAGERSALA HEFST
Á MÁNUDAGINN
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Kringlunni - sími 568 1822
www.polarnopyret.se
Enn meiri afsláttur
50% afsl. af öllum útsöluvörum
FERÐASKRIFSTOFAN Heims-
ferðir opnaði nýjar höfuðstöðvar sín-
ar að Skógarhlíð 18 í gær og hefur
fyrirtækið þar með stækkað híbýli
sín um helming. Að sögn Andra Más
Ingólfssonar framkvæmdastjóra
hefur starfsemin fimmtánfaldast á
undanförnum tveimur árum og því
orðið löngu tímabært að stækka við
sig. „Við vorum að opna 1.000 fer-
metra hérna svo þetta dugar okkur
vonandi eitthvað næstu árin,“ segir
Andri.
Starfsemin er í raun margþætt,
því annars vegar býður fyrirtækið
upp á utanlandsferðir fyrir Íslend-
inga í nafni Heimsferða en einnig er
boðið upp á þjónustu fyrir erlenda
ferðamenn sem hingað koma og fell-
ur sú starfsemi undir Terra Nova.
Bæði heyra undir móðurfélagið Pri-
mera Travel Group, sem hefur nú
einnig fært höfuðstöðvar sínar í
Skógarhlíðina og er því þjónustan öll
komin undir einn hatt.
Nú er háannatími í ferðaþjónustu
því sumarfrí standa sem hæst en
auk þess eru Íslendingar þegar
byrjaðir að bóka þær fjölmörgu
haustferðir sem Heimsferðir bjóða
upp á til heitari landa. Andri segir
Íslendinga með eindæmum ferða-
glaða og mest framandi ferðirnar
verði yfirleitt fyrst uppbókaðar.
Undirbúningur páskaferða er því
þegar kominn á fullan skrið, þar sem
haustferðirnar anni tæpast eft-
irspurninni. Starfsemin er því á fullu
og lítill tíma til að fagna opnun nýja
húsnæðisins að sögn Andra. „Við
verðum með smá veislu fyrir starfs-
fólkið á eftir og höldum svo áfram að
vinna.“
Ört vaxandi Heimsferðir voru stofnaðar í mars árið 1992 og fagna því 15 ára afmæli í ár en starfsemin hefur vaxið
mjög og er nú boðið upp á ferðir til hátt í 30 áfangastaða auk sérferða eins og golf-, skíða- og gönguferða.
Starfsemin hefur margfaldast og sprengt húsið utan af sér
Heimsferðir flytjast í
tvöfalt stærra húsnæði
Stórir „Það lá við að þeir, sem mættu síðastir á morgnana, fengju ekkert
borð, svo þetta var alveg tímabært,“ segir Andri Már Ingólfsson.
UMBOÐSMAÐUR Alþings beinir
því til félagsmálaráðuneytisins að
kveða upp úrskurði í kærumálum
sem lúta að veitingu atvinnuleyfa
eins fljótt og auðið er. Mælist um-
boðsmaður til þess að ráðuneytið
taki það til skoðunar hvort grípa
þurfi til aðgerða vegna aukins álags
á Vinnumálastofnun.
Þetta er niðurstaða umboðsmanns
Alþingis í máli fyrirtækis sem leitaði
til hans vegna afgreiðslutíma félags-
málaráðuneytisins á stjórnsýslukær-
um þess til ráðuneytisins í mars
2006. Kærurnar vörðuðu synjun
Vinnumálastofnunar á útgáfu at-
vinnuleyfa fyrir tvo útlenda starfs-
menn sem fyrirtækið hugðist ráða til
starfa. Alls tók þrettán mánuði að af-
greiða kæruna í félagsmálaráðu-
neytinu.
Úrskurðir kveðnir fyrr upp
Beindi umboðsmaður þeim til-
mælum til ráðuneytisins að hugað
yrði framvegis að því við skipulagn-
ingu starfa innan ráðuneytisins að
úrskurðir í kærumálum, sem ráðu-
neytinu bærust á grundvelli laga um
atvinnuréttindi útlendinga, yrðu upp
kveðnir svo fljótt sem unnt væri og
að afgreiðslutími málanna samrýmd-
ist þannig fyrirmælum stjórnsýslu-
laga.
Ráðuneytið hafi frumkvæði
að því að tilkynna fólki tafir
Þá mæltist umboðsmaður til þess
að ráðuneytið tæki til athugunar
hvort grípa þyrfti til aðgerða vegna
aukins álags á Vinnumálastofnun,
meðal annars vegna umsókna um at-
vinnuleyfi, til þess að tryggja að um-
sagnir stofnunarinnar vegna kæra til
ráðuneytisins bærust ráðuneytinu
innan hæfilegs tíma svo unnt væri að
afgreiða kærumál í samræmi við
stjórnsýslulög.
Umboðsmaður beindi að lokum
þeim tilmælum til félagsmálaráðu-
neytisins að hafa í framtíðinni frum-
kvæði að því að tilkynna aðilum um
tafir á afgreiðslu kæra vegna synj-
ana um atvinnuleyfi og gefa upplýs-
ingar um ástæður tafanna og hve-
nær ákvörðunar sé að vænta í
málinu.
Álag skoðað hjá
Vinnumálastofnun
UM þessar mundir er Þorláksmessa á sumri. Í tilefni þess hefur skapast sú
hefð á Ísafirði að Lionsmenn bjóða til skötuveislu í Tjöruhúsinu í Neðsta-
kaupstað. Í gær var borin fram skata, skötustappa, plokkfiskur og salt-
fiskur sem Halldór Hermannsson hafði hönd í bagga með að verka og elda
ásamt dóttur sinni og tengdasyni. Skatan var verkuð af Lionsmönnum
sjálfum. Mikill fjöldi lagði leið sína í Neðstakaupstað til að borða kræsing-
arnar.
Skötuveisla á Ísafirði