Morgunblaðið - 21.07.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 15
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
„ÉG hef aðeins þrjú orð að segja:
frelsi, frelsi, frelsi. Ekkert er feg-
urra en frelsi,“ sagði Abdel Rahim
Malouh, atkvæðamesti Palestínu-
maðurinn úr röðum 255 fanga sem
Ísraelar leystu úr haldi í gær.
Með því að láta fangana lausa von-
ast stjórnvöld í Ísrael til að geta
styrkt stöðu Mahmouds Abbas, for-
seta Palestínumanna, í valdabaráttu
hans við Hamas-hreyfinguna sem
náði Gaza-svæðinu á sitt vald í liðn-
um mánuði.
„Þetta er upphafið,“ sagði Abbas.
„Við verðum að halda áfram starfi
okkar þar til allir fangarnir koma
aftur heim.“
Þekktasti Palestínumaðurinn sem
leystur var úr haldi er Malouh, sem
er sextugur og næstvaldamesti mað-
urinn í vinstrihreyfingunni Alþýðu-
fylkingunni fyrir frelsun Palestínu
(PLFP), sem lýsti á hendur sér
morði á ísraelskum ráðherra árið
2001. Malouh var handtekinn ári síð-
ar og dæmdur árið 2004 í níu ára
fangelsi fyrir aðild að „hryðjuverka-
hreyfingu“. Gert hafði verið ráð fyrir
því að hann lyki afplánuninni árið
2009.
Flestir fanganna sem voru látnir
lausir eru í Fatah, hreyfingu Abbas.
Leiðtogar Hamas gerðu lítið úr
ákvörðun Ísraelsstjórnar. „Þetta
skref hefur enga raunverulega þýð-
ingu vegna þess að flestir fanganna
eru í einni fylkingu og flestir voru í
þann veginn að ljúka afplánun,“
sagði talsmaður Hamas.
Ísraelar og embættismenn bráða-
birgðastjórnar Abbas sögðust vona
að frelsun fanganna markaði þátta-
skil í samskiptum Ísraela og Palest-
ínumanna eftir sjö ára blóðsúthell-
ingar.
Nær 11.000 Palestínumenn eru í
fangelsum í Ísrael. Nánast hver ein-
asta fjölskylda á svæðum Palestínu-
manna hefur einhvern tíma átt náið
skyldmenni í ísraelsku fangelsi síð-
ustu sjö árin og örlög fanganna eru á
meðal erfiðustu málanna í deilum
Ísraela og Palestínumanna.
„Ekkert er fegurra en frelsi“
Yfir 250 palestínskir
fangar leystir úr
haldi í Ísrael
Reuters
Frjáls Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna (t.v.), fyrir aftan Abdel Ra-
him Mallouh sem heilsar fjölskyldu sinni eftir að hann var leystur úr haldi.
HITABYLGJUR eru óumdeilanlega slæmar fréttir fyr-
ir fólk sem hefur lífsviðurvæði sitt af skíðaíþróttinni,
en sjálfsbjargarviðleitnin hefur löngum fleytt mönnum
langt. Á myndinni má sjá hvernig hvítt flísefni hefur
verið breitt yfir snjóbreiður Vorab-jökulsins í Sviss-
nesku ölpunum til þess að koma í veg fyrir að hinn dýr-
mæti snjór bráðni alveg í hitasvækjunni sem legið hef-
ur yfir Evrópu síðustu vikur.
AP
Skíðastaðir í hættu í hitanum
SVISSNESKI athafnamaðurinn,
Bernard Weber, sem stóð að nýlegri
skoðanakönnun um hin nýju sjö und-
ur veraldar, hefur í hyggju að senda
þrívíddarmyndir af undrunum út í
geiminn. Weber ætlar að brenna
myndirnar á gullinn geisladisk eða
hlaða þeim inn á ipod og skjóta þeim
upp með eldflaug. Hann gefur þó
ekki upp nákvæmlega hvernig eða
hvar það mun gerast. Weber sagði í
samtali við fréttastofu AP að þetta
væri besta leiðin til að varðveita
minninguna um byrjun þriðja árþús-
undsins og minningin myndi þannig
lifa, jafnvel þó að veröldin liði undir
lok.
Weber segir næsta skref vera að
skipuleggja kosningu um hin sjö
tækniundur veraldar og svo hin sjö
náttúrulegu undur veraldar og tekur
sem dæmi Miklagljúfur í því sam-
hengi.
Sjö undur
veraldar
út í geim
Undrin lifi þó að ver-
öldin líði undir lok
TONY Blair,
fyrrverandi for-
sætisráðherra
Bretlands, fagn-
aði í gær tilkynn-
ingu saksóknara
um að þeir
myndu ekki gefa
út neinar ákærur
vegna ásakana
um að embættis-
menn stjórnar Verkamannaflokks-
ins hefðu þegið greiðslur í flokks-
sjóði gegn því að tryggja auðmönn-
um titla og sæti í lávarðadeild
breska þingsins. Rannsókn málsins
stóð í sextán mánuði. Saksóknar-
arnir tilkynntu í gær að rannsókn-
inni væri lokið og vegna skorts á
sönnunum yrði enginn ákærður í
málinu.
Engin ákæra
vegna ásakana
um spillingu
Tony Blair
DANIR hafa flutt um 200 Íraka til
Danmerkur en um er að ræða fólk
sem hefur séð um túlkun og fleiri
störf fyrir danska herliðið í Írak.
Fólkið óttaðist að verða skotspónn
uppreisnarmanna vegna tengsl-
anna við herliðið. Hins vegar hefur
komið í ljós að á vefsíðu varnar-
málaráðuneytisins í Kaupmanna-
höfn voru birtar myndir af nokkr-
um Írakanna, að vísu brenglaðar en
samt hægt að þekkja þá. Þykir
þetta mjög óvarlegt og fullyrt að
þeir og fjölskyldur þeirra geti verið
í hættu vegna myndanna.
Írakar til
Danmerkur
STJÓRN Meles
Zenawi, forsætis-
ráðherra Eþíóp-
íu, náðaði í gær
alls 38 stjórnar-
andstöðuleiðtoga
og stuðnings-
menn þeirra.
Fólkið var ný-
lega dæmt í lífs-
tíðarfangelsi fyr-
ir að hafa æst til andófs gegn
stjórninni. Er þrjár smárútur yfir-
gáfu Kaliti-fangelsið í höfuðborg-
inni Addis Ababa mynduðu sumir
fanganna sigurmerkið með fingr-
unum. Zenawi sagði að með því að
verða við bón fanganna um náðun
væri verið að segja að fólk fengi
annað tækifæri.
Fangar náðaðir
í Eþíópíu
Meles Zenawi
BANDARÍKIN og Vestur-Evrópu-
ríkin gáfu í gær upp á bátinn til-
raunir sínar til að fá öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna til að sam-
þykkja að Kosovo-hérað fengi sjálf-
stæði. Var ástæðan sögð vera and-
staða Rússa sem hafa neitunarvald í
ráðinu. Reynt yrði að tryggja Kos-
ovo sjálfstæði með öðrum ráðum.
Héraðið telst enn vera hluti Serbíu
og Serbar berjast ákaft gegn því að
það fái sjálfstæði.
Kosovo-mál
enn í hnút
MANUEL Uribe, 41 árs Mexíkói,
verður skráður í Heimsmetabók
Guinness sem feitasti maður heims.
Hann vó hvorki meira né minna en
560 kíló áður en hann gekkst undir
skurðaðgerð og fór í megrun. Síðan
hefur hann lést um 200 kíló og von-
ast til að verða einnig skráður í
heimsmetabókina sem sá maður
sem hafi lést mest. Í næstu Heims-
metabók Guinness verður birt
mynd af Uribe ásamt lýsingu á
meðferð sem hann gekkst undir.
Léttist um
200 kílógrömm
Nýja-Delhí. AFP. | Blaða-
konan Gita Aravamud-
an hefur gefið út bók
um ótrúlega fækkun
stúlkubarna á Ind-
landi, ástæðurnar sem
liggja að baki og jafn-
vel aðferðirnar sem
notaðar eru. Arava-
mudan segir bókina
reyna að gefa vanda-
málinu mynd, gera það
raunverulegra fyrir
fólki.
Í bókinni gefur hún
dæmi um hvernig
stúlkubörnum hefur
verið fyrirkomið í
gegnum tíðina, þeim
hafi til dæmis verið drekkt í mjólk,
brennd lifandi í leirkrukkum og eitr-
að fyrir þau í móðurmjólkinni en nú
segir hún algengast að fóstrunum sé
eytt strax í móðurkviði.
Í Indlandi eru ströng viðurlög
gegn því að nota kyngreiningu
snemma á fósturskeiði í þessum til-
gangi og gegn því að eyða fóstri
vegna kyns og geta bæði læknar og
mæður sætt refsingu. Aravamudan
segir að lögin séu frá-
bær en aðeins á blaði –
þeim sé ekki beitt í
raun. Aravamudan
segir ungbarnadráp á
stúlkum svipað rað-
morðum en reglu-
bundnar fóstureyðing-
ar á stúlkum séu líkari
gereyðingu og vísar til
helfararinnar, nema nú
sé verið að útrýma eft-
ir kynferði.
Áður hafa yfirvöld í
Indlandi hvatt fólk til
að skilja dætur sínar
heldur eftir í opinber-
um byggingum heldur
en drepa þær en
Aravamudan segir það fáránlega
hugmynd enda sé með því gefið í
skyn að stúlkur séu í raun minna
virði heldur en drengir.
Nýlega kynntu yfirvöld nýja her-
ferð gegn kynbundnum fóstureyð-
ingum en í henni felst að skrá allar
þunganir kvenna og fylgjast svo
með tölu fæðinga. Áætlunin hefur
þó verið gagnrýnd og ekki talin
raunhæf.
Baráttan gegn
stúlknadrápum
Reiði Mótmæli gegn
stúlkufóstureyðingum.
Íslamabad. AP, AFP. | Hæstiréttur
Pakistans úrskurðaði í gær að
Pervez Musharraf, hershöfðingi og
forseti landsins, hefði brotið lög
með því að víkja Iftikhar Moham-
med Chaudry úr embætti forseta
dómstólsins. Úrskurðurinn er mik-
ið pólitískt áfall fyrir Musharraf.
Lögfræðingar og stjórnarandstæð-
ingar, sem höfðu mótmælt brott-
vikningunni, lýstu úrskurðinum
sem „sigri lýðræðisins“.
Er talið að Musharraf hafi aldr-
ei staðið eins höllum fæti frá því
að hann rændi völdunum árið
1999. Úrskurðurinn gæti torveldað
honum að fá pakistanska þingið til
að kjósa hann forseta í fimm ár til
viðbótar í haust.
Musharraf vék Chaudry úr emb-
ætti 9. mars og sakaði hann um að
hafa misnotað stöðu sína, meðal
annars með því að tryggja syni
sínum embætti í lögreglunni. Lög-
fræðingar og stjórnarandstæðing-
ar sökuðu hins vegar Musharraf
um að hafa rekið Chaudry til að
reyna að koma í veg fyrir að
hæstiréttur hindraði áform hans
um að fá þingið til að kjósa hann
forseta aftur með því að úrskurða
að það bryti í bága við stjórn-
arskrána. Lögfræðingar og stjórn-
arandstæðingar efndu til fjölda-
funda til að mótmæla brott-
vikningunni.
Lögfræðingar fagna
Hundruð lögfræðinga söfnuðust
saman á götum pakistanskra
borga í gær til að fagna niðurstöðu
hæstaréttar. Benazir Bhutto, fyrr-
verandi forsætisráðherra Pakist-
ans, sem er í útlegð, sagði þetta
einn af merkustu úrskurðum í
sögu hæstaréttar landsins.
Tíu dómarar réttarins komust
að þeirri niðurstöðu að Musharraf
hefði brotið lögin og þrír dómarar
voru á öndverðum meiði. Stjórn
Musharrafs sagðist ætla að virða
niðurstöðu dómstólsins. Musharraf
á einnig undir högg að sækja
vegna mannskæðra sprengjutil-
ræða og átaka í Pakistan síðustu
vikur. Um 290 manns hafa beðið
bana í árásunum eftir að átök
blossuðu upp milli hermanna og
íslamista í Rauðu moskunni í Ísl-
amabad 3. þessa mánaðar.
Mikið áfall fyrir
Musharraf